Tíminn - 16.11.1995, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 16. nóvember 1995
Tíminn
spyr...
Á ab endurskoba ákvörbun um
ab einkavæba Neybarlínuna?
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Rauða krossins:
ísland er bundiö vegna EES ab
taka upp evrópskt neyðarnúmer,
112, enda verulegt hagræði og ör-
yggi fólgiö í að hafa eitt nónier á
íandinu ölu. Rekstrarformið er um-
hugsunarefni en þó viröist ljóst að
stjórnvöld vilji frekar að reksturinn
sé í höndum annarra en ríkisins.
Þar sem um nýja starfsemi er að
ræða er æskilegt að samstaða ríki
um rekstrarfyrirkomulagið og fullt
traust sé borið til rekstraraöilans.
Athugasemdirnar sem fram hafa
komið að undanförnu hlýtur að
verða að skoða í því ljósi, þótt ég
telji að bera megi fullt traust til
þeirra aðila sem samið hefur verið
við.
Hannes Gubmundsson, fram-
kvæmdastjóri Securitas:
Ástæðan fyrir því að ríkib fer
þessa leið er einfaldlega sú að það er
aö spara skattgreiðendum pening
meb því að fá greiðslur frá einkafyr-
irtækjum líka til aö minnka kostn-
aðinn. Þab eru fullgild rök að verið
er að gæta hagkvæmni í rekstri. Ég
blæs á rök Ögmundar um að ein-
staklingur sem er starfsmaður Secu-
ritas sé ekki jafn líklegur til að gæta
trúnaðarupplýsinga og opinber
starfsmaður. Maöur er forviba eftir
þessa grein Ögmundar í Morgun-
blaðinu í gær, aö þingmaður og for-
maður stéttarfélags sé haldinn slík-
um fordómum ab kveða upp úr
meö þab að einkafyrirtæki sé ekki
treystandi. Þetta hlýtur að kalla á
hörö viðbrögö hjá verkalýöshreyf-
ingunni.
Pétur Blöndal þingmabur:
Nei. Mér finnst rétt að einkavæða
Neyöarlínuna, það er skilvirkasta
leiðin til að fá góöa og skjóta þjón-
ustu. Það sýnir sig aö opinber þjón-
usta er yfirleitt ekki eins skilvirk,
það koma upp biðraðir og annnað
slíkt sem fyrirfinnast ekki í einka-
rekstri.
Vesturbyggö er í miklum fjárhagsvanda, en allt kapp lagt á aö minnka skulda-
baggann og niöurgreiösla skulda er þegar hafin. Císli Olafsson bœjarstjóri:
Vib eram ekki á leið
í félagsmálaráðuneytib
Vesturbyggb er ekki á leibinni
til félagsmálarábuneytis meb
fjárhagsvanda sinn. Staba
hins nýja sveitarfélags, Vest-
urbyggbar, er þó afar slæm.
Hver íbúi byggbarlagsins, en
þar búa 1.395 manns, skuldar
um 215 þúsund krónur, ef
skuldinni er jafnab nibur.
Bæjarstjórinn, Gísli Ólafsson,
segir ab þetta séu slæmu frétt-
irnar. Góbu fréttirnar séu ab
menn sjái þó til lands og
framundan sé stórfelld lækk-
un skuldaklafans og þab verk
hafib. Verri tölur blöstu vib
fyrir ári síban þegar Patreks-
fjörbur, Bíldudalur og sveita-
hreppar sameinubust í Vest-
urbyggb.
Hert á sultarólinni
„Núna stöndum vib frammi
fyrir því ab geta ekki stabib
undir neinum framkvæmdum,
og þurfum ab draga úr þjón-
ustu kostnabarlega séb eins og
mögulegt er til ab laga fjárhags-
lega stöbu sveitarfélagsins. Þá á
ég vib ab draga úr rekstri mála-
flokka, gera þá eins ódýra og
hægt er, draga úr mannahaldi
og öbrum tilkostnabi," sagbi
Gísli. Bæjarfulltrúar gengu
reyndar á undan meb góbu for-
dæmi og lækkubu laun sín um
25% nýlega. Bíldudalur fær
heldur ekki íþróttahús í bili, og
Patreksfjöröur ekki nýtt skóla-
hús sem er í byggingu.
Sameining mun
sanna gildi sitt
Ársreikningur sveitarfélags-
ins var lagbur fram á fundi bæj-
arstjórnar Vesturbyggbar í
fyrradag. Gísli Ólafsson sagbi
ab sameining sveitarfélaganna
hefbi mebal annars skilab því
ab skuldajöfnunarframlagib er
upp á 66 milljónir króna og
kemur inn á þessu ári og dregst
frá 400 milljón króna heildar-
skuld samkvæmt ársreikningi
1994.
„Þegar til langs tíma er litib
mun sameiningin skila sér, þab
Frá Patreksfiröi.
er ekki nema tæpt ár frá sam-
einingunni. Eftir fimm til tíu ár
munu menn ekki lengur efast
um gagnsemi sameiningar, sem
mun birtast í betri og öruggari
þjónustu vib íbúana, ab hægt
verbi ab halda uppi lögbund-
inni þjónustu," sagbi Gísli.
Vilja vinna sig sjálfir
út úr vandanum
Gísli Ólafsson sagbi ab búib
vari nú þegar ab taka á ýmsum
þeirra vandamála sem vib
blöstu. Rekstrarkostnabur á
þessu ári er áætlabur 120 millj-
ónir og virbist þab ætla ab
ganga eftir, reksturinn kostabi á
síbasta ári 136 milljónir króna.
Á næstu tveim árum er reiknab
meb ab talan lækki enn.
„Sveitarfélög hér vestra og
raunar víbar á landinu skulda
eins mikla og meiri peninga
eins og Vesturbyggb. Séum vib
á leib til félagsmálarábuneytis-
ins þá hlýtur rábuneytib verba
ab taka á móti skara af sveitar-
félögum. Vib höfum engin
áform uppi um ab leita til fé-
lagsmálarábherra. Vib munum
vinna okkur sjálf út úr vandan-
um. Þab gerum vib meb gagn-
gerri endurskipulagningu á
rekstrinum í samrábi vib ráb-
gjafa og Samband íslenskra
sveitarfélaga. Þab er okkar vett-
vangur," sagbi Gísli Ólafsson.
Gísli segir ab rekstur sveitar-
félagsins hafi kostab 98% af
skatttekjunum 1994, 138 millj-
ónum króna. í ár mun rekstur-
inn kosta um 120 milljónir í
stab 136 milljóna, auk þess sem
skatttekjurnar eru hækkandi og
fara í 150 milljónir. Þetta segir
Gísli skipta sköpum. Þab þýbi
ab meb abhaldi í rekstri bæjar-
félagsins sé hægt ab hefja nib-
urgreibslu skulda.
Lækkun á 400 milljón króna
skuld sem blasti vib nýja sveit-
arfélaginu, sem Patreksfjörbur
og Bíldudalur mynda, á ab
verba hröb. Frá jöfnunarsjóbi
sveitarfélaga eiga ab koma 66
milljónir króna. Tekist hefur ab
selja eignir, fyrst og fremst
hlutabréf og hlutdeild í útgerb-
arfélagi, 24 milljónir. Meb
samningum hefur líka tekist ab
lækka skuldirnar til vibbótar
um 20 milljónir. Þetta eru 110
milljónir króna.
„Þetta leibir til þess ab heild-
arskuldin á ab fara í um þab bil
300 milljónir króna. Vib eigum
miklar eignir, verbúbir, vöru-
skemmur, íbúbir og fleira sem
er seljanlegt. Þab tekur tíma ab
selja þessar eignir, en ég geri
ráb fýrir ab þab verbi komib í
höfn fyrir árslok 1996, en
þarna teljum vib ab séu 30 til
40 milljónir króna," sagbi Gísli
Ólafsson.
-JBP
Sagt var...
Óréttlát ákvörbun
„Nú spyr ég: Hver eru rökin fyrir því
aö láta fólk, sem vegna sjúkdóms
getur ekki átt börn, greiða allan
kostnað við glasafrjóvgunardeild
Landspftalans sem er ríkisrekin stofn-
un. Þetta fólk greiöir sömu skatta og
aðrir landsmenn og meðal annars
fyrir skólagöngu barnanna okkar,
leikskóla o.fl. Þó að það komi ekki til
með að geta glaðst yfir velgengni
barnanna sinna eins og við."
Anna Kristín Bjarnadóttir í Mogganum.
Sibspillandi óþverri í RÚV
„Ríkisútvarpið á ekki rétt á að senda
þennan siðspillandi óþverra inn á
heimilin í landinu. Það ætti að varða
við refsilög. Greiðið því ekki afnota-
gjöldin. Og ennfremur: Ég skora á
allar konur aö kaupa ekki dömubindi,
sem auglýst eru í Sjónvarpinu."
Önundur Ásgeirsson er ekki hrifinn af
dagskrá Ríkissjónvarpsins. Mogginn.
Enga pólltíkusa til Bessastaba
„Reglan ætti að vera: Enginn úr
stjórnmálum til Bessastaða. Finnist
ekki hlutlaus aöili, þ.e. sem ekki hefur
blandast í stjórnmál, á hreinlega aö
leggja embættið niður og sameina
það embætti forsætisráðherra."
Fribjón í DV.
Sami rass í sömu skál
„Þegar ein konan pissar veröur ann-
arri mál, segir í einhverju góðu nátt-
úrufræðiriti. Eða var það kýrin? Skipt-
ir ekki máli. Kemur út á eitt. Það er
sami rassinn undir þeim öllum."
tnngangur Sverris Stormskers í DV, en
hann skrifar þar um ímyndir og ímynd-
unaraflsleysi.
Dabbi flottastur
„Indíánahöfðinginn er með skraut-
legasta fjaðravirkiö á hausnum, for-
stjórinn sýgur vindla en ekki sleiki-
brjóstsykur, Dabbi ráðherramamma
er á fínustu kerrunni með vígaleg-
ustu krullurnar osfrv. Áhugamálin
verða að ríma við ímyndina. Rak-
spíralyktandi skjalatöskuplebbi fer í
veggtennis, ekki í brennó. Færi virðu-
leg vindlasuga með hraustlega reyrt
bindi, blá í framan, að æfa pílukast?
Hæpið. Ekkert fíntvið það."
Sami.
Trillukarl frá Akranesi mætti í
pottinn í gær og þungt var í hon-
um vegna banndaga og lélegs
ýsuverbs. Hann upplýsti ab búib
væri ab festa í málinu nýtt orb í
tilefni af því ab smábátar þyrftu
ab sæta þeim afarkostum að láta
kontórista úr Reykjavík ákveba
hvort þeir færu á sjó eba ekki.
Þetta orb er nýyrbið „banndaga-
blíba" og er notab um vebur
þegar hvergi gárar á hafflötinn
en enginn fer á sjó vegna bann-
daga.
Þab fór heldur betur um mann-
skapinn á FFSÍ þinginu í gær þeg-
ar Gubjón A. Kristjánsson fyrr-
um fyrsti varaþingmabur Sjálf-
stæbisflokksins á Vestfjörbum og
núverandi annar varaþingmabur
flokksins vék ab foringja sínum
og meistara Davíb Oddssyni for-
sætisrábherra og þeim skobunum
sem Davíb lét uppi f maf sl. um
kröfugerb sjómanna. Gubjón
sagbi í ræbustól: „Þab var mikil
fljótaskrift á þessari afstöbu for-
sætisrábherra og jafn vel gefinn
mabur sem fljótur er ab átta sig á
hlutunum átti ab kynna sér málib
frá bábum hlibum í stab þess ab
gerast flýtibúktalari fyrir Kristján
Ragnarsson." í pottinum velta
menn því fyrir sér hvort einhver
bendi Gubjóni ekki á ab „svona
tali menn ekki"...