Tíminn - 13.10.1995, Qupperneq 7
Föstudagur 13. október 1995
föítltftKH
7
Ungir sjálfstœöismenn telja lítil rök fyrir frestun
ákvœöa lyfjalaga:
Hagsmunamál bæöi
neytenda og ríkissjóbs
Telji stjórnvöld slíkt sam-
ræmast ákvæðum nýrra ly-
fjalaga, mun ein af hinum
rótgrónu lyfjaverslunum
Reykjavíkur, Borgar Apótek í
Álftamýri, eignast keppinaut
á næstu grösum síbla næsta
sumars. Þaö gæti jafnvel orö-
iö fyrr, ef ákvæöum í lyfjal-
ögum verður ekki frestab, en
flest bendir reyndar til aö
þaö veröi gert. I þeim lögum
skal taka tillit til mannfjölda
og fjarlægbar milli apóteka
og fólksfjölda á svæöinu.
Eigendur Lyf ju hafa enn ekki
sótt um starfsleyfi. Lyfsalinn
í Borgar Apóteki er hreint
ekki bjartsýnn á aö þetta
grenndarapótek muni leiða
til betri tíöar, hvorki fyrir
lyfsöluna, ríkiö né neytend-
ur.
Vigfús Guömundsson er
Reykvíkingur, en hefur síðustu
19 árin starfað sem apótekari
úti á landi — fyrst í 11 ár á
Neskaupstað og síðar í 8 ár á
Húsavík. Hann flutti aftur til
höfuðborgarinnar um síðustu
áramót, þegar hann fékk lyf-
söluleyfi í Borgar Apóteki við
Álftamýri í Reykjavík. Hann er
væntanlega síðasti apótekar-
inn sem fær lyfsöluleyfi í
Reykjavík samkvæmt gamla
Fjárveiting til abalskrifstofu fé-
lagsmálarábuneytisins verbur
tæplega 7 milljónum króna, eba
7%, hærri á næsta ári en í fjár-
lögum '95. „Er hún ab mestu á
launalib aöalskrifstofu og bygg-
ist einkum á nýju hlutastarfi á
vegum rábuneytisins í Brussel,
ráðningu bílstjóra og hækkun
vegna kjarasamninga," segir í
nýju fjárlagafrumvarpi 1996.
Heildarútgjöld þeirra mála-
flokka, sem heyra undir ráðu-
neytiö, eru áætluð tæplega 9,3
milljarðar króna á næsta ári
(nærri 140.000 kr. á hverja fjög-
urra manna fjölskyldu). Rekstrar-
kostnabur hækkar um 305 millj-
kerfinu, þ.e. að starfa fyrst úti á
landi áður en hann fær leyfi í
þéttbýlinu.
í aðeins rétt rúmlega 100
metra loftlínu frá Borgar Apó-
teki, með Háaleitisbrautina á
milli, er meiningin að keppi-
nautar opni Lyfju, lyfjabúð
sem ætlunin er að reka með
öbru sniði en tíðkast hefur, að
sagt hefur verið.
Ljóst virðist að staðsetning
Lyfju er vandlega valin og
naumast nein tilviljun, því
nánast beint á móti því hús-
næði við Lágmúlann er heilsu-
gæslustöð fyrir stórt borgar-
hverfi. Vigfús segir að þegar
hann gerði kaupin á apótekinu
hafi hann ekki átt von á apó-
teki svo nærri sér.
„Eftir kaupin stend ég í tug-
milljóna skuldum og þarf á
öllu að halda ef dæmið á að
ganga upp," sagði Vigfús í gær.
Apótekari, sem tekur við
stóm apóteki eins og Borgar
Apóteki, þarf að greiða fyrri
apótekara á staönum fyrir alla
fasteignina, þar meb talda íbúð
hans, öll áhöld og búnað, sam-
kvæmt þeim lögum sem enn
gilda. Vigfús Guðmundsson
segir að þab sé ekkert launung-
armál að þessi kaup hafi verið
erfið. Þarna sé um að ræða
ónir, eða 17%, frá fjárlögum þessa
árs. Þar af eru 200 milljónir raktar
til launahækkana í kjarasamning-
um 1995. Ábyrgðarsjóður launa
lækkar um sömu upphæö, en At-
vinnuleysistryggingasjóði eru
ætlaöar nærri 180 fleiri milljónir
á næsta ári.
Ársverkum, sem undir ráðu-
neytið falla, fjölgar um 9% milli
ára. Áformað er að flytja 37 af
heimilismönnum á Kópavogs-
hæli yfir á sambýli. Starfsmönn-
um fjölgar sömuleiðis hjá Vinnu-
eftirliti, einnig á stofnunum sem
fara meb málefni barna og ung-
linga og lítils háttar, á Vinnumála-
skrifstofu. ■
stórar fjárhæðir og að allt verði
að ganga upp til að hann geti
greitt skuldir sínar.
í nýju lögunum er reyndar
kvebið á um fjarlægðina milli
apóteka við veitingu lyfsölu-
leyfa, en einnig fólksfjölda á
svæðinu. Þar vantar reglugerð
um nálægð apóteka við hvert
annab. Vigfús bendir á að Lyfja
sé ekki í íbúðahverfi, þar sem
sitt apótek standi hins vegar í
jaðri slíks hverfis.
„Keppinautarnir hafa ekki
sótt um leyfi, og mér datt aldr-
ei í hug að hægt yrði að setja
upp apótek beint á móti
heilsugæslustöðinni sem ég
hef þjónað. Þetta kippir fótun-
um undan þessu apóteki sem
slíku," sagði Vigfús.
Vigfús segir að hann bíði
þess nú að sjá hvernig grennd-
arákvæði í lögunum verður
túlkað. Hann segist ekki trúa
því að slíkt verði leyft.
Hann segist ekki geta séb fyr-
ir sér ódýrari lyf vegna aukinn-
ar samkeppni, álagning á lyf
hér á landi sé afar svipuð og á
Norðurlöndum og sé ákveðin
af lyfjaverðlagsnefnd, eða ráð-
herra nái nefndin ekki saman
um niöurstöðu.
Vigfús segist heldur ekki sjá
fyrir sér aukna þjónustu af
neinu tagi með fleiri apótek-
um. Frá sínu apóteki séu lyf
send heim til fólks í hverfinu.
Hjá Borgar Apóteki sé lyfja-
fræðingur ævinlega í af-
greiöslusalnum til ab leiðbeina
fólki og ræba vib það. Þar sé
því ekki um nýjung að ræba,
og apótekin í borginni hafa
lyfjafræðinga ævinlega innan
handar fyrir viðskiptavini.
Vigfús segir að fjölgun lyfja-
búða í öðrum löndum hafi
leitt til meiri sölu á lyfjum,
ekki síst í Bandaríkjunum þar
sem frelsið er mest. Eftirlit með
apótekum verði líka þeim mun
minna sem þau eru fleiri. „Við
íslendingar erum með minnsta
lyfjaneyslu af öllum Norður-
löndunum, að ég tali ekki um
Bandaríkin. Ég er þess fullviss
ab fleiri apótek munu leiða til
meiri lyfjaneyslu," sagði Vig-
fús Guðmundsson. -JBP-
Rök Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigöisráðherra fyrir
frestun á framkvæmd
ákvæða lyfjalaga um 8 mán-
uði mega sín lítils í saman-
burði vib hagsmuni neyt-
enda af framgangi málsins,
segir meðal annars í ályktun
Sambands ungra sjálfstæbis-
manna. Stjórnin skorar á
stjórnvöld að falla frá frum-
varpi ráðherrans um frestun.
í ályktuninni segir að brýnt
sé að ákvörðun verði ekki skot-
ið á frest, þar sem aukin sam-
keppni í smásölu lyfja muni
óhjákvæmilega koma kaup-
endum lyfjanna til góða í lægra
vöruverði og bættri þjónustu.
Þá segir að gera megi ráð fyrir
að lyfjaútgjöld ríkisins muni
Iækka, en það er ekki rökstutt
nánar hvernig verðlag muni
lækki þegar verðlagning lyfja
verður gefin frjáls.
-JBP-
Húsbréf
Vigfús Gubmundsson, apótekari í Borgar Apóteki, ásamt Óskari G. Jónssyni yfiriyfjafrœbingi. Lyfjafrœbingur er
œviniega á vakt í afgreibslu apóteksins vibskiptavinum til trausts og halds. Tímamynd cs
Setti sig í stórar skuldir til aö koma upp rekstri í Borgar Apóteki:
Bjóst ekki við keppinauti
handan Háaleitisbrautar
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokkl 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
Innlausnardagur 15. október 1995.
1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.527.209 kr. 152.721 kr. 15.272 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.358.922 kr.
500.000 kr. 679.461 kr.
100.000 kr. 135.892 kr.
10.000 kr. 13.589 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.692.157 kr.
1.000.000 kr. 1.338.431 kr.
100.000 kr. 133.843 kr.
10.000 kr. 13.384 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.587.133 kr.
1.000.000 kr. 1.317.427 kr.
100.000 kr. 131.743 kr.
10.000 kr. 13.174 kr.
1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 6.066.408 kr.
1.000.000 kr. 1.213.282 kr.
100.000 kr. 121.328 kr.
10.000 kr. 12.133 kr.
3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.675.943 kr.
1.000.000 kr. 1.135.189 kr.
100.000 kr. 113.519 kr.
10.000 kr. 11.352 kr.
1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.577.108 kr.
1.000.000 kr. 1.115.422 kr.
100.000 kr. 111.542 kr.
10.000 kr. 11.154 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSd húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
Um 9% fjölgun ársverka hjá félagsmálaráöuneytinu:
Um 7% hækkun