Tíminn - 05.01.1996, Side 5

Tíminn - 05.01.1996, Side 5
Föstudagur 5. janúar 1996 5 Setbergsa a Skógarströnd Á Skógarströnd í Snæfellsnessýslu eru veiöiár, auk Laxár og Blanks, Svínafossá, sem er reyndar fiskgeng örstutt frá sjó, og Valshamarsá, einnig laxveiöiáin Setbergsá og bleikjuáin Stóra-Langadalsá, en þessar tvær ár eiga sameiginlegt ósasvæði við sjó, Ósá. í Ósá falla þannig Setbergsá og Stóra-Langadalsá. Ósá er um 1,5 km að lengd og vatnasvið í sjávarósi er 84 ferkílómetrar, en áin fellur í ysta hluta Álftafjarðar sem er, sem kunnugt er, við mynni Hvamms- fjarðar. Setbergsá er laxveiðiá, en Stóra- Langadalsá, sem er 16 km að lengd, er fyrst og fremst silungsá, sem fyrr greinir, þó að þar veiöist eitthvað af laxi. Efstu drög Setbergsár eru í fjall- inu Sátu upp af Litla-Langadal og er lengd árinnar 14 km, en hún er lax- geng um 10 km. Vatnasviö árinnar er 37 ferkílómetrar. Setbergsá sver sig í ætt við ár í nágrenni hennar, VEIÐIMAL EINAR HANNESSON lllifoss í Setbergsá. eins og Laxá á Skógarströnd og Dunká í Höröudal, en allar þessar ár falla að hluta til þröngt í gljúfrum og straumur er þar stríður og hyljir fallegir. Fiskrækt og fiskvegur Með aðfluttum laxaseiðum var Setbergsá gerð að laxá, en hindrun var í ánni við Illafoss, 3 km frá sjó. Setbergsá rétt norban lllafoss. Fyrir mörgum áratugum var fyrst árlega farið að sleppa laxaseiðum í ána ofan fossins. Þáverandi leigu- taki glímdi við hindrunina án þess að heppnaðist að gera þar fiskveg, svo lag væri á. Það er svo loks árið 1980 að þar er byggður fullkominn laxastigi á vegum veiðieigenda. Eingöngu er veitt á stöng í Set- bergsá og notaðar tvær stengur við veiðar. Áin hefur verið leigð út ann- að hvort til eins aðila, veiðiklúbbs, eöa einstakir veiðimenn hafa keypt veiðileyfi af eigendum. Árleg með- alveiði í Setbergsá á árunum 1978- 1994 eru 159 laxar, en mesta árleg veiði 296 laxar 1988. Veiðihús, í eigu nokkurra land- eigenda við ána, er við ána mið- svæðis, í landi Klungurbrekku, þar sem veiðimenn geta haft sína hentisemi með gistingu og fæði. Auövelt er að komast að veiðistöð- um. Veiðifélag um Stóru-Langadalsá og Setbergsá var stofnað 1950, en að félaginu standa m.a. 5 jarðir, sem land eiga að Setbergsá. For- maður veiðifélagsins er Þórir Guð- mundsson frá Ósi, Reykjavík. ■ Til borgarstjórnar Reykjavíkur Fiskvegur hjá lllafossi í Setbergsá. Myndir EH. Ég er einn af þeim mörgu sem fögnuðu því vel að R-listinn vann sigur í síðustu borgarstjórnar- kosningum og veit að þið færið hér margt til betri vegar í málum borg- arinnar. En öllum getur yfirsést, eins og einn af okkar ágætu talsháttum seg- ir réttilega. Og ég las í gær, að minn ágæti R- listi hefði nýlega tekið ótrúlega ákvörðun, sem borgarstjórn hans má til með að endurskoða og hætta við. Fregn þessi segir, að borgarstjórn leggi ofurkapp á að eignast hús listamannsins Ásmundar Sveins- sonar á Freyjugötu 41 — sérstætt og merkilegt hús sem hann byggði sjálfur — og breyta því öllu í barna- LESENDUR heimili. Fregnin segir einnig að glerlista- maðurinn frægi Leif- ur Breiðfjörð og kona hans, Sigríður Jóhannsdóttir vefari, bjóði einnig í húsiö og telji mjög æskilegt að geta stundað þar listiðnir sínar. Allir hugsandi menn sjá strax hve vel færi á að þessir frábæru listamenn eignuðust þetta hús, fyrst þeir óska þess og telja að henti þeim einkar vel. Þá þarf engu að breyta og lista- menn halda áfram að búa þar og skapa ný listaverk. Ég bið minn ágæta R-lista öðru sinni að endurskoða ákvörðun sína varðandi kaup á þessu húsi. Og fyr- ir hönd fjölmargra skoar ég á borg- arstjórn og Alþingi að styrkja lista- mennina til að eignast húsið. Gamall skólastjóri Vaknandi samviska við jötuna Á þessum tíma árs gerist þess varla þörf að rifja það upp, að þegar eftir fæðinguna, var Jesú- barnið lagt í jötu. í Biblíunni er þetta tákn þess, að við komu sína til jarðar kaus Guð sér hlutskipti hinna snauðu. Er þaö að vonum, enda standa fá- tæklingar nær Drottni en þeir sem eyða ævi sinni í söfnun ver- aldlegs auðs. En þær eru fleiri jöturnar en þessi austur í Betlehem. Ein þeirra er Launasjóður rit- höfunda. Á jötuna þá er árlega rabað tískupennum, sem fram- leiddir eru á auglýsingastofum stórútgefenda. Einn þessara tísku- höfunda, sem hellt hefur veriö í bræðslupott bókmenntaelítunn- ar, til að kastast upp í pottlokið með viðeigandi smelli, eins og lít- il maísbaun, í þeirri von að úr verði útblásið poppkorn, er Krist- ín Ómarsdóttir, bókmenntagagn- rýnandi Morgunblaðsins. Víkur nú sögunni að Einari Ól- afssyni ljóðskáldi. Nafn hans er ekki fyrirferðarmikið í fátæklegri bókmenntaumræðu fjölmiðla. Það er og mála sannast, ab maður- inn lætur lítið fyrir sér fara. Þó lét hann sig hafa það, nú fyr ir jólin, að senda frá sér bók, raun- ar þá fyrstu í tæpan áratug. Mána- dúfur nefnist bókin sú arna og er ekki ætlunin að fjalla um hana hér. Hitt skal gert að umræðuefni, að fimmtudaginn 28. desember birtist á síðum Morgunblaðsins gagnrýni um bók Einars og var hún skrifuð af maísbauninni, sem fyrr er nefnd. Mörg þeirra ljóða, sem Einar hefur ort gegnum tíð- ina, flytja lesendum pólitískan boðskap. Slík ljóð eru þó ekki fyr- irferðarmikil í nýútkominni bók hans. Ef marka má „gagnrýni" Krist- ínar Ómarsdóttur, virðist sá grun- ur hafa læbst að henni, að Einar Ólafsson sé einhvers konar laumukommi, sem læði boðskap SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON sínum að fólki án þess að það verði þess vart. Þetta má sjá á um- fjöllun hennar um ljóbið „Að morgni hins virka dags". Ljóöið er sakleysisleg lýsing á því, hvern- ig íbúar ónefnds fjölbýlishúss vakna til lífsins að morgni dags. Lokalínur ljóðins, en þær virðast hafa hitað alveg sérstaklega undir maísbauninni, hljóða svo og birt- ast þær í umræddri „gagnrýni": og eftil vill skáld sem hefur fengið styrk og slœr ritvélim fálmandi eftir orðum sem ná ekki að tengjast. Þessi orð þykja Kristínu Ómarsdóttur „fremur fordóma- full", eins og hún orðar það. En svo bætir hún við nokkrum orð- um, sem óneitanlega benda til þess að við jötu Launasjóðs rit- höfunda narti hin veltömdu húsdýr bókmenntapáfanna ekki aðeins sitt fóður, heldur komi fyrir að samviskan narti eilítiö í þau sjálf. Aö minnsta kosti segir blessuð konan um ofanritaða tilvitnun í Ijóð Einars: „Hér eru á ferðinni fordómar sem hafa stundum heyrst. Hvað með það þó að skáld fái styrk? Og hvað með það þó að orð nái ekki að tengjast? Þetta eru of lítilmótleg atriði til þess að mæta í for- dómafullu ljósi inní ljóð." Ég óska Kristínu Ómarsdóttur hjartanlega til hamingju með nývakta samvisku. Vonandi viöbrennur hún ekki öllu leng- ur í bræðslupottinum hennar Silju blessaðrar. FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES PENINGANA EÐA LÍFIÐ Peningana eba lífið? var stundum spurt í bófahasarnum á Skóla- vöröuholtinu í gamla daga og oft- ar en ekki létu menn lífið á undan peningunum. Enda vógu menn þá hver annan í góðsemi eins og hjá Goðmundi á Glæsivöllum. í dag er áfram spurt um peningana þegar lífið ber á góma í heilbrigðisþjón- ustunni, enda loksins orbið Ijóst að fara verður vel með peninga til að menn haldi bæði lífi og limum. Pistilhöfundi finnst þess vegna gott framtak þegar nokkrir læknar með bæði þekkingu og reynslu vilja reka sín eigin læknatæki og bjóba 40 prósent lægra verð en sjálfur Landspítalinn býður fyrir sömu þjónustu. Með svo lágri gjaldskrá eiga ab sparast 60 millj- ónir króna á hverju ári og hlýtur að muna um minna þegar líf og heilsa manna eru íhúfi. Þab kemur því spánskt fyrir sjón- ir þegar annars vandaðir menn á Borgarspítala telja þab slysfarir ef ungu læknarnir fá að reka lækna- tækin sín sjálfir á meðan engin slík tæki eru til á Borgarspítalanum. Þetta er sérkennileg yfirlýsing. Borgarspítalinn er eflaust vel ab svona tækjum kominn og spítalinn er alls góðs maklegur. En þá eiga stjórnendur hans að fara rétta leið og biðja yfirmenn sína að kaupa svona tæki, en freista þess ekki að leggja stein í götu annars fólks. Einkum og sér í lagi þegar lækn- arnir bjóða sína þjónustu fyrir næstum hálfvirði af gjaldskrá Land- spítalans. Það hlýtur að vera allra hagur að spara í heilbrigbiskerfinu og þeim mun meiri peningar koma þá til skiptanna fyrir Borgar- spítalann. Gjaldskrá Borgarspítalans fylgir ekki með yfirlýsingum þaban og er þab Ijóöurá málflutningnum. Ekki er því vitað hvort Borgarspítalinn mun bjóða hærra verð en Land- spítalinn eba lægra verb en lækn- arnir, ef þjóðin uppfyllir óskir spít- alans um að eignast tækin. Hitt er svo annab mál ab íslend- ingar sigla nú inn í nýja öld og kveðja þá libnu í aldanna skaut. Ár- um saman hefur tiðkast ab spyrja ekki um verb á heilbrigbismálum og borga reikninginn þegjandi og hljóðalaust. Nú er öldin önnur og komið í tísku að fá meira en minna fyrir skattpeningana. Samkeppnin knýr dyra í heilbrigbisgeiranum og nýr heilbrigbisrábherra er vel meb á nótunum. Framvegis munu kröfur um hag- kvæmni tryggja að ódýrasti kostur- inn verði jafnan valinn, enda sé hann ekki lakari en aörir kostir. Töl- ur frá fastalandi Evrópu sýna ab þörf er fyrir sex tæki eins og hér um ræðir á íslandi. Um níutíu pró- sent tækjabúnaðarins er einkarek- inn í öðrum löndum álfunnar og sú þróun nær fyrr en síbar hingab til lands. Hjá sumum íslendingum er pyngjan helsta líffærið og þeir láta hiklaust lífið fyrir peningana. Bless- ub sé minning þeirra. Aðrir láta peningana fyrir lífib og jafnvel heilsuna. Heilbrigðisyfirvöld verba að tryggja ab þjóbin haldi heilsu fyrir lægsta verð án þess ab bitni á gæbum. Annab nær ekki nokkurri átt.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.