Tíminn - 06.12.1995, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 6. desember 1995
9
Jafnvígur á
byssu og gítar
Uppgjörib (Desperado) ★★1/2
Handrit og leikstjórn: Robert Rodriguez
Abalhlutverk: Antonio Banderas, Salma
Hayek, Joaquim De Almeida, Steve
Buscemi, Cheech Marin og Quentin Tar-
antino.
Stjörnubíó
Bönnub innan 16 ára
Mexíkóski leikstjórinn Robert
Rodriguez gerði fyrir fáum árum
E1 Mariachi fyrir lítinn pening.
Hún skilaði þeim margfalt til
baka og eftir því var að sjálf-
sögðu tekið í Hollywood. Hann
fékk því tækifæri til að gera
Uppgjörið, sem byggir á sömu
aöalpersónunni, farandspilara
nokkrum, jafnvígum á byssuna
og gítarinn.
Farandspilarinn, sem Antonio
Banderas leikur, er hér á ferð í
smábæ og á harma að hefna
gegn eiturlyfjabarón, sem ræöur
þar ríkjum. Hann er orðinn
þjóðsagnapersóna í Mexíkó og
liðsmenn barónsins fá fljótlega
að finna fyrir að sagan sú er
sönn. Á meðan hann sallar nið-
ur óvinina kynnist hann síðan
ungri blómarós, sem skýtur yfir
hann skjólshúsi.
Það er vissulega mikill stíll
yfir öllu saman hjá Rodriguez,
sem aðgreinir Uppgjörið frá
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
myndum svipaðs eðlis. Húmor-
inn er mjög sérkennilegur og
skotbardagarnir verða einhvern
veginn skemmtilega óraunsæir.
Menn detta ekkert bara niður
eftir kúlnahríðina frá gítarleik-
aranum, heldur þeytast aftur á
bak, stundum langar leiðir, með
braki og brestum.
Það er kúnst að gera frumlega
hluti meb jafn þjakað efni og
einfarann, sem kemur í smábæ-
inn og skýtur alla vondu menn-
ina í spað. Rodriguez tekst þetta
þó lengstum, en það vantar tals-
vert upp á að heildin verði veru-
lega eftirminnileg. Þegar líða
tekur á myndina fer söguþráö-
urinn að slappast og í endann er
gripið til fáránlegrar klisju.
Uppgjörið er samt nokkuð vel
heppnuð hasarmynd og Anton-
io Banderas fer ágætlega með
aðalhlutverkiö. Hann kemur
reyndar sterkur inn sem verð-
andi hasarmyndahetja.
UlJ Framsóknarflokkurinn
Jólafundur Félags framsókn-
arkvenna í Reykjavík
verbur haldinn ab Hallveigarstöbum fimmtudaginn 7. desember kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá:
jól í Kína: Hjörleifur Sveinbjörnsson.
Einleikur á píanó: Ólafur Elíasson.
Upplestur.
Söngur.
Hátíbakaffi.
Allt framsóknarfólk og þeirra gestir velkomnir.
Munib litlu jólapakkana. Stjórn FFK
Jólaalmanak SUF
Eftirtalin númer hafa hlotib vinning í jólaalmanaki SUF:
1. desember 4541 3602
2. desember 881 1950
3. desember 7326 3844
4. desember 4989 6408
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562 4480.
Samband ungra framsóknarmanna
Aöalfundur FUF,
Strandasýslu
Abalfundur FUF í Strandasýslu verbur fimmtudaginn 7. desember kl. 21.00 ab Borg-
arbraut 19, Hólmavík.
Kjördæmisþing
framsóknarmanna í
Vestfjaröakjördæmi
haldib á ísafirbi dagana 9. og 10. desember.
Dagskrá:
Laugardagurinn 9. desember i
Kl. 14.00 Þingsetning. Skipan starfsmanna þingsins.
Kl. 14.05 Skipan þingnefnda.
Kl. 14.15 Skýrsla stjórnar.
Kl. 14.45 Ávarp þingmanns.
Kl. 15.15 Ávarp formanns flokksins.
Kl. 15.45 Kaffi.
Kl. 16.00 Málefni þingsins: „Vestfirbir — okkar framtíb?"
Framsaga. Almennar umræbur.
Kl. 18.30 Ávörpgesta.
Kl. 19.00 Þingmál kynnt og vísab til nefnda.
Kl. 20.00 Kvöldverbur.
Sunnudagurinn 10. desember
Kl. 09.00 Nefndarstörf.
Kl. 12.00 Hádegisverbur.
Kl. 13.15 Afgreibsla mála og umræbur.
Kl. 15.00 Kosningar.
Kl. 16.00 Önnurmál.
Kl. 17.00 Þingslit.
Frank og Barbara sœl meb móttökurnar í afmœlisveislunni sem haldin
var í Loas Angeles.
Sinatra yngri meö arminn utan um
mjóa ónefnda konu, sem er þó líklega
eiginkona hans.
Yngsta kynslóöin lét sig ekki muna um
aö mæta í áttræöisafmœiiö. Þetta eru
þau lohnny Depp og Kate Moss. Þau
Feiddust og allt hvaö eina, þrátt fyrir
sögusagnir um sambandsslit.
Sinatra áttræður
„Ég hef ekki í hyggju að yfir-
gefa Jörðina í nánustu fram-
tíð," sagði Frank Sinatra við
fréttamenn á leið til afmælis-
veislu, sem haldin var hon-
um til heiðurs á áttræðisaf-
mælinu fyrir skömmu. En
hann tilkynnti þó að söng-
ferill sinn væri á enda runn-
inn.
Sinatra og Barbara kona
hans ásamt öðru frægu fólki,
svo sem Gregory Peck, Tom
Selleck og Patrick Swayze,
skáluðu fyrir háum aldri
söngfuglsins.
I veislunni voru einnig
söngfuglar af yngri gerðinni,
sem fetuðu í fótspor Sinatra,
og má þar telja Bob Dylan,
Little Richard og Bruce
Dœtur Sinatra, þœr Nancy og Tina,
mœttu aö sjálfsögöu í afmœli fööur