Tíminn - 08.12.1995, Qupperneq 9
Föstudagur 8. desember 1995
awjf-g:-
mmmm
9
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
20 ár eru liöin frá því aö indónesíski herinn réöst inn í Austur-Tímor:
Enn langt í að lausn finnist?
Reuter
Þann 7. desember 1975 réöst
her Indónesíu inn í Austur-Tím-
or, sem fram aö því haföi veriö
portúgölsk nýlenda. Skömmu
áöur höföu Portúgalir yfirgefiö
eyjuna vegna innanlandsátaka í
Portúgal, en austurhluti Tímor
haföi veriö undir stjórn Portú-
gala í fjórar aldir.
Sameinuöu þjóöirnar hafa
aldrei viöurkennt yfirráö Ind-
ónesíu á Austur-Tímor, og form-
lega líta þær enn svo á aö Portú-
gal fari þar meö stjórnarvald.
Að sögn mannréttindasam-
taka hafa um 200 þúsund
manns fallið, bæði í innrásinni
og síðari átökum, en þaö er um
þriöji hluti þjóðarinnar.
„Ástandið í mannréttinda-
málum á Austur-Tímor er mjög
slæmt hvernig sem á þaö er lit-
ið. Alvarlegar barsmíöar og
pyntingar eru daglegt brauö og
það er ekkert sem bendir til þess
aö þaö sé aö breytast," segir
Bandaríkjamaöur nokkur sem
þekkir vel til á Austur-Tímor.
Undanfarið hefur raunar
heldur fækkaö fréttum af dauðs-
föllum og svo virðist sem
stjórnvöld í Indónesíu séu farin
að taka örlítið meira mark á al-
þjóölegri gagnrýni. Þaö breytir
því þó ekki að eldfim blanda af
pólitískri, trúarlegri, efnahags-
legri og þjóöernislegri spennu er
enn til staðar og þarf e.t.v. ekki
nema örlítinn neista til aö allt
fari í bál og brand.
Það, sem hefur breyst á eyj-
unni, er einkum þaö að and-
spyrnan hefur tekið á sig nýja
mynd. í upphafi þessa áratugar
geröist það aö margt ungt fólk
skipaði sér framarlega í raðir
andspyrnuhreyfingarinnar, en
nú hefur reiðin vegna þess
hversu lítið miðar breiöst út og
Verkföllin í Frakklandi verða sífellt
víðtækari. í gær var yfir þriðjungur
allra opinberra starfsmanna kom-
inn í verkfall og mótmælafundir
voru haldnir í París og fjölda ann-
arra borga. Flugumferð til og frá
París stöðvaðist um tíma í gær og
sama er að segja um umferð um
Ermarsundsgöngin.
Alain Juppé forsætisráðherra sá
sér ekki annað fært en að hætta við
að mæta til leiðtogafundar í Þýska-
landi, en sat í staðinn á neyðar-
Reuter
í gær var undirritaður fríversl-
unarsamningur milli EFTA og
Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eist-
lands, Lettlands og Litháens,
þar sem gert er ráö fyrir frjálsri
verslun á iðnvarningi, sjávaraf-
urðum og unnum landbúnaöar-
vörum milli ríkjanna. Verslun
með almennar landbúnaðarvör-
félagslegur óróleiki er orðinn
mjög almennur.
Samviskubit hrjáir
Portúgali
Flestir Evrópubúar myndu
sennilega vera í töluveröum
vandræöum með að finna Aust-
ur-Tímor á landakortinu, ef á
þyrfti að halda. En öðru máli
gegnir þó um Portúgali. í Portú-
gal vita allir upp á hár hvar í
heiminum Austur-Tímor er, og
þegar minnst er á þessa fyrrver-
andi nýlendu í hópi Portúgala
snertir þaö einhvern viðkvæm-
an streng djúpt í þjóðarsálinni,
þar sem sektarkenndin er aldrei
langt undan.
fundi ráðherra í frönsku ríkisstjórn-
inni þar sem hin umdeildu sparn-
aðaráform, sem urðu hvatinn að
verkföllunum, voru til umræðu.
Orðrómur var uppi um að hann
hygðist segja af sér, en skrifstofa
hans bar það til baka.
Sparnaðaráformin ná einkum til
velferðarkerfisins og járnbrautakerf-
isins, en markmið þeirra er ekki síst
að Frakkar geti uppfyllt skilyrði
vegna áforma um að taka upp sam-
eiginlegan gjaldmiðil í Evrópusam-
bandinu. ■
ur verður háð tvíhliða samning-
um milli einstakra ríkja.
Áður hafa EFTA-ríkin fjögur
— ísland, Noregur, Sviss og
Liechtenstein — undirritað frí-
verslunarsamninga viö Austur-
Evrópuríkin Tékkland, Slóvakíu,
Pólland, Búlgaríu, Ungverjaland
og Slóveníu, auk sérstaks sam-
- starfssamnings við Albaníu.
„Við afhentum Indónesíu
þessa þjóð, sem hafði verið und-
ir vernd okkar sem heimsveldis.
Við finnum til sektar vegna
þess. Sú staðreynd að á þeim
tíma stóð yfir bylting hér hjá
okkur leysir okkur ekki undan
þeirri sektarkennd," segir portú-
galski sagnfræðingurinn Fern-
ando Rosas. Og Miguel Galvao
Teles, lögfræðingur, tekur í
sama streng: „Tímor er óaðskilj-
anlegur hluti af samvisku þjóð-
arinnar. Hún fylgir okkur hvert
sem við förum."
Árið 1975 ríkti byltingar-
ástand í Portúgal. Hálfrar aldar
einræðisstjórn hafði fallið úr
sessi árið áður, í nellíkubylting-
unni svokölluðu, og í kjölfar
hennar urðu róttækir vinstri-
menn valdamiklir í landinu um
stund. Þeir misstu hins vegar
ítök sín skömmu síðar og hóf-
samari stjórn tók við. I öllu
þessu umróti ákváðu Portúgalir
að yfirgefa Austur-Tímor og ein-
beita sér frekar að vandamálun-
um heima fyrir.
Sem fyrr segir, voru þeir ekki
fyrr farnir en Indónesar sáu sér
leik á boröi og hrifsuðu til sín
öll völd á eyjunni.
Portúgalar yfirgáfu reyndar
aðrar nýlendur sínar, svo sem
Angóla og Mósambík, í álíka
miklum flýti og þar hefur óreið-
an og hörmungarnar síst verið
minni en á Austur-Tímor, en
það er þó þessi eyjarhelmingur
skammt norður af Ástralíu sem
valdið hefur þeim hvab mestu
hugarangri.
Sagnfræbingar eru þó sam-
mála um að það sé fátt sem
landstjórinn á Austur-Tímor
Einnig hefur EFTA gert fríversl-
unarsamning við Tyrkland og
ísrael.
Ekki er gert ráð fyrir neinum
aölögunartíma í samningnum
við Eistland og Lettland, en Lit-
háen hefur fimm ára aðlögunar-
tíma til að leggja nibur tolla á
vissar iðnvörur.
hafi getað gert til þess að hindra
innrás Indónesíu. Hann hafði
ekki til umráða nema eina sveit
fallhlífarhermanna, en innan-
landsátök höfðu þá brotist út á
milli nokkurra andstæðra hópa
á Austur-Tímor auk þess sem
nýlendustefnan var fallin í al-
gjöra ónáb í Portúgal. „Sú hug-
mynd, að senda hermenn þvert
yfir hálfan hnöttinn til þess aö
berjast fyrir nýlendu, á meðan
bylting stóð yfir sem átti upptök
sín í mótmælum gegn nýlendu-
stríðum, hefði verið frekar óvin-
sæl," sagði Rosas.
Og Galvao Teles bætir við:
„Maður þarf að hafa búið hér á
þeim tíma til þess ab skilja hvað
málið snýst um. Við vorum á
barmi borgarastyrjaldar."
Eftir því sem ásakanir á hend-
ur Indónesíu um mannréttinda-
brot hafa aukist hefur sektar-
kennd Portúgala einnig magn-
ast og einhver vanburða þrá til
að bæta fyrir glæpi fortíðarinn-
ar. Þó er fátt sem þeir virðast í
raun og veru geta gert, nema þá
helst ab reyna að halda málinu
vakandi á alþjóöavettvangi í
þeirri von að fyrr eða síðar láti
stjórnin í Indónesíu undan og
fallist á að veita Austur-Tímor
sjálfstjórn í einhverri mynd.
Vöxtur í efnahagslífinu
Því er þó ekki ab neita að frá
því að Indónesía lýsti því opin-
berlega yfir, í júlí 1976, að Aust-
ur-Tímor væri hérað í Indónesíu
hafa Indónesar dælt fjármagni
til eyjunnar, byggt þar upp
skóla og samgöngukerfi, styrkt
landbúnað, námuvinnslu, orku-
veitur o.fl. í því skyni að reyna
að vinna hjarta og hug þjóðar-
innar þar. Á síðustu fimm ára
áætlun var varið sem svarar um
25 milljörðum ísl. króna til upp-
byggingar á Austur-Tímor.
Samkvæmt nýjustu opinber-
um tölum frá Indónesíu hafa
þjóðartekjur á mann á Austur-
Tímor aukist frá því að vera
tæpar 4.000 ísl. krónur árið
1983 í tæpar 12.000 krónur árið
1991. í Indónesíu sjálfri voru
þjóðartekjur á mann árið 1991
um 28.000 ísl. krónur.
Hagvöxtur á Austur-Tímor var
10,41% árið 1991, samanboriö
við 5,94% á Indónesíu þaö sama
ár, en nýrri tölur eru ekki til.
Verkföllin í Frakklandi veröa sífellt alvarlegri:
Ráðherrar á
neyðarfundi
París — Reuter
EFTA-ríki undirrita fríverslun-
arsamning vib Eystrasaltsríkin
Þó líta ekki allir þennan efna-
hagsbata sömu augum. „Vissu-
lega er það rétt, miklum fjár-
munum hefur veriö eytt í Aust-
ur-Tímor, en hefur þaö komiö
Austur-Tímorum til góða?" spyr
háskólakennari á Austur-Tímor.
„Indónesía hefur verib aö stæra
sig um allan heim af hagvextin-
um á Austur-Tímor, en ég held
að innan við helmingurinn af
því fé, sem hefur verið fjárfest
hér, hafi komið Austur-Tímor-
um sjálfum til góða."
Meðal þess, sem hann og abr-
ir hafa áhyggjur af, eru innflytj-
endurnir sem streymt hafa frá
nágrannaeyjunum, en þeir hafa
verið litnir hornauga vegna þess
að þeim hefur tekist að hrifsa til
sín mörg helstu viðskiptatæki-
færin á eyjunni. Það eru því ab
miklum hluta útlendingar sem
hafa stjórn viöskiptanna í hendi
sér, en Austur-Tímorar sjálfir
hafa lítt getað nýtt sér tækifær-
in.
„Það er ekkert leyndarmál að
innflytjendurnir eru uppspretta
andúðar á meðal Austur-Tím-
ora," segir Lindsey Evans, starfs-
maður ástralskrar hjálparstofn-
unar sem starfar á eyjunni.
Langt í aö lausn finnist?
Á sínum tíma áttu fáir von á
því ab átökin um Austur-Tímor
myndu standa lengi yfir. Ind-
ónesíski herinn hélt að hann
gæti lokið verki sínu á innan við
þrem vikum og þá væri Austur-
Tímor innlimað í Indónesíu.
Nú, tuttugu árum síðar, er þessu
verki ekki enn lokiö og fátt sem
bendir til að hægt verði að reka
endahnútinn á það í bráð.
Gerry van Klinken, frá háskól-
anum í Griffith í Ástralíu, segir
að „eins og mál standa í dag,
reikna ég með að nokkrir ára-
tugir líði enn í eymd og þján-
ingu á Austur-Tímor ábur en
lausn finnst." ■
« I ■
Lindab
■ i
■ Lindab hurðirnar eru dönsk hágæða ■
m framleiðsla. Þær eru þéttar meo ■
m sterkar og efnismikilar brautir, sem ■
■ gerir opnun og lokun auðvelda og ■
■ tryggir langa endingu. Hurðagormar ■
■ eru sérstalaega prófaðir og spenna ■
■ reiknuð út með njálp tölvu. ■
■ Lindab hurðirnar eru einangraðar og ■
■ fást í fjölmörgum útfærsium allt eftir ■
■ óskum viðskiptavina. ■
■ Lindab hurðirnar eru fáanlegar úr áli ■
■ og stáli með plastisol yfirborði, með ■
■ eoa án glugga og gönguhurða. ■
■ Hurðabrautir geta verið láréttar, eða ■
■ fylgjandi þakhalla. Opnun getur verið ■
■ handvirk, hálfsjálfvirk eða sjálfvirk. ■
■ Lindab hurðirnar eru fáanlegar í lit- ■
■ umaðóskviðskiptavina. ■
£0*
132 Reykjavík
.. ..... Fax 567 4699 *
>111(11(111(111»
Smiðshöfða 9 ■
Sími 587 5699