Tíminn - 16.11.1995, Page 13
Fimmtudagur 16. nóvember 1995
Whtim*
13
Helgarvaktin ígóöum gír. Frá vinstri: Elías Kristjánsson, Sturla Pétursson, Halldór ívar Cuönason, Friörik Alan
jónsson, Einar Cuömundsson og Ragnar Sævarsson.
Dekkjatömin
í fullum gangi
Skarphéöinn
áttræöur
Skarphéðinn Helgason, stýrimað-
ur og togaraskipstjóri, varð átt-
ræður um daginn, en hann dvel-
ur á Hrafnistu í Hafnarfirði. Slegið
var upp ættarmóti í tilefni dags-
ins og svo var afmælisveisla í
Mosabarðinu.
Skarphéðinn fæddist að Forsæti
í V,- Landeyjum, elstur sjö systk-
ina. Fjórtán ára gamall var hann
sendur á vetrarvertíð til Vest-
mannaeyja og réri margar vertíðir
í Eyjum uns hann fór í Stýri-
mannaskólann. Eftir þab var
hann yfirmaður á togurum ára-
tugum saman.
Skarphéðinn er allra manna
hressastur og rammur að afli. Eitt
sinn lenti háseti nokkur hjá hon-
um í ástarsorg úti í Grimsby og óð
um allt skipið með búrhnífinn ab
vopni. Skarphéðinn tók af hon-
um hnífinn og sagði: „Þú stingur
þá ekki í neitt í kvöld, væni
minn." Einstakt tækifæri var fyrir
pjakka ab fá að kippa meb Skarp-
héðni, þegar Hafnarfjaröartogar-
arnir Júní og Júlí fóru í slipp í
Reykjavík, og maula lúöurikling
af „keisnum" á meban. Svo var
náttúrlega farið til sjós með
Skarphéðni og hafa menn ekki í
annan tíma verið vígalegri í MR,
nýkomnir úr siglingu meö allan
tollinn og sögurnar úr evrópskum
höfnum.
Skarphéðinn hefur sínar skob-
anir á þjóðmálum og hinir út-
völdu í vinahópnum fengu
Gerplu með sér í rúmib og ljóð
Þorsteins Erlingssonar. Skarphéb-
inn ber heiðursmerki Sjómanna-
dagsins í Hafnarfirði. ■
Nú er sá tími þegar allir ættu að
huga að vetrardekkjunum undir
bíla sína. Um hundrað þúsund
bílar eru á landinu, og eru því
ekki fá dekk sem þarf að um-
felga og negla á þessum dögum.
Fæstir gera sér alla jafna grein
fyrir því að einmitt hjólbarðarn-
ir, ástand þeirra og stilling, eru
helsta öryggistæki bílsins.
Dekkjakarlarnir okkar eru þó
klárir á þessu og eru sem betur
fer ósparir á holl ráð um hjól-
barðana. Miklar og stöðugar
rannsóknir fara líka fram um
mynstur dekkja, stærð og hlut-
fall miðað við aðstæður í hverju
landi og hafa hinar sérstæðu
veðurfarsaðstæður á íslandi skil-
að sér í mynstri íslensku sóluðu
dekkjanna. Vor og haust eru
miklar tarnir í dekkjunum og þá
er unnið fram á kvöld og um
helgar á dekkjaverkstæðunum.
Viðskiptavinirnir bíða í heitum
biðstofum með kaffi og blöð og
láta sér líða vel meðan bíllinn er
gerður klár. Myndirnar eru
teknar um helgina í Skipholt-
inu. ■
Ceysismenn í Rangárþingi einbeittir viö umræöurnar. Yst til vinstri er nýi
stjórnarmaöurinn í LH, Sigurgeir Báröarson á Hvolsvelli, viö hliö hans er
Árni stórbóndi í Teigi í Fljótshlíö og innstur er Pétur Behrens. Cegnt hon-
um er Þorbergur Albertsson, þá Ulfar Albertsson og yst til hægri er for-
maöur Ceysis, Haukur Kristjánsson.
Ábúðarmikl-
ir hestamenn
á þingi LH
Mann-
lífs
spegill
GUÐLAUGUR
TRYGGVI
KARLSSON
Það er greinilega ekkert smá-
mál að vera hestamaöur og
menn geta verið í þungum
þönkum yfir minna tilefni en
skaparans meistaramynd. Sér-
staklega þegar landsmótunum
hefur fjölgað um helming og
útlendingar farnir að ríða ís-
lendinga af sér á heimsmeist-
aramótunum.
Flestir ríða sér þó til skemmt-
unar og vonandi léttist brúnin
á mönnum, þegar gæðingarnir
koma í hús um hátíðarnar.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar á LH-þinginu í Garðabæ
um daginn.
Halldór ívar Cuönason á fullu viö
umfelgunina.
Haröarmenn úr Mosfellsbœ einbeittir yfir tillögunum. Þaö er landsliösein-
valdurinn Pétur jökull Hákonarson sem er til hœgri, og Hreinn Ólafsson í
Helgadal er yst til vinstri.
Léttfetamenn úr Skagafiröi ábúöarmiklir á LH-þinginu. Þaö er rœktunar-
meistarinn og fálkaoröuhafinn Sveinn Cuömundsson á Sauöárkróki sem
er til vinstri.
Sturla Pétursson einbeittur viö
jafnvœgisstillinguna.