Tíminn - 16.11.1995, Qupperneq 8
8
iMrg---r.----
Fimmtudagur 16. nóvember 1995
Forrábamenn íslensks markaöar vilja einkavœöa Keflavíkurflugvöll:
Er fariö aö þörfum markaöarins?
Bo Haugaard, markaösstjóri KLH. TímamyndirBÞ
Nýlega fór sendinefnd opin-
berra embættismanna auk
fréttamanna til Kaupmanna-
hafnar ab frumkvæbi forrába-
manna íslensks markabar hf.
Tilgangur ferbarinnar var ab
kynna sér abstæbur Ðana á
Kaupmannahafnarflugvelli, en
Danir hafa afnumib hreinan
ríkisrekstur á flugstöbinni og
eru um 25% hlutabréfa nú í
eigu einkaabila.
Forrábamenn íslensks markab-
ar telja tímabært ab einkavæba
Leifsstöb í áföngum og vilja
stybjast við dönsku fyrirmynd-
ina. Þröstur Ólafsson stjórnarfor-
mabur segir ab breyta þurfi
stjórnunarfyrirkomulagi Kefla-
víkurflugvallar meb þab ab
markmibi ab styrkja rekstur hans
og auka markaðssetningu. „Nú-
verandi embættismannastjórn
hnígur einkum að því að tryggja
sem mestar tekjur ríkissjóðs af
flugstöðinni og rekstri flugvallar-
ins, og svo ab því ab tryggja að
lögum og reglum sé framfylgt,"
segir Þröstur.
Breytt umhverfi
Stjórn ÍM bendir á ab rekstrar-
legt umhverfi evrópskra flugvalla
hafi gerbreyst síbustu 10-15 árin.
Þeir hafi breyst úr opinberum
brottfarar- og komustöbum í
umfangsmiklar viðskiptamib-
stöbvar, sem veiti fjölda fólks at-
vinnu og skapi miklar tekjur.
Jafnframt hafi stjórnunarleg
staba þeirra breyst og víba hafi
bæbi rekstri flugvalla og flug-
stöbva verib breytt í hlutafélög í
eigu ríkissjóðs og/eba einkaaðila.
Stjórnarformaður ÍM vill ab
rekstri flugstöbvarinnar verbi
breytt í hlutafélag í eigu ríkisins
þar sem flugstöbin væri „seld"
hinu nýja félagi. Stjórn rekstrar-
félagsins um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar yrbi að meirihluta skip-
ub aðilum úr viðskiptalífinu og
markaðssinnaður framkvæmda-
stjóri ráðinn. Síban gæti hluti af
eign ríkissjóðs verib seldur einka-
aðilum, eins og gert hefur verib í
Kaupmannahöfn. Næsta skref
væri svo að setja rekstur flugvall-
arins undir sömu stjórn, svo
hægt væri að samhæfa ákvarðan-
ir og beita bæbi flugvelli og flug-
stöb til að auka umferð um völl-
inn og vibskipti inni í flugstöð-
inni. „Til ab svo geti orðið þarf
ab beita rekstrarlegum aðferðum
(áætlanastjórnun), en ekki ab-
ferbum sem beinast einkum að
því ab hámarka tekjur ríkissjóðs í
bráb (fjárveitingastjórnun). Það
eru úrelt sjónarmib, sem eru ekki
í takt vib tímann," segir stjórnar-
formaður ÍM.
Stjórn ÍM hefur haft fmm-
kvæði að stofnun undirbúnings-
félags, sem bæði hefði það hlut-
verk ab vekja athygli á þessu
máli og berjast fyrir framgangi
þess. Þess má geta að ÍM er ab
meirihluta í eigu ríkisins.
í kjölfar Persaflóastríösins varð
samdráttur í fyrsta sinn í mörg ár
hjá Kobenhavns Lufthavne a/s
(KLH). Þá ákváðu Danir róttækar
breytingar á rekstri, ekki síst
vegna þess aö boðað var þá aukib
frelsi í loftflutningum í Evrópu,
sem leiddi til aukinnar sam-
keppni.
Nú á ríkib 75% eignarhlut í
KLH, en einkaaðilar 25%. 80%
starfsfólksins keyptu bréf á sér-
stöku tilboðsverbi, þannig að
með því myndast hvati fyrir
starfsfólkið ab veita sem besta
þjónustu.
Reynslan af einkavæðingunni
er mjög góð. Helstu abgerðir
vom virkt kostnabareftirlit og
hátt gæöastig þjónustu og aukin
afköst. Starfsmönnum hefur
fækkað um 130, en þab hefur að
mestu gerst án uppsagna og á
sama tíma hafa umsvifin aldrei
verið meiri.
Verslun þung á
metunum
Alls em leigbir út um 2.400 fer-
metrar til verslunarrekstrar í
flugstöðinni. Verslanir greiða
fasta leigu, sem allir greiða án til-
lits til veltu- eba tekjumöguleika.
Hins vegar em leyfisgjöld, sem
em tengd þeim tekjum sem ríkis-
sjóður verður af vegna þessarar
sölu. Þannig greiða s.k. „Duty
free"-libir hæst leyfisgjöld, eða
allt að 40-50% af veltu, á meðan
dagblöð greiba 2-3%. Þess má
geta að tekjur af verslunarrekstri
em um 30% af heildartekjum
KLH.
Annað atribi, sem Danir hafa
lagt mikið upp úr að auka hjá sér
síðusm árin, em fraktflutningar.
Kaupmannahöfn er nú í hópi sjö
stærstu fraktflugvalla í Evrópu og
jukust fraktviðskipti um 12%
milli ársins 1993 og 1994.
Kaupmannahafnarflugvöllur
er um 20 sinnum stærri en Kefla-
vík, ef miðað er vib farþega-
fjölda. Logi Úlfarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍM, gagnrýnir að
Keflavíkurflugvöllur njóti engan
veginn þeirra tekna sem verba til
SAS er sem fyrr langstœrsti viö-
skiptavinur Kaupmannahafnar-
flugvallar.
á flugvellinum. 90% lendingar-
gjalda og farþegagjalda renni til
annarra verkefna. Auk þess renni
allur hagnaður af Fríhöfninni í
ríkissjóð og fari þannig 80%
þeirra tekna, sem verbi til á flug-
vellinum, beint í ríkissjóð. „Þetta
er í hróplegu ósamræmi vib
ICAO (Alþjóbaflugmálastofnun-
ina), sem telur ab það sé alls ekki
viöurkennd regla á alþjóbaflug-
völlum ab taka allt fé út úr rekstri
ríkis- eða bæjarfyrirtækja, eins
og gert er á Keflavíkurflugvelli."
Hreyfanleiki nauð-
synlegur
Markaðsstjóri KLH, Bo Hauga-
ard, segir meginmuninn á einka-
væöingu og ríkisreknum flug-
velli þann, að einkavæbingin
leggi meira upp úr markabsmál-
um, skilgreini markaðinn og ein-
skorðist við þjónustu. Ríkib sé
bundið af pólitískum áhrifum og
fjárveitingar verði að vera innan
ákveðins ramma hjá ríkisreknum
fyrirtækjum. Þannig sé ekki hægt
að vera stöbugt á verði gagnvart
nýjum möguleikum. „Hreyfan-
leiki verbur ab vera til staðar þeg-
ar barist er um kúnnana."
Bo Haugaard sagbist ekki sjá
neitt sem stæbi í veginum fyrir
því að íslendingar einkavæddu
Keflavíkurflugvöll og benti á,
máli sínu til sönnunar, ab
danska ríkið nyti meiri tekna af
flugvellinum í þeirri mynd sem
hann er rekinn nú en fyrir einka-
væbingu.
-BÞ
Rafvirkjar á Islandi, ung iönaöarmannastétt í tveggja binda stéttartali, Rafvirkjatali:
Æviskrár á fjórba þúsund rafvirkja
Glæsilegt stéttartal íslenskra
rafvirkja er komib á markab
hjá Þjóbsögu hf. Þetta er mikib
verk, tvö stór bindi þar sem
birt eru aeviágrip ásamt mynd-
um af nokkub á 4. þúsund raf-
virkja á íslandi. Þar er enn-
fremur ab finna sögu rafvirkj-
unar og rafvæbingar á íslandi
ásamt fjölda ljósmynda.
Stétt rafvirkja er ung iðnabar-
stétt. Fyrsti rafvirki íslands var
sveitadrengur, Halldór Gub-
mundsson frá Felli í Mýrdal,
fæddur 11. nóvember 1874.
Hann fluttist ungur úr Mýrdaln-
um ab Laxnesi í Mosfellssveit.
Um þennan fmmkvöðul raf-
virkjastéttarinnar segir ab félaus
og heilsulítill hafi hann haldið
úr föburgarði 18 ára gamall til ab
afla sér menntunar á eigin spýt-
ur. Lauk Halldór námi í járn-
smíbi í Reykjavík, fór í tungu-
málanám og sigldi til Kaup-
mannahafnar 1899 til ab nema
vib vélskóla. Því námi lauk hann
1901. Halldór velti fyrir sér ís-
lenskum fossum og rafmagni og
sótti um styrk til Alþingis, en
fékk synjun. Engu ab síöur hélt
hann í ágúst 1902 til Berlínar,
ákveðinn í að nema rafmagns-
fræði. Rafvirkjaprófi þaban lauk
hann í lok september 1903. Tók
hann til vib ab leggja raflagnir í
ákvæðisvinnu í Berlín og varð
brátt meistari í ibn sinni. Árib
1904 fór Halldór til Sviss, meö
lítilsháttar styrk frá Alþingi, til að
kynna sér rafmagnsframkvæmd-
ir þar í landi. Eftir fimm ára dvöl
erlendis kom hann heim og var
þá vaknaður eilítill áhugi á raf-
orku. Setti Halldór upp rafstöð
Jóhannesar Reykdals í Hafnar-
firbi og raflýsti hann þar nokkur
hús, en fyrsta raforkan í heima-
Qasstööin viö Hverfisgötu í Reykjavík, þar sem nú stendur lögregiustööin viö
Hlemmtorg. Casstööin hóf aö starfa 1910, rétt íþann mund sem rafmagniö var
aö halda innreiö sína. Raforkan haföi vinninginn og var gasstööinni lokaö 1955. A
myndinni má sjá póstvagnalest. Sœti í vagni, sem var yfirklœddur og meö fjaöra-
sœti, kostaöi 3,50 krónur til Selfoss á þeim tíma. Mynd úr Rafvirkjatali.
húsum var í Hafnarfirði, Reyk-
víkingum til nokkurrar gremju.
Rafvirkjatal er mikib verk og
vandasamt og hefur verið í
vinnslu árum saman. En vandað
hefur veriö til verksins í hvívetna
og það er höfundum sínum
greinilega til sóma. í ritnefnd
sátu Gubmundur Gunnarsson,
Svavar Guðbrandsson, Þór Otte-
sen og Sigurbur Steinarsson.
Gissur Pálsson hafði safnab sam-
an miklum upplýsingum um raf-
verktaka, sem komu ab góbum
notum vib upphafsvinnu verks-
ins. Ritstjórn ættfræbitexta var í
höndum Þorsteins Jónssonar og
upplýsingaöflun annaðist Hólm-
fríður Gísladóttir ættfræðingur.
Vinna við Rafvirkjatal hefur
tekið nærfellt áratug. Verkib
spannar næstum 1.000 blabsíbur
og kostar 14.900 krónur.
-JBP