Tíminn - 12.10.1995, Side 2
2
Fimmtudagur 12. október 1995
Tíminn
spyr...
Hvert er álit þitt á hugmynd-
um sem fram hafa komib til a&
bæta ástandib í mi&borg
Reykjavíkur?
Árni Sigfússon borgarfulltrúi:
„Ég vil taka fram að þessar hug-
myndir hafa verið kynntar fjöl-
miölum, en ekki fengið umfjöllun í
nefndum borgarinnar. í fljótu
bragði sýnist mér hins vegar út í
hött að ætla að breyting á sjálfræð-
isaldri breyti einhverju um vand-
ann í miðbænum. Ég tel líka mjög
vafasamt aö hertar reglur um veit-
ingahús í miöbænum leysi ein-
hvern vanda. Ég vil mótmæla því
að um sé að ræða unglingavanda-
mál. Þetta vandamál snýr miklu
frekar að okkur foreldrum og þeim
reglum sem við eigum að geta
framfylgt gagnvart uppeldi barna
okkar."
Siguröur Orri Jónsson, formaður
Félags framhaldsskólanema:
„Ég álít að tillögurnar eigi ekki
eftir að bæta ástandið í miðbænum.
Opnunartími skemmtistaða hefur
t.d. engin áhrif hvað varðar fólk á
okkar aldri, því í flestum tilfellum
komumst við ekki inn á staðina. Ég
er aftur á móti sammála því að setja
upp eftirlitsmyndavélar. En ef ætl-
unin er aö koma fólki úr miöbæn-
um, þarf miklu róttækari aögeröir,
t.d. að koma upp skemmtistað fyrir
fólk á þessum aldri."
Bragi Gubbrandsson, forstjóri
Barnavemdarstofu:
„Vandinn er tvíþættur. Annars
vegar felst hann í því hversu mörg
börn eru í miöbænum um helgar
og hins vegar í litlum en áberandi
hópi sem fer um meö ofbeldi. Til-
lögur borgaryfirvalda til að ná tök-
um á ástandinu finnst mér mis-
spennandi. Ég vil sérstaklega taka
undir tillögu um hækkun sjálfræð-
isaldurs, þótt hún bæti ekki ástand-
ib í miðbænum ein og sér. Mér líst
síður á tillögu um að loka veitinga-
húsum fyrr. Ég held aö það færi aö-
eins vandann til í tíma, en leysi
hann ekki."
Viömœlendur hverfisblaösins Granna segja stórfellda vœndisstarfsemi
stundaöa í Reykjavík, en lögreglan líti undan. YfirlÖgregluþjónn RLR:
Símaþjónustur á
dökkgráu svæði
í hverfisbla&i Vesturbæinga,
Granna, gat nýverib a& líta
grein þar sem þrír einstaklingar
eru teknir tali: 14,16 og 18 ára.
Þeir eiga þaö sammerkt a& segj-
ast hafa lifibraub sitt af vændi.
Vi&mælendurnir segja lögregl-
una loka augunum fyrir því a&
vændi sé stundað í borginni.
í hegningarlögunum, grein
206/92, segir: „Hver sem stundar
vændi sér til framfærslu skal sæta
fangelsi allt aö tveimur árum.
Hver sem hefur atvinnu eða við-
urværi sitt af lauslæti annarra
skal sæta fangelsi allt að fjórum
árum."
Með öðrum orðum verður við-
komandi að hafa lifibrauð sitt af
vændi til að vera sakhæfur. Það er
ekki saknæmt aö selja líkama
sinn um helgar, en stunda aöra
vinnu þess á milli.
Tíminn spurði Ómar Smára Ár-
mannsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjón af hverju vændi kæmi ekki
upp á yfirboröið hérlendis eins
og annars staðar í nágrannalönd-
unum.
„Það geta margar orsakir legið
að baki því. T.d. hafa hingaö til
nánast allir þekkt alla, smæö
landsins getur valdiö þessu. Þeir,
sem hafa haft áhuga á kynlífi,
hafa ekki átt erfitt með að finna
það og fá sinni fíkn svalaö, ef svo
ber undir. Markaður fyrir skipu-
lagt vændi
hefur því ver-
ið lítill fram
aðþessu."
Ómar Smári
segir lögregl-
una fá af og til
vísbendingar
um þessi mál,
en athugun
hafi ekki
sannað að
s k i p u 1 a g t
vændi sé
stundað hér-
lendis. Ýmsar
breytingar í
þjóðfélaginu
nýverið, s.s.
aukin fíkni-
efnaneysla og
símaþjónust-
ur, séu þó vís-
bendingar um
að líkurnar á
skipulögðu
vændi hafi aukist. Lögreglan
grípi að sjálfsögðu inn í, ef slíkt
sannist.
Aðspurður hvort lögreglan
hyggist beina sjónum sínum í
auknum mæli að þessum málum,
segir Ómar Smári að lögreglan sé
á varðbergi. Þau tilvik, sem könn-
uð hafi verið hingað til eftir vís-
bendingar, hafi hins vegar ekki
átt við rök að styðjast.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá RLR, segir engar
sérstakar vísbendingar hafa kom-
ið fram nýverið sem bendi til þess
að skipulagt vændi sé stundað
hérlendis, en þó sé það skoðun
hans að ákveðin símaþjónustu-
fyrirtæki séu á mjög gráu svæði.
Aðeins einn dómur hefur fallið
hérlendis um vændi og er hann
frá stríðsárunum. -BÞ
| Sagt var...
Mennt er máttur
„Strákurinn rétt kom heim til að
kasta frá sér skólatöskunni og sagðist
vera ab fara á bókasafnið. Ég varö
undrandi á þessum skyndilega áhuga
og spurbi hvaö stæbi til. Þá sagöist
hann vera ab fara ab skoba klámib."
Kolbrún Albertsdóttir, móbir átta ára
drengs í Breibholti. Skv. frétt DV eru
„ klámmyndir á Internetinu opnar fyrir
krakka í Menningarmibstöbinni, Gerbu-
bergi.
Verkalýbshreyfingln ónýt
„Allir vita þab, flestir viburkenna þaö:
verkalýbshreyfinqin er lémagna dín-
ósár sem hefur eKki einu sinni þrek til
aö geispa golunni."
Hrafn jökulsson í Alþýbublabinu.
Formabur hússtjórnar?
„Þegar Benedikt Davíbsson kemur
fram í sjónvarpi — lítur hann þá út
eins og maöur sem hefur umbobj
launamálum frá tugum þúsunda ís-
lendinga? Nei, þesi mæbulepi heiö-
ursmabur sem vib sjáum í sjonvarp-
inu, kvöld eftir kvöld, gæti í hæsta
lagi verib formabur hússtjórnar í
blokk að kvarta yfir hávaba í næsta
stigagangi."
Sami Hrafn í sama blabi. Engum dylst
hugur ab ímyndunarafl Alþýbublab-
spiltanna er ágætlega frjótt.
Tilurb búvörusamningsins
skrýtnust
„Búvörusamningurinn sem nú liggur
fyrir er afar skrýtinn. Hann er auovit-
ab skrýtnastur fyrir þær sakir ab hann
skuli yfirleitt veröa geröur, en fyrir
ví eru söcjulegar forsendur sem
yggjast a yfir 60 ára afskiptum ríkis-
valdsins af íslenskum landbúnabi."
Mogginn í gær.
Um mikilvægi fjölmibla
„Fjölmiölar hafa löngum verib í hlut-
verki gagnrýnandans og abhaldsins,
einkum gagnvart stjórnvöldum,
embættismannakerfinu og yfirleitt
þeim sem áhrifa- og valdastöbum
gec|na ... Almenningur í landinu á
skýlausa kröfu á því ab fjölmiölar
ræki þab hlutverk sitt af samvisku-
semi, sannfæringu og elju. En til þess
ab svo sé í raun, veröa fjölmiblar ab
ástunda sjálfsgagnrýni í auknum
mæli og gera sömu kröfur til sjálfra
sín og þeirra vinnubragba sem þar
eru ástunduö og þeir gera á hendur
þeim sem þeir reyna dag hvern að
veitá abhald í þjóðfélaginu."
Morgunblabib skrifar um sjálft sig og
kollega sína í leibara.
53 látist á tíu árum í árekstrum viö mœtingar á vegum:
22 dauðaslys vegna hálku
Skv. upplýsingum frá Umferð-
arrá&i hafa sl. 10 ár 53 látist í
umfer&arslysum sem ur&u
meö þeim hætti a& tvö öku-
tæki voru aö mætast á beinum
vegi e&a í beygju.
Þar af vom 27 ökumenn, 17
farþegar í farþegasæti, 5 farþeg-
ar í aftursæti, einn ökumaður
bifhjóls og einn farþegi á bif-
hjóli. 22 dauðaslys af þessum 53
má rekja til hálku.
Á tímabilinu hafa allt að
37,5% banaslysa orðiö með
þessum hætti og það sem af er
ársins hafa 27,8% beðið bana í
árekstri tveggja bíla sem hafa
verið að mætast á vegi.
Umferðarráð biður ökumenn
að hafa þessa dapurlegu stað-
reynd í huga. í fréttatilkynn-
ingu segir að án þess að mat sé
Iagt á þau slys sem orðiö hafa
undanfarna daga, þurfi öku-
menn almennt að minnast þess
að því hraðar sem ekið er, því al-
varlegri verði afleiðingarnar ef
eitthvað beri út af á vegum þar
sem aöeins ein akrein er í hvora
akstursstefnu. -BÞ
í pottinum voru menn ab velta fyrir sér
hversu lengi grein eftir Gunnar G.
Schram hafi legiö óbirt á Mogganum,
en greinin birtist í gær á blaösíbu 30
undir fyrirsögninni „Yfirgangur Norb-
manna á Norðurhöfum". Þykir mörg-
um sem þessi rábgjafi fyrrverandi utan-
ríkisrábherra sé kominn hallærislega á
skjön vib hib almenna vibhorf í þjóbfé-
laginu meb stríbsæsingum sínum. Sem
kunnugt er munu nú horfur á samn-
ingum um Barentshafib og blómleg
vibskipti fylgja í kjölfarib. Tímasetningin
á birtingu greinarinnar er því afar
óheppileg.
•
Nú velta menn því fyrir sér hvort heil-
brigbisrábherra, Ingibjörg Pálmadótt-
ir, muni segja B eftir ab hún sagbi A.
Kenningasmibirnir segja ab A-hluti leik-
fléttu hennar hafi verib ab rába Davíb
Á. Gunnarsson í rábuneytisstjórastöbu
í heilbrigbisrábuneytinu, en B-hlutinn
sé svo ab rába Gubmund G. Þórarins-
son, stjórnarformann Ríkisspítalanna,
sem forstjóra Ríkisspítalanna.
•
Mikib hefur verib skeggrætt um þab
hvar í ósköpunum Gubmundur
Bjarnason landbúnabarrábherra var á
meban búvörusamningurinn var í
kynningu í síbustu viku. Ýmsir köllubu
fjarveru Gubmundar pólitísk klókindi
en abrir pólitísk mistök, sérstaklega ab
hann hafi ekki verib á stabnum þeagar
samningurinn var kynntur í hans kjör-
dæmi. í pottinum hefur nú verib upp-
lýst að Gubmundur fór í vikuferb til
Ítalíu ab labba þar í Ölpunum, og ferb-
in mun hafa verib skipulögb og frá-
gengin löngu ábur en tímasetning bú-
vörusamningsins varb Ijós.