Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 17
Laugardagur 30. september 1995 17 Umsjón: Birgir Cubmundsson IVI eö sínu nefi Enn er óskalag í þættinum og greinilegt aö þaö eru gömlu dæg- urlögin sem lifa og fólk vill syngja. Lagiö Angelía, sem Dúmbó og Steini gerðu frægt á sínum tíma og Vilhjálmur Vilhjálmsson söng einnig inn á plötu í upphafi áttunda áratugarins. Lagið er erlent, eftir W. Meisel, en íslenski textinn er eftir Theodór Ein- arsson. Hann er til í tveimur útgáfum, en hér er fariö eftir text- anum sem Dúmbó og Steini sungu. Góöa söngskemmtun. ANGELIA Em H7 Þegar ég á æskuárum ungur vár, Em átti ég mér fagrar ljúfar minningar. Am Nú eru þær horfnar, horfnar Em í hinsta sinn til grafar bornar, Fís H7 æskutaugar allar sundur skornar. Em H 02300 0 X 2 1 3 0 4 Am 1 1 < > < M » Fís (Ges) X 0 2 3 I 0 < 1 U i ( > < ► X 3 4 2 1 1 Em H7 Ég vildi ég væri dáinn, grafinn, gleymdur nár, Em hjartans vina, lækna þú mín hjartans sár, Am Em því þér og engum öörum mun ég treysta H7 Em C H7 aö í mér glæði lítinn vonarneista. Hví ertu svona dapur, kæri vinur minn? Hvað er þaö sem þyngir svona huga þinn? Er þaö einhver hulinn harrnur? Hví er votur augnahvarmur? Komdu hérna, kæri, hér er minn armur. Get ég nokkuð huggað þína hrelldu sál? Hjartans vinur, segöu mér þitt leyndarmál. Eg sé það eru votar varir þínar. Ó, viltu ekki leggja þær viö mínar? Angelía, ég á sorg sem enginn veit. Undrar þig þótt renni tár um kinnar heit? Ég mun hana engum segja, þótt ég ætti nú strax aö deyja, á undan þér, mín elskulega meyja. Ég hef eignast v'onir, ég hef eignast þrá. Ég hef eignast þaö sem ég segi engum frá. Allt er horfiö frá mér, gleymt og glatað. Nú get ég ekki iengur veginn ratað. Nú get ég ekki lengur veginn rataö. C X 3 2 0 1 O Sjálfsbjörg - lcmdssamband fatlaðra Viðurkenningar fyrir gott aðgengi Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur ákveðið að veita fyrirtækjum og þjónustuaðilum um land allt viðurkenningar fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra. Viðurkenningarnar verða veittar árlega á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember, í fyrsta skipti nú f vetur. Um er að ræða tvenns konar viðurkenningar: 1. Fyrir fullkomlega aðgengilegt húsnæði, bæði fyrir gesti og starfsmenn fyrirtækja og stofnana. 2. Fyrir lagfæringu á áður óaðgengilegu húsnæði til verulegra bóta fyrir hreyfihamlaða. Þeir aðilar, sem vilja koma til greina á þessu ári, geta óskað eftir úttekt á aðgengi hjá Sjálfsbjörgu, L.s.f., fyrir 1. október 1995. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 552 9133. eY&r/&/c Samda^s/aían 200 gr smjör 180 gr sykur 3egg 125 gr hveiti 1 tsk. lyftiduft 100 gr hnetur 100 gr suðusúkkulaði 1 stórt glas veiþroskuð bláber Smjör og sykur hrært létt og ljóst. Eggjunum hrært út í, einu í senn, og hrært vel á milli. Hneturnar og súkkulaö- iö saxaö og sett saman viö hræruna, ásamt hveitinu og lyftiduftinu. Bláberjunum blandaö saman viö deigiö og þaö sett í vel smurt form og bakað viö 180° í ca. 1 klst. neö- arlega í ofninum. Kakan borin fram volg með þeyttum rjóma. 100 gr smjör 1/4 I mjóik (1 peli) 50 gr ger 1 egg 1/2 tsk. salt 85 gr sykur Ca. 400 gr hveiti 2-3 epli Bræðið smjörið, bætið mjólkinni út í, hafið blönd- una ylvolga. Geriö hrært út í. Hræriö salti, sykri og ca. helm- ingi hveitisins út í, hræriö vel saman í kekkjalaust deig og bætiö þá meira hveiti út í, svo úr veröi mjúkt deig. Deigið sett meö tveimur skeiðum í pappírsform og smá eplabit- um stungið niður í hvert form. Bollurnar látnar hefa sig í 30- 40 mín. Smurt yfir bollurnar meö hræröu eggi og perlusykri stráö yfir. Bollurnar bakaöar viö 225° í 8-10 mín. Bestar eru bollurnar nýbakaöar. Bofflur m/’ se$amfítcæi 50 gr ger 2 1/2 dl vatn 150 gr rifinn ostur 1 msk. sykur 1/2 msk. sesamfræ 1/2 tsk. salt 1/2 dl haframjöl Ca. 7 dl hveiti Egg til að smyrja yfir boll- urnar og sesamfræi stráð yfir Gerið er hrært út í ylvolgu vatninu. Ostur, sykur, sesam- fræ, salt og haframjöl blandaö saman viö. Bætið hveitinu út í þar til myndast jafnt og mjúkt deig. Stykki sett yfir skálina og deigiö látið lyfta sér í ca. 30-40 mín. Hræröu eggi smurt yfir bollurnar, sem búnar hafa ver- iö til úr deiginu (ca. 20-25 stk.). Þær settar á plötu og látnar lyfta sér í ca. 30 mín. Se- samfræi stráö yfir bollurnar eftir að þær hafa veriö smurö- ar meö egginu. Bollurnar bak- aöar gylltar við 225° í ca. 10 Viö brosum Langafi varð 100 ára um daginn. Borgarstjórinn kom í heim- sókn í tilefni dagsins meö blóm og hamingjuóskir. „Og hvaö er svo merkilegast við að veröa 100 ára?" spuröi hann. Langafi hallaði undir flatt og svaraöi: „Ja, ætli það sé ekki bara þaö að vera fæddur 1895." Þaö er erfitt að vera kona. Maður þarf aö hugsa eins og karl- maöur, haga sér eins og dama, vera í útliti eins og stelpa og vinna eins og hestur. Palli: Af hverju galar haninn, mamma? Mamma: Þá er einhver sem segir ósatt. Palli: En af hverju galar hann svo mikið snemma á fimmtu- dagsmorgnum? Mamma: Þá er Helgarpósturinn að koma út. Eiginkonan: Hver er þessi María sem þú talar svo mikiö um upp úr svefni? Eiginmaðurinn: Það er hesturinn sem ég veðjaði á. Daginn eftir, þegar maöurinn kom heim, sagði kona hans ill- kvittnislega: „Elskan mín, hesturinn þinn hringdi til þín." Eldri hjón voru komin til himna og dásömubu útsýnib. „En hvab hér er allt yndislegt," sagbi kon- an. „já, “ sagbi maburinn hógvcer. „Hugsabu þér bara, ab vib hefb- um getab verib komin hingab fyrir löngu, efþú hefbir ekki allt- af verib ab þrœla ofan í okkur þessu heilsufcebi." mín. Bragðast sérstaklega vel nýbakaðar meö osti, smjöri og marmelaði. jf'fýóna deggert 500 gr ribsber 150 gr sykur 75 gr hrísgrjón 1/2 1 mjólk 25 gr sykur Örlítið salt 3 matarlímsblöö 1/2 vanillustöng 2 1/2 dl rjómi (þeyttur) Ribsberin skoluö og látin standa með sykrinum í ca. 2 tíma. Hrísgrjónin skoluö og soöin meö mjólkinni, salti, sykri (25 gr) og vanillustöng- inni í ca. 30 mín. Matarlímiö lagt í kalt vatn smástund, tek- iö upp úr og sett út í heitan hrísgrjónagrautinn. Látiö kólna. Þeyttum rjómanum bætt út í grautinn og hann svo settur í skál eða litlar skálar (grautur — ribsber til skiptis eöa berin bara höfö efst eftir smekk hvers og eins). Ef þessi dessert er settur í smáskálar fyrir hvern og einn, er alveg óþarfi aö nota matarlím. En ef viö notum t.d. form, sem viö hvolfum dessertnum úr, þarf matarlím. Þá er formiö sett að- eins í volgt vatn til aö iosna úr. Vissir þú ab ... 1. Moskva hefur flesta íbúa allra borga í Evrópu, ca. 9 milljónir manna. 2. Ronald Reagan, fyrr- verandi forseti Bandaríkj- anna, þjáist af Alzheim- er-sjúkdómi. 3. Búddatrú eru elstu trú- arbrögö heimsins, frá 500 f.Kr. 4. Edison á heiöurinn af uppfinningu ljósaper- unnar. 5. Besti vinur Freds Flint- stone heitir Barney. 6. Fylki Bandaríkjanna eru 50 talsins. 7. Alfred Hitchcock var framleiðandi hryllings- kvikmynda. 8. „Paso doble" er spænskur dans. 9. Andesfjöllin eru í Suð- ur-Ameríku. 10. Ræningjar Soffíu frænku voru Kasper, Jesper og Jónatan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.