Tíminn - 12.10.1995, Side 3
Fimmtudagur 12. október 1995
1S$#íí»w
3
SUS um búvörusamn-
inginn:
Vonbrigði
í ályktun frá Sambandi
ungra sjálfstæbismanna
segir að þab valdi von-
brigöum hvernig ríkis-
stjórnin undir forystu
Sjálfstæbisflokksins hafi
staðið ab gerð nýja bú-
vörusamningsins.
„Því veldur það vonbrigð-
um að ríkisstjórn undir for-
ystu Sjálfstæðisflokksins
skuli ekki nýta það tækifæri
sem nú gefst, þegar núgild-
andi búvörusamningur er
að renna út, að losa íslensk-
an landbúnað í eitt skipti
fyrir öll úr viðjum ríkisaf-
skipta og koma strax á virkri
samkeppni í greininni sem
er nauðsynleg til að íslensk-
ur landbúnaður eigi mögu-
leika," segir m.a. í ályktun-
inni. -BÞ
Nefnd á vegum SSH leggur til oð sveitarfélögin hafi samvinnu um
nokkur verkefni frœbsluskrifstofanna:
Siguröur Hróarsson, leikhússtjóri Borgarleikhússins:
Aðstöbumunur leik-
húsanna gífurlegur
Hvert sveitarfélag reki eigin
skólaskrifstofu en þau hafi
samvinnu um einstaka mála-
flokka. Þetta er meðal þess
sem lagt er til í tillögu nefnd-
ar á vegum samtaka sveitarfé-
laga á höfubborgarsvæbinu
sem fjallar um málefni grunn-
skólans
Nefndin hefur skilað af sér
bráðabirgðaáliti sem er nú til
umsagnar hjá sveitarfélögun-
um. A aðalfundi SSH sem hald-
inn var um síðustu helgi var
nefndinni falið að halda vinnu
sinni áfram á sömu braut. í
bráðabirgðaáliti nefndarinnar
koma fram fjórar megintillögur.
Gert er ráð fyrir að hvert sveit-
arfélag reki eigin skólaskrif-
stofu. Hins vegar er lagt til að
samvinna verði á milli sveitarfé-
laganna um nokkur verkefni
sem nú eru leyst á vegum
fræðsluskrifstofanna í Reykjavík
og á Reykjanesi. Meðal þeirra
verkefna eru sálfræöiþjónusta,
nýbúafræðsla, fræðslufundir og
námskeið og mat á skólastarfi.
í greinargerð nefndarinnar
Össur Skarphéöinsson, formaöur heilbrigöis- og
trygginganefndar:
Sé engin rök
fyrir frestun
„Ég er á móti því ab þessu
verbi frestab meira," sagbi
Össur Skarphébinsson for-
mabur heilbrigbis- og trygg-
inganefndar Alþingis um gild-
istöku ákvæba í lyfjalögum.
Össur segir að þarna muni
koma fram, eins og almennt þar
sem samkeppni ríkir, að sam-
keppnin leiði til bættrar þjón-
ustu og nýmæla eins og þeirra
sem Lyfju-menn hafa boöað,
meðal annars að lyfjafræðingur-
inn verði færöur fram í búðina.
Þá muni samkeppni leiða til
minni kostnaðar sem væri sigur
fyrir neytandann í lægra verði
og á óbeinan hátt þar sem þetta
myndi draga úr útgjöldum ríkis-
ins.
Fjármálaráðuneytið hefur
metið breytinguna sem 100
milljón króna Iægri kostnað fyr-
ir ríkið á ári. Heilbrigðisráðherra
er annarrar skoðunar og telur þá
tölu ekki standast. „Ég hef enn
ekki séð nein rök hjá Ingibjörgu
- Pálmadóttur fyrir frestuninni,
alla vega ekkert sem ég get tekið
gilt," sagði Össur Skarphéðins-
son.
Almennt er talið að frumvarp
heilbrigiðisráðherra um frestun
um 8 mánubi á gildistöku
ákvæða í lyfjalögum fari í gegn-
um þingið. - JBP
Sigurbur Hróarsson leikhús-
stjóri Borgarleikhússins segir
gífurlegan abstöbumun á Borg-
ar- og Þjóbleikhúsinu og því
hafi hann sagt starfi sínu lausu.
Fjárþröng Borgarleikhússins
hafi áhrif á listsköpun hússins
og erfitt sé ab keppa um starfs-
krafta vib Þjóbleikhúsib.
Nokkra athygli hefur vakið ab
gagnrýnendur tveggja dagblaða
hafa farib hörðum orðum um
starfsemi Borgarleikhússins að
undanförnu. Arnór Benónýsson
skrifar í Alþýðublaöið: „Auðvitað
vantar þá peninga en það skýrir
ekki- þá listrænu flatneskju sem
þar ríbur nú húsum". Og Gunnar
Stefánsson skrifar í Tímanum:
„Ekki minnka áhyggjur manns af
leikhúsinu, stefnunni eða stefnu-
leysinu, metnaðinum eða metn-
aðarleysinu sem þar virðist ríkja."
Báðar umsagnir eru skrifaðar í
dómum um nýjasta verk Borgar-
leikhússins, Tvískinnungsóper-
una eftir Ágúst Guðmundsson.
Tíminn spurði Sigurð Hróars-
son hvað hann hefði um málið ab
segja.
„Eg hef ekkert um þetta ab
segja, gagnrýnendur mega segja
það sem þeir vilja segja."
Sigurður bendir á að Tvískinn-
ungsóperan hafi fengið jákvæða
dóma í öbrum fjölmiðlum, og
andi frumsýningarinnar hafi ver-
ið góður. Svar hans sé sýningin
sjálf.
-En er ekki óvanalegt að gagn-
rýnendur alhæfi um starf leikhúss
í heild í dómum sínum um tiltek-
ið verk?
„Ég veit ekki hve algengt það
er, en sjálfum finnst mér það
ósmekklegt."
-Er þá ekkert að í innviðum
starfsins í Borgarleikhúsinu sem
gefur mönnum tilefni til að taka
mark á svona gagnrýni?
„Nei, síður en svo. Þessi vetur
hefur farið sérlega vel af stað."
Sigurður segir hins vegar ljóst
að allir sem vilji vita, sjái að að-
staðan í Borgarleikhúsinu sé óvið-
unandi til rekstrar leikhúss með
þeirri reisn sem æskilegt væri.
„Aðstöbumunur Borgar- og Þjóð-
leikhússins er gífurlegur. Eg setti
mér það markmið að ná að leið-
rétta þennan mismun og þegar
það náðist ekki sagði ég starfi
„Já, hún gerir það. Við eigum í
mikilli samkeppni við Þjóðleik-
húsið um listræna starfkrafta. Án
þess að ég sé ab segja ab hér sé
slakari mannskapur, er erfitt fyrir
okkur ab keppa um besta fólkið
og besta efnið. Auðvitað mundi
þetta leikhús vilja setja upp meira
af klassískum verkum en þab er
tæpast hægt að segja ab við höf-
um efni á því. Af þessari ástæðu
einni segi ég starfi mínu lausu
hér." -BÞ
segir að með samvinnu sveitar-
félaganna sé hægt að byggja
upp heildstæða stefnu hvað
varðar gæði og þróun í skóla-
málum auk þess sem ná megi
hagræðingu í rekstri, samnýt-
ingu sérfræðinga og samræm-
ingu á öðrum sviðum skóla-
starfs, s.s. um ákvörbun fjölda
nemenda í bekkjardeildum.
Meðal þeirra verkefna sem
lagt er til að sveitarfélögin fram-
kvæmi á eigin vegum eru á hinn
bóginn: Launaútreikningar,
kennararáðningar og eftirlit
með skólastarfi.
Nefndin leggur einnig til ab
nokkur verkefni verði unnin af
samtökum sveitarfélaga á lands-
vísu eða staðbundið eftir því
sem henta þyki. Þar með eru
gerb kjarasamninga og túlkun
þeirra og námsmat kennara
vegna röðunar í launaflokka.
Að lokum kemur fram þab
mat nefndarinnar að rekstrarleg
ábyrgð á sérskólum og sérdeild-
um sem nú eru reknar af ríkinu
verði á hendi þess sveitarfélags
sem viðkomandi skóli eða deild
er stabsett í. Þær deildir sem
þarna er um ab ræða eru deild
einhverfra í Kópavogi, ný deild
einhverfra í Langholtsskóla,
blindradeildin í Álftamýrarskóla
og deild hreyfihamlaðra í Hlíða-
skóla.
Lögð er áhersla á að áfram
verði tryggt að önnur sveitarfé-
lög hafi aðgang aö sérdeildum
og skólum með sama hætti og
nú er. í þeim tilgangi sé mikil-
vægt að jafna kostnabinum
með einhverjum hætti, t.d. meb
greiðslum úr sérstökum jöfnun-
arsjóbi sveitarfélaga. - GBK
Bjórneysla fer vaxandi á íslandi, á sama tíma og sterk vín hörfa, - og
reykingar minnka. Á myndinni má sjá nokkurn veginn mebalskammt ís-
lendings afsterku öli á fyrstu 9 mánubum þessa árs, - rúmlega 70 dósir á
hvern íbúa. Þorgeir Baldursson verslunarstjóri ÁTVR í Holtagörbum sýnir
okkur magnib. Tímamynd cs.
Bjórdrykkja eykst,
reykingar minnka
íslendingar svelgdu í sig
meira en 18 milljónir dósa af
bjór á fyrstu níu mánubum
þessa árs. Þab þýbir ab hver
einasti íslendingur hafi
drukkib úr 71 þribjungslítra
dós. Aukningin á bjórsölu var
umtalsverb, eba 12,21% milli
ára. Áfengisnotkun, bjór meb-
talinn, hefur aukist á þessu
tímabili um 9,45% í magni en
3,67% í alkóhóllítrum. Sala á
flestum sterkum áfengisteg-
undum hefur dregist verulega
saman. Til dæmis um 2% á
viskíi, og 17% á íslensku
brennivíni. Næstum fjórbungi
áfengis frá ÁTVR er neytt á
veitingahúsum.
Hins vegar er landinn óðum
að leggja af ýmsa leiða kæki. Til
dæmis fækkar neftóbakskörlum
og reykingamönnum stöðugt.
Sala nef- og munntóbaks
fyrstu níu mánuði þessa árs var
rétt um 9 tonn, eða 400 kílóum
minni en árið áður, sem er 4,2%
samdráttur.
Sala á sígarettum dróst saman
um 3,68% og voru seldar rúm-
lega 290 milljónir sígarettna, en
salan árið áður var rúmlega 279
milljónir, samdráttur um
3,68%. Enn meiri samdráttur,
eða 6%, var hjá pípukörlum
sem púuðu þó 9,2 tonnum upp
í loftið.
-JBP-
Sigurbur Hróarsson.
mínu lausu. Það eru allir sammála
um að þetta er óviðunandi
ástand. Það er ekki hægt að reka
leikhús í Borgarleikhúsinu við
þær fjárhagslegu aöstæður sem
fyrir hendi eru."
-Hefur fjárþröngin sem þú
nefnir þá áhrif á listina sem fram-
in er í húsinu?
Samvinna um nýbúafræbslu
og mat á skólastarfi