Tíminn - 19.10.1995, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 19. október 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
BOSfiFiRDINGUR
BORGARNESI
Sorpuröunarmálib:
Forkaupsréttur
felldur úr gildi
Landbúnaðarráöherra hefur
úrskurbað í kærumáli vegna for-
kaupsréttar sem Borgarbyggð
hugöist neyta á jörðinni Fífl-
holtum og er skemmst frá því
að segja að sveitarfélagiö fær
ekki að neyta forkaupsréttar.
í dómnum segir m.a.: „Til-
gangur jarðalaganna er bersýni-
lega sá að tryggja nýtingu lands
utan skipulagöra þéttbýlissvæða
í þágu landbúnaðar og þeirra
sem hann vilja stunda. ... Þann-
ig er ekki um það að ræða að
bæjarstjórn Borgarbyggðar hafi
neytt forkaupsréttar aö jörðinni
Fíflholtum vegna hagsmuna
sveitarfélagsins á sviði landbú-
anaðar. ... Því veröur að fallast á
það meö kærendum að bæjar-
stjórn Borgarbyggðar hafi, eins
og hér stóð á, verið óheimilt ab
neyta forkaupsréttar að jörðinni
Fíflholtum, samkvæmt heimild
1. mgr. 30. gr. jarbalaga nr.
65/1976 meö síöari breyting-
um."
Gubmundur Guðmarsson,
forseti bæjarstjórnar, sagði er
málib var borið undir hann:
„Ég óttast ab þessi afgreiðsla
geti komiö til með að brjóta
upp samstarf sveitarfélaga um
sorpurðun á Vesturlandi."
Munir frá Listiðjunni Eik
vekja athygli í Finnlandi:
Hringprjónn úr
hrosslegg og hross-
hári slær í gegn
Munir úr horni og beini frá
Listiðjunni Eik, hannaöir og
smíðaðir af Hlyni Halldórssyni
og Eddu Björnsdóttur, vöktu
mikla athygli á sýningu sem
haldin var í Hanaholmen kult-
ursentrum í Finnlandi í síðustu
viku. Sýningin var haldin í
tengslum við ráðstefnu á veg-
um Samtaka um fullorðins-
fræðslu á Norðurlöndum og var
þeim Eddu og Hlyni boðið að
sækja þingið ásamt Jóhönnu
Pálmadóttur, sem veitt hefur
Ullarselinu á Hvanneyri for-
stöðu, en munir unnir í Ullar-
selinu og víðar voru einnig
sýndir á þinginu.
Tvenn félagasamtök á íslandi,
Bændasamtökin og UMFÍ, eru í
samtökunum og sóttu ráðstefn-
una af þeirra hálfu þau Jónas
Jónsson búnaðarmálastjóri og
Kristín Gísladóttir. í viðtali við
blaðiö sagði Jónas Jónsson að
tilgangur samtakanna væri að
efla handverk í hinum dreifbu
byggbum á Norburlöndum með
það að markmiöi að auka at-
vinnumöguleika þar. Hann
sagði muni þeirra Hlyns og
Eddu hafa vakið mikla athygli
lörbin sem allt hefur snúist um, Fíflholt.
sýningargesta fyrir fallegt hand-
bragð, frumlega hönnun og
óvenjulegt hráefni. Sérstaka at-
hygli vakti hringprjónn unninn
úr hrosslegg og hrosshári. Eins
þóttu skartgripir úr horni, beini
og tönnum bæði óvenjulegir og
fallegir.
Samþykkt á hluthafafundi
SR-mjöls hf. ab hefja bygg-
ingu í Helguvík:
Lobnuverksmibjan
komin í höfn!
Á hluthafafundi í SR-mjöli hf.
fyrir skömmu var samþykkt ein-
róma að hefja byggingu fiski-
mjölsverksmiðju í Helguvík.
Stefnt er að því að ljúka bygg-
ingu hennar á 15 til 16 mánuð-
um, eða um áramótin 1986-7.
Byggingarkostnaður er áætlaður
um 600 milljónir króna og
stærö húsnæðis um 3 þús. fer-
metrar. Áætluð afkastageta er
um 700 tonn á dag. Jafnhliba
þessari ákvörðun SR-mjöls var
ákveðið að auka hlutafé í fyrir-
tækinu. „Það er gaman þegar
draumar rætast, ekki síst svona
stórir eins og þessi. Það er ljóst
að þetta verður mikil vítamín-
sprauta fyrir atvinnulífiö á Suð-
urnesjum," sagði Þorsteinn Er-
lingsson, stjórnarformaður
Helguvíkurmjöls hf., en hann
hefur staðib manna fremstur
fyrir byggingu loðnuverksmiðju
í Helguvík.
Bæjarstjórn lokar Lífeyrissjóbi
starfsmanna Vestmannaeyja-
bæjar:
Starfsmannafélag-
iö áskilur sér allan
rétt til aö taka
máliö upp á ný
Fyrir bæjarráði á mánudaginn
lá fyrir bréf frá Starfsmannafé-
lagi Vestmannaeyjabæjar þar
sem greint er frá því ab félags-
menn hefðu samþykkt kjara-
samning í atkvæðagreiðslu í
síðustu viku. Jafnframt lá fyrir
yfirlýsing stjórnar félagsins þar
sem hún áskilur sér rétt til að
taka lífeyrismál til endurskoð-
unar í næstu kjarasamningum.
Bæjarráð samþykkti samning-
inn, en meirihluti sjálfstæðis-
manna lét bóka, vegna yfirlýs-
ingar stjórnar Starfsmannafé-
lagsins, að farið yröi eftir
ákvæðum reglugerðar Lífeyris-
sjóbs starfsmanna Vestmanna-
eyjabæjar frá 5. sept. 1994 sem
var staðfest af fjármálarábu-
neytinu þann 10. okt. sama ár.
„Þessi afstaða Vestmannaeyja-
bæjar var ljós við afgreiðslu
kjarasamnings, og lítur bæjar-
ráö svo á að félagsmenn Starfs-
mannafélagsins hafi með sam-
þykkt samningsins fallist á þá
skipan mála. Bæjarráð ítrekar
aö málefni Lífeyrissjóðsins eru
óviðkomandi viðræðum um
gerð kjarasamnings," sögðu
sjálfstæðismenn í bókun sinni.
Fulltrúi Vestmannaeyjalistans
lét bóka ab hann vísabi til fyrri
fyrirvara vegna lífeyrissjóðs-
málsins.
Deilan um lífeyrismálið á
rætur að rekja til þeirrar ákvörð-
unar bæjarstjórnar að loka Líf-
eyrissjóði starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar frá síðustu ára-
mótum. Allir, sem hófu störf
hjá bænum eftir þann tíma,
verða félagar í Lífeyrissjóði
Vestmannaeyinga.
Skagafjörður:
Samstarf kannaö í
skólamálum
Á fundi bæjarrábs Sauðár-
króks á dögunum var lagt fram
bréf frá hreppsnefnd Skefils-
staðahrepps, þar sem óskað er
eftir viðræðum við bæjarstjórn
Sauðárkróks um mögulega aðild
Skefilsstaðahrepps ab Grunn-
skóla Sauðárkróks. Var bæjar-
stjóra og formanni skólanefnd-
ar falið ab ganga til viðræðna
við hreppsnefnd Skefilsstaða-
hrepps um málib.
Ab sögn Björns Sigurbjörns-
sonar, formanns bæjarráðs og
skólastjóra Gagnfræðaskólans,
er í gangi samstarf við Rípur-
hrepp, sem sent hefur nemend-
ur í elstu bekkjum grunnskól-
ans til Saubárkróks, og eru uppi
hugmyndir um nánara samstarf
en verið hefur. Björn segir góða
reynslu af þessu samstarfi. „Vib
erum mjög sáttir við að sam-
starf eflist og dafni milli sveitar-
félaganna á þessum svibum sem
öðrum."
Samþykkt var á hluthafafundi SR- mjöls hf. fyrir skömmu ab hefja byggingu lobnuverksmibju í Helguvík.
Togaraskýrsla LÍÚ fyrstu átta mánuöi ársins:
Arnar HU 1 með
mesta aflaverömætið
Frystitogarinn Arnar HU 1 frá
Skagaströnd var með mesta afla-
verðmæti togaraflotans fyrstu
átta mánuði ársins, eða tæpar
372 miljónir króna. Athygli vek-
ur ab þrátt fyrir ab togarinn sé
búinn að tróna í og vib toppinn
frá því hann kom til landsins
fyrir nokkrum árum, virðist ekki
vera grundvöllur fyrir áfram-
haldandi rekstri hans. Togarinn
hefur verið seldur úr landi og
verður á næstunni afhentur nýj-
um eigendum.
í togaraskýrslu LÍÚ kemur fram
að á þessu tímabili hefur heildar-
aflaverðmæti frystitogara aukist
um 6,9%, en minnkab um rúm 7%
hjá ísfisktogurum. Á tímabilinu
fækkabi úthaldsdögum ísfisktogara
um rúm 13%, en úthaldsdögum
frsytitogara fjölgaði um 4,3%.
Þannig var heildaraflaverðmæti ís-
fisktogara 6.774 miljónir króna á
móti 7.297 miljónum á sama tíma
í fyrra. Þá var aflaverðmæti frysti-
togaraflotans 8.933 miljónir kr. á
móti 8.356 miljónum fyrstu átta
mánubina í fyrra.
Af ísfisktogurum var Grandatog-
arinn Ásbjörn RE með mestan
meðalafla á hvern úthaldsdag, eða
24,24 tonn. Togarinn var einnig
með mesta aflaverðmætib, 206 mi-
ljónir króna. Samherja-frystitogar-
inn Baldvin Þorsteinsson EA var
hinsvegar með mestan afla á út-
haldsdag af frystitogurum, eba
24,54 tonn að jafnaði.
Skiptaverðmæti ísfisktogara á
hvern úthaldsdag jókst ab meðal-
tali um rúm 8% á þessu tímabili. Á
sama tíma jókst meöalskiptaverð-
mæti frystitogara um 1,7%. Meöa-
laflaverðmæti alls togaraflotans
jókst aftur á móti um 7,7%.
Á umræddu tímabili dróst
meðalafli togaraflotans saman um
0,89% á hvern úthaldsdag miðað
við sama tíma í fyrra. Hjá ísfisktog-
urum nemur aflasamdrátturinn um
1,03%, en hvorki meira né minna
en 16,13% hjá frystitogurum.
-grh
Eggert Briem, Elísabet Cubjohnsen, Kjartan C. Magnússon, Haflibi P. Gíslason,
Gubmundur G. Haraldsson, Leó Kristjánsson, LeifurA. Símonarson, Robertj.
Magnus og Sigríbur jónsdóttir.
Raunvísindastofnun Háskólans:
Ný stjóm kjörin
1 byrjun september tók til
starfa ný stjórn Raunvísinda-
stofnunar Háskóla íslands og er
hún kjörin til 4 ára í senn.
Stjórnina skipa: Eggert Briem
prófessor, stjórnarformaður; Haf-
liöi P. Gíslason prófessor, Jón
Geirsson dósent, Leifur A. Símon-
arson prófessor, Leó Kristjánsson
vísindamaöur, Kjartan G. Magn-
ússon dósent, Jakob Yngvason
prófessor og Sigríður Jónsdóttir
sérfræðingur. Elísabet Guðjohn-
sen er framkvæmdastjóri stofn-
unarinnar.
Þess má geta að Raunvísinda-
stofnun á 30 ára afmæli á næsta
ári. ■
Fjórar mcelingar á fiski í Smugunni eftir gildistöku nýrrar reglugerbar:
Eitt tilvik stóðst
ekki viðmiðun
1 fjórum mælingum varðskips-
manna á Óðni á afla íslenskra
skipá í Smugunni, eftir gildis-
töku reglugerðar 20. september
sl., kom í ijós að aflinn stóðst ís-
lensk viðmiðunarmörk um lok;
un svæba nema í einu tilviki. í
öllum fjórum tilvikunum stóbst
aflinn hinsvegar viðmiðunar-
mörk Norðmanna.
Samkvæmt norskum reglum er
mibab við þab hvort meira en 15%
af afla sé undir 47 cm, þegar
ákvarðanir eru teknar um lokun
svæða. íslenska viðmiðunin er aft-
ur á móti sú ab svæbum er lokað,
þegar meira en 25% aflans er undir
55 cm.
í fyrstu mælingu var aflinn 7
tonn og mældir 452 fiskar. Þar af
voru 80 undir 55 cm, eða 17,7%,
og 9 undir 47 cm, eða 2%. í ann-
arri mælingu var aflinn 14 tonn og
mældir 513 fiskar. Þar af voru 146
undir 55 cm, eða 28,5%, en 17,
undir 47 cm, eba 3,3%. I þriðju
mælingu var aflinn 10 tonn og
mældir 304 fiskar. Undir 55 cm
voru 15, eða 4,9%, og einn fiskur
undir 47 cm, eöa 0,3%. I fjórðu og
síðustu mælingunni var aflinn 2,5
tonn og 250 fiskar mældir. Undir
55 cm voru 38 fiskar, eða 15,2%,
og 23 undir 47 cm, eða 9,2%.
En eins og kunnugt er, þá var
eftir 20. september sl. öllum ís-
lenskum skipum í Smugunni gert
skylt að nota a.m.k. 155 mm
möskva í 8 öftustu metrum botn-
og flotvörpu. Þab voru mun strang-
ari kröfur en Norðmenn gera til
norskra skipa á svæðinu. Reglu-
gerðin var sett eftir að fyrri mæl-
ingar varðskipsmanna höfðu leitt í
ljós að allmikið var um smáan fisk
í afla íslensku skipanna, þótt hann
stæðist norsk viðmibunarmörk.
-grh