Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.04.1996, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. apríl 1996 3 Tímamótaákvarbanir hjá stjórn íslenska dansflokksins um helgina: Nýr listdansstjóri og dönsurum fækkaö Katrín Hall hefur verið ráöin listdansstjóri við íslenska dansflokkinn frá og með 1. ágúst nk. Katrín tekur við stöðunni af Maríu Gísladóttur en formlegum rábningartíma Maríu lýkur þann 1. septem- ber nk. Þá hefur verið ákveðið að þrír af erlendum dönsurum flokksins yrðu ekki endur- ráðnir þegar samningar þeirra renna út í lok ágúst. Þessar ráðstafanir voru ákveðnar á stjórnarfundi nýrrar Fjóröungsmót sunn- lenskra hestamanna: Búist er vib 3-4000 útlend- ingum á mótib Búst er við að á milli þrjú og fjögur þúsund erlendir gestir muni sækja fjórð- ungsmót sunnlenskra hestamanna sem haldið verður á Rangárbökkum í sumar. Hér er um að ræða helsta viðburðinn á sviði hesta- mennsku í ár og er reiknað með að þátttökuhross verði nokkur hundruð en inn- lendir gestir nokkur þús- und. Fjölmörg mót hafa verið haldin á Rangárbökk- um við Hellu, en mótið í sumar verður líklega það síðasta. Ætlunin er að leggja fjórðungsmót af, en fjölga í þess stað landsmótum og halda þau annað hvert ár framvegis. Félagar í Hestamannafé- laginu Geysi í Rangárþingi eru byrjaðir að undirbúa mótið og verða einmitt með fund í Hlíðarenda á Hvol- svelli annað kvöld kl 21:00. Þar munu ráöunautarnir Kristinn Hugason og Jón Vilmundarsson ræða um þátt kynbótahrossa á fjórð- ungsmótinu. Auk þess verð- ur skipulag mótsins til um- ræðu á fundinum. ■ stjórnar í dansflokknum nú um helgina þar sem jafnframt var mörkuð gjörbreytt stefna varð- andi listrænar áherslur og stefnu hjá flokknum. Segja for- ráðamenn flokksins að þessi nýja stefna — þar sem dönsur- um sé fækkað — sé liður í því að bregaðst við fjárhagslegum erf- iðleikum sem steðja að starf- seminni. Er á það bent að halli á rekstri frá fyrri árum nemi um 10 milljónum króna og að auki sé dansflokkurinn á hrakhólum með húsnæði. Þá sé engin föst sýningaraðstaða fyrir hendi og líkur til að flokkurinn missi nú- verandi æfingaraðstöðu í sum- ar. Varðandi listræna stefnu- mörkun hefur stjórn dans- flokksins ákveðið að þrengja mjög verkefnaval flokksins frá því sem verið hefur og leggja sérstaka áherslu á nútímadans og að byggður verði upp fá- mennur en sterkur nútímadans- flokkur með séríslenskum ein- kennum. Langtímamarkmið stjórnar- innar er þó að fjölga aftur döns- urum þegar fjárhagsvandinn er yfirstiginn og viðunandi að- staða hefur fundist fyrir flokk- inn. Formaður stjórnar er Ás- laug Magnúsdóttir en með henni í stjórnni sitja Lovísa Árnadóttir og Viðar Eggertsson. Katrín hefur frá árinu 1988 starfaö sem sólódansari við Tanzforum í Þýskalandi og var áður dansari við íslenska dans- flokkinn. María Gísladóttir. Oddviti Skútustaöahrepps um samlíkingu félagsmálaráöherra vegna skóladeilu í Mývatnssveit: Könnumst ekki vib ab hafa barib á minnihlutanum „Okkur þykja þessar órök- studdu yfirlýsingar og ásakanir rábherrans afar alvarlegar og vib krefjum hann um rökstubn- ing meb þessum orbum. Vib könnumst ekki vib ab hafa bar- ib á minnihlutanum og við för- um fram á ab rábherra skýri nánar hvab hann á vib," segir Leifur Hallgrímsson, oddviti meirihlutans í Skútustaba- hreppi í Mývatnssveit. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra er ekki fráhverfur því að stofnað verði nýtt sveitarfélag í Mývatnssveit vegna ósam- komulags um skólamál í sveit- inni og sagði hann í Tímanum í fyrradag: „Þetta er bara eins og hjónaskilnaður, það getur verið skásti kosturinn fyrir báða aðila, mun skárra heldur en að standa í barsmíðum alla daga." Oddviti Skútustaðahrepps segir ljóst að ráðherra viti ekki um hvað málið snýst en hann sé tilbúinn að skýra það út fyrir honum: „Við erum tilbúin að bjóða honum hingað á kostnað Skútustaðahrepps til að kynna sér málavöxtu. Við munum taka vel á móti honum." -BÞ Siömennt í Ráöhúsi Reykjavíkur: 27 fermdust borgaralega Áttunda borgaralega fermingin fór fram í Rábhúsi Reykjavíkur nú um helgina. Ab þessu sinni fermdust 27 ungmenni meb þessum hætti. í þessari athöfn tóku foreldrar virkan þátt og fermingarbörn fluttu ávörp, lásu ljób og spilubu á hljóbfæri. Illugi Jökulsson og Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundar voru ræbumenn, en Einar Jónsson lék á trompet og Hinrik Bjarnason á gítar. Fyrst var fermt borgaralega á Is- landi 1989 og nú hafa 162 ung- lingar fermst á þennan hátt og rúmlega 2000 manns verið við- staddir athafnirnar. Félagið Sið- mennt stefndur fyrir ferming- unni. ■ Óttar Yngvason stjórnarmaöur í Félagi úthafsútgeröa telur nauösynlegt aö liökaö veröi fyrir útgeröum til aö skrá skip undir íslenskan fána. Mikilvœgt vegna veiöireynslunnar: Víöa sóknarfæri á úthöfunum Flugleiöir beint á Boston þrisvar í viku, og Halifax-flug hefst í nœsta mánuöi. Ný leiguþota bœttist viö í gœr: Flugflotinn kostar 20 millj- arða króna Flugleibir hófu í gær flug til Boston í Massachussets í Bandaríkjunum. Flogið verb- ur þangab þrisvar I viku til ab byrja meb og tíðnin aukin í júní í fjórar ferðir. Flugleiðamenn segja aö hér sé upphaf vaxtarskeiðs hjá fyrir- tækinu. Gert er ráð fyrir 30 þús- und farþegum á flugleiðinni til Boston á ári. Auk þess er ljóst að fiskflutningar verða talsveröir, eða 20-30 tonn á viku og allt fragtpláss til Boston upppantab næstu vikurnar. Jafnframt því að fyrsta flugib til Boston var í gær, bættist Flugleiðum ný leiguvél í flot- ann, Boeing 757- 200, og gaf Kristrún Eymundsdóttir, eigin- kona samgönguráðherra, vél- inni nafn á Keflavíkurflugvelli í gær. Flugfloti Flugleiða telur nú átta þotur og fjórar skrúfuþotur. Verðmæti flugvélakostsins er um 20 milljarðar króna. Þann 14. maí næstkomandi verður opnuð enn ný flugleið hjá Flugleiðum, til Halifax í No- va Scotia í Kanada. Gert er ráð fyrir að farþegum í alþjóðaflugi Flugleiða fjölgi um 15% milli ára og verði 1,1 milljón. -JBP „Ég legg þab ab jöfnu hvort skip er undir íslensku flaggi eba öbru flaggi ef þau eru rekin af íslenskum abilum ab meiri- hluta vegna þess ab þab fer 100% inní þjóbarbúib. Þab er kannski ennþá betra ef þau eru leigb því þá þarf ekki ab taka áhættuna af kaupverbinu," segir Óttar Yngvason stjórnar- mabur í Félagi Úthafsútgerba. Hann segir ab sóknarfæri fyrir þessar útgerbir sé víba ab finna og bendir m.a. á ab íslenski út- hafsveibiflotinn sé ekki það stór að hann geti nýtt alla þá mögu- leika sem eru fyrir hendi. í því sambandi nefndir hann síldar- smuguna, Flæmska hattinn, Bar- entshafiö og Svalbarðasvæbib. En á síðastnefnda svæöinu er að- eins þorskur á kvóta en enginn kvóti á rækju svo dæmi sé tekib. Þá gagnrýnir hann nýgerðan samning um kvótaskiptingu á út- hafskarfastofninum á Reykjanes- hrygg. Hann fullyrðir að samn- ingurinn hafi verið „keyptur" með því að Færeyingar og Græn- lendingar hefðu fengið í sinn hlut sem jafngildir tífaldri veibi- reynslu þeirra. í því sambandi bendir hann á ab Grænlendingar hafi enga veiðireynslu né skip til veiða á Reykjaneshrygg og sá kvóti verbi síöan leigður til Evr- ópusambandsins. Svo virðist sem vaxandi gróska sé í því meðal íslenskra útgerðar- manna að taka erlend úthafs- veiðifrystiskip á leigu og gera þau út á veiðar utan íslenskrar land- helgi. En nokkrar þessara útgerða em aðilar að Félagi úthafsútgerða sem stofnað var í ársbyrjun á þessu ári. Þá mun eitthvað vera um ab útgeröarmenn hafi keypt erlend skip til þess arna. Þessi skip, sem oftast nær em frá Eystrasaltríkjunum eða Rúss- landi, em einatt mönnuð erlend- um áhöfnum en með íslenska yf- irmenn. í það heila tekið er þarna um að ræba kannski sex til átta skip sem fiska hvert um sig fyrir 100- 300 milljónir króna á ári. Þá era laun erlendu áhafnana töluvert lægri en íslenskir sjó- menn eiga að venjast. Óttar telur ekki fjarri lagi að áætla að út- lendu sjómennirnir nái kannski í launum einum fjórða af því sem viðgengst hérlendis. Hann segir aö það sé ekkert neikvætt vib þessa þróun nema síður sé. Hann vekur hinsvegar athygli á því að sú veibireynsla sem þessi skip afla sér á úthafinu tilheyrir fánalandi skipsins en ekki þeim sem gerir þab út. Af þeim sökum sé brýnt að eitthvað verði gert sem gæti liðkað fyrir því að þessi skip verði skráð und- ir íslenskan fána. Meðal þeirra þröskulda sem em í veginum séu m.a. reglur Siglingamálastofnun- ar sem Óttar segir að séu stífari en gerist og gengur hjá mörgum öðmm þjóðum svo ekki sé minnst á þau miklu stimpilgjöld, sem hann telur að sé nær hvergi ab finna nema hérlendis. Þar fyr- ir utan séu hafnargjöld óvíða jafn há og hérlendis og því er kannski minna um það en ella að þessi skip landi afla sínum í ís- lenskum höfnum. En töluverður munur mun vera á hafnargjaldi eftir því hvort í hlut á íslenskt skip eba skip sem siglir undir er- lendum fána. -grh Vlnnlngar Fjöldl vinningshafa UpphnO á hvern vtnnlngahafa 1. S*5 0 2.010.655 2. "“4 ÉTi 288.810 3. *** 60 8.300 4. 3-fS 2.009 570 Samlals: 2.070 3.942.595 Upplýsingaf um vinningstölur láit emnig I slmsvara S6B-1S11 oöa Graanu númeri B00-6G11 og I toxtavarpi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.