Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 4
4 VíwAwn Þriðjudagur 2. apríl 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Cubmundsson Ritstjórn oq auqlýsinqar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1700 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Varnarsamningurinn endurnýjaöur Nú nýverið kynnti utanríkisráðherra nýtt samkomulag við Bandaríkjamenn um endurskoðun á varnarsamn- ingi milli ríkjanna. Samkomulagið gildir til fimm ára. Samkvæmt því verða umsvif með líkum hætti í varnar- stöðinni á Miðnesheiði og verið hefur síðustu ár. Hins vegar telst það til tíðinda að einkaréttur ís- lenskra aðalverktaka og Keflavíkurverktaka á svæðinu í framkvæmdum fyrir varnarliðið mun verða afnuminn í áföngum á næstu átta árum. Það er tímanna tákn að umræður um þetta sam- komulag hafa ekki risið hátt í þjóðfélaginu, og háværar deilur um tilvist herstöðvarinnar hafa hljóðnað. Auð- vitað sýnist sitt hverjum um varnir landsins, í hve mikl- um mæli þörfin er og hvar við eigum að skipa okkur í sveit. Hins vegar er ljóst að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar telur núverandi skipan mála eðlilega. Varnarsamningurinn við Bandaríkin var gerður á dögum kalda stríðsins og hann skipaði þjóðinni í fylk- ingar á sínum tíma. Segja mátti að markalínan milli fylkinganna lægi þvert um Framsóknarflokkinn, en þar voru ávallt skiptar skoðanir um afstöðuna til banda- ríska hersins. Sú umræða virðist nú vera hljóðnuð og sterkar raddir eru innan Alþýðubandalagsins um endur- skoðun á afstöðunni til Nato. Hins vegar tekur sú stefnubreyting tíma, sem eðlilegt er. Svo heitt var þetta deilumál á sínum tíma. Varnarsamningurinn er órjúfanlega tengdur aðild okkar að Nato, þótt hann sé tvíhliða samningur milli ís- lands og Bandaríkjanna. Með tilvist hans uppfyllum við skyldur okkar sem aðilar að bandalaginu. Okkar framlag er aðstaða til viðbúnaðar hér á landi. Hins veg- ar höfum við sem vopnlaus þjóð veitt gæsluliðinu í Bo- sníu stuðning með hjúkrunarliði, og þótt sú sveit sé ekki stór, er hún mikilvægur siðferðilegur stuöningur. Þær raddir heyrast í umræbum um öryggismál að Nato sé að leita sér að hlutverki. Staðreyndin er hins vegar sú að þjóðir Mið-Evrópu, sem áður voru austan járntjalds, leggja á það mikla áherslu að tengjast banda- laginu. Það er vegna þess mats að ekki sé sjálfgefið að friðsamleg sambúð endist. Bitur reynslan frá Balkan- skaga er æpandi viðvörun í þessum efnum. Hætta á staöbundnum átökum af ýmsum orsökum kemur í stað þeirrar hættu sem áður var. Þær miklu þjóöfélagshrær- ingar, sem eru í Austur-Evrópu, eru tundur sem hefur orðið að loga víða og það er mikil einföldun á málinu að staðhæfa að friðurinn sé kominn til að vera. Mat þeirra þjóða, sem sækja á um aðild að Nato, er það að öryggishagsmunum þeirra sé betur komið fyrir innan bandalagsins. Hitt er ljóst að Rússar leggjast gegn fullri aðild ná- grannaþjóðanna að Nato, og telja það ógnun við sig að ný lína verði dregin austar í Evrópu milli Natoríkjanna og þeirra. Þessi lína má ekki undir neinum kringum- stæðum verða nýtt járntjald. Nauðsyn er að búa svo um hnútana að stækkun ógni ekki öryggi í álfunni eða sé fóður fyrir þjóðernis- og hernaðarsinna í Rússlandi. Þetta er vandasamur línudans, því Vestur- Evrópuríkj- um ber einnig skylda til að hlusta á óskir þeirra þjóða sem knýja á dyrnar um að taka þátt í varnarsamstarfi vestrænna þjóða. Leikrit á Skólaskrifstofu ^Ivnuinn: .Monnum þötn rrU I þr«u brtr. CT ffcki buðiö bCTnll lii 'mdurrtömnipi or 1 nokVrxr dnlur um þ»ö bvem* nP ■ Xilnri, s.1 »kipuUgningu i nym ■ húl Hi URÖÍ.I hin móUn*U þvl I (Alkuns. SkWxmllxrið hrf* | ------——i BoðÍð UPP U Vlð- SSsfú! ræður um ráðningu , , . tdhim okkur wra xð K«r» • • .-JU. im.vin ilörí V»A og CT° ia., IVitA I ST.RFSrt.UC. JJJ-SfS 1 'L6rfum M °® ^ M** I mötum. og tt n«Uom- | lUrfvixgur v»rði 31. Jdi' n ’grrsfiTSSS; I *em Ukur Ifl *Urf» I- | kgflst. Sigrfln brAfinu verið boðin IrHekin og^ ^dkSigrtn lng» J6n» r-nrð.lumflWt«k^ðh*ra'^“^*: JöUir bof*»ríuUlrúi SjilW***- *r ekki verifl h*fl ftokksms *»phst g»gnryn» *■> l*«i en» fyrlr bvert end»nlegt »kipu- við þ*J u-m bonc»r»tj6n Fjöldauppsagnir eru aldrei gam- anmál, allra síst á tímum þegar at- vinnuleysi er til stabar og erfitt getur verib ab fá vinnu. Sem betur fer eru þó þær fréttir af fjöldaupp- sögnum, sem sagbar eru, mildab- ar meb því ab um endurskipu- lagningu sé ab ræba, þannig ab flestir fái vinnu á ný. Engu ab síbur er eblilegt ab taka þab alvarlega þegar fréttir berast af fjöldauppsögnum. Þab er hins vegar ömurlegt þegar fréttir af fjöldauppsögnum eru sagbar gagngert til þess ab hægt sé ab nota þær í öbrum og óskyldum tilgangi — pólitískum tilgangi. Um helgina voru sagbar miklar fréttir af fjölda- uppsögnum á Skólaskrifstofu Reykjavíkur, en þar var starfsfólki sagt upp störfum vegna sameiningar tveggja skrifstofa, Fræbslu- og Skólaskrifstofu, í tengsl- um vib þab ab grunnskólinn er ab flytjast tii sveitarfélaganna. Talsvert er síban starfs- fólki Fræbsluskrifstofu var sagt upp, og virbist sú uppsögn hafa farib nokkub hljótt. Óbru máli viröist ætla aö gegna um Skólaskrifstofu þar sem borgin er ráöningaraöili. I sjónvarpsfréttum var sagt frá fjöldauppsögnum á Skólaskrifstofu og voru sýndar fyrstu sjónvarps- myndir af fjöldauppsögnum í íslenskri atvinnusögu. Starfsfólki hafbi veriö hóaö saman á einn stab og síö- an var nánast meö nafnakalli dreift uppsagnarbréf- um til fólks frammi fyrir landslýö, þannig aö tryggt væri ab úr yröi sem áhrifaríkast leikrit. Onnur eins vinnubrögö viö uppsagnir hafa ekki sést áöur hér á landi. Ekki tilviljun Nú er alkunna aö lengi vel þurftu menn helst aö hafa tiltækt flokksskírteini úr Sjálfstæöisflokknum til ab fá ráöningu á Skólaskrifstofunni, enda eru áberandi í starfsmannahópnum þar þekktir og dygg- ir flokksmenn. Enda kom á daginn aö fyrsta íslenska sjónvarpsleikritiö um fjöldauppsagnir var ekki til- viljun, því strax á eftir var rætt viö Ingu Jónu Þórö- ardóttur, talsmann sjálfstæbismanna, um hversu skelfilegar þessar uppsagnir væru og ab R-listinn væri enn einu sinni ab níöast á starfsmönnum borg- arinnar. Bobabi Inga Jóna ab Sjálfstæöisflokkurinn myndi taka upp hanskann fyrir þetta fólk og berjast gegn óréttinum! Hér er á feröinni eitthvert þab gagnsæjasta plott sem lengi hefur veriö reynt aö selja borgarbúum. Minnihlutinn í borgarstjórn er ab reyna ab nýta sér þær áhyggjur, sem venjulegt fólk fyllist þegar hug- takiö fjöldauppsagnir ber á góma, til þess ab koma pólitísku höggi á meirihlutann í borginni. Slíkt er gert meb mjög óviöeigandi hætti og ógeöfelldum, þannig aö áhrifin veröa svipuö og ef einhver full- frískur heföi veriö aö reyna aö ná athygli manns meb því ab þykjast vera fárveikur. Starfsfólkib á Skólaskrifstofunni lætur draga sig inn í þetta sjónar- spil — trúlega af pólitískri hollustu viö flokkinn sinn. Þaö, sem þó gerir málib enn sorg- legra en ella, er ab þessu fólki hefur öllu verib bobiö til viöræöna um sambærileg störf hjá hinni samein- uöu skrifstofu Fræöslumiöstöb, og í alla staöi hefur verib mjög eblilega aö málum staöiö. Flokkar eftirlaunamanna En fyrst starfsfólk Skólaskrifstofunnar hefur kosiö ab beina athyglinni aö starfslokum sínum og starfi fyrir Skólaskrifstofuna og Reykjavíkurborg, veröur varla hjá því komist aö spyrja hvort þaö sé eölilegt að þar sé stór hluti starfsmanna menn, sem þegar eru komnir á eftirlaun hjá borg eöa ríki. Mörg hinna sorgbúnu andlita, sem voru aö taka viö uppsagnar- bréfum sínum fyrir framan sjónvarpsmyndavélarn- ar, voru afar kunnugleg og greinilegt að menn, sem flestir hefðu taiiö aöX^æru sestir í helgan stein, eru enn í fullu starfi hjá borginni — sem er óneitanlega athyglisvert í ljósi þess aö kennarar t.a.m. fá ekki lengur störf á sumrin hjá borginni, vegna þess aö óeölilegt þykir að þeir þiggi laun á tveimur stöðum á atvinnuleysistímum. Nú kann að vera að þarna sé á ferðinni starfsfólk, sem uppfyllir svo óvenjuvel hæfniskröfur aö ekki finnast aörir til að gegna þessum störfum. Sé svo, gefur augaleið aö þeir þurfa ekki aö hafa áhyggjur af þessum fjöldauppsögnum. Hins vegar er þaö heldur ekki sjálfgefiö aö eftirlaunamenn séu sjálfkrafa látn- ir ganga fyrir um stöður hjá hinni nýju stofnun og aö þeir taki þátt — eins og aörir — í viöræðum um ráöningu hjá hinni nýju skrifstofu. Garri GARRI A5 þreifa á púlsinum Þegar Alþingi er ekki aö störfum, hyggja þingmenn gjarnan aö ferða- lögum í kjördæmi sín til þess að heyra hljóðið í fólki. Greinarhöf- undur tókst eitt slíkt ferðalag á hendur nú í vikunni, er hlé gafst frá nefndarstörfum, og hélt ég austur í mína heimabyggð, en leiöin liggur aö sjálfsögðu gegnum Reykjavíkur- flugvöll. Þegar þangaö var komiö var ös í flugstööinni, eins og oft gerist, og vélar voru aö fara til Egils- staða og Reykjavíkur. Kaffistofa var troðfull og fólk var aö drekka kaffi- sopann áöur en stigið var um borð. I miöjum salnum voru þrír útgerðarmenn, sem áttu nokkuð vantalaö viö mig og kröföu mig sagna um hvort þaö væri virkilega ætlun þingmanna aö fara að hlaða frekar undir trillukarla. Nú væri svo komið að þolinmæðin væri þrotin hjá öbrum sjó- mönnum og útgerðarmönnum. Kveikjan að þessari umræbu voru samningsdrög sjávarútvegsráöuneytis- ins viö Landssamband smábátaeigenda, en laga- breytingar sem af því leiöa koma væntanlega fyrir Alþingi á næstunni. Viö næsta borö sat forusta ASÍ, en þar er allsherjar herútboö til aö halda fundi um allt land um frum- varpið um vinnulöggjöfina. Benedikt Davíösson tjáöi mér aö hann væri aö fara norður í land, en þeir Hervar Gunnarsson og Gylfi Arnbjörnsson héldu til Egilsstaða. Áhrif löggjafar Ég fékk þarna á flugvellinum beint í æö ab gerbir okkar í þinghúsinu við AusturvöII hafa áhrif víða í þjóðfélaginu. Starf alþingismanns er ekki síst í því fólgiö aö hlusta, hitta fólk og hlusta á þess skoðanir. Sá, sem lætur þaö undir höfuö leggjast, lendir fljótt í ógöngum. Þetta veröur aö fara saman við þaö hlut- verk stjórnmálamanna aö leggja íínur, hafa stefnu og skýra hana fyrir sínum umbjóöendum. ASI-mennirnir voru aö fara út á akurinn í því hlutverki að leggja línurnar í baráttunni gegn frum- varpinu um vinnulöggjöfina. Stjórnmálamenn og löggjafinn má ekki undir neinum kringum- stæðum gleyma því aö sú löggjöf, sem samþykkt er á Alþingi, hefur gífurleg áhrif á líf þjóbarinnar, vegna þess að þarna er um aö ræöa þær leikregiur sem á aö fara eftir. Þetta umdeilda frumvarp er gott dæmi um efni í slíka löggjöf. Hún verður þess vegna að fá vandaða umræöu og afgreiöslu, enda hef ég engan heyrt bera á móti því. Iðnabur og markaðsmál Erindi mitt austur að þessu sinni var meðal annars aö sitja kynningarfund meö iönaöarráöherra þar sem hann var aö kynna forsvarsmönnum fyrirtækja það sem hann hefur á prjónunum í sínu ráðuneyti. Viö heimsóttum nokkra vinnustaöi eftir því sem tíminn leyfði, smáfyrirtæki í iönaöi, þessi atvinnu- grein á landsbyggðinni samanstendur af þessum fyr- irtækjum. Þaö kom berlega í ljós aö iðnaðarmenn og for- svarsmenn fyrirtækjanna búa yfir mikilli reynslu og verkþekkingu, en markabsþátturinn er erfiöur og þar þarf skipulag og stuöning. Markvisst markaösstarf veröur tæplega unnið á erlendum mörkuðum, nema meö mjög aukinni samvinnu smáfyrirtækjanna um þetta efni. Þaö er hins vegar alveg ljóst að meö aukn- um efnahagslegum samruna ríkja verður samkeppn- in meiri og aldrei meiri nauðsyn á sérþekkingu. Jón Kr. Á víbavangi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.