Tíminn - 13.10.1995, Page 9
Föstudagur 13. október 1995
VfMllftt
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Stjórnarflokkarnir í Austur-
ríki ná ekki samkomulagi
um fjárlagagerö:
Stjórnin
fallin
Vínarborg — Reuter
Samsteypustjórn sósíaldemókrata
og íhaldsmanna í Austurríki gaf
upp öndina í gær eftir að ljóst var
að ekki myndi nást samkomulag
milli stjómarflokkanna um fjárlög-
in fyrir næsta ár. Franz Vranitzky,
kanslari Austurríkis, taldi sér því
ekki lengur fært að standa í vegi fyr-
ir að kosningum verði flýtt og
reiknaði hann meb því að þær verbi
haldnar þann 17. desember nk.
Vranitzky, sem er leiðtogi Sósíal-
demókratahokksins (SPÖ) og hefur
verib kanslari landsins frá því 1986,
sagðist harma það ab viðræður vib
Þjóöarflokkinn (ÖVP), sem er flokk-
ur íhaldsmanna, hafi farið út um
þúfur.
Wolfgang Schussel, varakanslari
og leiðtogi Þjóðarflokksins, hafði
sagt að eina lausnin á fjárlagadeil-
unum væri að kosningum verði
flýtt og ný stjórn myndub eins
fljótt og hægt. „Samstarf flokka sem
geta ekki komiö sér saman um fjár-
lög er ekkert samstarf." Hann vildi
þó ekkert segja um það hvort hann
gæti hugsað sér að ganga til sam-
starfs vib Frelsisflokkinn, sem er
flokkur öfgasinnaðra hægrimanna
undir forystu Jörgs Haiders.
Sósíaldemókrataflokkurinn hefur
verið í stjórn landsins, annað hvort
einn eða í samsteypu með öðrum
flokkum, í 46 af síðustu 50 árum, en
vinsældir hans hafa dalað mjög á
þessum áratug. ■
Juppe sleppur meö skrekk-
inn, en máliö gœti dregiö
dilk á eftir sér:
Frakkar
reiöir
París — Reuter
„Sekur, en sleppur vib refsingu" var
fyrirsögn leiöarans í franska dag-
blaðinu Le Parisien í gær, og var þá
átt vib Alain Juppe, forsætisráb-
herra, sem slapp vib málsókn vegna
máls sem mjög hefur verið í fjöl-
miðlum í Frakklandi undanfarið.
Juppe er sakaður um að hafa leigt
sjálfum sér lúxusíbúð sem er í eigu
Parísarborgar.
Saksóknari Parísar, Bruno Cotte,
komst að þeirri niðurstöðu að svo
virbist sem Juppe hafi gerst brotleg-
ur þegar hann tók íbúðina á leigu
hjá borginni árið 1990 þegar hann
var sjálfur aðstoðarfjármálaráðherra
borgarinnar, sem fól m.a. í sér að
hann hefbi yfirumsjón með leigu-
málum borgarinnar. Saksóknari
sagði að málið yrði látið niöur falla
ef Juppe gæfi skriflega yfirlýsingu
um að hann myndi flytja úr íbúð-
inni fyrir áramót. í síðustu viku
sagbi Juppe að hann hygðist fljót-
lega flytja úr íbúðinni.
Ef saksóknarinn hefði krafist þess
ab málib yrði rannsakað fyrir dómi
myndi það þýða að Juppe hefði orð-
ið að segja af sér embætti forsætis-
ráðherra.
Málinu var slegið upp á forsíðum
dagblaða í Frakklandi í gær og ríkti
almenn reiði og hneykslan vegna
þess hvemig saksóknari tók á mál-
inu. Stuðningsmenn franska for-
sætisráðherrans fylktu engu að síð-
ur liöi að bakl sínum manni í gær
og lýstu yfir óskoruðum stuðningi
við hann. ■
Serbneskir hermenn settust ab tafli íbcenum Brcko í norburhluta Bosníu
snemma ígoermorgun, sem er tvímælalaust skárri ibja en margt annab
sem hermenn á þessum slóbum hafa lagt stund á undanfarib. Reuter
Enn langt í frið
London — Reuter
Vopnahléb sem gekk í gildi í Bosníu
á fimmtudaginn er eflaust mjög
mikilvægur áfangi á leiðinni til frið-
ar í þessu stríðshrjáða landi. Hins
vegar bendir allt til þess að enn sé
langt í að raunverulegur og varan-
legur friður komist þar á.
Jafnvel þótt vopnahléð verði að
mestu leyti haldið þá sextíu daga
sem samiö var um hafa aðilar stríðs-
ins ekki nema rétt byrjað að ræða
um framtíðarskipulag Bosníu og
enn hefur ekki verið snert á því sem
erfiðast verbur ab semja um: hvern-
ig skipta eigi landsvæöinu upp á
milli þeirra. Framundan eru að öll-
um líkindum margra mánaba mjög
erfiðar samningavibræður og alltaf
verður hætta á ab þær fari út um
þúfur og aftur verði gripið til
vopna. Meðal þeirra eldfimu mál-
efna sem þarf að ræða er framtíðar-
staða Sarajevóborgar, Gorazde og
Brcko landræmunnar sem tengir
saman landsvæði Serba í austur- og
norðurhluta landsins. Fyrir utan
viðræður um landsvæði og stjórn-
skipulag þarf einnig að gera út um
erfið málefni á borö við mannrétt-
0
indamál, afdrif flóttamanna, refsi-
aðgerðir Sameinuðu þjóðanna,
gagnkvæma viðurkenningu ríkj-
anna sem áður tilheyrðu Júgóslavíu
og hvernig ábyrgð og kostnaði
varðandi enduruppbyggingu lands-
ins verður deilt niður milli aðila. ■
Segist saklaus
Brussel — Reuter
Willy Claes, framkvmdastjóri Nató,
sem hefur verið sakaður um að hafa
átt þátt í mútuhneyksli meðan
hann var ráðherra í ríkisstjórn Belg-
íu, neitaöi í gær öllum ásökunum
og ítrekaði að hann væri saklaus, en
hann á ab mæta í dag fyrir sérstaka
þingnefnd sem á ab fjalla um beiðni
hæstaréttar um að Claes verði
ákærður vegna aðildar hans að mál-
inu.
Willy Claes hefur verið undir
miklum þrýstingi um að segja af sér
sem framkvæmdastjóri Nató vegna
málsins, en þegar fréttamenn
spurðu hann hvort hann myndi
segja af sér, var svariö: „Við komum
að því síðar." ■
■ ÓDÝR~f~~!
; STRÆTÓ j
■ Hinir hagsýnu nýta sér afsláttarmöguleika SVR ■
Einstök fargjuld 25 kr.
Einstök fargjöld 60 kr.
**
Farmiðaspjald með
22 miðum 300 kr.
sem er 45% afslittur.
Aldraðir
Einstök fargjöld 120 kr.
Farmiðaspjald með
20 miðum 1000 kr.
Farmiðaspjald með
20 miðum 1000 kr.
sem er 17% afdáttur.
Öryrkjar
Einstök fargjöld 120 kr.
Farmiðaspjald með
20 miðum 500 kr.
Fullorðnir
Einstök fargjöld 120 kr.
Farmiðaspjald með
10 miðum 1000 kr.
sem er 17% afsláttur.
Græna kortið
Græna kortið gildir í
mánuð í senn og getur
handhafi þess ferðast
ótakmarkað með SVR
og AV á gildistímanum.
Græna kortið kostar 3400 kr.
* Börn innan 12 ára. Börn innan 6 ára eru gjaldfrí séu |>au í fylgd með fullorðnum.
* linglingar 12-15 ára. Unglingar greiða fullt gjald eftir 1. júní |>að ár scm |>au verða 16 ára.
L*** Miðað er við að farnar séu 2-3 ferðir virka daga á gildistíma kortsins.
Allar nánari upplýsingar or hægt aft fá i þjánusf usinta SVR 33I*2T<KI I
■I ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■i ■■■■■ ■■■■■i ■■■■■
■ wwmwmw mmasm wmmm wmmmm nmmmm wmmmm wmmmm ■hbhí hwwmíi mwmKm
sem er 58% afsláttur.
sem er WA afsláttur,