Tíminn - 11.01.1996, Síða 2
2
Fimmtudagur 11. janúar 1996
Tíminn
spyr...
Er Eiríkur Tómasson prófessor
vanhæfur til ab fjalla um rimm-
una í Langholtskirkju vegna fyrr-
verandi formennsku sinnar í
Styrktarfélagi óperunnar og
starfa sinna fyrir Stef?
Baldur Kristjánsson biskupsritari
Nei, Eiríkur Tómasson er einhver
færasti sérfræöingur í stjórnsýslulög-
unum og hann geröi biskupi strax
grein fyrir þessum tengslum sínum
viö óperuna og því líka aö hann
þekkti til Flóka og hefði verið í sama
skóla og hann, þótt þeir væru
kannski ekki bekkjarbræöur. Hann
taldi sjálfur að þetta geröi hann ekki á
nokkurn hátt vanhæfan og ég er sam-
mála honum í því. í þessu efni ber
líka að hafa þaö í huga að Eiríkur er
ekki dómari heldur er hann aö skoða
máliö fyrir biskup.
Jón Magnússon hæstaréttarlög-
maöur
Nei, ég mundi nú ekki álíta aö
þessi tengsl mundu valda vanhæfi Ei-
ríks Tómassonar sem slíks, en hitt er
annað mál að lagaprófessor er ekkert
hæfari til ab fjalla um þetta mál en
hver annar, vegna þess aö málib er
ekki þess eðlis og heyrir ekki undir
lögfræði. Ég tel Eirík Tómasson vera
ákaflega hæfan mann og því færan
um að fjalla um þetta mál, en próf-
gráöa og annað í jáeim dúr gerir hann
ekki hæfari en hvaöa mann sem er
meb aöra prófgráðu og annað starfs-
svið. Að mínu viti er þetta ágreining-
ur sem kirkjan hefði að sjálfsögðu átt
að leysa innan sinna vébanda. Það er
mjög óeölilegt ab fara þessa leiö.
Þarna er ágreiningur milli aðila sem
starfa innan ákveðinnar kirkjudeild-
ar. Málib er að mínum dómi mjög
einfalt: Annað hvort tekst ab ná sam-
komulagi og auðvitað ber að vinna
að því, en ef ekki tekst ab ná sam-
komulagi, þá verður annar aðilinn ab
fara.
Leifur Þórarinsson tónskáld
Ég hef ekki vit á þessu máli. Ég hef
ekki kynnt mér það enda kemur mér
það ekki vib, en ég geng út frá því að
Eiríkur Tómasson sé hæfur í hvaö
sem er.
Kjarvalsstaöir hefja árib meb glœsibrag — fjórar sýningar opnabar á laugardag:
Frægur Frakki og ábur
óþekkt verk Kjarvals
Rússnesku listamennirnir Komar og Melamid sýna listaverk eins og
mebaljóninn á íslandi vill, og annab sem íslendingurinn vill ekki.
Kjarvalsstaðir hefja nýja árib
með trukki, fjórar sýningar
verba opnabar í sýningarsöl-
unum á laugardag. Mebal
þeirra er Kjarvalssýning sem
Helgi Þorgils Fribjónsson hef-
ur sett saman og er ab hengja
upp þessa dagana, teikningar
listamannsins, sem fæstar
hafa sést ábur. Einn helsti list-
málari Frakka, Olivier Debré,
heldur þar og sýningu. Þá
mum þab vekja athygli þegar
rússneskir myndlistarmenn
kynna „Val fólksins", sýningu
sem samanstendur af abeins
tveim málverkum, þ.e. „eftir-
sóttasta og síst eftirsótta mál-
verki íslensku þjóbarinnar".
Niburstaban er fengin eftir
skobanakönnun sem Hag-
vangur gerbi fyrir hartnær ári
síban.
Rússarnir Komar og Melamid
fluttu til Bandaríkjanna 1978
eftir ab hafa verib undir járnhæl
sovétskipulagsins um árabil.
List þeirra er framsækin hug-
myndalist, en viðfangsefnið er
menningar-félagsleg umfjöllun
um listina og samfélagib.
í gærdag var Helgi Þorgils ab
hengja upp á Kjarvalsstöðum.
Hann hafbi orðið sér úti um
eitthvað á þriðja hundrað teikn-
Ein teikninga Meistara Kjarvals, sem
sýnd verbur á Kjarvalsstöbum fram
til vors.
ingar eftir Meistara Kjarval,
myndir sem margir munu áræð-
anlega hafa gaman af aö sjá.
Franski abstraktmálarinn De-
bré, 75 ára, kemur hingað til
lands á föstudag og heldur beint
af flugvelli til vinnu sinnar á
Kjarvalsstöðum. Debré er í hópi
þekktustu listamanna Frakk-
lands.
Loks er að geta þáttar Ingólfs
Arnarssonar. Hann sýnir mynd-
ir sem hann vinnur annars veg-
ar sem teikningar á pappír og
hins vegar með vatnslitum á
steinsteypu.
Allar standa sýningarnar til
18. febrúar, nema Kjarvalssýn-
ingin sem stendur til vors. -JBP
Nýtt leikhús á gömlum grunni:
99 ára afmæli LR
Leikfélag Reykjavíkur er 99
ára gamalt í dag. Libin eru tíu
ár frá því ab Davíb Oddsson,
þáverandi borgarstjóri, lagbi
hornstein ab Borgarleikhús-
inu. Til ab minnast þessara
tímamóta og til ab kynna
undirbúning 100 ára afmælis-
hátíbar ab ári verba leikfélags-
menn meb samkomu í Forsal
Borgarleikhússins kl. 16.30 í
dag.
Meðal þeirra sem taka til máls
á samkomunni verða Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri, Kjartan Ragnarsson for-
maður Leikfélags Reykjavíkur
Ibnó vib Tjörnina. Þar átti Leikfé-
lag Reykjavíkur sín uppvaxtarár og
glæsitíma.
og Viðar Eggertsson, verðandi
leikhússtjóri I.R. Þá munu
Szymon Kuran borgarlistamað-
Borgarleikhúsib í Kringluhverfi, hib
nýja absetur Leikfélags Reykjavíkur,
glœsileg abstaba.
ur og félagar úr LR stytta gestum
stundir.
Sérstök afmælisnefnd starfar
nú að undirbúningi aldaraf-
mælisins. Hana skipa Leikhús-
ráð og heiðursfélagar L.R., en
formaöur er Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands.
-BÞ
Téídnn meö þýfj í bi'
•eir karlmenn og ••
i Kópav.v.
urn að haf;« * l" '
l n amhaUli af þvt
r, onum o* hiim kariin'i .
3066/
£6 /S£F£>/ VF/l/F VFA/JU-
TÚ//ÞÓ/<OF //
\ Sagt var...
Nýríkir og síríklr
„Nú er Davíö kominn í spilið. Hann
hefur rætt við Heklubræður um að
þeir taki þátt í kaupum á bankanum
enda hefur lengi verið gott á milli
Davíðs og bræðranna. Auk þess eru
bræðurnir ekki nýríkir heldur síríkir
og því ætti Gubni að geta fallist á að
selja þeim part þessum blessaða
banka þegar hann verbur háeffaður.
Alla vega ætti Gubni ab taka hönd-
um saman vib Davíö í þessu máli ef
það gæti orbib til þess ab koma í veg
fyrir ab bankinn lenti i höndum ný-
ríkra því þab gefur augaleið ab þeim
er ekki treystandi til að eiga og reka
banka. Eða dytti nokkrum heilvita
manni í hug að selja ofdrykkjumönn-
um Áfengisverslun ríkisins?"
Dagfari í DV
Óskynsamleg stjórn
byggbamála
„jafnt vægi er skynsamlegt. Misvægi
atkvæba tengist óskynsamlegri stjórn
byggðamála. Á íslandi er sveitar-
stjórnarstigið veikt og því illa fært
um að fást við byggðamál. Byggba-
málum er því sinnt af landsstjórninni.
Alþingismenn eru fulltrúar ákvebinna
landshluta og gæta hagsmuna þeirra
á Alþingi."
Ægir Karl Ægisson í grein í Vikublabinu
Forsetaembættib og valdlb
„Full ástæba er til ab ræba hlutverk
embættis forseta íslands, og yfirhöf-
uö hvort það þjóni einhverjum til-
gangi. Á hinn bóginn mun þab
skapa mikla ólgu ef stjórnmálamabur
— og alveg sérstaklega ef hann heitir
Davíð Oddsson — sækist eftir for-
setaembættinu á þeim forsendum ab
auka þurfi völd þess. Þá er næsta víst
aö gamanið færi ab kárna."
Úr forystugrein Alþýbublabsins
Ósköp óánægb
„í fjárlagaumræðunni á Alþingi í lok
fyrra árs rébst jóhanna Siguröardótt-
ir, fyrrverandi félagsmálarábherra,
með miklu offorsi á Pál Pétursson fé-
lagsmálaráöherra úr ræbustól. Undir
ræbunni sat Páll með púkaglott á
vörum og þegar hann svaraði Jó-
hönnu lét hann þessa vísu fara í loft-
! ið:
Ein er núna ögn ílœgb,
ekki ab marki lagin.
Hún er ósköp óánægb
eins og fyrri daginn."
Sandkorn í DV
í heita pottinum var verið aö ræða um
Pál Pétursson félagsmálaráöherra og
snöfurmannlega innkomu hans í ríki
rábherranna. Bar mönnum saman um
aö honum færi starfiö vel og til þess
tekið aö hann virtist láta allt milli him-
ins og jarbar sig varöa. Hann væri bara
alls stabar eitthvab ab stjórna. Hesta-
maðurinn úr austurbænum upplýsti þá
ab menn væru líka hættir aö kalla Pál
„Pál á Höllustöbum". Nú gangi hann
undir nafninu „Páll á öllum-stöbum" ...
•
Nú er orðið Ijóst að Sighvatur Björg-
vinsson skrifabi sína frægu Morgun-
blabsgrein um ab stjórnmálamenn
ættu vissulega erindi á Bessastabi til
þess að melda stuðning sinn vib Davíb
Oddsson í embættib. jafnframt hefur
þab vakiö athygli ab Davíb neitar því
ekki sjálfur ab hann hyggi á frambob
þó hann „telji þab frekar ólíklegt," eins
og hann orbabi þab í fréttum Stöbvar
2. Kratarnir í pottinum velta því fyrir
sér hvab gamli refurinn Sighvatur sé
ab fiska meb þessari snemmbæru
meldingu sinni, og hallast helst að því
ab hann vonist eftir stubningi sjálfstæb
ismanna í stól landsbankastjóra þegar
sæti Björgvins Vilmundarsonar
losnar...
•
Stórfrétt RÚV um sjúkrasamlagstillögur
Bolla Hébinssonar var ágæt þó svo til-
lögur Bolla hafi verið settar fram í DV
kjallaragreinum fyrir 3 árum síban.
Þetta sýnir að góðar hugmyndir eldast
vel. í pottinum var fullyrt ab Bolli hafi
sagt þegar sjónvarPib hringdi: „Minn
tími er þá loksins kominn" ...