Tíminn - 30.08.1986, Síða 1

Tíminn - 30.08.1986, Síða 1
lli HARÐUR ÁREKSTUR varö á gatnamótum Hofsvallagötu og Hring- brautar á gul-blikkandi Ijósum fyrripartinn i gær. Ljósin voru biluð og ökumaður Lada Sport bifreiðar sem kom norður Hofsvallagötu sá ekki Lancer bifreið sem kom vestan af Hringbrautinni og lentu bílarnir því saman. Báðir bílarnir eru talsvert skemmdir og annar ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en mun þó hafa hlotið minni háttar meiðsli. Biðskylda er á Hofsvallagötu gagnvart Hringbraut þegar Ijós eru biluð. Að sögn lögreglu var mikið um árekstra í gær og urou 10 árekstrar fyrripartinn í gær. GEIR HALLGRÍMSSON tekur við starfi seðlabankastjóra 1. sept- ember og jafnframt lætur Davíð Ólafsson af störfum vegna aldurs en hann varð 70 ára fyrr á árinu. Frá 1. september er bankastjórnin skipuð dr. Jóhannesi Nordal formanni, Tómasi Árnasyni og Geir Hall- grímssyni. GJALDÞROTASKIPTI verða hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar en í vik- unni lagði lögmaður kaupfélagsins fram beiðni um það. Kaupfélagið skuldar 323 milljónir en eignir þess eru metnar á 197 milljónir. Reynt verður að ná nauðungar- samningum við kröfuhafa, en þeir stærstu eru Sambandið og Samvinnubankinn ERLENDUR Kristjánsson hefur verið ráðinn æskulýðsfulltrúi ríkisins til 5 ára en hann hefur síðastliðin tvö ár verið formaður Æskulýðsráðs ríkisins og gengt stöðu æskulýðsfulltrúa frá sl. október. Aðrirumsækjendur um stöðuna voru Þórður Gunnar Valdemarsson kennari við H.Í., Pálmar Halldórs- son framkvæmda- stjóri iðnnema- sambandsins og Ingi Þ, Þorgríms- son framkvæmda- stjóri farfugla. TÓNABÍÓ verður opnað aftur i dag eftir nokkurt hlé, en samtök kvikmynda- húsanna í Reykjavík keyptu Tónabíó fyrir skömmu. Af því tilefni verður stórmyndin Hálendingurinn (Highlander) frumsýnd á sama tíma oa myndin verður frumsýnd í Englandi. Með aðalhlutverkin fara Christ- opher Lambert og Sean Connery og tónlistin er flutt og samin af hljómsveitinrii Queen. EYRARSVEIT hefur fengið nýjan sveitarstjóra, Ólaf Hilmar Sverrisson 26 ára viðskiptafræðing. Ólafur útskrifaðist úr HÍ 1984 og hefur síðan starfað hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Ólafur er kvæntur Ragnheiði Gunnarsdóttur hjúkr- unarfræðingi. KENNARASAMBANDIÐ varar alvarlega við hugmyndum um að sveitarfélög taki á sig stærri hluta í rekstrarkostnaði grunnskóla en nú er og bendir á að megintilgangur laga um skólakerfi og grunnskóla sé að nemendur hafi sem jafnasta aðstöðu til náms án tillits til efnahags og búsetu. Því marki sé aðeins náð með því að ríkissjóður ábyrg- ist rekstur qrunnskóla í öllum skólahéruð- um. VÍSA-ÍSLAND hefur úthlutað korthöfum sínum sérstöku leyninúmeri, PIN-númeri, sem ætlað er til nota erlend- is. Er þá hægt að taka út peninga úr sérstökum tölvubönkum VISA með VISA- kortum á svipaðan hátt og hægt er í bankasjálfsölum hérlendis með banka- kortum. KRUMMI ...hélt hann hefði átt að vera heiðurs- gestur á Hrafnagili.... Rekstrarerfiöleikar frystingar enn verulegir: Skuldbreytingu þarf fyrir ölí frystihús - segir Arni Benediktsson framkvæmdastjóri „Það sem ég vil tala um í þessu sambandi er að það vcrði ákveðin ein allsherjar skuldbreyting fyrir fiskvinnslufyrirtæki, en ekki tekin út einstök fyrirtæki eins og gert hefur verið. Skuldbreytingin nái þannig yfir alla línuna, þó aðeiris til þeirra fyrirtækja sem eiga fyrir skuldum að sjálfsögðu, en það eru hugsanlega til fyrirtæki, sem ekki verður bjargað," sagði Árni Ben- ediktsson framkvæmdastjóri Fé- lags Sambandsfiskframleiðenda í samtali við Tímann í gær. „Ég cr mjög ósáttur við það form sem verið liefur á skuldbreytingum frystingarinnar, nema það sýni sig að það sé fljótlegra að framkvæma þær á þennan hátt og ef sömu reglur verða látnar gilda fyrir alla. En ég er mjög hræddur um að þaö gangi hægar að gera þetta með því að vera að velja úr einn og einn,“ sagði Árni ennfremur Árni sagði, að það sem verið vær'i að fara fram á fyrir firskvinnsl- una væri að lánum yrði breytt í 10-15 ára lán. Hann benti á, að könnun á föstum lánum fiskvinnsl- unnar sýndi að 60-80% þeirra féllu í gjalddaga á árununi 1986-1988. „Mjög mikið af því fjármagni, sem fiskvinnslan er með eru hreinar lausaskuldir og síðan eru þessi föstu lán í raun lítið meira en lausaskuldir," sagði hann. I drögum sem- Þjóðhagsstofnun hefur unnið unt afkomu botnfisk- veiða og vinnslu og lögð voru fram á ríkisstjórnarfundi á fimmtu- dag kemur fram, að áætlaður hagn- aður útgerðarinnar nú í septcmber- byrjun verði á bilinu 7-10%, en að hagnaöur botnfiskvinnslunnar í heild verði 0,1-1,2%. Fryst- ingin cin og sér hins vegar verður samkvæmt þessum drögum stofn- unarinnar rekin með 0,3-1,7% tapi, einkum vegna þess að tckju- tap vegna óhagstæðs gengis dollar- ans er meira en neniur hækkun fiskafurða á erlendum mörkuðum. Rekstrarcrfiðlcikar frystihúsanna eru því enn verulegir - þrátt fyrir að Byggðastofnun hafi veitt umtalsverðu fé til aðstoðar sam- kvæmt sérstakri áætlun þar sem gerð var úttekt á einstökum húsum sent sóttu um aðstoð. Stjórnvöld hafa vísað þessum vanda til viðskiptabankana, jafn- framt því að þau hafa gagnrýnt þá fyrir seinagang í þcssum máíum. Árni Benediktsson var spurður um möguleika á tekjutilfærslu frá útgerð til vinnslu með tilliti til betri afkomu útgerðarinnar, og svaraði hann því til að slíkt yrði að koma í fiskverðsákvörðun, en fiskverð væri fast fram til áramóta. Hvað gerðist þá vildi hann ekkert spá um, en undirstrikaði að skuld- brcytingar væru það, sent þessa stundina væri í brennidepli. -BG Steypubifreiðin var Krísuvíkurafleggjarann. Við það að fara út af valt hann tvær veltur og skemmdist mjög mikið eins og sjá má. sem var að beygja upp Tímamynd Sverrir „Hrafnagilshreyfing“ í aösigi hjá ungum framsóknarmönnum: Reykjanesbraut: Nýir vendir sópa best Steypubíll fór út af Frá Eggert Skúlasyni, fréttamanni Tíman.s á Hrafnagili: Þegar á fyrstu klukkutímum 21. sambandsþings ungra framsókn- armanna að Hrafnagili í Eyjafirði dró til tíðinda. Eftir að Finnur Ingólfsson formaður SUF hafði sett þingið tók Ingvar Gíslason alþingismaður til máls. í niðurlagi ræðu sinnar sagði Ingvar að hann gæfi ekki oftar kost á sér í framboð fyrir Framsóknarflokkinn og kom yfirlýsing Ingvars í kjölfar orða hans um að huga þyrfti að grund- vallarsjónarmiðum og fmynd flokksins eftir áralanga setu í ríkis- stjórn. í ræðu fráfarandi forntanns SUF kom fram að huga þyrfti að breytingum á þingflokknum með því að koma yngra fólki að ofarlega á listum fyrir komandi alþingis- kosningar. Finnur vitnaði í orð Ólafs Jóhannessonar um reynslu- litla ráðherra ríkisstjórnarinnar 1978: „Nýir vendir sópa best.“ Finnur sagðist vonast til að þessi orð yrðu þingmönnum umhugs- unarefni. Páll Pétursson formaður þing- flokks Framsóknarflokksins taldi að nær væri að menn einbeittu sér að vinna fleiri þingsæti heldur en berjast blóðugum bardaga um þau sæti sem flokkurinn hefði nú þegar. „Þið blésuð í herlúðra þégar kvatt var til þings“ sagði Steingrím- ur Hermannsson þegar hann ávarpaði þingið í gær. „Nú verðið þið að safna liði og tcfla fram dugandi fólki til baráttu við núver- andi þingmenn þó þið getið ekki gert ykkur vonir um að koma þeint ölluin frá.“ Steingrímur sagði ennfremur að í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna hefði Framsóknarflokkurinn nú tvo valkosti.Annarsvegar að gerast harðsnúinn landsbyggðarflokkur sem myndi kannski vinna orrustur en ekki styrjöld; og hins vegar að einbeita sér að skynsamlegri leið til að vinna jafnt með dreifbýli og þéttbýli til að tryggja jafnræði í landshlutum. Þinginu verður slitið í dag og verður nánar sagt frá þvf í blaðinu á þriðjudag. Steypubifreið sem var á leið suður Reykjanesbraut lenti út af veginum á móts við Krísuvíkur- afleggjarann og valt tvær veltur. Ökumaður bifreiðarinnar slasað- ist en er ekki talinn í lífshættu. Mun hann vera fótbrotinn og meiddur á handlegg. Bifreiðin er mjög mikið skemntd ef ekki ónýt. Slysið varð þegar bifreið sem var á undan steypubifreiðinni hægði á og stoppaði viö Krísuvík- urafleggjarann og beið þess að beygja inn á afleggjarann á meðan umferð á móti fór framhjá. Öku- maður steypubifreiðarinnar var ekki nógu fljótur að stöðva bif- rciöina og lenti því út af veginum með fyrrgreindunt afleiðingum. -ABS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.