Tíminn - 30.11.1995, Síða 6
6
Fimmtudagur BO. nóvember 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Framkvœmdir eru hafnar viö nýja brú yfir Fjallsá í Öræfum.
milljónir til viðbótar, en þær
eiga að taka um sjö mánuði
og á því að vera lokið í desem-
ber. Þá er stefnt að því að af-
kastageta verksmiðjunnar
verði komin upp í 500 tonn á
sólarhring. Áætlað er aö eignir
hins nýja félags veröi um 250
milljónir króna og langtíma-
skuldir innan við 100 milljón-
ir, þegar framkvæmdum er
lokið.
Fjórir starfsmenn vinna nú í
Hafnarmjöli, en í hinni nýju
verksmiðju verða líklega um
16 starfsmenn yfir loðnuver-
tíðina. Þá fá margir vinnu við
byggingarframkvæmdir og
uppsetningu véla og tækja-
búnaðar.
Baqskráia
SELFOSSI
Nýr skyndibitastaöur og
sjoppa við Eyrarveg á Sel-
fossi:
Hlöllabátar
opnaöir
Fyrir skönrmu var opnaður
nýr skyndibitastaður á Selfossi
og sjoppa, Hlöllabátar að Eyr-
arvegi 1, í eigu Ævars Agnars-
sonar og Valgerðar Hansdótt-
ur.
Á staðnum verður hægt að
kaupa, auk Hlöllabáta, m.a.
hamborgara, samlokur, pyls-
ur, ásamt gosi og sælgæti.
Einnig veröa nokkrir spila-
kassar á staðnum.
„Þessi rekstur leggst mjög
vel í okkur, þetta er spenn-
andi verkefni, sem við vonum
aö gangi vel. Það er búið aö
leggja mikla vinnu í aö breyta
staðnum og gera hann aðlað-
andi. Við erum búin að sækja
um nætursöluleyfi um helgar,
en við þurfum að leita eftir
samþykki nágranna til að fá
það í gegn.
Annars verður opið alla
daga hjá okkur frá kl. 10.00 til
23.30.
Vib ætlum í upphafi að ráða
einn fastan starfsmann og
vera síöan með lausráðib
fólk," sagði Valgerður þegar
hún var spurð út í rekstur
Hlöllabáta.
Eystra-
horn
Ný brú yfir Fjallsá
Framkvæmdir eru hafnar
við nýja brú yfir Fjallsá í Ör-
æfum. Þar er vinnuflokkur
Jóns Valmundssonar brúar-
smiðs að störfum, en hann
hefur það verkefni að undir-
byggja brýrnar yfir Fjallsá og
Hrútá. Undanfarib hefur verið
unnið við að reka niður
staura, sem steyptir voru í
fyrravetur, auk þess sem nú í
vikunni var steyptur fyrsti
sökkull af fimm undir nýju
Fjallsárbrúna. I vinnuflokkn-
um eru átta menn, auk ráðs-
konu, og býr fólkið í vega-
gerbarskúrum á svonefndunr
Fitjum. Smíbi sjálfra brúnna
verbur boðin út síbar. Fjallsár-
brúin á að verba 128 metra
löng og brúin yfir Hrútá 44 m.
Straumur ánna fellur skáhallt
undir brýrnar og því munu
stöplarnir ekki snúa þvert
undir brúnum. Að sögn Jóns
Valmundssonar er þetta frem-
ur óvenjulegt.
Svarfdœlsk byggö & bœr
SVARFAÐARDAL
Klemman opnuö
Fyrir skömmu var opnuð
eins konar verslunarmibstöð í
Haraldarhúsinu gamla á Dal-
vík. Ber hún nafnið Klemman.
Innan veggja Klemmunnar
eru fjögur fyrirtæki: verslan-
irnar Hex og Kotra, sem ábur
leigðu í gamla Týról, Ásvídeó
og þvottahúsið Þernan, sem
voru starfrækt í bílskúrum við
Ásveginn.
Að sögn tveggja aöstand-
enda, Árna Júlíussonar og Sig-
urðar Jónssonar, gjörbreytir
þetta nýja húsnæði aðstöðu
fyrirtækjanna og þá ekki síður
abstöðu almennings til að
versla í heimabyggð án þess
ab þurfa ab brjótast í misjöfn-
um veðrum milli verslana.
A myndinni má sjá aðstand-
endur Klemmunnar, hjónin
Árna Júlíusson og Freygerbi
Snorradóttur, Jóhann
Tryggvason og Hjördísi Jóns-
dóttur, og Sigurð Jónsson og
Öldu Kristjánsdóttur, Símon
Ellertsson og Maríu Snorra-
dóttur.
miií
SELFOSSI
Enn af bíósal á Selfossi:
Máliö sofnaöi í
nefnd
Fyrir nokkrum árum var
nefnd starfandi á vegum Sel-
fossbæjar sem átti að gera til-
lögur um nýtingu bíósalarins
á Selfossi. Störfum nefndar-
innar lauk aldrei formlega, því
fyrirhugaður viðræbufundur
við forsvarsmenn bíóhúsa í
Reykjavík var aldrei haldinn.
Máliö komst því aldrei á
lokastig og engar viðræbur við
kvikmyndahúsaeigendur í
Reykjavík hafa farið fram á
vegum bæjarins, svo vitað sé.
Hafnamnjöl og
Vestdalsmjöl meö
stóra loönu-
bræöslu í Þor-
lákshöfn
Hafnarmjöl í Þorlákshöfn,
Vestdalsmjöl á Seyðisfirði og
fleiri hafa sameinast um
stofnun hlutafélags, sem
standa mun aö verulegri
stækkun Ioðnuverksmiðju
Hafnarmjöls. Gert er ráð fyrir
að þessar framkvæmdir kosti
um 150 milljónir króna, en af-
kastageta verksmiöjunnar
verður fimmföldub frá því
sem nú er. Skrifað var undir
samning um þetta á mánu-
daginn var.
Félagið heitir Hafnarmjöl
ehf. og hlutafé þess veröur
175 milljónir króna. Vestdals-
mjöl leggur til 42 milljónir,
Hafnarmjöl 32 milljónir og
þegar hafa aörir abilar skráð
sig fyrir um 70 milljóna króna
hlutafé. Mebal þeirra eru Mal-
ir hf. í Þorlákshöfn, sem er í
eigu Meitilsins og Humar-
vinnslunnar, Hafnarsjóbur
Þorlákshafnar og Ölfushrepp-
ur auk fjölda annarra. Þess
hlutafjár, sem upp á vantar,
verður væntanlega aflað á
Suðurlandi. Hafnarmjöl ehf.
tekur formlega til starfa 1. des.
nk.
Framkvæmdir við stækkun-
ina hefjast þegar í næsta mán-
uði. Þá verður settur upp vél-
búnaður sem tvöfaldar af-
kastagetu verksmiöjunnar, úr
100 í 200 tonn á sólarhring.
Þessi áfangi kostar um 15
milljónir króna, ab sögn Óla
Rúnars Ástþórssonar hjá At-
vinnuþróunarsjóði Suður-
lands, sem stýrt hefur vibræð-
um um þetta nýja fyrirtæki.
Framkvæmdir byrja á nýjan
leik 1. maí á næsta ári og þá
verbur bætt viö vélbúnaði,
m.a. úr verksmiðju Vestdals-
mjöls á Seyðisfirði. Einnig
verða byggö hús og loðnu-
þrær. Gert er ráð fyrir að þess-
ar framkvæmdir kosti 135
Sdiengen-samstarfiö:
Afram verbur heim-
ilt aö tollskoöa
Meb væntanlegri abild íslend-
inga ab Schengen-samstarfinu
um frjálsar ferðir milli landa
innan sameiginlegs svæbis í
Evrópu er aðeins verið ab efna
til samstarfs um vegabréfaeftir-
lit, en Islendingum verbur
áfram heimilt ab beita eigin
abferbum vib tollaeftirlit og
skiptir þá engu hvort vibkom-
andi vörur koma til landsins
sem farangur farþega eba eftir
öbrum Ieibum. Þetta kom fram
í svari Þorsteins Pálssonar
dómsmálarábherra vib spurn-
ingu Ragnars Arnalds, þing-
manns Norburlands vestra, í
umræbum um skýrslu dóms-
málarábherra til Álþingis um
Schengen-samstarfib.
Ragnar Arn-
alds spurði
dómsmálaráð-
herra hvort
fyrrgreint sam-
komulag myndi
aðeins taka til
vegabréfaþáttar-
ins eöa hvort
það tæki einnig
til tollamála og
væri þá eins-
konar sam-
komulag um
tollabandalag.
Þorsteinn I’áls-
son sagði að til-
gangur við-
ræðna íslend-
inga um aðild
að þessu sam-
komulagi væri sá að gera sér
grein fyrir áhuga Norðurland-
anna á aö finna lausn á samstarfi
þeirra og Schengenríkjanna, sem
feli þaö annars vegar í sér að
unnt verði aö viðhalda norræna
vegabréfasambandinu og hins
vegar að tengjast Schengen-
samstarfinu, er felur í sér frjálsa
för fólks innan sameiginlegs
svæbis í Evrópu. Þorsteinn sagbi
Norðurlöndin hafa haft náib
samstarf sín á milli í þessum efn-
um, sem meðal annars byggi á
sögulegum og menningarlegum
forsendum. Vegabréfasamband
Norðurlandanna fjalli ekki að-
eins um aðstæður á innri landa-
mærum þeirra, heldur einnig
gagnkvæma norræna skyldu til
ab framkvæma eftirlit meb öll-
um sem fara um ytri landamæri.
Þá væri einnig að finna víðtæka
samvinnu á milli Norðurland-
anna á sviöi lögreglu- og tollayf-
irvalda.
Þorsteinn Pálsson sagði aö
þrátt fyrir að Norburlöndin vilji
feröafrelsi, sé það einnig sameig-
inlegt markmið þeirra að berjast
gegn afbrotum á sem árangurs-
ríkastan hátt. Ríkisstjórnir Norö-
urlandanna hefðu áttab sig á aö
ekki væri unnt að viðhalda nor-
ræna vegabréfasambandinu, ef
eitthvert norrænu ríkjanna gerb-
ist aðili að Schengen-samkomu-
laginu. Án sameiginlegrar nor-
rænnar lausnar myndi afleiöing-
in verba fullt eftirlit meb öllum
ferbalögum milli íslands og Nor-
egs annars vegar og norrænu
Schengenríkjanna — Svíþjóðar,
Finnlands og Danmerkur —
hins vegar.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
mabur Noröurlands eystra, sagði
í umræðunum ab í Schengen-
samkomulaginu fælust allt aðrir
hlutir en í norræna vegabréfa-
samkomulaginu þar sem verið
væri að leggja raunverulegt
landamæraeftirlit niður. Hann
varpabi fram á hvern hátt unnt
yrði ab framfylgja raunverulegu
eftirliti þegar persónulegt eftirlit
meb fólki hafi verið lagt niöur,
en í gildi verbi heimildir til þess
ab tollskoða farangur þess. Hann
varpaöi einnig fram hvaða kvað-
ir íslendingar væru ab taka á sig
með því að gerast útvörður fyrir
ytri landamæri Evrópusam-
bandsins í vestur, sem myndi
gerast með fullri aðild að
Schengen-samningnum.
Hjörleifur Guttormsson, þing-
mabur Austurlands, gagnrýndi
Schengen-samkomulagiö harð-
lega og taldi að með aðild að því
væri verið að taka á sig ýmsar
kvaðir Evrópusambandsins.
Hann sagði norsk stjórnvöld
leggja mikla áherslu á aðild að
Schengen-samkomulaginu og
engu líkara
væri en þau
væru meb því
að hefna sín á
þjóbinni fyrir
að hafa fellt
ESB-aðild í
þjóbaratkvæða-
greiðslu.
Valgerður
Sverrisdóttir,
þingmaður
Norburlands
eystra, sagði að
stefna bæri að
aðild að
Schengensvæö-
inu, einkum
vegna þess aö
að öörum kosti
stæðum við
frammi fyrir torveldari samskipt-
um milli Norðurlandanna.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði nauðsynlegt aö
fylgja hinum Norðurlöndunum í
þessu stóra máli. íslendingar hafi
vanist því að ferbast án vegabréfs
á milli Norðurlandanna í 40 ár
og ekki væri unnt að ganga þessa
fjóra áratugi til baka. Því væri
mikilvægt að vinna þetta mál
með það markmiö fyrir augum
að Norðurlöndin verði ekki skil-
in að. Hann sagði einnig ljóst ab
ýmis ljón yröu á veginum fyrir
Island og Noreg varðandi stofn-
anaþáttinn, þar sem þau séu ekki
aðilar að Evrópusambandinu.
Halldór sagbi að ef við ætlubum
að skilja okkur frá Norðurlönd-
unum í þessum efnum, þá vær-
um vib að skilja okkur frá nor-
rænu samstarfi í víðari skilningi.
Geir H. Haarde, formaður ut-
anríkismálanefndar Alþingis,
sagði ab tollskoðun væri önnur
aðgerð en vegabréfaeftirlit og
ekkert ætti aö koma í veg fyrir ab
íslendingar gætu sinnt þeirri
tollskoðun sem þeir teldu sig
þurfa, þótt þeir geröust aðilar að
samstarfi um ferðafrelsi án vega-
bréfa. Geir sagði ógerlegt fyrir
Norbmenn að standa utan sam-
komulagsins og viðhalda ytra
vegabréfaeftirliti á öllum landa-
mærum Noregs og Svíþjóðar og
fyrir Islendinga myndi borga sig
að leggja nokkuð á sig til að
tengjast þessu samkomulagi,
þótt við mættum ekki greiða að-
ild ab því hvaba verði sem er.
Þorsteinn Pálsson sagði að um-
ræðan um Schengen-aðild ís-
lands eigi eftir að þróast ábur en
til endanlegra ákvaröana kemur.
Eftir eigi aö kanna hvaða kostir
verbi boðnir af hálfu Schengen-
ríkjanna og einnig þurfi að meta
alla kosti og ókosti þess hvaða
kostnaður muni hljótast af þátt-
töku og einnig hvaða áhrif það
hafi á samgöngur við landið, taki
ísland ekki þátt í þessu samstarfi.
PI.
Þorsteinn Pálsson.