Tíminn - 02.04.1996, Qupperneq 2
2
Wimitm
Þri&judagur 2. apríl 1996
Tíminn
spyr...
Er þa& hætt a& vera hluti af
kvennabaráttunni aö vera á
móti feguröarsamkeppnum?
Bryndís Schram framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóbs:
Já, líklega er það svo. Þaö endur-
speglar breytt viðhorf. Nú er lögð
meiri áhersla á sérstöðu hins kven-
lega, það er lögö rækt viö hið kven-
lega. Munurinn á körlum og konum,
styrkur hinna kvenlegu sjónarmiða er
viðurkenndur. Og hvað er hættulegra
en þegar saman fara gáfur og fegurð.
Ingólfur Gíslason skrifstofu
jafnréttisráðs:
Óneitanlega hefur, allavega hér-
lendis, þetta sýnilega andóf, sem á
tímabili var fyrir hendi, horfið. Hins
vegar, sem mitt persónulega álit, held
ég aö full ástæða sé til að halda áfram
að mótmæla þeirri „kómersíalíser-
ingu" eða því að gera fólk að vöru sem
er allavega mín tilfinning að fari fram
á þessum fegurðarsamkeppnum. Ég
hef hins vegar aldrei séð þetta og hef
mínar upplýsingar bara úr fjölmiðl-
um. En, sem sagt, mér finnst þetta
heldur ómerkileg gripasýning sem
mér finnst ástæða til að andæfa. En án
þess aö menn séu meö þetta efst á list-
anum.
Guðný Guðbjörnsdóttir
alþingismaður:
Kvennabarátta gengur nú sem fyrr
út á þaö að konur njóti fullra mann-
réttinda eins og karlar, að þær séu
virkar og fái að njóta sín sem mann-
eskjur. Fegurðarsamkeppnir hafa þótt
ýta undir þá ímynd aö virði kvenna
mótist af fallegu útliti umfram annað
og því sé hætta á að aðrir hæfileikar
eða dyggðir kvenna séu ekki metin að
verðleikum. Kvennabaráttan í dag
hefur margbreytilegar raddir en samt
tel ég aö ofannefnt viöhorf sé ráðandi
í kvennabaráttu í heiminum. Hér á ís-
landi hafa fegurðarsamkeppnir hlotið
ótrúlega viðurkenningu í samfélaginu
miðað við nágrannalöndin sem
kannski sýnir vel hve kvennabaráttan
hér á enn langt í land. Þó vil ég benda
á aö mikilvægur hluti af tíðarandan-
um núna er ákveöin fegurðar- og
sjálfsdýrkun og í því ljósi virðast æ
fleiri líta frekar til þeirra tækifæra sem
fegurðardísum geti opnast fremur en
til þeirra neikvæöu áhrifa sem þessar
keppnir hafa á viðhorf til kvenna yfir-
leitt.
Císli Cubjónsson, réttarsálfrœbingur, segir mjög breytilegt eftir lönd-
um hvab teljist þvingun vib yfirheyrslur:
Túlkunaratriði hvenær
játningar eru þvingaðar
„Almennt þegar mál eru tekin
upp, þá er spurt hvort eitthva&
nýtt hafi komi& fram í málinu,
sem ekki var vitaö á sínum
tíma, sem veldur því a& menn
hafa áhyggjur af því hvernig
var gengiö frá málinu í upp-
hafi," sag&i Gísli Gu&jónsson,
réttarsálfræ&ingur í Bretlandi, í
samtali vi& Tímann a&spur&ur
um hva&a forsendur séu nauö-
synlegar til aö hægt sé a& taka
upp gömul sakamál. Gísli vildi
hins vegar ekki ræ&a um af-
stö&u sína til þess hvort rétt
væri a& taka upp Guömundar-
og Geirfinnsmáli&.
Gísli er staddur hér á landi í
stuttu fríi en hann er meöal virt-
ustu réttarsálfræöinga heims og
til hans berast 5-600 mál á ári en
hann veröur aö sjálfsögöu ab
vísa flestum þeirra frá. Mörg
þeirra eru mor&mál og hann tek-
ur iöulega aö sér þau mál sem
tengjast þeim rannsóknum sem
hann er aö vinna ab á hverjum
tíma en hann starfar á Institute
of Psychiatry í London. „Ég tek
yfirleitt aö mér þau flóknustu
mál sem til eru af því ab ég hef
mikla reynslu í svona málum. Þá
geta a&rir tekiö ab sér þau mál
sem eru ekki eins flókin."
Undanfarið hafa margar raddir
veriö uppi um að taka eigi aftur
upp málin tengd Gubmundi og
Geirfinni sem hurfu fyrir rúmum
20 árum, þ.á m. fangavörður og
fangaprestur frá þeim tíma. Eftir
aö ákæruvaldiö neitaöi aö taka
aftur upp málið aö beiöni Sævars
Ciezelskys, á þeim forsendum aö
ekkert nýtt heföi komið fram í
málinu, skipabi Hæstiréttur
Ragnar Aöalsteinsson lögmann
til ab fara yfir málsskjöl og kanna
hvort rétt sé aö taka málið upp.
Málið er því í höndum Ragnars
nú.
Gísli segist einstöku sinnum
hafa verib kallaður til í sakamál-
um hér á landi en hann vildi ekki
tjá sig um þaö hvort aöstoöar
hans hafi verið leitaö við þá
gagnakönnun sem nú stendur
yfir.
Að sögn Gísla er upptaka
Gísli Gubjónsson.
svona mála ekki óvanaleg og hef-
ur hann unnið aö málum erlend-
is sem tekin voru upp eftir 20-30
ár og m.a. mál þar sem sannaðist
að játningar voru þvingaöar
fram. Skemmst er að minnast
hins fræga máls íranna fjögurra,
The Guildford four, sem voru
saklausir dæmdir í fangelsi og
sagt var frá í kvikmyndinni In
The Name Of The Father. Hann
segir myndina reyndar alls ekki
gefa neina heildarmynd af mál-
inu og segir það oft raunina meö
myndir sem byggðar séu á þekkt-
um sakamálum. Staöreyndir séu
notaðar sem grunnur en restin sé
tilbúningur þar sem ýmislegt sé
ýkt og blásið upp til aö ná athygli
áhorfenda.
Aðspurður um hvar mörkin
milli þvingaðrar og eölilegrar yf-
irheyrslu liggi segir Gísli þaö
mjög breytilegt eftir löndum.
„Þaö sem leyfist í einu landi,
leyfist ekki í ööru." Viðmiöin séu
iðulega til staöar í landslögum og
vinnureglum lögreglu en hins
vegar séu þessi mörk ekki skýr og
afdráttarlaus. í Bretlandi sé t.d.
ekki eingöngu horft á lagabók-
stafinn þegar álitamál er hvort
„óeðlilegar þvinganir" hafi átt
sér staö viö yfirheyrslur heldur
einnig til hæstaréttar sem setur
mörkin þegar upp koma einhver
vafamál. Enda segir Gísli mjög
bundið abstæöum og einstak-
lingum hvað sé talin óeðlileg
þvingun. „Þvingun í einu máli
þarf ekki aö vera þvingun í
ööru," segir hann og fer m.a. eft-
ir mismunandi ástandi, aldri,
þroska og karakter einstaklinga.
Auk þess geta dómarar túlkaö
lögin á mismunandi hátt og þeir
eru ekki, frekar en aðrir, alls kost-
ar fríir af þjóðfélagsumræbunni á
hverjum tíma. Þannig aö ef
þvingaðar játningar eru mikið í
umræöunni þá er líklegt aö slíkt
hafi áhrif á túlkun dómara á lög-
unum aö sögn Gísla.
Gísli sagði mjög erfitt að vinna
úr gömlum málum þegar áhöld
væru um hvort játning hafi verið
þvinguð fram. I mörgum tilfell-
um sé misræmi í málflutningi
lögreglu og upphaflegra sakborn-
inga. 20-30 ára gömul gögn frá
yfirheyrslum væru oft á tíðum
ófullnægjandi og því mjög erfitt
aö vinna úr þeim. Hann segir
hins vegar aö vinnsla opinberra
mála í Bretlandi hafi gjörbreyst á
síöastliönum 10 árum meö lög-
um frá 1986 þar sem skylt var aö
skrá allt sem viðkemur yfir-
heyrslum. Áöur hafi lögreglan
valib þaö úr framburði sakborn-
ings sem hún taldi skipta mestu
máli og því einungis veriö skrif-
aöur útdráttur úr yfirheyrslunni.
„En nú í Bretlandi eru allar yfir-
heyrslur teknar upp á segulband
og allt skráð hvaö gerist frá því
aö maðurinn er handtekinn."
-LÓA
Sagt var...
Á ab vera leikur
„Þetta á að vera leikur en ekki fjár-
glæfrastarfsemi þar sem eignir eða
aleiga eru lögð undir. Öörum þátt-
takendum hefur fækkað vegna þess
að viö höfum þurft aö lækka vinn-
ingsstuðlana — þá missa aðrir áhug-
ann. Þetta er því slæmt fyrir alla."
Nema þá sem græba? Kastast hefur í
kekki milli íslenskra getrauna og 17
manna hóps sem spilar í Lengjunni fyrir
einbýlishúsaverb á viku. Ofangreind til-
vitun er höfb eftir Sigurbi Baldurssyni
hjá ÍC í DV.
Engar konur en hægt ab hafa
gaman af þeim
„Það eru hins vegar engar konur í fé-
laginu þótt vib höfum mjög gaman
af konum — sumir meira en aðrir."
Ásmundur Fribriksson Hrekkjalómur í
DV.
Gubdómlegur Árni
Þá sjaldan að Árni birtist skálmandi
eftir göngum þessa völundarhúss er
hann ævinlega á hraöferð á einhvern
áfangastað til þess að leysa aðkall-
andi vandamál eba tilfallandi verk-
efni. Dvalargestir horfa abdáunar-
augum á þennan mann er hann birt-
ist — ímynd karlmennsku, hreysti og
augljóss markmibs. Hér er enginn
vingull á ferð. Maburinn býryfir
næstum því yfirnáttúrulegum þokka
— án tilgerðar — hljómfagurri djúpri
rödd sem vandar sitt mál og Ijær ís-
lenskri tungu bergmál raddanna."
Jóna Margelrsdóttlr skrifar þetta og
margt fleira um Árna Gunnarsson, for-
stöbumann heisluhælisins í Hveragerbi
og vill fá hann í forsetastólinn.
Ranghyggja markabsfræbing-
anna
Markaðsfræðingar nútímans eru allir
uppteknir af því ab eltast við smekk
fjöldans. Tilfelliö er ab frambobib
ræður ekki síöur eftirspurn en öfugt.
Þab er ekki hægt að ætlast til þess ab
fólk biðji um efni sem það þekkir
ekki."
Ritar Árni Þorvaldur Jónsson í Mogga
og krefst meiri fjölbreytni í sjónvarps-
efni.
Mörgum kom á óvart hversu afgerandi
forustu Ólafur Ragnar Grímsson fékk í
Gallupkönnuninni nýjustu. Nú biða
menn spenntir eftir næsta frambobi og
ofan úr Háskóla heyrast þær raddir nú
háværar ab Páll Skúlason sé í þann veg-
inn ab fara ab tilkynna sig. Þab hefur líka
vakib athygli í pottinum ab Páll Skúlason
beitir nokkuð vísindalegum vinnubrögö-
um vib ab kanna stöbu sína því í Gallup-
könnuninni sem mældi Ólaf Ragnar meb
þessa sterku innkomu var líka spurning
um Pál í spurningavagninum. Spurt var
hvort menn þekktu Pál og hvort mönn-
um þætti hann fýsilegur frambjóbandi.
Ekkert hefur spurst í pottinum um hvaö
kom út úr þessu en ef mibab er vib um-
talib í H.í. í gær hefur þab ekki verib
slæmt...
•
Kommar í Hafnarfirbi ganga nú um meb
úrklippu úr Sunnudagsmogga upp á vas-
ann og sýna mörgum. „Sögbum vib
ekki?" spyrja þeir. „Þetta var yfirfjárfest-
ing og kemur núna nibur á okkur, þetta
er illseljanlegt," segja þeir. í Mogga aug-
lýsir Bæjarsjóöur Hafnarfjarbar til sölu
eitthvab töluvert á 3 þúsund fermetra af
verslunarhúsnæbi í mibbæ Hafnarfjarbar,
— en auk þess 700 fermetra hæb í mib-
bæ Reykjavíkur, Moggahöllinni, húsnæbi
sem bærinn eignabist í makaskiptum vib
SÍF sem nú er flutt í Hafnarfjörb ...
•
Fri&rik Sophusson var í gærmorgun
grunabur um græsku á mörgum ritstjórn-
um í Reykjavík. Hann bobabi fund þann
1. apríl, — í Kaffivagninum vib Granda-
garb! Margir héldu ab um aprílgabb væri
ab ræba. Ástæban var abaliega sú ab allir
fundarsalir fjármálarábuneytis voru upp-
teknir í gærmorgun. En einnig fannst
Fribriki rétt ab fara af bæ og halda fund-
inn í hjarta atvinnulífsins vib höfnina í
Reykjavík...