Tíminn - 24.05.1996, Side 1
80. árgangur
Föstudagur 24. maí
v *
\WRE VF/ÍZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
97. tölublað 1996
Minnihluti samgöngu-
nefndar:
„Háeffun"
harðlega
gagnrýnd
Minnihluti samgöngunefndar
Alþingis gagnrýnir harölega
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
stofnun hlutafélags um Póst og
síma. í áliti minnihlutans segir
aö frumvarpib sé óvandaö og
veki í mörgum tilvikum upp
ýmsar spurningar.
Nefndarmenn minnihlutans
segja aö ef það sé tilgangurinn
meö frumvarpi þessu að mæta
örri þróun í tækni og breyttum
viðhorfum í fjarskiptum þá hafi
þaö mistekist með öllu. I frum-
varpinu örli lítt á nýrri eða frjórri
hugsun og litlar sem engar til-
raunir séu gerðar til þess aö varpa
ljósi á framtíðarþróun þessara
mála eða hvert hlutverk Pósts og
síma eigi að vera í þeim efnum.
Minnihluti samgöngunefndar
gagnrýnir að ekki skuli tekin af
tvímæli um að Póstur og sími
skuli vera áfram í eigu ríkisins eft-
ir að honum hefur verið breitt í
hlutafélag þótt í frumvarpinu sé
gert ráö fyrir að aðeins verði um
eitt hlutabréf að ræða er verði í
eigu hins opinbera. í áliti minni-
hlutans segir að við fyrstu sýn
virðist þaö vera afdráttarlaust en
þegar betur sé að gáð vakni ýmsar
spurningar varðandi þennan þátt.
í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að
hlutafélaginu um Póst og síma
verði heimilt að að standa að
stofnunum og gerast eignaraðili
að öðrum félögum og fyrirtækj-
um og því verði einnig heimilt að
stofna nýtt félag eða félög er verði
í eigu þess sjálfs til að annast
ákveðna þætti starfseminnar.
Þá gagnrýnir minnihluti sam-
göngunefndar að réttarstaða
starfsmanna sé óviss. -ÞI
Árlandsmáliö leystist far-
sœllega:
Aðstandendur
barnanna þakka
rábherranum
„Við viljum þakka Páli Péturs-
syni félagsmálaráðherra fyrir
að hafa komið í veg fyrir að
heimilinu væri lokað og börn-
um okkar vísab frá.
Við lítum svo á að hann sé
okkur sammála um að ekki sé
eðlilegt að grípa til slíkra ráð-
stafana þó rekstraráætlanir
ráðuneytis standist ekki," sagði
Skjöldur Vatnar í gær, og mælti
fyrir hönd aðstandenda barn-
anna sem eiga heimili að Ár-
landi 9 í Fossvogi.
Foreldrarnir fagna því að loks
skuli vera gerð úttekt á að-
hlynningarþörf barnanna, sem
eru ofurfatlaðir einstaklingar.
Ætíð hafi veriö hvatt til að svo
yrði gert í viöræðum við emb-
ættismenn ráðuneytisins.
-JBP
[ i'j ffip!mPrk \ ■
íjri i <*%•?■■ ,\jL -wTT- ■
rí / UUU ÍIUI I* UIICÍIUIÍ lu UTer fyrsti og jafnframt eini íbúi tjaldsvœbisins í Laugardal. Vib hittum hann ab máli í gœrmorg-
un, par sem hann var klœddur og kominn á ról og tilbúinn ab leggja í landsreisu á hjólinu sínu. Strákurinn ferbast einn og heitir jan-Paul. -Tímamynd: cs
Matthías Halldórsson; lyf aö jafnaöi hœkkaö kringum 13% frá einu ári til annars:
Höfum alltaf þriöja að-
ilaáverði— lækninn
„Þetta þýðir alls ekki stjórn-
lausa hækkun lyfjakostnaðar.
Raunar er það svo, að lyf hafa
ab jafnaði hækkað kringum
13% frá einu ári til annars,
nema þegar sérstakt átak hef-
ur verið gert til að lækka
kostnabinn. Það er bara þessi
innbyggða kostnaðaraukning
sem jafnan verbur í sambandi
við lyf, að hluta til vegna þess
ab ný og dýr lyf eru stöðugt ab
koma á markaðinn", sagði
Matthías Halldórsson aðstob-
arlandlæknir. í ljósi þess ab
lyfjakostnaður hjá Trygginga-
stofnun reyndist 13% hærri
fyrstu fjóra mánuði þessa árs
en á sama tíma í fyrra leitabi
Tíminn álits hans á því hvort
lyfjakostnaður hækkaði orbib
stjórnlaust og óvibráðanlega
eba hvort þarna væri e.t.v.
einungis um eblilega þróun ab
ræða.
„Aöalatriðið varðandi sölu á
lyfjum er það, að þar höfum við
alltaf þriðja aðila sem skrifar út
lyfin — þ.e.a.s. lækninn — sem
ákveður hvað selt er af lyfsseð-
ilsskyldum lyfjum og á að gæta
að því að lyf séu skrifuö út í
samræmi við þarfir. Þannig aö
læknar fara tæplega að hlaupa
til og skrifa út meira af lyfjum
þótt komin séu fleiri apótek.
Það held ég að sé útilokað. Utan
hvað þessi tímabundna lækkun
á lyfjaverði til sjúklings hefur
líklega leitt til þess að fólk hafi
reynt að byrgja sig svolítið upp
af þeim lyfjum sem það tekur
reglulega. Enda ekki vitað hvort
þessi afsláttartilboö komi til
með að standa nema skamman
tíma. En þetta jafnar sig síðan
út. Hugsanlega eru svo kannski
einhverjir sjúklingar sem áður
höfðu ekki efni á að taka út
nauðsynleg lyf en hafa nú séð
sér það fært".
„Sú breyting sem orðið hefur í
lyfjasölunni finnst mér alveg
sjálfsögð. Hún hefur þegar kom-
ið fram í lækkuðu lyfjaverbi til
sjúklinga og mun væntanlega
gera lyfjadreifingu hagkvæmari
framvegis", segir aðstoðarland-
læknir.
/
Utför Þórarins Þórarinssonar ritstjóra
Þórarinn Þórarinsson var
borinn til grafar í gær og var
útförin gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík.
Líkmenn voru samherjar úr
Framsóknarflokknum, Halldór
Ásgrímsson formaður flokks-
ins og Guðmundur Bjarnason
varaformaður, Valgerður
Sverrisdóttir form. Þingflokks-
ins og Páll Pétursson félags-
málaráðherra, Alfreð Þor-
steinsson borgarfulltrúi og
Ingvar Gíslason fyrrv. ráðherra
og ritstjóri, og Jón Kristjánssn
alþm. og ritstjóri og Guðjón
Ólafur Jónsson formaður SUF.
Tímamynd: GVA