Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 19

Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 30. september 1995 19 Ríkarður Gestsson Með Ríkarði Gestssyni í Bakka- gerði í Svarfaðardal er genginn kær frændi og góður vinur. Rík- arður var einn af þeim mönn- um sem settu mikinn svip á um- hverfi sitt og mannlíf. Ekki vegna þess að hann værl svo íhlutunarsamur um málefni annarra, heldur vegna þess hve hann var sérstæbur og hlýr maður og drengur góður. Hann var rnaður hreinskiptinn og lét engan eiga hjá sér, glaðbeittur og spaugsamur og höfundur að mörgum frumlegum spakmæl- urn og orbatiltækjum, sem fyrir löngu eru orðin sveitungum hans munntöm. Hann var vin- margur og gestrisinn. Að heim- sækja hann fannst mér eins og að koma inn í hlýja og sólríka stofu, þótt um skammdegi væri, og var þab kynfylgja frá foreldr- um hans, Sigrúnu Júlíusdóttur frá Syðra- Garðshorni og Gesti Vilhjálmssyni frá Bakka. Þau hjónin hófu búskap í Bakkageröi árib 1919, landlítilli jörb og rýrri þá. Von bráðar breyttu þau jörðinni í þægilegt býli að ræktuðu landi og hús- um. Sigrún og Gestur voru ákaf- lega samhent og hjónaband þeirra ástríkt og heimilið gott, enda bera börn þeirra merki hins góða arfs og uppeldis frá foreldrum sínum, sem hefur enst þeim vel í lífsbaráttunni. Ríkarður var þriðji í röðinni af fimm systkinum. Hin eru: Hlíf, f. 1916, búsett í Reykjavík, átti t MINNING Sigurgeir Sigfússon bifreiðar- stjóra sem nú er látinn; Björn, f. 1918, fyrrverandi bóndi á Björg- um í Hörgárdal, giftur Sigríði Magnúsdóttur; Jóhanna María, f. 1925, fyrrverandi forstöðu- kona, gift Grétari Guðjónssyni, hafnarverði í Reykjavík, og Kristín, f. 1930, fyrrverandi bæj- arfulltrúi á Dalvík, maður henn- ar er Friðþjófur Þórarinsson deildarstjóri. Ríkaröur átti alla ævi heimili í Bakkagerði. Hann giftist ekki, vann að búi foreldra sinna, en stundaði oft vinnu utan heimil- is og síðustu starfsár sín var hann starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík. Sá sem þessar línur ritar ólst upp á næsta bæ og eru jarðirnar Bakkagerði og Syðra-Garðshorn nær samtýnis og bæjarleiðin stutt. Tíðförult var á milli heim- ilanna ýmissa erinda og var harðtroðin slóð í túnið milli bæjanna til vitnis um það. Minnisstæö eru heimbobin í Bakkagerði um jólaleytið með leikjum sínum og gleði og góm- sætum veitingum, og ennþá finn ég bragöið af súkkulaðinu hennar Sigrúnar frænku. Eða þá af jólakökunni hennar og soðna brauðinu, sem hún gæddi okkur bræðrunum á þegar við vorum að slá með orfum á Ennunum hjá Bakkagerði. Ríkarður var félagslyndur og’á yngri árum áhugasamur félagi í Umf. Þorsteini Svörfuði og þótti duglegur að starfa í nefndum. Hann var líka félagi í Hinu Svarfdælska Söltunarfélagi, en þab er óformlegur félagsskapur nokkurra manna í Svarfdæla- byggð sem salta sjálfir kjöt sitt á haustin og slá síðan upp gleð- skap meb söng og yrkingum, því í þeim hópi eru hagorðir menn og söngelskir. Hefur mörg hnyttin bagan lifað frá þeim fundum, en þó fleiri farið í glatkistuna. Enn er að geta Jónsmessumót- anna í Bakkageröi, sem Ríkarður efndi til á hverju ári eftir að hann var orbinn einbúi þar og bauð þá vinum sínum úr Hinu Svarfdælska Söltunarfélagi og nokkrum öbrum til veislu. Það voru miklar glebistundir með söng og skáldskap og menning- arbrag og jafnan hætt teitinu klukkan tvö eftir miönætti, þeg- ar sólin var runnin upp yfir Látrafjöllin. Þar var Ríkarður allra manna glaðastur í glöðum hópi. Er nú skarð fyrir skildi og svarfdælskt mannlíf stórum fá- tækara nú þegar Ríkarður er fall- inn frá. En minningin um hann lifir og vermir. Við Þuríbur vottum systkin- um hans og fjölskyldum þeirra innilegustu samúð. Júlíus J. Daníelsson DAGBÓK ir ættu að geta valið sér gönguferð við hæfi. Þátttakendur fá sérstimpl- að göngukort í hverri ferð. Pir september X 273. dagur ársins - 92 dagar eftir. 39. vika Sólriskl. 17.32 sólarlag kl. 19.02 Dagurinn styttist um 7 mínutur Fundur hjá SSH SSH, Stuðnings- og sjálfshjálpar- hópur hálshnykkssjúklinga, heldur fund mánudaginn 2. október kl. 20 í ÍSÍ-hótelinu í Laugardal. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmað- ur verður gestur kvöldsins. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fyrsta fund sinn þriðjudag- inn 3. október kl. 20.30 í nýja safn- aðarheimili kirkjunnar. Rætt um vetrarstarfið, upplestur og kaffiveit- ingar. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Aðalfundur bridsdeildar félagsins er kl. 13 í dag í Risinu. Spilaður tví- menningur að fundi loknum. Féiagsvist kl. 14 í dag í Risinu. Dansað í Goðheimum kl. 20. Leikfimi í Víkingsheimilinu á mánudögum og fimmtudögum kl. 11.50. Upplýsingar á skrifstofu fé- lagsins, s. 5528812. Bókmenntakynning á þriðjudag, 3. okt., kl. 15. Félagar úr leikhópn- um Snúður og Snælda lesa úr verk- um Jóhannesar úr Kötlum. Gils Guömundsson rithöfundur rekur ævi og starf skáldsins. Ný raðganga Útivistar: Forn frægbarsetur Fyrsti áfangi raðgöngu Útivistar 1995 verður farinn á morgun, sunnudaginn 1. október. Nefnist hann: „Vík við Reykjarvík". Lagt verður af stað frá Ingólfstorgi kl. 10.30 og gengið út á bæjarstæði Víkur og þaðan í Ráðhúsið að ís- landslíkaninu. Fróðir menn leikir og lærðir munu kynna sögu Víkur og lýsa næsta nágrenni frá land- námi til síðustu aldamóta. Úr Ráð- húsinu verður farið kl. 12 og gengn- ar gamlar alfaraleiðir frá Vík. Á leið- inni verður ýmisiegt kynnt sem snertir Vík og ábúendur hennar. All- Kvikmyndasýning í MÍR Kvikmvndin, sem sýnd verður í bíósal MÍR um þessa helgi, er kvik- mynd Andreis Tarkovskíj „Solaris" frá 1972. Þetta er fræg vísindaskáld- sögumynd, gerð eftir sögu Stan- islaws Lem. Með aðalhlutverk fara Natalja Bondartsjúk, Donatas Banj- onis, Anatólíj Solonitsyn og Júríj Jarvet. Myndin er talsett á ensku. Hún verður sýnd á morgun, sunnu- dag, kl. 16 í bíósalnum, Vatnsstíg 10. Aögangur ókeypis og öllum heimill. Kristinn Már Pálmason sýnir í Gallerí Greip í dag, laugardag, opnar Kristinn Már Pálmason sýningu í Gallerí Greip, Hverfisgötu 82, Vitastígs- megin. Kristinn Már er fæddur 2. apríl 1967 í Keflavík. Hann er búsettur í Reykjavík. Kristinn Már útskrifaðist frá Mál- unardeild Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1994. Sýningin samanstendur af mál- verkum á plöttum í efri sal og inn- setningu í kjallara gallerísins. Verk- unum er ætlað að kalla fram spurn- ingar um vestræna menningu, neysluþjóðfélagið og breytni mannsins, en skírskota einnig til heföa málaralistarinnar. Þess ber að geta að Kristinn Már ARNAÐ HEILLA 95 ára afmæli 95 ára er í dag, 30. september, Jörína G. Jónsdóttir, Hjallaseli 55, Rvík. Hún verður stödd á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Goðalandi 16, síðdegis. tekur þátt í samsýningunni „Fram- lengingaráráttan", sem opnar á Sól- on íslandus á morgun, sunnudag. Sýningin stendur til 15. október. Caput-hópurinn: Tónleikar í Tjarnarbíói Á morgun, sunnudag, kl. 20.30 flytur Caput-hópurinn tónlist eftir Leif Þórarinsson á tónleikum í Tjarnarbíói. Hópurinn hefur tíðum flutt tónlist eftir Leif, en aidrei áður haldið tónleika þar sem eingöngu eru leikin verk eftir hann. Félagar í Caput-hópnum eru: Kol- beinn Bjarnason (flauta), Guðni Franzson (klarinetta), Auður Haf- steinsdóttir (fiðla), Bryndís Halla Gylfadóttir (selló), Snorri Sigfús Birgisson (píanó), Guörún Óskars- dóttir (semball), Páll Eyjólfsson (gít- ar), Eggert Pálsson (slagverk), Steef van Oosterhout (slagverk) og Sverrir Guðjónsson (söngur). Fréttir í vikulok Hugmyndir um ab leigubílar annist skólaakstur Félag framhaldsskólanema hefur átt í viðræöum við leigu- bíiastöðvar um hugsanlegan skólaakstur, í kjölfar hækkunar strætisvagnafargjalda. Enn deilt um launahækkun Kjaradóms Ekki eru öll kurl komin enn til grafar hvað varðar launúr- skurð Kjaradóms. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar funduðu meb forsætisráðherra í vikunni en margir telja að grundvöllur almennra kjarasamninga hafi brostiö þegar launahækkun al- þingsmanna og embættismanna átti sér stað. M.a. hafa Dags- brúnarmenn sagt að þeir telji samninga lausa. Harbur slagur í Alþýbubandalaginu Nú þegar hálfur mánubur er þangað til ljóst verbur hvort Margrét Frímannsdóttir eða Steingrímur J. Sigfússon hljóta kosningu sem formabur Alþýðubandalagsins, hefur aukin harka færst í baráttuna. Jóhanna Sigurðardóttir hefur lýst því yfir ab kosning Margrétar til formanns sé að hennar mati for- senda þess að vinstri flokkarnir geti sameinast. Steingrímur tel- ur að slíkt tal skemmi fyrir Margréti í baráttunni en skv. Gall- up-könnun hefur hún naumt forskot á Steingrím. Kartöfluuppskera í slöku meöallagi Samkvæmt upplýsingum úr Þykkvabænum virðist sem kart- öfluuppskeran verði í slöku meðallagi í ár. Tvö banaslys 16 ára piltur frá Grindavík lést í umferðarslysi á Þingeyri sl. helgi. Þá lést maður á níræðisaldri í Reykhólasveit þegar hann missti vald á fjórhjóli. Félagslega kerfiö endurskoöaö Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur skipað nefnd til að reyna að draga úr erfiðleikum sveitarfélaga vegna félagslega kerfisins. Þar hefur kaupskylda sveitarfélaganna m.a. verib til skoðunar. Unniö aö búvörusamningi Unnið er nótt og dag við nýjan búvörusamning þessa dag- ana. Rætt hefur verið um að hraba niðurskurði á sauðfé en Haukur Halldórsson, formaður framleiðnisviðs landbúnaðar- ins, telur ab einkum þurfi ab efla markaösátak í stað þess ab fækka sauðfé.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.