Tíminn - 19.10.1995, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19. október 1995
wWNWIW
3
Ofanflóöasjóöur og Súöavík. Félagsmálaráöherra:
Borgarnes breytir um takta í framleiöslu i mjólkurbúinu:
Úr mjólkinni
í brennivínið
Borgames verður brennivínsbær
svo um munar eftir mánabamót-
in. Þá mun fyrirtækið Catco
flytja þangað framleiðslu og
átöppun á Eldurís vodka, ís-
lensku brennivíni, óðalsbrenni-
víni, tindavodka, Dillons gini og
hvannarótarbrennivíni. í mjólk-
urbúinu er fyrir framleiðsla á Icy
Vodka á vegum Sprota hf..
Mjólkurbærinn frægi er að
breyta um drykk. í Mjólkursam-
laginu leggst af framleiðsla á
mjólkurafurðum, en áfengis-
átöppun mun skapa fjölmörg
störf í staðinn.
„Viö emm aö koma frá Banda-
ríkjunum og allar líkur á aö við
höfum náð álitlegum samningi við
stóran dreifingaraðila á áfengi,
sem hefur vantað vodka. Sérfræð-
ingamir sem hafa smakkað Eldurís
vestra telja að það sé besti vodkinn
sem þeir hafa smakkað," sagði Árni
Helgason framkvæmdastjóri Catco
hf., en fyrirtækiö hefur keypt
framleiðslurétt og tæki Eldhaka
hf., sem áður keypti af ÁTVR.
Árni sagði að reiknað væri með
því að Catco tæki við verksmiðju
Eldhaka hf. á morgun, föstudag. Þá
verður hafist handa um aö flytja
vélakostinn í Borgarnes. Menn
reiknuðu með að starfsemin yrði
hafin af krafti fyrir 10. nóvember.
íslenska brennivínið er á hraðri
niðurleið í útsöluverslunum
ÁTVR. Árni segir að ÁTVR hafi selt
framleiðsluna á brennivíni til Eld-
haka hf. en síðan stórhækkað
brennivínið eftir söluna.
„Við reiknum með að á fyrstu 12
mánuðunum skili þessi útflutning-
ur okkur 100 til 120 þúsund flösk-
um, en síðan er stefnt aö því að
auka þetta verulega á næstu 3-5 ár-
um," sagöi Árni Helgason.
íslenskt áfengi hefur átt heldur
undir högg að sækja hjá ÁTVR
fyrstu 8 mánuði ársins. Samtals
seldust þar rétt rúmlega hálf millj-
ón flaskna af vodka, mest af
Smirnoff, eða um 1/3 hluti, 94
þúsund lítrar. íslenska vodkað hef-
ur hins vegar selst fremur lítið, eða
um 27.500 lítrar af Eldurís og
14.500 lítrar af Icy. Salan á ís-
lensku brennivíni var á sama tíma
ívið meiri hjá ÁTVR, en brenni-
vínssala hafði fallið um 17% frá
fyrra ári.
Árssala á íslenskum sterkum
Leggur áherslu á
ab flýta ákvörðun
Páll Pétursson kynnti í fyrra-
dag hugmyndir í ríkisstjórn
sem honum hafa borist varð-
andi málefni Ofanflóðasjóðs
og Súðavíkur. Ríkisstjórnin
ákvað að vísa málinu til
nefndar ráðuneytisstjóranna
til að fá skilgreiningu á hug-
takinu endurstofnverð og
hvað það felur í sér.
„Endurstofnverð getur haft
áhrif á kostnabinn, varnarað-
geröir eða húsakaup. Ég mun
strax og ráðherranefndin kemst
að niðurstöðu gera tilllögu í rík-
isstjórninni um hvað gert
verði," sagði Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra í gær.
Páll sagði að snjóflóðahætt-
una væri því miður víðar að
finna í landinu, Súðavík væri
þannig aðeins tíundi hluti
vandans sem við er að glíma.
„Það er fyrirsjáanlegt að ef til
þess kæmi að hættuásand skap-
ast, þá verður að rýma hús. í
Súðavík er mikið húsnæði, skóli
og íþróttahús á öruggu svæbi.
Það er hægt að hýsa fólk nótt og
nótt, en auðvitaö er það ömur-
legur kostur," sagði Páll Péturs-
son. Hann sagði að hann legði
alla áherslu á að flýta málinu
svo sem kostur væri. -JBP
Laugarnesskóli 60 ára.
upphafi skofans, en fyrsti skóladagur í Laugarnesskóla var þanr
Tímamynd: CS
/ dag er þess minnst at> 60 ár eru libin frá
upphafi skoTans, en fyrsti skóladagur í Laugarnesskóla var þann 19. október 1935. Þessara tímamóta verbur
minnst meb margvísiegum hœtti í skólanum í dag og m.a. meb kórsöng og leiksýningu. í gœr voru sjö ára nem-
endur í 2. N undir stjórn Sigrúnar Birnu kennara m.a. ab gera leirstyttur. En nemendur skólans hafa undanfarna
daga unnib ab verkinu Líf og list í Laugarnesskóla í 60 ár, sem verbur til sýnis ískólanum ídag.
drykkjum virðist í námunda við
225 þúsund lítra á innanlands-
markaði. Við þetta bætist útflutn-
ingur fyrirtækjanna tveggja,
Sprota og Catco. Sproti hefur um
95% vodkaútflutningsins frá ís-
landi. Útflutningstölur þess fyrir-
tækis fengust ekki hjá Orra Sigfús-
syni framkvæmdastjóra í gær. En
samkvæmt Hagtíðindum var
heildarútflutningur áfengra
drykkja frá íslandi fyrri hluta þessa
árs 163,3 tonn og verðmætiö 19,9
milljónir. Það virðist benda til að
útflutningsverðmæti lítraflösku sé
í kringum 120 krónur. -JBP
Árni Helgason framkvœmdastjóri Catco (til vinstri á myndinni) vonast til ab auka
verulega útflutning á vodka frá íslandi náist samkomulag vib bandarískan dreif-
ingarabila á áfengi. Til hœgri á myndinni er Þorhallur Steingrímsson stjórnarfor-
mabur Catco. Tímamynd: CS
AB vill gjörbreyta stjórn
fiskveiöa. Steingrímur J:
Markar
ekki nein
tímamót
„Þessi samþykkt markar ekki
nein tímamót í sjálfu sér að
mínu mati. Viö höfum oft áö-
ur gagnrýnt ýmsa þætti kvóta-
kerfisins," segir Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaöur Alþýöu-
bandalagsins í Noröurlands-
kjördæmi eystra og formaöur
sjávarútvegsnefndar Alþingis,
um ályktun landsfundarins
um stjóm fiskveiöa.
í ályktuninni kemur m.a.
fram að landsfundurinn telur að
gjörbreyta þurfi núverandi fyrir-
komulagi um stjórn fiskveiða.
Meðal annars sé að myndast
eignarhald fárra einstaklinga á
þessari sameiginlegu auðlind
þjóðarinnar, auk þess sem um-
gengnin um auölindina sé ekki í
neinu samræmi vib hugmyndir
Alþýðubandalagsins um um-
hverfismál og sjálfbæra þróun.
í samþykkt landsfundarins
eru ítrekaðar fyrri samþykkir
þess efnis ab öll þjóðin eigi að
njóta afraksturs af sínum auð-
lindum þar sem sameiginlegt
eignarhald sé ótvírætt. Þá var
framkvæmdastjórn falið að
koma af stab umræðum í flokks-
félögum um mótun heildstæðr-
ar sjávarútvegsstefnu. -grh
Nýtt framhaldsskólafrumvarp lagt fram á Alþingi. Hjálmar Árnason:
Tryggir lifandi tengsl
skóla vib umhverfi sitt
Aukin sóknarfæri í starfs-
menntun og aukiö sjálfstæöi
skóla eru helstu ávinningamir
sem felast í nýju framhalds-
skólafmmvarpi aö mati
Hjálmars Árnasonar, varafor-
manns menntamálanefndar
Alþingis og fyrrverandi for-
manns Skólameistarafélags ís-
lands.
Menntamálaráðherra hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um framhaldsskóla. Frum-
varpið var lagt fram á síöasta
þingi en hlaut þá ekki af-
greiðslu. Frumvarpið er nú lagt
aftur fram í nokkuð breyttri
mynd. Tíminn spurði Hjálmar
Árnason alþingismann um
helstu breytingarnar sem frum-
varpið feli í sér.
Hjálmar segist sjá fyrir sér að
verði frumvarpið ab lögum
skapist veruleg sóknarfæri til
aukinnar starfsmenntunar með
abild atvinnulífsins. Ekki síður
segir hann mikilvægt að ein-
stökum skólum sé gert kleift að
fara ólíkar leiöir að því marki.
Bæði fjárhagslegt og faglegt
sjálfstæði skóla sé þannig aukið
all verulega.
Hjálmar nefnir einnig ákvæði
um endurmenntun en sam-
kvæmt því er framhaldsskólum
gert heimilt að starfrækja nám-
skeið eba nám í samráði við t.d.
faggreinafélög, stéttarfélög eða
atvinnurekendur. Hann segir
mikilsvert að skólum sé gert
kleift að efla tengsl við um-
hverfi sitt á þann hátt.
Gagnrýnt hefur verið að inn-
tak eða form starfsmenntunar
sé ekki skilgreind nánar í frum-
varpinu. Hjálmar tekur ekki
undir þá gagnrýni heldur segir
hann eölilegt að lagaramminn
sé opinn. „Þar er kveðið á um
meb hvaða hætti atvinnulífið
kemur að starfsmenntuninni.
Hins vegar er það skólanna
sjálfra að útfæra námið enda eru
aðstæður og áherslur ólíkar eftir
skólum. Á þessu byggja einmitt
sóknarfæri skólanna," segir
Hjálmar.
Tengsl atvinnulífs og skóla
felast samkvæmt frumvarpinu
fyrst og fremst í skipan sérstakr-
ar samstarfsnefndar um starfs-
nám á framhaldsskólastigi.
Nefndin skal skipuð 18 fulltrú-
um sem tilnefndir eru m.a. af
ASÍ, BSRB og VSÍ. Einnig verba í
henni fulltrúar kennara, skóla-
stjórnenda o.fl. Nefndin á að
vera menntamálaráðherra til
ráðuneytis um stefnumótun í
starfsnámi og setningu reglna
um skipan og framkvæmd
starfsnáms. Einnig er kvebið á
um skipan starfsgreinaráðs fyrir
einstakar starfsgreinar sem geri
tillögur um uppbyggingu náms
og námsskrá í sérgreinum við-
komandi starfsnáms svo og um
tilhögun námsmats. Að lokum
er skólanefndum gert heimilt að
setja á fót ráðgjafanefndir við
einstaka skóla meb fulltrúum
atvinnulífs í viðkomandi byggb-
arlagi.
„Hið síðastnefnda gerir skól-
um mögulegt að vera í beinu
samstarfi vib fyrirtæki og full-
trúa atvinnulífs á svæðinu til að
móta þar endurmenntun, full-
orðinsfræðslu og starfsnám.
Þannig eru, ab mínu mati, lif-
andi tengsl á milli einstakra
skóla og þess umhverfis sem
rekast í," segir Hjálmar.
í frumvarpinu er ákvæði um
ab inntökuskilyrði verði sett á
námsbrautir framhaldsskóla. Til
viðmiðunar verði einkunnir á
samræmdu grunnskólaprófi og
skólaeinkunnir úr grunnskóla.
Hjálmar segist ekki líta svo á að
þetta ákvæbi feli í sér miklar
breytingar frá því sem nú er.
„Það eru margir skólar í dag
meö mjög ströng inntökuskil-
yrði og velja jafnvel inn eftir
einkunnum. Ég lít því ekki svo á
að hér sé um róttæka breytingu
að ræða." -GBK