Tíminn - 11.01.1996, Page 1
Sími 563 1600
________________________________________________STOFNAÐUR 1917__________________________________________________
80. árgangur Fimmtudagur 11. janúar 7. tölublaö 1996
Eiríkur Tómasson hafnar því aö vera vanhœfur sem
lögfrœbilegur skobunarmabur í Langholtsdeilum
vegna kynna sinna af Ólöfu Kolbrúnu og séra Flóka:
samvinnufélaga.
I dómnum sem féll í gær segir
m.a. aö greinarskrif Agnesar hafi
ekki skaðað hagsmuni SÍS eða ann-
arra aðila, enda hafi nauðasamn-
ingi SÍS verið lokið og skuldaskil
gengin í gegn er greinarnar voru
samdar. Því væru ekki sömu hags-
munir tengdir þeim trúnaöarupp-
lýsingum sem varnaraöili hefði
verið talinn hafa undir höndum
viö samningu greinanna en annars
hefði verið.
í samtali við Tímann í gær sagð-
ist Agnes hafa búist við þessari nið-
urstöðu. „Mér þótti hinn skriflegi
málflutningur lögmanns míns vera
með þeim hætti að þetta væri
borðleggjandi unnið mál fyrir okk-
ar hönd."
Agnes sagði ljóst að SÍS hefði
ekki skaðast vegna greinanna,
enda væri vitnað í fyrrum stjórnar-
formann Sambandsins þegar það
efnisatriöi væri tilgreint í forsend-
um dómsins. Hún telur það þó
„Þab er góba vebrib '' segja menn gjarnan þegar þeir hittast þessa dagana,
þegar nokkuö er iibib á janúarmánub. Víba um land má sjá grœnieit tún og götur meb allt öbrum og betri brag en til
dœmis í New York. Cunnar V. Andrésson tók þessa skemmtilegu mynd af fribsamlegri Hallgrímskirkju í morgunsárib,
skreyttri fullu tungli.
Finnur Ingólfsson segir allra leiba leitaö til aö koma í veg fyrir vaxtahœkkun vegna skattheimtu:
Ekki Sverris að ákveða
um fjármagnstekjuskatt
„Bankaráð bankanna ræður
bankastjórana og þeir starfa
á ábyrgb bankaráðsins. Það
er ríkisins að ákvarða hvort
fjármagnstekjuskattur verbi
tekinn upp en ekki Sverris
Hermannssonar. Hitt er allt
annað mál og ekki nýtt ab
menn hafa haft velt upp
þeim möguleika ab fár-
magnstekjuskattur geti leitt
til hærri vaxta. Við veröum
einfaldlega að leita allra
leiða í þessum efnum til að
koma í veg fyrir það," sagði
Finnur Ingólfsson ibnabar-
og vibskiptarábherra þegar
Tíminn bar undir hann orð
Landsbankastjóra.
Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, rit-
aði grein í Morgunblaðið í
fyrradag þar sem hann segir
fyrirhugaban fjármagnstekju-
skatt
bitna á
sem
skyldi
helst
þeim
síst
og
leiða auk þess
til vaxta-
hækkunar.
Hann skorar á
ungliöahreyf-
inguna í Sjálf-
stæðisflokknum að spyrna við
fótum og segir að Landsbanki
Finnur.
Islands muni slá skjaldborg
um viðskiptavini sína vegna
þessa. í viðtali RÚV í gær sagði
Sverrir að vel kæmi til greina
að hækka innlánsvexti til
móts við fjármagnsskatt en
talað hefur verið um 10% fjár-
magnsskatt. Fyrst og fremst
myndi slík aðgerð þó valda
hækkun útlánsvaxta að mati
Sverris.
-BÞ/BG
Biskup taldi þaö
aöeins til bóta
Eiríkur Tómasson prófessor við
lögfræðideild Háskóla íslands
sagði í gær að hann fengi ekki séð
hvernig hann ætti að geta talist
vanhæfur sem lögfræðilegur
skoöunarmaöur í Langholtsdeil-
unni, alla vega ekki samkvæmt
þeim vanhæfnisreglum sem hann
þekkti til. „Ég var hreint ekki að
koma mér á neinum fölskum for-
sendum inn í þetta mál. Annars
ætlaði ég ekki að tjá mig um þetta
í fjölmiðlum, en úr því Alþýðu-
blaðið telur mig vanhæfan tel ég
nauðsynlegt að greina frá þessu,"
sagði Eiríkur í samtali við Tím-
ann í gær.
Alþýðublaðið segir Eirík Tómas-
son hafa verið náinn samstarfs-
mann Ólafar Kolbrúnar, eiginkonu
Jóns organista Stefánssonar, þegar
hann var formaður Styrktarfélags
íslensku Óperunnar, en Ólöf fram-
kvæmdastjóri óperunnar.
En þessar upplýsingar blaðsins
eru aðeins hálfur sannleikurinn. Ei-
ríkur Tómasson þekkir líka séra
Flóka Kristinsson mæta vel, því þeir
voru skólabræður við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð um árið.
„Ég upplýsti biskup um þetta
þegar hann hafði samband við mig.
Reyndar sagði ég honum líka frá
því, þegar ég færðist undan því að
taka að mér málið, að við Flóki
hefðum verið saman í skóla. Ég
taldi nú hvorugt þessara atriða í
sjálfu sér hafa áhrif á afstöðu mína
til þessa máls. Ég þekki þau Ólöfu
Kolbrúnu og Flóka lítillega, það eru
ekki náin kynni, en þekki þau aö
góðu einu. Þegar ég sagði biskupi
frá þessu taldi hann þetta vera til
bóta fremur en hitt og endaði svo
að ég tók þetta að mér fyrir beiðni
biskupsins, þótt ég væri ekki ákafur
eða fús til þess," sagðí Eríkur Tóm-
asson prófessor í samtali við Tím-
ann í gær.
Eiríkur tók skýrt fram að hann
væri hvorki sáttasemjari né „rann-
sóknari" í kirkjudeilunni, eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum.
Hann sagðist vinna við þetta mál
hiutlægt og án utanaökomandi
áhrifa. Hann væri byrjabur vinnu
sína en kvaöst ekki geta né vilja
segja neitt um það hvenær hann
getur skilað biskupi greinargerb
sinni. -JBP
Úrskurbi Hérabsdóms hnekkt. Agnesi Bragadóttur
ekki skylt ab svara spurningum RLR:
Blaöamennskan
höfö aö leiöarljósi
Hæstiréttur hnekkti í gær kröfu
undirréttar um að Agnesi Braga-
dóttur blaðamanni væri „skylt
ab koma fyrir dóm sem vitni til
skýrslugjafar í RLR máli nr.
3455/95."
RIR höfbaði málið á hendur Ag-
nesi eftir ab hún neitaði að skýra
frá heimildarmönnum sínum er
hún vann grein í Morgunblaðið
um endalok Sambands íslenskra
ekki vera lykilatriði í málinu. „Eg
tel lykilatriðið í dómnum vera að
hagsmunir Landsbanka Islands, SÍS
og rannsóknaraðila séu ekki nógu
ríkir miðað við hagsmuni blaða-
mennskunnar: ab fá að upplýsa
landsmenn um það sem er að ger-
ast í þjóðfélaginu. Þeir hagsmunir
eru ríkari og það tel ég vera kjarna-
punktinn í þessari niðurstöðu."
-BÞ