Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 10

Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 10
10 Þri&judagur 2. apríl 1996 Edmund Wilson Edmund Wilson, eftir Jeffrey Meyers. Constable, 554 bls., £ 20. Edmund Wilson var eftir sí&- ari heimsstyrjöldina til dauða síns 1972 talinn fremsti bók- menntagagnrýnandi Banda- ríkjanna og einn fremsti bók- menntafræöingur þeirra. Hann var fæddur í New Jersey 1895. Vi& Princeton-háskóla las hann bókmenntir 1912-16, og þar var honum samtíða F. Scott Fitzgerald. í fyrri heims- styrjöldinni var hann sjálf- bo&aliði í sveit sjúkraliöa. Á þriöja áratugnum settist hann aö í New York og birti greinar og ritdóma í Vanity Fair, New Republic og Dial. Ritgerðir um Yeats, Proust, Joyce, Eliot, Stein og Valery birti hann 1931 í bók, Axel's Castle, sem ágætar viðtökur hlaut. Fram til þess tíma höföu skoðanir hans mótast af frjálslyndi, en í heimskrepp- unni fékk hann áhuga á og samúð með jafnaöarstefnunni og uppbyggingunni í Ráð- stjórnarríkjunum. Til Ráð- stjórnarríkjanna tókst hann ferð á hendur 1935, og tók síð- an saman yfirlit yfir þá fram- vindu jafnaðarstefnunnar, sem þau voru upp af sprottin, To the Finland Station, sem út kom 1940. I síðari heimsstyrj- öldinni hvarf hann þó brátt aftur til síns fyrra frjálslyndis. í lok styrjaldarinnar ferðaöist hann sem fréttaritari New Yor- ker um England, Ítalíu, Grikk- land og Krít, og reit um þá för bókina Europe Without Baedec- ker, sem óvægin þótti í dóm- um. í ritdómi í Times Literary Supplement 27. október 1995 sagði: „Einn hugnæmasti þátt- urinn í ævi Wilsons varð Giuseppe Mazzini Mazzini, eftir Denis Mack Smith. Yale Uni- versity Press, 302 bls., £ 19,95. I ritdómi í Times Literary Supple- ment 5. ágúst 1994 sagöi: „Mazzini var fæddur 1805 í Genúa, en faðir hans var prófessor í læknisfræði viö háskólann þar. Þótt sjálfur læsi hann lög, áttu bókmenntir hug hans. Snemma gat hann sér orö sem gagnrýnandi og gaf hann sig síöar dálítiö aö gagnrýni meöfram störfum sínum aö stjórnmálum. Fram yfir aöra höfunda tók hann þá, sem fluttu félagslegan eöa pól- itískan boöskap, og snemma varö hann málsvari frjálslyndrar róm- antíkur, sem hann las úr ritum eft- ir Burns, Wordsworth, Foscolo og Byron. „Eftir ósigur Napóleons 1815 voru átta ítölsk ríki sett á fót, öll meö afturhaldssama einvalds- stjórn. Þótt sjálfstæö væru í orði kveönu, lutu þau öll vernd Austur- rikis aö einum eöa öörum hætti." „Mazzini gekk 1829 í hálfgild- ings frímúrarafélag, sem heyröi til sambandi leynifélaga sem gekk undir nafninu Carbonari. Aö stefnumarki höföu þau aukið ein- staklingsfrelsi og sjálfstæöi í staö útlendra forráða, en tengdu þau stefnumiö ekki glögglega þjóöleg- um sjálfsákvöröunarrétti. Varö þaö hiö sérlega framlag Mazzinis." „Svikinn af öörum Carbonaro var Mazzini 1830 fangelsaöur í þrjá mánuöi af stjórnvöldum í Pi- edmont. Upp frá því vann hann alls hugar aö félagslegri og pólit- ískri byltingu. í Marseille í júlí 1831 stofnaði hann ásamt hópi þrjátíu til fjörutíu útlaga hreyf- ingu, sem nefnd var Unga Ítalía. Átti fyrir henni að liggja aö veröa fyrsti skipulagði stjórnmálaflokk- urinn á Italíu meö skýra stefnu- skrá, meö meölimi sem félagsgjöld greiddu, og meö hóp sendiboöa sem héldu uppi tengslum milli fé- lagsmanna. Mazzini varö skipu- leggjandi hreyfingarinnar og hug- myndafræðingur." „Nær alla ævi bjó Mazzini síðan erlendis, ef undan eru skildar stuttar heimsóknir hans til Ítalíu, og þá huldu höfði — einkum bylt- ingaráriö 1848. Austurrísk yfirvöld á Noröur-Ítalíu vísuöu honum Fréttir af bókum fyrst úr landi og síðar, aö Ítalíu sameinaöri, hin nýja konungs- stjórn, sem óttaöist málflutning hans fyrir lýöræöi og lýöveldi jafn- vel enn meira en Austurríkismenn áöur. Dvaldist hann lengstum í Sviss og á Englandi og samdi rit sín og lagöi á ráö um þjóölega ítalska sameiningu. Þegar hann andaöist í Pisa 1872, var hann enn í felum." „Öröugt er aö leggja mat á áhrif hinna fjölmörgu misheppnuðu uppþota, sem Mazzini stóð fyrir, og hinna mörgu rita hans, og framlag hans til sameiningar Ítalíu þykir smátt í samanburöi viö aug- ljós afrek Cavours og Garibaldis." ■ Fréttir af bókum 1940, þegar F. Scott Fitzgerald lést. Wilson var þá fjörutíu og fimm ára gamall, og varð þá fyrst á höndum „miðaldra", að hann sagði, að foröa orðstír gamla bekkjarbróður síns frá Princeton frá gleymsku. Og það gerði hann. Ef færni Wil- sons hefbi ekki vib notið, kynni Fitzgerald ekki að hafa verið búin sú frægð, er hann naut eftir dauða sinn. Hann skeytti saman texta The Last Tycoon og fékk The Crack-Up út gefna." „Titlar bóka Wilsons frá miöjum sjötta áratugnum segja sína sögu: The Scrolls from the Dead Sea (Handritin frá Dauðahafi) 1955, Red, Black, Blond and Olive: Studies in Four Civilizations: Zuni, Ha- iti, Soviet Union, Israel (Rautt, svart, ljó^t og grágrænt: At- huganir éf fjórum siðmenning- um: Zuni, Haítí, Ráðstjórnar- ríkjanna og ísraels) 1956; Apo- logies to the Iroquois (Afsökun- arbeiðni til Iroquois) 1960; Patriotic Gore: Studies in the Lit- erature of the American Civil War (Ofgnótt föðurlands- hyggju: Athugun á ritum um bandarísku borgarastyrjöldina [þrælastríðið]) 1962; O Can- ada: An American's Notes on Canadian Culture (Ó, Kanada: Athugasemdir Bandaríkja- manns um kanadíska menn- ingu) 1965." ■ Guölaugur Þorvaldsson „Ertu virkilega aö vinna meö honum Guölaugi?" sagöi systir mín, þegar ég hóf sumarstörf á Hagstofunni fyrir yfir 30 árum. Hann haföi kennt henni í Versl- unarskólanum, en var nú skrif- stofustjóri Hagstofunnar. Haföi m.a. umsjón meö launakönnun fyrir Kjaradóm, sem ég haföi fengið vinnu viö og ljómi stóö af honum í fjölskyldunni. Guðlaugur var jafn yndislegur yfirmaöur á Hagstofunni eins og hann haföi verið kennari. Fyrir mig var Hagstofan reyndar merki- legur vinnustaöur. Eg var í hag- fræöi úti í Englandi og fékk nú fyrsta aðgang að öllum hagstærö- um, sem mest voru ræddar úti og sem grundvölluðu ákvörðunar- töku í hagstjórn landsins og stefnumótun í efnahagsmálum. Klemens Tryggvason hagstofu- stjóri var líka einstakur yfirmað- ur. í allri framkomu eins og ég haföi helst gert mér hugmyndir um norrænan konung. Glæsileg- ur, hreinskiptinn og alþýðlegur. Þetta var skemmtilegur vinnu- staður og mjög eftirminnilegur. Viö kynnin af Guölaugi fann ég strax hversu reynsluheimur hans var víðfeðmur og hann kunni að meta þaö, sem ég hafði áöur feng- ist við í sumarvinnu. Sveita- og blaöastörf, fiskvinna, sjómennska og vegamál voru líka hans líf. Hann kynnti mig persónulega fyrir því stórkostlega fólki, sem þá fyllti hvert rúm á Hagstofunni. Aka, Ingimari, Hrólfi, Högna, Hjalta, Stefáni, Maddý, Hildi og Ásthildi. Hann var einstaklega fé- lagslyndur og hrókur alls fagnab- ar hvarvetna þar sem hann fór. Ósérhlífinn dugnaöarforkur og einn glæsilegasti dansherra, sem ég hef séö til á gólfinu. Kaffistofa Arnarhvols á þessum tíma var jafnan vettvangur mik- illa atburöa, ekki síst á skákborö- inu. Opinmynntur fylgdist ég meö öllum snillingunum, en eng- t MINNING um tjáöi aö tefla til sigurs viö Stjórnarráðiö á þessum tíma. Guölaugur haföi verið formaður starfsmannafélagsins og átti sinn þátt í aðstöðunni. í síödegiskaffiö komu svo Klemens og Torfi Hjart- arson tollstjóri og spjölluöu sam- an — alltaf við sama boröið — og þá vissi ég að íslenska lýöveldinu væri vel borgið. Nokkrum árum seinna lágu leiðir okkar Guölaugs aftur saman uppí Háskóla. Ég var deildarfull- trúi Heimspekideildar þegar Guð- laugur var kosinn rektor, en vegna vináttu viö hann og Stefán Sörensson háskólaritara sinnti ég strax nokkrum verkefnum á aðal- skrifstofunni og fór alfarið þang- að, þegar Guðlaugur var endur- kosinn rektor eftir þrjú ár. Um þetta leyti var ég einnig í stjórn Félags háskólakennara og knúöum viö mjög á viö háskóla- yfirvöld um lausn orlofsmála fé- lagsins. Guölaugur hóf þá hiö mikla starf við enduruppbygg- ingu Herdísarvíkur og afhenti fé- laginu staöinn til rábstöfunar. Einnig fengum vib helming Há- skólans í Halldórsstöðum í Laxár- dal og undir forustu Gunnars Schram prófessors byggöum vib í Brekku í Biskupstungum. Án skilnings og áhuga Guölaugs á öllu þessu er mér til efs aö þetta allt hefði tekist. Guðlaugur haföi mikið yndi af ferðalögum og stundum skelltum við okkur saman í bíltúr út úr bænum, t.d. til Herdísarvíkur eða uppí Borgarfjörö. Viö fórum jafn- an Krýsuvíkurleiöina til Herdísar- víkur og þá minntist Guölaugur æskuáranna. Hann þekkti hvert fjall, holt og mýri. Haföi smalað þetta allt sem unglingur. Hann átti yndislegan sumarbústaö uppí Skorradal og stoltur sagöist hann hafa borið meö strákunum sínum megnið af efninu í bústaðinn upp gönguslóðann til þess að hlífa birkinu kringum bústaöinn. Mikiö annríki var hjá Guölaugi sem háskólarektor og reyndi á hann í stjórnsýslunni og bygging- armálum. Aukastörfin hlóöust líka á hann. Hann vann t.d. aö sam- einingu flugfélaganna íslensku, var skipaður í sáttanefndir og var fylgdarmaður erlendra þjóöhöfö- inga á íslandi. Eitt sinn í boði á Bessastöðum, þegar mikiö gekk á í þinginu, vildi þáverandi forsætis- ráðherra, Ólafur heitinn Jóhann- esson, skála sérstaklega við hinn „áhyggjulausa" rektor og kinkaði Kristján heitinn Eldjárn forseti kolli brosandi. Stuöningur viö for- setaframboð Guölaugs kom víða aö og ótvírætt tel ég ab ríkisráðið hafi treyst honum til starfans. Sem ríkissáttasemjari haföi Guðlaugur upphaflega aöstöbu í Tollstjórahúsinu og viö vorum saman í bíl í Tryggvagötunni, þegar útvarpið bar fyrst fréttina um frambob Vigdísar Finnboga- dóttur til embættis forseta ís- lands. „Nú er ég fallinn," sagöi Guölaugur. Mér fannst hann skilja þetta þannig, aö sérstaða hans hjá félagshyggjufólki og launþegum, varöandi hina fram- bjóðendurna, væri nú breytt. Einnig aö hinn gífurlegi kraftur í kvennahreyfingunni á þessum ár- um myndi skipta sköpum. Um þetta leyti misstu þau Krist- ín einn sona sinna í hræðilegu slysi og hvernig þau bókstaflega héldu höfði þessa erfiöu mánubi er mér ennþá óskiljanlegt. Mannkostir Guölaugs sem rík- issáttasemjara dugöu þjóöinni vel. Þjóöarsáttarsamningarnir, sem tókust þótt 200 þúsund tonn af þorski hyrfu úr sjónum og skuldirnar væru aö kaffæra okkur, vom forsenda fyrir því að hægt var aö vinna sig veröbólgulaust út úr vandanum og björt framtíð blasir nú við. Aö Guðlaugi stóö einstakt mannkostafólk. Fjölskylda hans er forustufólk í útvegi og sölumál- um afurða okkar, slysavörnum og félagsmálum. Þetta er í hnotskurn þjóöin viö ysta haf; þiggur, gleöst og þakkar og stendur saman í mótlæti. í fimmtugsafmæli Guð- laugs voru margar ræður haldnar. M.a. minntist ein æskuvinkona úr Grindavík þess, þegar þau börnin í plássinu stóðu saman hönd í hönd og horföu á bátana koma inn úr brimsköflunum, framhjá boöum og klettum í friö- arhöfn. Pabba var borgið í það skipti. I lífinu óskum viö okkur öll velgengni og hamingju. Þótt mótlætið styrki stundum, þá hjálpar ástúbin fyrst og fremst fram veginn. Gublaugur eignað- ist yndislega konu, falleg og mannvænleg börn, sem hann þakkaöi sífellt fyrir. Þau hafa nú mikið misst. Ég sakna stundanna meö Guð- laugi. Gruflab um fegurð verald- arinnar, landiö og ferðalög, ástir og mannlíf, pólitík og íþróttir. Ég þakka vini og velgjörðarmanni stuðninginn, ráöin og samfylgd- ina. Algóður Guö styrki Kristínu, drengina, fjölskyldur þeirra, ást- vini alla, vini og vandamenn og veiti Guölaugi mínum sinn friö. Guðlaugur Tryggvi Karlsson Kve&ja frá félagsmálaráðuneyti Þegar Guölaugur Þorvaldsson tók við embætti ríkissáttasemjara áriö 1979 hafði hann gegnt margháttuðum trúnaðarstörfum á vegum hins opinbera og hlotiö á þeim vettvangi margvíslega þjálfun í mannlegum samskipt- um sem aubveldubu honum hið ábyrgöarmikla starf. Það var þó ekki einungis menntun og starfs- reynsla, sem menn geta aflað sér, sem geröu Guölaug að hinum mikla mannasætti, heldur engu síður hans miklu mannkostir, prúömennska og réttsýni sem gerðu hann aö hvers manns hug- ljúfa. Embætti ríkissáttasemjara heyrir stjórnsýslulega undir fé- lagsmálaráöuneytið, en hins veg- ar er embættiö sjálfstætt og óháö ráðuneytinu aö öðru leyti. Form- leg samskipti starfsfólks félags- málaráöuneytisins viö Guðlaug lutu því einkum ab eiginlegum rekstri embættisins. Þar var allt til fyrirmyndar og kom glöggt fram í öllu þekking og hæfileikar Gub- laugs á sviði rekstrar og fjármála. Óformlegu samskiptin voru eink- ar ánægjuleg og þaö var ætíö til- hlökkunarefni þegar Guðlaugur lagöi leiö sína í ráðuneytiö og tækifæri gafst til aö spjalla um líf- iö og tilveruna. Oft voru þegin góö ráö og ábendingar. Guðlaug- ur var sannkallaöur mannasættir og lagði gott til allra mála. Þaö eru því bjartar minningar sem viö í ráðuneytinu eigum um Gublaug. Aö leiöarlokum skulu færöar fram af hálfu ráöuneytisins þakkir fyrir farsæl störf í erfiöu og vanda- sömu embætti og þakkir fyrir langt samstarf sem aldrei féll skuggi á. Jafnframt eru eiginkonu, sonum, tengdadætrum og öðrum aðstandendum Guölaugs fluttar innilegar samúöarkveðjur. Berglind Asgeirsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.