Tíminn - 30.08.1986, Blaðsíða 19
Tíminn 19
Laugardagur 30. ágúst 1986
lllllllllllllllillllil'lllll ÚTVARP/SJÓNVARP
Boris dregur varúlfinn upp úr gröf-
inni - á tungunni!
„Múmían
sem hvarf“
Á mánudag kl. 17.03 er Barnaút-
varp og í þeim tíma er næstsíðasti
lesturá hinni vinsælu sögu „Múmí-
an sem hvarf“, eftir Dennis Júrg-
ensen í þýðingu Vernharðs Linnet.
Sögulok cru svo á þriðjudag. Það
eru starfsmenn Barnaútvarps sem
llytja.
Söguþráðurinn er eitthvað á
þessa leið; Mummi Múmía ætlaði
að heimsækja frænada sinn sem
staddur var í Þjóðminjasafninu, en
villtist og var að lokum tekinn og
frystur og settur í örugga geymslu.
Átti hann að gangast undir ná-
kvæma rannsókn innan fárra daga.
Að sjálfsögðu gerðu félagar hans
út leiðangur honum til bjargar, og
fengu sér til leiðsagnar Fredda sem
er hryllingsaðdáandi mikill. Hann
átti eftir að bjarga þeim úr margri
hættunni og reynast þeim hollráð-
ur. Nú eru þeir félagar hundeltir af
lögreglunni og þeim nánast allar
bjargir bannaðar og verður spenn-
andi að heyra hvort Fredda tekst
að bjarga þeim úr klóm lögreglunn-
ar enn einu sinni.
EKKERT MÁL
N.k. sunnudagskvöld kl. 20.00
sér Ása Helga Ragnarsdóttir um
Sjónvarp laugard. kl. 23.'
Með hnúum og hnefum
Þessi bandaríska bíómynd frá
árinu 1978 á að gerast í Bandaríkj-
unum á tímum kreppunnar á fjórða
áratug aldarinnar. Sagan hefst á
versta krepputímabilinu upp úr
1930. Þá er það ungur vörubíl-
stjóri. Jonny Kovak, sent berst
fyrir stofnun stéttarfélags. Johnny
verður brátt vel ágengt með hjálp
vina sinna og kcmst til metorða
sem áhrifamikill verkalýðsleiðtogi.
Aðalhlutverkið, vörubílstjórann
Johnny Kovak, leikur Sylvester
Stallone (frægur fyrir ntyndirnar
Rocky, Rambo, Cobra o.fl.) Rod
Steiger leikur þingmann sent vill
láta rannsaka fjármál og völd
verkalýðsfélagsins.
í myndinni eru atriði sem gætu
vakið ótta hjá ungum börnum.
Þýðandi er Stefán Jökulsson.
Myndin stendur í 2 klst. og20 mín.
Þaö er stundum heitt í kolunum á
verkalýðsfundunum og sitt sýnist
hverjum.
Sjónvarp mánud. kl. 21.45;
Skyndabitastaðurinn
eftir nóbelsskáldiö I.B. Singer
Skyndibitastaðurinn (The Cafe-
teria) heitir mánudagsleikrit sjón-
varpsins að þessu sinni og er gert
cftir samnefndri smásögu eftir nób-
elsskáldið Isaac Bashevis Singer.
Leikstjóri er Amram Novak, en í
aðalhlutverkum: Bob Dishy og
Zohra Lampert.
Leikritið gerist að mestu á
matsölustað í New York sem gyð-
ingar venja komur sínar til. Þekkt-
ur rithöfundur kynnist þar flótta-
konu. sem lifað hefur af ofsóknir
nasista og setur sú reynsla svip á
samskipti þeirra. Þýðandi er Jó-
hanna Þráinsdóttir.
þáttinn Ekkert mál. Brugðið verð-
ur á leik með Eddu Björgvinsdótt-
ur leikara og spaugara og fræðst
um Stellu í orlofi, nýja íslenska
kvikmynd sem Edda hefur nýlokið
við að leika í.
Eftir mánudagsleikritið er síðan
þáttur, sem neínist ísak í Ameríku
og er svipmynd af höfundi sögunn-
ar, sem leikritið er gert eftir. Rætt
er við hann og fylgst með ferli hans
og ferðum og vitnað í verk hans.
Þýðandi er Veturliði Guðnason.
Aðalpersónurnar í mánudagsleikriti
sjúnvarpsins „Skyndibitastaðurinn“.
St. Jósefsspítali,
Landakoti
Okkur vantar starfsfólk!
Vantar ykkur vinnu?
• Hjúkrunarf ræðinga varítar á eftirtaldar deildir:
- Lyflækningadeild l-A og ll-A
- Hafnarbúðir
- Handlækningadeildir l-B og ll-B.
• Sjúkraliða á allar deildir
• Starfsfólk til ræstinga
• Einnig óskum við eftir hjúkrunarfræðingum
og sjúkraliðum á aukavaktir.
Við bjóðum nú betri starfsaðstöðu á nýuppgerð-
um deildum, góðan starfsanda og aðlögunar-
tíma eftir þörfum hvers og eins.
Sveigjanlegur vinnutími kemur til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari
upplýsingar í síma 19600-300 kl. 11.00-12.00 og
13.00-14.00 alla virka daga.
Lausar
kennarastöður
Enn eru lausar kennarastöður við grunnskóla
Patreksfjarðar.
Kennslugreinar: Danska, stærðfræði, íþróttir, al-
menn barnakennsla. Ef þú hefur áhuga þá hafðu
samband strax, síminn er 94-1337 eða 94-1222.
Gott starf á góðum stað.
Skólanefndin
Frá Menntamálaráðuneytinu
Vegna forfalla vantar þroskaþjálfa og uppeldisfull-
trúa að blindradeild Álftamýrarskóla í Reykjavík.
Upplýsingar um störfin eru veittar í skólanum í
síma 686588
*
Laugardagur
30. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
7.30 Morgunglettur. Létt tónlist.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Fréttir á ensku.
8.35 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
8.45 Nú er sumar Hildur Hermóðsdóttir
hefur ofan af fyrir ungum hlustendum.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.20 Óskalög sjúklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar
11.00 Frá útlöndum Þáttur um erlend mál
efni i umsjá Páls Heiðars Jónssonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
Af stað Björn M. Björgvinsson sér um
umferðarþátt.
13.50 Sinna Listir og menningarmál liðandi
stundar. Umsjón: Ragnheiöur Gyöa
Jónsdóttir og Þorgeir Ólafsson.
15.00 Alþjóðlega Bach-píanókeppnin
1985 í Toronto Tónleikarverðlaunahafa
12. maí 1985. Leikin er tónlist eftir
Johann Sebastian Bach. a. Konsert nr. 2
í E-dúr BWV 1053. b. Konsert í ítölskum
stíl. c. Konsert nr. 1 í d-moll BWV 1052.
Kynnir: Anna Ingólfsdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir:
16.30 Söguslóðir í Suður-Þýskalandi
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason.
17.00 íþróttafréttir
17.03 Barnaútvarpið Umsjón: Vernharður
Linnet og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.40 Samleikur í útvarpssal: Lög eftir
Jónas Tómasson. Ingvar Jónasson leik-
ur á lágfiðlu, Ólafur Vignir Albertsson á
pianó.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurlregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Hljóð úr horni Umsjón: Stefán
Jökulsson.
20.00 Sagan: „Sonur elds og ísa“ eftir
Johannes Heggland Gréta Sigfúsdóttir
þýddi. Baldvin Halldórsson les (5).
20.30 Harmonikuþáttur Umsjón: Sigurður
Alfonsson.
21.00 Frá íslandsferð John Coles sumar-
ið 1881. Fjórði þáttur. Tómas Einarsson
tók saman. Lesari með honum: Baldur
Sveinsson.
21.40 íslensk einsöngslög Elísabet Ei-
ríksdóttir syngur lög eftir Jórunni Viöar.
Höfundur leikur á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Laugardagsvaka Þáttur i umsjá Sig-
mars B. Haukssonar.
23.30 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn
Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00.
^irv
Laugardagur
30. ágúst
10.00 Morgunþáttur I umsjá Kristjáns Sig-
urjónssonar.
12.00 Hlé
14.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist,
íþróttir og sitthvað fleira. Umsjón: Sigurð-
ur Sverrisson ásamt íþróttafrétta-
mönnunum Ingólfi Hannessyni og Sam-
úel Erni Erlingssyni.
16.00 Listapopp í umsjá Gunnars Salvars-
sonar.
17.00 íþróttafréttir.
17.03 Nýræktin Skúli Helgason stjórnar
þætti um nýja rokktónlist, innlenda og
erlenda.
18.00 Hlé.
20.00 Bylgjur Ásmundur Jónsson og Árni
Daníel Júlíusson kynna framsækna rokk-
tónlist.
21.00 Djassspjall Vernharður Linnet sér
um þáttinn.
22.00 Framhaldsleikrit: „Eyja i hafinu"
eftir Jóhannes Helga Leikstjóri: Þor-
steinn Gunnarsson. Þriðji þáttur: „Þjóð-
hátíö“. (Endurtekið frá sunnudegi, þá á
rás eitt).
22.49 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Á næturvakt með Valdisi Gunnars-
dótfur.
03.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
31. ágúst
8.00 Morgunandakt Séra Sigmar Torfa-
son prófastur á Skeggjastöðum í Bakka-
firði flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Lesiðúrforustugreinum
dagblaðanna. Dagskrá.
8.30 Fréttir á ensku.
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Alfreds
Hauses leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Umsjón: Friðrik Páll
Jónsson.
11.00 Messa í Borgarneskirkju. (Hljóðrit-
uð 11. júni sl.) Prestur: Séra Þorbjörn
Hlynur Árnason. Örgelleikar: Jón Þ.
Björnsson. Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Úrsljtakeppni Knattspyrnusam-
bands (slands. Ingólfur Hannesson og
Samúel örn Erlingsson lýsa leik Fram og
lA á Laugardalsvelli í Reykjavik.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Framhaldsleikrit „Eyja í hafinu“
eftir Jóhannes Helga.
17.00Frá tónlistarhátíðinni í Björgvin í
vor.
18.00 Siðslægjur. Jón Örn Marínósson
spjallar við hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30Tilkynningar.
19.35 „Sigaunabaróninn"
20.00 Ekkert mál Sigurður Blöndal stjórnar
þætti fyrir ungt fólk.
21.00Nemendur Franz Liszt túlka verk
hans Tólfti þáttur: Moriz Rosenthal.
Umsjón: Runólfur Þórðarson.
21.30 Útvarpssagan: „Sögur úr þorpinu
yndislega" eftir Sigfried Lenz. Vilborg
Bickel-Isleifsdóttir þýddi. Guðrún Guð-
laugsdóttir les (7).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Ég sigli minu skipi. Jenna Jensdóttir
les eigin Ijóð.
22.30 „Camera obscura". Þáttur um hlut-
verk og stööu kvikmyndarinnar sem fjöl-
miðils á ýmsum skeiðum kvikmynda-
sögunnar. Umsjón: Ólafur Angantýsson.
23.10 Frá tónlistarhátiðinni í Lúðviks-
borgarhöll í fyrrahaust.
24.00 Fréttir
00.05 Gitarbókin. Magnús Einarsson sér
um tónlistarþátt.
00.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
24. ágúst
13.30 Krydd í tilveruna. Sunnudagsþáttur
með afmæliskveöjum og léttri tónlist í
umsjá Inger Önnur Aikman.
15.00 Tónlistarkrossgátan. Stjórnandi:
Jón Gröndal.
16.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö
Gunnlaugur Helgason kynnir þrjátiu
vinsælustu lögin.
18.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
30. ágúst
17.30 iþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.20 Ævintýri frá ýmsum löndum (Story-
book International) 7. Heimski bróðir-
inn. Myndaflokkur fyrir börn. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögumaður
Edda Þórarinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Fyrirmyndarfaðir (The Cosby
Show). Fimmtándi þáttur. Bandariskur
gamanmyndaflokkur í 24 þáttum. Aðal-
hlutverk: Bill Cosby og Phylicia Ayers-
Allen. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.00 Glæstar vonir. (Great Expectations)
Bresk-bandarísk sjónvarpsmynd frá ár-
inu 1973, byggð á skáldsögu eftir Charles
Dickens. Leikstjóri Joseph Hardy. Aðal-
hlutverk Michael York, Sarah Miles, Jam-
es Mason, Robert Morley, Margaret Leig-
hton og Anthony Quayle. Munaðarlaus
piltur kemst til manns með hjálp óþekkts
velgjörðarmanns. Hann þykist vita hver
sá muni vera en er hið sanna i málinu
upplýsist kemur það hinum unga manni
talsvert á óvart. Þýöandi Sonja Diego.
23.00 Með hnúum og hnefum. (F.I.S.T.)
Bandarisk bíómynd frá árinu 1978. Leik-
stjóri Norman Jewison. Aðalhlutverk Syl-
vester Stallone og Rod Steiger. Myndin
hefst á tímum kreppu fjórða áratugarins
í Bandarikjunum. Ungur eldhugi sem er
vörubilsstjóri að atvinnu berst fyrir stofn-
un stéttarfélags. Honum verður vel á-
gengt með hjálp vina sinna og brátt
kemst hann til metorða sem áhrifamikill
verkalýðsleiðtogi. f myndinni eru atriði
sem gæti vakið ótta hjá ungum börnum.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
01.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
31. ágúst
18.00 Suiinudagshugvekja.
18.10 Andrés, Mikki og félagar. (Mickey
and Donald) Átjandi þáttur. Bandarísk
teiknimyndasyrpa frá Walt Disney. Þýð-
andi Ólöf Pétursdóttir.
18.35 Aðalstræti - Endursýning s/h.Leit-
ast er við að lýsa svipmóti Aðalstrætis og
sýna þær breytingar sem þar urðu meðan
Reykjavík óx úr litlu þorpi i höfuðborg.
Umsjónarmaður Andrés Indriðason.
Áöur á dagskrá í ágúst 1977.
19.15 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.45 Rafmagnsveitan Þessi heimildar-
mynd Tæknisýningarinnarfjallar um Raf-
magnsveitu Reykjavikur. Kvikmyndun:
Sigurður Jakobsson. Texti: Ólafur Bjarni
Guðnason. Lesari: Arnar Jónsson. Hljóð-
setning: KOT.
20.55 Frá Listahátið í Reykjavík 1986 -
Flamenkó í Broadway. Þáttur frá siðari
hluta sýningar flamenkoflokks Javier
Agra þann 1. júní sl. Stjórn upptöku: Óli
Örn Andreassen.
21.40 Masada. Fjórði þáttur. Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur. Aðalhlutverk
Peter Strauss, Peter O'Toole, Barbara
Carrera, Anthony Quayle og David
Warner. Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.30 Picasso og leyndardómur list-
sköpunar. Frönsk verðlaunamynd frá
árinu 1956 sem Henri-Georges Clouzot
gerði um listsköpun Picassos. Fylgst er
með málaranum að störlum og reynt að
komast að leyndardómi listsköpunar.
23.50 Dagskrárlok