Tíminn - 20.03.1996, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.03.1996, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 20. mars 1996 Sjúkrahúsasparnaöarnefnd: Hátúni lokab, brábarúmum breytt í endurhœfingarrúm og tugir sjúklinga fluttir heim: Fjárhagslegur ávinningur fæst einungis með fækkun bráðarúma Á þribja tug tillagna um sparnab í rekstri meö aukinni samvinnu og breytingu á vinnuferlum er afraksturinn af starfi nefndar sem heil- brigöirá&herra, Ingibjörg Pálmadóttir, skipa&i í janúar sl. til aö vinna aö bráöabirgöa- tillögum um hagræ&ingu og sparnað með auknu samstarfi og verkaskiptingu sjúkrahús- anna í Reykjavík og Reykja- nesi. Nefndinni var m.a. faliö aö aðstoða stjórnir sjúkrahús- anna viö aö ná fram 200 millj- óna kr. sparnaði á útgjöldum þessara fjögurra sjúkrahúsa á yfirstandandi ári. „Gengið er út frá aö breyting úr bráöarúmum (30.000 kr./ legud.) í endurhæfingar/lang- legurúm (13.000 kr./legud.) hafi í för meö sér tilsvarandi fækkun bráðarúma. Fjárhagslegur ávinningur fæst ekki með öðru móti. Einnig er gengið út frá að tvær öldrunardeildir í Hátúni flytjist á Landakot og Hátúni verbi lokað. Gert er ráð fyrir að um 20 sjúklingar geti flutt heim Kristbergur á Sólon Laugardag- inn 23. mars hefst sýning á málverkum eftir Krist- berg Ó. Pét- ursson á Sól- on íslandus í Bankastræti. Verkin á sýn- Kristbergur ingunni eru frá dvöl lista- mannsins á norrænu lista- mannastööinni í Sveaborg í Finnlandi á sí&asta ári. Verk eftir Kristberg eru einnig til sýnis um þessar mundir á Kaffi Óliver í Bankastræti og í húsnæði Hafnarfjarðarleikhúss- ins við Vesturgötu í Hafnarfirði. sem ekki þyrftu að vera inni á öldrunar/langlegudeildum ef þeir fá sjúkrahústengda heima- þjónustu eða aukna heima- hjúkrun frá heilsugæslu eða sjálfstætt starfandi hjúkrunar- fræðingum", segir nefndin í dæmi um tillögur sem kosta mundi 110 milljónir ab hrinda í framkvæmd en ættu að geta skilað 230 milljóna sparnaði. Almennt segist nefndin, í til- lögum sínum, hafa gengið út frá þeim forsendum að hagkvæm- ara sé að hafa sjaldgæfa og flókna þjónustu á sjúkrahúsun- um í Reykjavík og einfaldari og algengari þjónustu á sjúkrahús- unum í Hafnarfiröi og Keflavík. Mikilvægt sé að finna smærri sjúkrahúsunum hlutverk sem hagkvæmt sé út frá þjóðhags- legu sjónarmiði. Verkaskipting verði skerpt á sjúkrahúsunum í Reykjavík og hugmyndir um enn frekari verkaskiptingu lagð- ar fram til skoðunar. Að taka upp sjúkrahústengda heimaþjónustu er meðal nýj- unga sem nefndin leggur til. Þar er átt við að hjúkrunarfræðing- ar, læknar og annað fagfólk þjónusti í heimahúsum fólk sem annars væri á sjúkrahúsum. Er m.a. lagt til að þess háttar meöhöndlun verði hafin gegn húðsýkingum og blóðsega. Lagt er til að augndeild Landakots verði flutt í Fossvog. Að hagkvæmni þess að sameina þvottahús sjúkrahúsanna fjög- urra verði skoðuð betur. Að miðstöð krabbameinslækninga verði á Landsspítalanum. Að undirbúið veröi aö færa heim aðgerðir sem augljóslega sé hag- kvæmt að gera hérlendis. Þá er lagt til að hópur sér- fróðra aðila vinni að endur- skipulagningu og geri tillögur um hvernig bæta megi nýtingu skurðstofa. Tímabundnir þjón- ustusamningar verði gerðir við sjúkrahúsin til að stytta biðlista fyrir liðskiptaaðgerðir og háls- kirtlatöku, en til þess þurfi sér- staka fjárveitingu. Sömuleiðis er lagt til að skipu- lega verði unnið að staðlaðri meðferð, kjörmeðferð, ákveð- inna sjúklingahópa allt frá inn- lögn til útskriftar til að reyna að koma í veg fyrir „undirmeð- höndlun" jafnt og „ofurmeð- höndlun". Mönnunarmódel starfsfólks verði yfirfarin og vinnuhlutfall sérfræðinga, lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra starfsmanna veröi end- urskoðað með tilliti til hags- muna stofnananna. „Við vænt- um þess að þessar bráðabirgða- tillögur, hugmyndir ásamt dæmum verði skoðaðar af heil- indum og gagnrýndar á mál- efnalegan og faglegan hátt", eru lokaorð nefndarinnar. Formað- ur hennar er Sigríður Snæ- björnsdóttir hjúkrunarforstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur (SHR). Aðrir nefndarmenn eru Kristján Erlendsson sérfræðingur Lands- spítala, Brynjólfur Mogensen forstöðulæknir SHR, Gunnhild- ur Sigurðardóttir hjúkrunarfor- stjóri St. Jósepsspítala, Konráð Lúðvíksson yfirlæknir Sjúkra- húsi Suðurnesja og Pétur Jóns- son framkvmdastj. stjórnunar- sviðs Ríkisspítala. Tvö stór kaupfélög á Suburlandi ganga í eina sœng saman, Kaupfé- lag Árnesinga og Kaupfélag Rangœinga: KÁ tók vib KR í gær Tvö öflug sunnlensk kaupfé- lög hafa gert meö sér sam- komulag um samruna á vor- mánuöum, Kaupfélag Árnes- inga og Kaupfélag Rangæ- inga. Stjórnir kaupfélaganna tveggja hafa komist aö sam- komulagi, en þaö er háö sam- þykki félagsfunda í báöum kaupfélögunum. Helstu markmiðin með sam- runa kaupfélaganna er að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri, treysta betur þá þjón- ustu sem félögin hafa veitt fé- lagsmönnum og viðskiptavin- um, og treysta stöðu beggja fé- laganna til að mæta vaxandi samkeppni á næstu árum. Ljóst er talið að nokkrar áherslu- breytingar verði í rekstrinum á næstu árum á félagssvæði Kaupfélags Rangæinga, en stefnt er að því að breytingarn- ar dragi ekki úr atvinnu á svæð- inu. í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Kaupfélag Árnesinga muni leigja rekstur Kaupfélags Rangæinga þar til samruninn hefur farið fram. Tók KÁ við rekstrinum í gær. Allt starfsfólk KR mun starfa áfram hjá KÁ. Kaupfélag Árnesinga er þriðja stærsta kaupfélag landsins, meö veltu upp á rúmlega 2,2 milljarða 1994, en Kaupfélag Rangæinga var með 587 millj- ón króna veltu og 13. í röðinni í fjölskyldu kaupfélaganna. Bæði félögin hafa átt við tap- rekstur að stríða síðustu árin, ekki síst vegna minni umsvifa í landbúnaði. Eigið fé KÁ var 416,5 milljónir í árslok 1994 en hjá KR var það um 64 milljónir. Starfsmenn KÁ eru á þriðja hundrað en rúmlega sextíu starfa hjá KR. Hugmyndir um samruna hafa áður verið uppi á borðinu hjá stjórnum félaganna án þess að lending hafi náðst. Viðræð- ur og samningar undanfarinna mánuða milli beggja kaupfélag- anna og stærstu lánardrottna hafa nú leitt til niðurstöðu. Eru stjórnir beggja kaupfélaganna sammála um að breytingin muni verða til velfarnaðar fyrir viðskiptavini og alla hags- munaaðila félaganna í framtíð- inni. -JBP Skjólstcebingum Félagsmálastofnunar Reykjavíkur fjölgar stöbugt: Einstæöir karlar eru fjölmennasti hópurinn Alls greiddi Félagsmálastofn- un Reykjavíkur 1.659 millj- aröa króna í fjárhagsa&stoð til einstaklinga og heimila í Reykjavík á árunum 1993 til 1995. Á árinu 1993 greiddi fé- lagsmálastofnunin 430,8 milljónir í fjárhagsaöstoö, á árinu 1994 nam aðstoðin 554,5 milljónum og á árinu 1995 var þessi aðstoð komin í 674,2 milljónir króna og var því nálægt þriöjungi hærri en áriö 1993. Á árinu 1993 nutu 4.767 heimili aðstoðar félagsmálastofnunar en á síö- asta ári var fjöldi heimila oröinn 5.397. Þetta kemur fram í svari félagsmálaráð- herra viö fyrirspurn frá Jó- hönnu Siguröardóttur á Al- þingi. Á árunum 1993 og 1994 leit- uðu flestir aðstoðar félagsmála- stofnunar vegna atvinnuleysis eða 1.262 á árinu 1993 og 1.385 á árinu 1994. Næstir komu öryrkjar en á þessum ár- um leituðu 489 og 559 er rétt höfðu til örorkubóta til félags- málastofnunar og 190 og 203 ellilífeyrisþegar. Athygli verkur að 379 einstaklingar í fullu starfi leituðu eftir aðstoð Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur á árinu 1993 og 345 árið 1994. Einnig vekur verulega at- hygli í svari ráðherra ab ein- hleypir karlar eru fjölmennast- ir á meðal skjólstæbinga félags- málastofnunar og fer fjölgandi á milli ára. Árið 1993 leitaði 1.201 einhleypur karl aðstoðar félagsmálayfirvalda í Reykja- vík, 1.390 árið eftir og á síðasta ári var fjöldi þeirra einhleypu karla sem leita urðu félagslegr- ar aðstoðar 1.652. Fjöldi ein- hleypra kvenna er leituðu til félagsmálastofnunar er hins vegar innan við helmingur af fjölda karlana því árið 1993 Ieituðu 568 einhleypar konur aðstoðar félagsmálastofnunar, 662 árib 1994 og 754 á síðasta ári. Einstæðir foreldrar er leit- uðu til félagsmálastofnunar á þessu tímabil voru; 742 árið 1993, 777 árið 1994 og 894 ár- ið 1995. , -ÞI Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Breiöholti: Þarf ab tryggja atvinnu fag- kennara í FB „Kennarafélag Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti mótmælir harblega þeim fyrirætlunum menntamálaráðuneytisins að leggja niður starfsnám við skólann. Fjölbrautakerfið hef- ur hér í skólanum sýnt fram á kosti þess að hafa í einni og sömu stofnun samþáttað verk- nám og bóknám. Það væru mikil mistök að leggja niður þetta val nemenda um brautir og valáfanga til þess eins að byggja upp sérskóla með tak- markab námsframbob." Svo hljóða upphafsorð álykt- unar sem fundur Kennarafélags FB samþykkti í vikunni. Þar kem- ur einnig fram að með ólíkind- um sé hvernig allar ábendingar og rök stjórnenda skólans og skólanefndar hafi verið hunsað- ar. í ályktuninni er allt tal um hagræðingu sem fylgi því að leggja niður nokkrar námsbraut- ir í FB „til þess eins að byggja upp aðstöðu og þekkingu fyrir sams konar námsbrautir annars stað- ar", sé hjóm eitt hvort sem litið sé til lengri eða skemmri tíma. Auk þess telja „kennarar við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti sér- staklega ámælisvert að ekki er tryggð atvinna starfandi kennara þeirra námsbrauta sem stendur til að flytja ásamt nemendum og jafnvel tækjum í aðra skóla."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.