Tíminn - 11.01.1996, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.01.1996, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 11. janúar 1996 Tíminn spyr... Er Eiríkur Tómasson prófessor vanhæfur til ab fjalla um rimm- una í Langholtskirkju vegna fyrr- verandi formennsku sinnar í Styrktarfélagi óperunnar og starfa sinna fyrir Stef? Baldur Kristjánsson biskupsritari Nei, Eiríkur Tómasson er einhver færasti sérfræöingur í stjórnsýslulög- unum og hann geröi biskupi strax grein fyrir þessum tengslum sínum viö óperuna og því líka aö hann þekkti til Flóka og hefði verið í sama skóla og hann, þótt þeir væru kannski ekki bekkjarbræöur. Hann taldi sjálfur að þetta geröi hann ekki á nokkurn hátt vanhæfan og ég er sam- mála honum í því. í þessu efni ber líka að hafa þaö í huga að Eiríkur er ekki dómari heldur er hann aö skoða máliö fyrir biskup. Jón Magnússon hæstaréttarlög- maöur Nei, ég mundi nú ekki álíta aö þessi tengsl mundu valda vanhæfi Ei- ríks Tómassonar sem slíks, en hitt er annað mál að lagaprófessor er ekkert hæfari til ab fjalla um þetta mál en hver annar, vegna þess aö málib er ekki þess eðlis og heyrir ekki undir lögfræði. Ég tel Eirík Tómasson vera ákaflega hæfan mann og því færan um að fjalla um þetta mál, en próf- gráöa og annað í jáeim dúr gerir hann ekki hæfari en hvaöa mann sem er meb aöra prófgráðu og annað starfs- svið. Að mínu viti er þetta ágreining- ur sem kirkjan hefði að sjálfsögðu átt að leysa innan sinna vébanda. Það er mjög óeölilegt ab fara þessa leiö. Þarna er ágreiningur milli aðila sem starfa innan ákveðinnar kirkjudeild- ar. Málib er að mínum dómi mjög einfalt: Annað hvort tekst ab ná sam- komulagi og auðvitað ber að vinna að því, en ef ekki tekst ab ná sam- komulagi, þá verður annar aðilinn ab fara. Leifur Þórarinsson tónskáld Ég hef ekki vit á þessu máli. Ég hef ekki kynnt mér það enda kemur mér það ekki vib, en ég geng út frá því að Eiríkur Tómasson sé hæfur í hvaö sem er. Kjarvalsstaöir hefja árib meb glœsibrag — fjórar sýningar opnabar á laugardag: Frægur Frakki og ábur óþekkt verk Kjarvals Rússnesku listamennirnir Komar og Melamid sýna listaverk eins og mebaljóninn á íslandi vill, og annab sem íslendingurinn vill ekki. Kjarvalsstaðir hefja nýja árib með trukki, fjórar sýningar verba opnabar í sýningarsöl- unum á laugardag. Mebal þeirra er Kjarvalssýning sem Helgi Þorgils Fribjónsson hef- ur sett saman og er ab hengja upp þessa dagana, teikningar listamannsins, sem fæstar hafa sést ábur. Einn helsti list- málari Frakka, Olivier Debré, heldur þar og sýningu. Þá mum þab vekja athygli þegar rússneskir myndlistarmenn kynna „Val fólksins", sýningu sem samanstendur af abeins tveim málverkum, þ.e. „eftir- sóttasta og síst eftirsótta mál- verki íslensku þjóbarinnar". Niburstaban er fengin eftir skobanakönnun sem Hag- vangur gerbi fyrir hartnær ári síban. Rússarnir Komar og Melamid fluttu til Bandaríkjanna 1978 eftir ab hafa verib undir járnhæl sovétskipulagsins um árabil. List þeirra er framsækin hug- myndalist, en viðfangsefnið er menningar-félagsleg umfjöllun um listina og samfélagib. í gærdag var Helgi Þorgils ab hengja upp á Kjarvalsstöðum. Hann hafbi orðið sér úti um eitthvað á þriðja hundrað teikn- Ein teikninga Meistara Kjarvals, sem sýnd verbur á Kjarvalsstöbum fram til vors. ingar eftir Meistara Kjarval, myndir sem margir munu áræð- anlega hafa gaman af aö sjá. Franski abstraktmálarinn De- bré, 75 ára, kemur hingað til lands á föstudag og heldur beint af flugvelli til vinnu sinnar á Kjarvalsstöðum. Debré er í hópi þekktustu listamanna Frakk- lands. Loks er að geta þáttar Ingólfs Arnarssonar. Hann sýnir mynd- ir sem hann vinnur annars veg- ar sem teikningar á pappír og hins vegar með vatnslitum á steinsteypu. Allar standa sýningarnar til 18. febrúar, nema Kjarvalssýn- ingin sem stendur til vors. -JBP Nýtt leikhús á gömlum grunni: 99 ára afmæli LR Leikfélag Reykjavíkur er 99 ára gamalt í dag. Libin eru tíu ár frá því ab Davíb Oddsson, þáverandi borgarstjóri, lagbi hornstein ab Borgarleikhús- inu. Til ab minnast þessara tímamóta og til ab kynna undirbúning 100 ára afmælis- hátíbar ab ári verba leikfélags- menn meb samkomu í Forsal Borgarleikhússins kl. 16.30 í dag. Meðal þeirra sem taka til máls á samkomunni verða Davíð Oddsson forsætisráðherra, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri, Kjartan Ragnarsson for- maður Leikfélags Reykjavíkur Ibnó vib Tjörnina. Þar átti Leikfé- lag Reykjavíkur sín uppvaxtarár og glæsitíma. og Viðar Eggertsson, verðandi leikhússtjóri I.R. Þá munu Szymon Kuran borgarlistamað- Borgarleikhúsib í Kringluhverfi, hib nýja absetur Leikfélags Reykjavíkur, glœsileg abstaba. ur og félagar úr LR stytta gestum stundir. Sérstök afmælisnefnd starfar nú að undirbúningi aldaraf- mælisins. Hana skipa Leikhús- ráð og heiðursfélagar L.R., en formaöur er Vigdís Finnboga- dóttir, forseti íslands. -BÞ Téídnn meö þýfj í bi' •eir karlmenn og •• i Kópav.v. urn að haf;« * l" ' l n amhaUli af þvt r, onum o* hiim kariin'i . 3066/ £6 /S£F£>/ VF/l/F VFA/JU- TÚ//ÞÓ/<OF // \ Sagt var... Nýríkir og síríklr „Nú er Davíö kominn í spilið. Hann hefur rætt við Heklubræður um að þeir taki þátt í kaupum á bankanum enda hefur lengi verið gott á milli Davíðs og bræðranna. Auk þess eru bræðurnir ekki nýríkir heldur síríkir og því ætti Gubni að geta fallist á að selja þeim part þessum blessaða banka þegar hann verbur háeffaður. Alla vega ætti Gubni ab taka hönd- um saman vib Davíö í þessu máli ef það gæti orbib til þess ab koma í veg fyrir ab bankinn lenti i höndum ný- ríkra því þab gefur augaleið ab þeim er ekki treystandi til að eiga og reka banka. Eða dytti nokkrum heilvita manni í hug að selja ofdrykkjumönn- um Áfengisverslun ríkisins?" Dagfari í DV Óskynsamleg stjórn byggbamála „jafnt vægi er skynsamlegt. Misvægi atkvæba tengist óskynsamlegri stjórn byggðamála. Á íslandi er sveitar- stjórnarstigið veikt og því illa fært um að fást við byggðamál. Byggba- málum er því sinnt af landsstjórninni. Alþingismenn eru fulltrúar ákvebinna landshluta og gæta hagsmuna þeirra á Alþingi." Ægir Karl Ægisson í grein í Vikublabinu Forsetaembættib og valdlb „Full ástæba er til ab ræba hlutverk embættis forseta íslands, og yfirhöf- uö hvort það þjóni einhverjum til- gangi. Á hinn bóginn mun þab skapa mikla ólgu ef stjórnmálamabur — og alveg sérstaklega ef hann heitir Davíð Oddsson — sækist eftir for- setaembættinu á þeim forsendum ab auka þurfi völd þess. Þá er næsta víst aö gamanið færi ab kárna." Úr forystugrein Alþýbublabsins Ósköp óánægb „í fjárlagaumræðunni á Alþingi í lok fyrra árs rébst jóhanna Siguröardótt- ir, fyrrverandi félagsmálarábherra, með miklu offorsi á Pál Pétursson fé- lagsmálaráöherra úr ræbustól. Undir ræbunni sat Páll með púkaglott á vörum og þegar hann svaraði Jó- hönnu lét hann þessa vísu fara í loft- ! ið: Ein er núna ögn ílœgb, ekki ab marki lagin. Hún er ósköp óánægb eins og fyrri daginn." Sandkorn í DV í heita pottinum var verið aö ræða um Pál Pétursson félagsmálaráöherra og snöfurmannlega innkomu hans í ríki rábherranna. Bar mönnum saman um aö honum færi starfiö vel og til þess tekið aö hann virtist láta allt milli him- ins og jarbar sig varöa. Hann væri bara alls stabar eitthvab ab stjórna. Hesta- maðurinn úr austurbænum upplýsti þá ab menn væru líka hættir aö kalla Pál „Pál á Höllustöbum". Nú gangi hann undir nafninu „Páll á öllum-stöbum" ... • Nú er orðið Ijóst að Sighvatur Björg- vinsson skrifabi sína frægu Morgun- blabsgrein um ab stjórnmálamenn ættu vissulega erindi á Bessastabi til þess að melda stuðning sinn vib Davíb Oddsson í embættib. jafnframt hefur þab vakiö athygli ab Davíb neitar því ekki sjálfur ab hann hyggi á frambob þó hann „telji þab frekar ólíklegt," eins og hann orbabi þab í fréttum Stöbvar 2. Kratarnir í pottinum velta því fyrir sér hvab gamli refurinn Sighvatur sé ab fiska meb þessari snemmbæru meldingu sinni, og hallast helst að því ab hann vonist eftir stubningi sjálfstæb ismanna í stól landsbankastjóra þegar sæti Björgvins Vilmundarsonar losnar... • Stórfrétt RÚV um sjúkrasamlagstillögur Bolla Hébinssonar var ágæt þó svo til- lögur Bolla hafi verið settar fram í DV kjallaragreinum fyrir 3 árum síban. Þetta sýnir að góðar hugmyndir eldast vel. í pottinum var fullyrt ab Bolli hafi sagt þegar sjónvarPib hringdi: „Minn tími er þá loksins kominn" ...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.