Tíminn - 12.10.1995, Síða 9
Fimmtudagur 12. október 1995
Wfminm
9
UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . .
Þungur róöur viö afgreiöslu fjárlagafrumvarpsins á
Bandaríkjaþingi:
Gingrich
meö hótanir
Washington — Reuter
Newt Gingrich, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings,
hótaöi því á þriðjudaginn að
þingið myndi hugsanlega af-
greiða fjárlagafrumvarp, sem
Clinton forseti þyrfti annað
hvort að samþykkja eða hafna,
og fresti síðan þingi, sem
þýddi að hann ætti í raun
engra kosta völ annarra en að
undirrita fjárlögin.
„Ég held að þeir í Hvíta hús-
inu skilji þetta ekki alveg enn-
þá," sagbi Gingrich á blaða-
mannafundi þar sem hann
kallaði eftir stuðningi við
áætlun Repúblikana um að út-
rýma fjárlagahallanum fyrir
árib 2002. „Mín ágiskun er sú
að stjórnin hallist æ meir á þá
skoöun að betra sé að undir-
rita eitthvað," sagði hann. Ef
Clinton undirritar ekki fjár-
lagafrumvarp á hann á hættu
að leggja þurfi niður mikinn
hluta af starfsemi ríkisins.
Fjármálaárið hófst þann 1.
október sl. og báðir flokkarnir
komu sér saman um sex vikna
frest og nota eigi þann tíma til
ab finna lausn á ágreinings-
málum þeirra varðandi fjár-
lagafrumvarpið.
Þessar nýju hótanir Ging-
rich koma fram um það bil
sem gagnrýni ríkisstofnana á
niðurskurð fjármagns til fá-
tækra og aldraðra var byrjuð
að koma við kvikuna á Repú-
blíkönum. Bob Dole, leiðtogi
Repúblíkana í öldungadeild-
inni, viðurkenndi að atkvæða-
greiðslan um niðurskurðinn
gæti orðið erfið. „Þetta er
þungur róbur," sagði Dole.
„Næstu tvær eba þrjár vikurn-
ar á eftir að mæba mikið á
fólki."
Þessi þungi róður gæti hins
vegar reynst tilgangslítiil því
Clinton getur beitt neitunar-
valdi á fjárlagafrumvarpið og
Repúblikanar hafa ekki nógu
Michael Heseltine, varaforsœtisrábherra Bretlands, hélt tilþrifamikla ræbu á
flokksþingi íhaldsflokksins ígœr þar sem hann bœbi gerbi stólpagrín ab pólitískum andstæbingum sínum í Verka-
mannaflokknum og hvatti flokksmenn sína til ab missa ekki móbinn heldur berjast af krafti íkomandi kosninga-
baráttu. „Standib upp úrstólunum ykkar, komib út úr grenunum," sagbi hann vib flokksfélaga sína. „Fœrib bar-
áttuna yfir ívígstöbvar óvinanna, vib erum ab berjast um fimmta kjörtímabilib í stjórn." Reuter
mörg atkvæði til þess að
hnekkja neitunarvaldinu á
þingi.
Því er það sem Gingrich gríp-
ur nú til hótana um ab fresta
þingi um leið og fjárlögin hafa
verið afgreidd. Clinton myndi
þá neyðast til að undirrita þau
ef hann vill ekki að stórum
hluta af starfsemi ríkisins verði
hreinlega lokað.
Efnahagur Austur-Evrópu á batavegi
Prag — Reuter
Efnahagur ríkjanna í Mið- og
Austur- Evrópu er nú víðast hvar
á batavegi eftir miklar efnahags-
þrengingar sem hrjáö hafa ríkin í
fimm ár. Enn er þó langt í land
með að þau nái Vesturlöndum
efnahagslega. Og í lýðveldum
Sovétríkjanna fyrrverandi myndi
örlítill hagvöxtur teljast mikil-
vægur árangur því þar er efna-
hagslífið enn á niðurleið, þótt
heldur hafi hægt á því undanfar-
ið.
Þróunar- og enduruppbygg-
ingarbanki Evrópu (EBRD) var
settur á laggirnar til þess að að-
stoða ríkin í Mið- og Austur-Evr-
ópu til þess að byggja upp mark-
aðshagkerfi. Á vegum bankans
hefur verið gerö úttekt á 25 ríkj-
um í Mið- og Austur-Evrópu, og
af þeim hefur ekki eitt einasta
náð aftur þeirri þjóðarfram-
leiöslu sem þau voru með árið
1989.
Pólverjar komust fyrstir þjóða
út úr verstu efnahagskreppunni
sem fylgdi hruni hins kommún-
íska efnahags- og viðskipta-
skipulags, og nú er þar hagvöxt-
ur fjórða árið í röð. Tölur frá
EBRD sýna engu að síður fram á
aö þjóöarframleiðslan í Póllandi
er ekki nema 97% af því sem
hún var árið 1989.
í Slóveníu er þjóðarfram-
leiðslan nú 94% af því sem hún
var 1989, en í Ungverjalandi,
Tékklandi og Slóvakíu er hún á
milli 80 og 90% af því sem hún
var þá. Ástandið er þó langverst
í Sovétríkjunum fyrrverandi. í
Rússlandi er þjóðarframleiðslan
rétt tæplega helmingurinn af
því sem hún var 1989, og Ge-
orgía rekur lestina, en þar er
þjóöarframleiðslan aðeins 17%
af því sem hún var.
Þrátt fyrir þetta eru horfurnar
langt frá því að vera slæmar, því
svo viröist sem breytingarnar
yfir í markaðshagkerfi séu nú
farnar að skila árangri, þótt sárs-
aukafullar hafi verið. EBRD spá-
ir því að hagvöxtur verði í næst-
um öilum þeim fyrrverandi
kommúnistaríkjum sem bank-
inn fylgist með — að undan-
skildum ríkjunum í Samveldi
sjálfstæðra ríkja, þ.e. Sovétríkj-
unum fyrrverandi.
Leon Podkaminer, sem er
hagfræðingur við stofnun í
samanburðarhagfræði í Vín (Vi-
enna Institute for Comparative
Economic Studies), segir að
vonin liggi ekki bara í því að nú
sé loks hagvöxtur farinn að Iáta
á sér kræla heldur ekki síður í
þeirri staðreynd að nú sé ein-
hverskonar markaðskerfi komið
á laggirnar í Austantjaldsríkjun-
um fyrrverandi. „Það er ekki
bara það að kreppunni sé lokið,
heldur er það mín skoðun að
kerfisbreytingarnar séu nú
komnar svo langt að ekki verði
aftur snúið," sagði hann. Hraði
breytinganna hefur verið mjög
misjafn milli ríkjanna. Þannig
hefur Tékkneska lýðveldið keyrt
í gegn umfangsmikla einkavæð-
ingu á miklum hraða en Búlgar-
ía hefur á hinn bóginn verið
mjög hikandi eftir ab kommún-
istar komust aftur í stjórn þar.
Podkaminer er þó bjartsýnn á
þróunina og telur hana vera í
rétta átt. „Eg vil jafnvel gerast
svo djarfur að segja að öll þessi
lönd hafi gengið í klúbb þeirra
ríkja sem eru með markaðshag-
kerfi," sagði hann. „Þetta á þó
auðvitað ekki við um Samveldi
sjálfstæðra ríkja. Þaö eru annars
konar skepnur."
EBRD spáir því að Pólland, Sló-
venía og Eistland verði fremst í
flokki með 6% hagvöxt, og sömu
tölu megi sjá í Albaníu, sem hefur
náð miklu skriði þótt reyndar hafi
hún í upphafi búið við mun verra
ástand því fátækt er þar mikil.
Verðbólga er einnig á niður-
leið í flestum ríkjunum, að Ung-
verjalandi undanskildu, en
hvergi er hún þó innan við
10%.
Nokkuð aðra sögu er að segja
af Samveldi sjálfstæðra ríkja.
EBRD spáir því að þjóðarfram-
leiðsia Rússa dragist saman um
þrjú prósent á þessu ári, þótt
það sé reyndar mikil framför frá
því á árunum 1991-94 þegar
samdrátturinn mældist í tugum
prósenta.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
sagði fyrr í þessum mánuði að
sjá mætti merki um að efna-
hagslífið í Rússlandi væri á bata-
vegi. Hagfræðistofnunin í Vín-
arborg spáir því að samdráttur
þjóðarframleiðslunnar gæti
stöðvast innan tveggja eða
þriggja ára.
Þá er eftir að spyrja hvort, og
þá hvenær, þess sé að vænta að
efnisleg lífsskilyrði Austan-
tjaldsríkjanna fyrrverandi ná
því sem tíðkast á Vesturlönd-
um. Svo virðist sem enn sé
býsna langt í þaö.
Sum Asíuríki hafa sýnt fram á
það að hægt er að stökkva frá
lífsskilyrðum þriðja heimsins til
þess sem tíðkast á Vesturlönd-
um á þeim tíma sem það tekur
eina kynslóð að vaxa úr grasi.
Til dæmis er þjóðarframleiðsla á
mann í Hong Kong nú meiri en
í Bretlandi, gamla nýlenduveld-
inu sem Hong Kong var undir
sett. Þessi árangur er þó undir
því kominn að hagvöxtur sé um
og yfir 10% í meira en áratug og
það kostar gríðarlega mikla
vinnu.
Slóvenía var ríkust kommún-
istaríkjanna áður en Júgóslavía
leystist upp í frumeiningar sín-
ar. Þar er þjóðarframleiðslan nú
um 380.000 krónur íslenskar á
mann á ári og því einna mestar
líkur á því að hún geti náð Vest-
urlöndum á efnahagssviöinu.
Hagfræðistofnunin í Vínarborg
hefur reiknað út að ef Slóveníu
tekst að halda uppi 5% hagvexti
á ári geti hún náö meðaltali að-
ildarríkja Evrópusambandsins
árið 2010. Tékkar eiga einnig
nokkuð góða möguleika á að ná
Vesturlöndum efnahagslega,
enda þótt meðallaun verka-
manns séu þar aðeins tæpar
200.000 íslenskar krónur, sem
er u.þ.b. tíundi hlutinn af því
sem þýskir verkamenn fá í laun
að meðaltali.
Hin löndin eru ekki eins vel
stæð, og ljóst að það getur skipt
áratugum þangað til þau hafa
náð Vesturlöndum efnahags-
lega. ■
3Mlímband
er íœranlegt
Scotch™Magic™ 810 "ósýnilega" límbandið
írá 3M er ekki bara fastheldið, heldur líka
til fœranlegt (811).
Það
sést ekki
í ljósritun,
gulnar ekki,
er nœr algjör-
lega sýruírítt og það er hœgt að skriía á það.
^ I
ÁRVlK
ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295 ' ‘Tnt