Tíminn - 13.10.1995, Page 3
Föstudagur 13. október 1995
3
Ólafur Ragnar flytur hinstu setningarrœöu sína í bili sem formabur Alþýöubandalagsins viö
Agreiningur vinstri
manna verðiab víkja
Annars hugsi fólk aö ríkisstjórn Sjálfstœöisflokks og
Framsóknar sé skásti kosturinn
Ólafur Ragnar Grímsson flutti
síbustu setningarrræðu sína í
bili á Landsfundi Alþýbubanda-
lagsins sem hófst í gær. Hann
gerði að umtalsefni nauðsyn
þess að vinstrimenn sameinub-
ust um breiðfylkingu, ágrein-
ingsefnin yrði að leysa, annars
ættu vinstri menn sér enga
stjórnarframtíb. Formaðurinn
sagbi jafnframt brýnt ab nýta sér
tækifæri 21. aldarinnar, ný
heimsmynd væri framundan og
nýjar vonir um frib á jörð.
Ólafur Ragnar sagbi ab þær
breytingar sem oröið hefðu í
tækni- og öryggismálum gæfu
mikla möguleika. Afvopnun hefði
leyst vígbúnaðarkapphlaupið af
hólmi og ýmislegt benti til að sá
langþráði draumur rættist, að und-
irritaður yrði veraldarsamningur
sem bannaði um aldur og ævi allar
tilraunir með kjarnavopn.
Um þátttöku Alþýöubandalags-
ins í stjórnmálum upp á síðkastið
sagði formaöurinn að flokkurinn
hefði gengið inn í Stjórnarráðið
1988 með minni fyrirvara en
nokkur flokkur hefði áður gert. Þá
hefði ríkisstjórn Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks verið búin að lama allt at-
vinnulíf í landinu með stórfelld-
um gengisbreytingum og langvar-
andi óstjórn. „Áratuga óðaverö-
bólga læsti klónum í lífskjör launa-
fólks. Hmn byggðanna blasti við.
Samtök launamanna höfðu með
lögum verið svipt mannréttindum
til að semja um kaup og kjör."
Ólafur Ragnar sagði að á næstu
þremur árum hefði Alþýðubanda-
lagið lagt verðbólgudrauginn að
velli og komiö á traustu gengi og
stöðugu verðlagi, auk þess ab
halda fullri atvinnu í landinu og
lækka vexti. Alþýðuflokkurinn
hefði svo 1991 kosið að hverfa af
farsælli umbótabraut og fylgt
hægri stefnu Sjálfstæðisflokksins
sem leitt hefði til samdráttar, lang-
varandi atvinnuleysis, vaxandi
misréttis og kyrrstöðu í atvinnu-
málum, menntakerfi og heilbrigð-
isþjónustu.
Um nýtt fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar sagði Ólafur Ragnar:
„Fjárlög Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks em líkt og fjárlög
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
brennimerkt aðför að réttindum
sjúkra og aldraðra, brennimerkt
kyrrstöðu og þrengingum í mál-
efnum mennta og menningar,
brennimerkt vaxandi misrétti í
Ólafur Ragnar Grímsson
skattamálum og fjármálum heim-
ilanna."
Breibfylking jafnabar-
manna
Formaöur Alþýðubandalagsins
sagði nauðynlegt ab mynda breið-
fylkingu íslenskra jafnaðarmanna
og hefja nýtt áhrifaskeið félags-
hyggjunnar á landinu. Hann sagði
Alþýðuflokkinn hafa fariö illa með
þennan draum. „Fáránleiki þessa
Viðeyjamppvaknings varð aldrei
Ijósari en í vor þegar Davíð Odds-
son henti Alþýðuflokknum á einni
helgi út úr stjórnarráöinu."
Þá sagði Ólafur aö Þjóðvaka-
menn hefðu í ársbyrjun ætlað að
reisa fylgisturn og skjóta félögum
sínum út í hafsauga. „Breiðfylking
íslenskra vinstri manna verður
ekki búin til með skyndilegum
hókus pókus í kringum eina
manneskju". Um Kvennalistann
sagði Ólafur Ragnar að þá fyrst
næði jafnréttishreyfing íslenskra
kvenna afgerandi umbótakrafti
þegar jafnaðarmenn tækju allir
höndum saman.
„En ég fullyrði að ágreinings-
munstur alls þorra íslensks félags-
hyggjufólks og jafnaðarmanna er
ekki flóknara en sú hugmyndatog-
streita sem vib þekkjum öll úr eig-
in flokki um langt árabil... Meðan
ágreiningur birtist almenningi í
fjórfaldri skiptingu stjórnarand-
stööunnar í landinu þá mun meg-
inhluti íslendinga einfaldlega trúa
því að skásti kosturinn sé þrátt fyr-
ir allt að láta bara Sjálfstæðisflokk-
inn og Framsóknarflokkinn um
þetta."
Ólafur Ragnar minntist ekki á
verðandi arftaka sína en Margrét
Frímannsdóttir og Steingrímur J.
Sigfússon bítast um formanns-
embættib og verður kosning gerð
opinber í dag.
-BÞ
Kaþólska kirkjan:
Nýr biskup
Jóhannes Páll páfi II í Róm hefur
skipað nýjan biskup við Kaþólsku
kirkjuna á íslandi. Nýji biskupinn
er Hollendingur og heitir Johann-
es B. Gijsen, fæddur 1932 og upp-
alinn í Limburghéraði.
Herra Gijsen biskup hlaut prest-
vígslu áriö 1957 og lauk doktors-
prófi í guðfræði við háskólann í
Bonn í Þýskalandi árib 1964. Hann
lagði síðan stund á framhaldsnám í
sögu kenningafræba við háskólann
í Munster þar til hann var skipaður
biskup af Roermond í Hollandi árib
1972. Þar var hann til 1993 þegar
hann óskaði lausnar frá störfum
vegna heilsubrests. Nú hefur hann
fallist að taka til starfa að nýju sam-
kvæmt beiðni Jóhannesar Páls
páfa. ■
Þjóöleikhúsiö:
Atvinnulausir
fá afslátt á
leiksýningar
Ákveðið hefur verið að atvinnu-
lausir fái nú sama afslátt og eftir-
launafólk og nemendur fram-
haldsskóla á sýningar Þjóbleik-
hússins. Afslátturinn gildir á sýn-
ingardegi gegn framvísun
innritunarskírteinis og verður
hægt að fá tvo miba hverju sinni.
Afslátturinn gildir á allar sýning-
ar leikhússins á leikárinu.
Af þessu tilefni var fólki án at-
vinnu nýlega boðið að koma endur-
gjaldslaust á sýningu á Stakkaskipt-
um eftir Guðmund Steinsson en
verkið fjallar m.a. um áhrif at-
vinnuleysis á einstaklinginn og
hans nánustu. Mikill fjöldi þáði
boðið. ■
Alþingi:
Hart deilt um fjölskyldustefnu
Miklar umræbur urðu um þings-
ályktunartillögu um mótun op-
inberrar fjölskyldustefnu vib
fyrri umræðu um tillöguna á Al-
þingi í gær. Tillagan er flutt af
Rannveigu Gubmundsdóttur, Jó-
hönnu Sigurbardóttur og fleiri
þingmönnum stjórnarandstöb-
unnar og benti Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra á ab þings-
ályktunartillagan væri sam-
hljóða þingsályktunartillögu
sem Rannveig Gubmundsdóttir
flutti á Alþingi á vordögum en
þá gegndi hún starfi félagsrnála-
rábherra. Sökuðu flutningsmenn
og fleiri talsmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna félagsmálaráb-
herra um ab vibhafa nöldur
vegna þessa máls en hann hefur
nú skipab þriggja manna nefnd
til þess að fjalla um málefni fjöl-
skyldunnar.
Guömundur Árni Stefánsson, er
gegndi starfi félagsmálaráðherra
um tíma í tíð fyrrverandi ríkis-
stjórnar, taldi skipun slíkrar
nefndar óþarfa þar sem félags-
málanefnd Alþingis væri fullfær
um aö fjalla um málið. Bryndís
Hlöövarsdóttir, þingmaður Al-
þýðubandalagsins, sagöi meöal
annars að fjölskyldan væri fremur
hornreka en í fyrirrúmi eins og tal-
aö hafi verið um í kosningastefnu-
skrá flokks félagsmálaráðherra.
Össur Skarphéðinsson taldi mikið
skorta á að aöstæður fjölskyldunn-
ar væru nægilega góðar og benti
meðal annars á að tvöfalt fleiri
börn leituðu aöstoðar slysamót-
töku en í Svíþjóö og iftinnihluta-
hópar ættu erfitt uppdráttar hér á
landi. Sif Friðleifsdóttir líkti að-
ferðum flutningsmanna þings-
ályktunartillögunnar við mann er
hætti störfum hjá fyrirtæki og tæki
þá verkfæri í eigu fyrirtækisins
með sér og átti þar við að efni til-
lögunnar væri unnið í félagsmála-
ráðuneytinu í tíö hennar sem fyrr-
verandi félagsmálaráðherra.
Ræðumönnum stjórnarand-
stöðunnar var tíðrætt um fjárlaga-
frumvarpið í þessu samheingi og
töldu það andstætt fjölskyldum aö
mörgu leyti þar sem skornar væru
niður fjárveitingar til mála er
snertu þennan málaflokk. Páll Pét-
ursson, félagsmálaráðherra, sagði í
umræðunum að í fjárlagafrum-
varpinu væri að finna mörg atriði
sem þegar til lengri tíma væri litið
myndu styrkja fjölskylduna. Þarna
væri þó fremur um langtímamark-
mið að ræða sem byggðust á því að
auka ekki skuldabyrði þjóðari'nnar
sem óhjákvæmilega kæmi niður á
aðstööu til þess að veita fjölskyld-
unni sem besta aöbúð. Valgerður
Sverrisdóttir sagði að víst mætti
benda á takmarkaða fjármuni í
fjárlagafrumvarpi næsta árs til þess
að sinna brýnum verkefnum í
málefnum fjölskyldunnar en benti
jafnframt á að nú væru um 6,3
einstaklingar vinnandi á móti
fólki er náö hafi starfslokaaldri. Ef
litið væri fram í tímann væri því
spáð að árið 2030 yrði hlutfall
vinnandi fólks aðeins 3,3. Jón
Kristjánsson, formaður fjárlaga-
nefndar, sagði að við gerð fjárlaga-
frumvarpsins hafi einkum verið
horft til minnkandi fjárlagahalla
og lengri framtíðar en að unnt
væri að efna til skjótra aðgerða.
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
sagði aöstandendur tillögunnar
fara offari í þessu máli, einkum Jó-
hönnu Sigurðardóttir sem ekki
hafi komið því til framkvæmda á
sjö ára tíð sinni í félagsmálaráðu-
neytinu.
W.
Vinni
VI IV
ngstöiur
11.10.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 6afe 7 6.580.000
51 5 af 6 Lfl+bónus 0 1.320.548
fcl 5 af 6 2 108.080
4 af 6 249 1.380
rM 3 af 6 Efl+bónus 884 160
Aðaltölur:
Í)(5)Í9
19 29 32
BÓNUSTÖLUR
@(g)(§)
Heildampphaed þessa viku
48.081.768
áísi, 2.021.768
vinningur fór til Danmerkur, Noregs ogSvíþjódar
BIRT MEO FYRIRVARA UM PHENTVILLUR
tækniskóli Islands
Höfðabakka 9 - 112 Reykjavlk - Simi 577 1400 - Bréfsími 577 1401
Innritun nýnema
Teknir verða inn nemendur á eftirtaldar námsbrautir á vorönn
1996. Umsóknarfrestur rennur út 20. október n.k.
Frumgreinadeild
• nám til raungreinadeildarprófs
• einnar annar hraðferð fyrir stúdenta sem þurfa við-
bótarnám í raungreinum til að geta hafið tækni-
fræðinám.
Rekstrardeild — rekstrarsvið
• iðnrekstrarfræði
• útflutningsmarkabsfræði til B.Sc. prófs. Inntökuskil-
yrði eru próf f iðnrekstrarfræbi, rekstrarfræbi eða
sambærilegu.
Rekstrardeild — tæknisvið
• iðnaöartæknifræði til B.Sc. prófs. Inntökuskilyrði:
raungreinadeildarpróf eða stúdentspróf af eðlisfræði-
eða tæknibraut.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans alla virka daga kl.
8.30-15.30.
Rektor.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til námsefnis-
gerbar á framhalds-
skólastigi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til
námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á fram-
haldsskólastigi. Minnt skal á að heimilt er skv. reglum um úthlut-
un að verja allt að fimmtungi heildarúthlutunar til ab efla tiltekin
svib.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, námsefnis-
nefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavfk, fyrir 20, nóvember nk. á
þar til geröum eybublöbum sem hægt er ab fá í ráðuneytinu.