Tíminn - 27.10.1995, Qupperneq 3

Tíminn - 27.10.1995, Qupperneq 3
Föstudagur 27. október 1995 3 Isafjöröur: Áfall Og vonbrigði Á ísafiröi var mikill óhugur í fólki í gær og ljóst aö efasemd- ir hafa vaknaö um framtíöar- búsetu hjá mörgum. íbúi á ísa- firöi sagöi aö fólk væri mjög slegiö, áfalliö heföi veriö æriö eftir Súöavíkurhamfarirnar þótt þetta bættist ekki viö. „Menn upplifa þetta fyrst og fremst sem áfall og von- brigöi/' sagöi viömælandi blaösins sem ekki vildi láta nafns síns getiö. Nokkur hús voru rýmd á ísa- firöi þegar Veðurstofan spáöi óveðrinu fyrr í vikunni en fólk hefur haldið stillingu sinni og ekki leitað úr þeim húsum sem talin eru utan hættusvæðis, þrátt fyrir að snjóflóðið á Flat- eyri hafi farið miklu neðar en heimildir eru áður um. Urðar- vegur, Hlíðarvegur og Selja- landsvegur eru þær götur sem hæst standa á ísafirði. -BÞ 18. þing VMSÍ: Bænastund vegna snjóflóðsins Þingfulltrúar á 18. þingi Verkamannasambands Is- Iands sameinuðust í tveggja mínútna bæn kl. 11 í gær- morgun vegna þeirra hörmu- legra atburöa sem uröu á Flat- eyri í fyrrinótt. Þingfundi var síöan frestaö í hálfa klukku- stund. Eftir hádegi hélt Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur erindi þar sem hún bar saman lífskjör á íslandi og í Danmörku. En eins og kunnugt er þá hefur margt fólk leitaö fyrir sér um störf erlendis og þá einkum í Danmörku þar sem fólk fær mun hærri laun en tíðkast hér- lendis fyrir sömu vinnu. Við setningu þingsins kom m.a. fram hjá Birni Grétari Sveinssyni formanni VMSÍ að framtíðarsýnin í kjara- og launabaráttunni væri að tryggja launafólki sambærileg laun og afkomu og er t.d. í Danmörku, Svíþjóö og Noregi. í þeim efn- um lagði hann áherslu á kaup- mátt, lengd vinnutíma, félags- leg réttindi og aðra þætti vel- ferðarkerfisins. Björn Grétar sagði að það mætti ekki taka langan tíma að ná þessum markmiðum til hagsbóta fyrir fjölskyldur og heimilin í land- inu. -grh Sjofloðið og hættumörkin. Punktalinan sýnir hvar hættumatið dregur mörkin, en sjóflóðahætta átti ab vera ofna við línuna. Óbrotna línan sýnir hvernig flóðib féll í raun og veru. Drög oð nýju hœttumati, sem gerö voru í sumar, sýna oð húsin sem fóru undir flóöib séu á öruggu svceöi. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins: Tel útilokab að hægt sé ab spá um hluti sem þessa Húsin 17 sem lentu í snjóflóö- inu voru á svæöi sem eru ekki á hættusvæöi samkvæmt gildandi hættumati fyrir Flat- eyri frá 1990 — né heldur í tillögu aö endurskoöuöu hættumati, sem nú er komiö til skipulagsstjóra ríkisins og félagsmálaráöherra. Þetta mat var unniö í sumar af Verkfræöistofu Siglufjaröar fyrir Ofanflóöanefnd. Varnar- búnaöur sem geröur hefur veriö fyrir ofan þorpiö kom aö engum notum. „Ég er afskaplega hræddur um ab hér sannist enn og aftur aö þrátt fyrir alla okkar þekkingu og kunnáttu er þetta ekki nógu löng saga sem við höfum ab byggja á. Ég sé ekki að nokkrum manni sé mögulegt aö spá fyrir um svona nokkuð. Ég tel að vel hafi verið vandað til þessarar endurskoðunar, en áreiðanlega þekkjum við náttúruöflin ekki til neinnar hlítar," sagði Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins í samtali við Tímann í gær. Margir benda á þéttari byggð Tókst aö halda rafmagni á stœrstum hluta Flateyrar meö díselvélaframleiöslu: Abalspennistöb Orkubúsins eybilagbist í snjóflóbinu „Ég hef aldrei oröiö vitni aö annarri eins eyöileggingu á lín- unum og gerst hefur ab þessu sinni," sagöi Kristján Haralds- son, framkvæmdastjóri Orku- bús Vestfjarba í gær. Orkubúi Vestfjarða tókst vel að halda rafmagni í húsum í neðri hluta Flateyrar í gær. Þar eru tvær dísilvélar sem eru niðri á eyrinni og skemmdust því ekki. Kristján Haraldsson Orkubússtjóri sagði í samtali við Tímann í gær að hins vegar hefði aöallspennistöö Orkú- búsins skemmst í flóöinu, en það þýddi að rafmagnslaust væri í hús- um í ofanverðu þorpinu. Unnið var í gær að því að leiða rafkapla ofanjaröar til að fá hita í húsin. Ekki væri reiknað með að fólk flytti inn í þau á næstu dögum. Línuflokkar voru í gær aö vinna við viðgerðir á sveitalínum í Dýra- firöi og Önundárfiröi við hin verstu skilyrði. Aðalvandamáliö er hins vegar að stofnlínunarnar tvær, aöalorkuflutningslínumar, eru mjög illa famar, mikið brotn- ar bæði í Arnarfiröi og Önundar- firbi. „Við erum núna að fá fréttir af ástandinu. Þetta er geysilegur fjöldi af staurum sem eru farnir. í stærri línunni okkar eru fimmtán tvístæður í það minnsta farnar í Arnarfirði og níu í Öndunarfiröi. í minni línunni, sem er eldri, eru að minnsta kosti 30 staurar famir í Arnarfirði og 14 í Önundarfiröi. Við sjáum ekki fram á aö við ná- um orku frá Mjólkárvirkjun hing- að fyrr en í fyrsta lagi einhvern- tíma í næstu viku og meöan ríkir skömmtunarástand á orkusvæð- inu," sagði Kristján Haraldsson. Hann sagði aö ástandið kæmi auðvitað afar illa við fólk og fyrir- tæki. -JBP á fullkomlega öruggum bygg- ingareitum í þorpum landsins til að auka öryggi fólksins. Stef- án segir að það eigi sér söguleg- ar skýringar ab það er ekki gert, það hafi sýnt sig að fólk vill hafa rýmra um sig í þorpunum. Blokkir sem byggðar voru á veg- um Húsnæðisstofnunar á átt- unda áratugnum eigi hreinlega ekki við í þessu umhverfi. „En það má frekar spyrja sig hvers vegna ekki var byggt inni í Önundarfirði í landi Holts. Eftir á að hyggja hafa margir staðir byggst þrátt fyrir yfirvof- andi hættu og sóíarleysi. En alltaf geta menn veriö vitrir eft- ir á," sagbi Stefán Thors. Nýtt aöalskipulag fyrir Flat- eyri hefur verið í vinnslu síð- ustu 7-8 árin. Ekki hefur náðst að ganga frá því endanlega. Það var ekki endanlega frágengið að sögn Stefáns Thors vegna þess að þar átti eftir aö ákveða end- anlega varnarvirkin. Komnir voru varnargarðar upp í hálfa hæð, búið að lengja annan þeirra og loka spíssinum og þá var gert ráb fyrir netum uppi í fjallinu, en bíða átti meb að ákveða endanlega aðalskipulag- ið þangab til nýja hættumatið lægi fyrir. -JBP

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.