Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 13

Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 30. september 1995 13 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Stefan Heym: Fer af þingi Bonn — Reuter Rithöfundurinn Stefan Heym, sem er aldursforseti þýska sam- bandsþingsins, hefur sagt af sér þingmennsku í mótmælaskyni viö þá ákvöröun þingsins aö hækka laun þingmanna. Hann hefur setiö á þingi fyrir PDS, arftaka austur-þýska kommún- istaflokksins. Hann hefur veriö óspar á gagnrýni á þýsku stjórnina eftir aö þýsku ríkin sameinuöust, en var valdhöf- um Austur-Þýskalands engu síöur erfiöur í skauti á sínum tíma. ■ Kúba: Hin nýja bylting í aöeins um 100 kílómetra fjarlægö frá Kúbu er land draumanna, tækifæranna og Iystisemdanna, Bandaríkin. Eöa þannig hafa a.m.k. tug- þúsundir Kúbumanna litiö á máliö og gert allt til þess aö komast úr hinni sósíalísku paradís Fidels Castros, sem hefur hingaö til veriö manna haröastur í aö ástunda Marx- Leninísma í efnahagslegu og pólitísku tilliti. Þaö er staö- reynd aö sameignarbúskapur- inn í efnahagskerfi Kúbu hef- ur Ieitt landiö í ógöngur og lífsgæöi þar eru ekki sambæri- leg viö þaö sem þekkist á Vest- urlöndum. En á Kúbu, rétt eins og víöa annarsstaöar blása nú vindar breytinga. ygl' eykur þol Virkar m.a. gegn: Einbeitingarskorti, streitu, þreytu og afkastarýrnun. Einnig gott fyrir aldraba Erlendum fjárfestum hleypt inn Nú hyggst stjórn Castro koma á hlutabréfamarkaði og fyrir- myndina á að sækja til Mexíkó. Breytingarnar sem eru í vænd- um eru svo miklar aö tímaritið Economist hefur talaö um að nú sé e.t.v.að fæðast á Kúbu efna- hagslegt veldi. Nýlega sáust skýr merki um breytingar, en þá var erlendum fjárfestum leyft aö kaupa eða leigja eignir og verð- mæti á Kúbu, fjárfesta í fyrir- tækjum á eyjunni og efna til samstarfs viö innlenda aðila. Nú er útlendingum leyfilegt aö fjár- festa í öllu nema því sem tengist landvörnum, lyfjaframleiðslu og menntun. Aðeins einn galli er á gjöf Njarðar: hlutabréfa- markaðurinn verður ekki opn- aður fyrr en a.m.k. eftir ár og því verður einhver bið á því að hægt verði að kaupa hlutabréf á opnum markaði. Þangað til verða fjárfestar að fara aðrar leiðir, s.s. í gegnum erlenda sjóði. Fjárfestar renna hýru auga til lyfjaframleiðslunnar, því vegna víðtæks viðskiptabanns Banda- ríkjamanna á Kúbu hefur inn- flutningur á vestrænum lyfjum verið mjög takmarkaður. Því hafa Kúbumenn framleitt sín eigin lyf og hafa þeir náö mjög góðum árangri, þykja standa jafnfætis vestrænum framleið- endum. Þeir hafa m.a. framleitt um árabil eitt besta lyfið gegn heilahimnubólgu. Það fæst ekki í Bandaríkjunum, vegna þeirra eigin viðskiptabanns. Framleibsluhrun Á síðustu árum hefur orðið hrun í framleiðslu Kúbu. Á aö- eins einu ári, milli 1993 og 1994 minnkaði þjóðarframleiðsla um 34% og á árunum 1990-1994 dróst útflutningur saman um 80%. Við þessu urðu stjórnvöld að bregðast og í hitteðfyrra var samyrkjubúskap að sóvéskri fyr- Minningin lifir! Byltingarleiötoginn Che Guevara hefur veriö endurlífgaöur í formi bjórs. Hann er því oröinn hluti af hinni nýju kúbversku byltingu, sem er meö kapítalískum formerkjum. Skyldi hann vera búinn aö snúa sér viö ígröfinni? irmynd hætt, framleiðendum leyft að stunda sitt fag frjálsir og aö hirða af því ágóða. En Castro þykir enn vænt um Marx-Len- inismann og vill ekki sleppa eldsnöggt af honum hendinni. Bjartasta von Kúbumanna er hinsvegar ferðaiðnaðurinn. í bók sinni, „Our Man in Havana", gerði breski rithöf- undurinn Graham Greene Kúbu nær ódauðlega með lýs- ingum sínum af spilavítum og þeirri vændismenningu sem var svo áberandi á tímum Batista stjórnarinnar. Þegar Castro komst til valda í janúar 1959 upprætti hann spillinguna en lét byggingar og slíka hluti eiga sig. Því hefur ásýnd eyjunnar nokkurn veginn haldið sér, þrátt fyrir að viðhald skorti til- finnanlega. Bjargar ferbaþjónustan Kúbu? Margt bendir til þess að það sé því ferðaiðnaðurinn sem komi Kúbu til bjargar. Margfeldisáhrif eru mikil í greininni og telja menn aö þetta muni koma bæði aðilum í framleiðslu og þjón- ustu vel: „Kúba hefur stórkost- lega möguleika í ferðaiðnaði, strandlengjan er hundruðir kílómetra að lengd, fjallafegurð er mikil. Hér eru gríðarlega mik- ilir fjárfestingarmöguleikar," segir Lila Haines hjá fyrirtækinu Kúbuviðskiptum. Byltingarbjór Þess er því kannski ekki langt að bíöa að strendur Kúbu verði fullar af ferðamönnum sleikj- andi sólina og sötrandi Che bjórinn, sem er sá nýjasti á Kúbu, skíröur í höfuðið á Che Guevara, helsta félaga Castros í byltingunni. Þessi bjór er bann- aður í Bandaríkjunum, vegna þess að hann inniheldur „- kúbversk efni". Það er e.t.v. tím- anna tákn að annar helsti bylt- ingarleiðtogi Kúbu sé orðinn að vörumerki, eða sjá íslendingar það kannski fyrir sér aö fara inn á öldurhús og fá sér einn ,,Jón"(Sigurðsson)? Byggt á The Sunday Times Shimon Peres: Sjálfstæð Palestína draumur einn Washington — Reuter Shimon Peres, utanríkisráb- herra ísraels, sagbi í gær ab hugmyndir Jassers Arafats um sjálfstætt ríki Palestínumanna væru draumórar einir. Líklegra væri ab myndað verbi sam- bandsríki Jórdaníu og Palest- ínu þegar frá líbur. Hann sagði þó ab Arafat mætti dreyma um hvað sem honum sýndist, en „við sömdum ekki um drauma. Við komumst að samkomulagi um raunvemleik- ann eins og hann er," sagöi Per- es. „Ég held að besta lausnin, og ég segi þab með fullri virbingu fyrir Arafat, verði sambandsríki Jórdaníu og Palestínu sem gerði öllum Palestínumönnum kleift að sameinast og gerbi okkur kleift ab sjá til þess að þeir hlutar landsins sem eru mikilvægir fyrir öryggi okkar verði herlausir." Um sjálfstætt Palestínuríki sagði hann ennfremur: „Ég held að þetta sé partur af því sem hann (Arafat) dreymir um, en þar eð við höfum átt svo margar stundir saman. þykist ég vita ab hann sé líka sannfærður um að raunverulega lausnin sé byggb á sambandi Jórdaníu og Palestínu, og þab er það sem mun gerast að ég held." ■ Þingkosningar í Portúgal á morgun: Búist við aö stjómin Lissabon — Reuter Samkvæmt skoðanakönnunum eru allar líkur á því ab sigurveg- ari þingkosninganna í Portúgal á morgun verbi Sósíalistaflokk- urinn, sem verib hefur í stjórn- arandstöðu undanfarin 10 ár. Svo virbist sem Portúgalir séu búnir ab fá sig fullsadda af stjórn Sósíaldemókrataflokks- ins, sem er íhaldsflokkur undir stjórn Anibals Cavacos Silvas forsætisrábherra. Raunar er mjótt á mununum milli atkvæðafylgis Sósíalista- flokksins og Sósíaldemókrata- flokksins samkvæmt skoðana- könnunum og nánast öruggt þyk- ir að enginn einn flokkur muni ná meirihluta á þingi.-Það eru því allar líkur á því að mynda þurfi minnihlutastjórn að loknum kosningum, en Silva hefur haft þingmeirihluta í áratug. falli Stjórnarflokkurinn hefur hamr- að á því í kosningabaráttunni að Portúgal þurfi á sterkri meiri- hlutastjórn að halda til þess að takast á við efnahagsleg og félags- leg vandamál sem við blasa, ekki megi varpa fyrir róða þeim stöð- ugleika í stjórnmálum sem ríkt hefur síðustu tíu árin eftir að meirihlutastjórn flokksins komst til valda. Svo virðist sem kjósend- ur kæri sig kollótta um þaö og séu búnir að gleyma ástandinu sem var þegar óstöðugar minnihluta- stjórnir komu og fóru. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.