Tíminn - 25.05.1989, Page 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 25. maí 1989
Hvernig gat Flugstöðin!
hækkað um Þjóðarbókhlöðu?
„Þeirri spurningu er enn ósvarað hvers vegna svona gat
farið. Hvernig gat hækkun framkvæmdakostnaðar (við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar) um fjárhæð sem er hærrí en
t.d. framkvæmdakostnaður ríkisins á öllum skólabygging-
um í landinu, og ámóta og öll bygging Þjóðarbókhlöðunnar
til þessa, komist í gegn án þess að nokkur tæki eftir honum
fyrr en um seinan? Þessi spurning er enn áleitnarí þegar
það er haft í huga að ekki var staðið að framkvæmdinni af
tæknilegum vanefnum né til sparað í þeim hlutum sem lúta
að áætlanagerð og stjórnun“.
Þannig spurði Indriði H. Þor-
láksson hagsýslustjóri á ráðstefnu
sem haldin var um verkefnastjóm-
un við Flugstöðina í gær, og hvort
eitthvað mætti af þeim fram-
kvæmdum læra. Og Indriði hélt
áfram:
Ekki skil á gjörðum
sínum...
„Svarið er varla einfalt og engin
ein skýring rétt. Mér sýnist Iíklegt
að rekja megi þetta að einhverju
og væntanlega verulegu leyti til
þess að heildarskipulagning á fram-
kvæmdinni var ekki með nógu
góðum hætti. Hlutverk og skyldur
einstakra aðila í því kerfi voru ekki
nægjanlega skilgreind og þeim ekki
gert að standa skil á gjörðum
sínum með réttum hætti.“
„Ákvarðanir um framkvæmdir
og eftirlit var á ábyrgð sama aðila
og sá um áætlanagerð og hönnun.
AHt þetta gerði það að verkum að
allar breytingar og frávik frá áætl-
unum voru næsta auðveld í fram-
kvæmd og kallaði ekki á þann
hvimleiða þátt að menn veltu fyrir
sér hvort breytingar kostuðu pen-
inga, og enn síður því að ástæður
væru til að afla þeirra. Fjármála-
legri stjórn var ábótavant og
heildaryfirsýn vantaði."
Þótt gerðar hafi verið haldgóðar
áætlanir um verkáfanga sagði Indr-
iði algerlega hafa láðst að gera
samanburð á áætlun fyrir heildar-
verkið, með þeim breytingum sem
hún tók í tímans rás og á upphaf-
legri áætlun og þar með þeim
fjárhagsramma sem var fyrir hendi.
„Æðsta yfirstjórn framkvæmd-
anna tekur ákvarðanir um veiga-
mikla þætti á grundvelli tillagna frá
þeim sem verkefninu stjórna, en
ekki er hirt um að koma upplýsing-
um um fjármálalegar afleiðingar
þess til skila.“
í erindi sínu hafði Indriði áður
rakið það víðtæka hlutverk sem
Fjárlaga- og hagsýslustofnun er
lögum samkvæmt ætlað varðandi
opinberar framkvæmdir og síðan
hvernig staðið var að byggingu
Flugstöðvarinnar með allt öðrum
hætti. Þegar unnið er að opinber-
um byggingum á vegum Fjárlaga-
og hagsýslustofnunar og Fram-
kvæmdadeild Innkaupastofnunar
ríkisins sagði Indriði m.a. óhjá-
kvæmilegt að gera a.m.k. einu
sinni á ári grein fyrir framkvæmda-
legri og fjárhagslegri stöðu verks-
ins og áætluðum heildarkostnaði.
Varðandi Flugstöðina var hins
vegar ákveðið með sérstökum lög-
um að yfirstjórn þeirra fram-
kvæmda yrði hjá utanríkisráðu-
neytinu. „Lög þessi eru býsna
óljós, en af greinargerð ... . má þó
ráða að lögin hafi einungis átt að
ná til fjármálalegrar og verklegrar
yfírstjómar, en að öðru leyti hafi
átt að fara eftir lögum um skipan
opinberra framkvæmda m.a. að
því er varðar skyldu til að leggja
fyrir fjármálaráðuneytið allar
breytingar á kostnaðar- og tíma-
áætlunum."
Hundruð milljóna
umfram...
Indriði kvaðst ekki fjölyrða um
hvort mikið hafi farið úrskeiðis
varðandi Flugstöðina, eða hvers
vegna. Aðeins benda á þá stað-
reynd, „að við verklok kemur í Ijós
að til þessa verks hefur verið
ráðstafað fé sem nemur hundruð-
um milljóna, meira en allar sam-
þykktir og allar áætlanir höfðu
áður gert ráð fyrir.“
... varla upp úr þurru...
„Það sem ég hef í huga er að
þessi staðreynd er ekki ný þegar
hún kemur fram, heldur hefur hún
verið á ferðinni um hendur þeirra
aðila sem áætlunum og fram-
kvæmdum stýrðu. Það fer ekki hjá
því að upplýsingar um þessa fjár-
vöntun hafi verið fyrir hendi í
áætlunum og bókhaldi.
Það sem vantar er að skipulega
hafi verið haldið utan um þessar
upplýsingar. Það vantaði heildar-
yfirsýn á hverjum tíma. Yfir fjár-
hagsstöðuna, t.d. í formi heildar-
áætlunar sem tæki við upplýsingum
á hverjum tíma. Um áfallinn
kostnað, gerðar skuldbindingar og
áætlanir um ólokna verkþætti."
„Það vantaði líka að tiltækum
upplýsingum um kostnað og skuld-
bindingar væri komið á framfæri
við fjármálayfirvöld, hvort sem
það stafaði af því að heildaryfirsýn-
ina skorti eða þau viðhorf hafi ríkt
að ekki væri þörf á slíkri upplýs-
ingamiðlun.
Þegar litið er til framkvæmda við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og at-
hugað hvað þar er sérstakt og
frábrugðið því sem almennt gerist
um opinberar framkvæmdir kemur
í ljós að afbrigði eru í undirbún-
ingsferli, í framkvæmdaferli og
fjármögnun.
Þegar á undirbúningsstigi er vik-
ið verulega frá almennum ferli.
Undirbúningurinn er unninn af
nefnd sem skipuð er af því ráðu-
neyti sem eðli málsins samkvæmt
fór með þessi mál........ þessi
áætlanagerð, bæði frumáætlun og
endanleg áætlun, fór aldrei í hend-
ur utanaðkomandi aðila til skoðun-
ar eða athugasemda."
Allt í utanríkisráðu-
neytinu; ákvarðanir,
framkvæmd og eftirlit
Indriði benti á að sú breyting að
færa yfirstjórn byggingar Flug-
stöðvarinnar til utanríkisráðuneyt-
isins hafi falið í sér að ferill um-
fjöllunar og ákvarðana Fjárlaga-
og hagsýslustofnunar féll niður.
„Hvorki áætlanir né fram-
kvæmdaákvarðanir voru lagðar
fyrir einn eða annan aðila utan
þeirra sem sóttu umboð sitt til
utanríkisráðuneytisins. Þessi
breyting þýddi líka það, að einn og
sami aðili sá um áætlanagerð og
undirbúning og tók ákvarðanir á
grundvelli þeirra, sá um fram-
kvæmd og hafði eftirlit með þeim
og stýrði fjármálum...Skipulega
uppbyggingu á nauðsynlegum
eftirlits- og boðkerfum vantaði,"
sagði Indriði. -HEI
Happdrætti
til styrktar
landgræðslu
Á síðasta ári hófst átak í landgræðslu undir orðunum
„græðum ísland - fsland græðir“. A því ári sem liðið er hafa
safnast nokkrar milljónir króna og verður þeim peningum
varið í samráði við Landgræðslu ríkisins.
Átakinu verður nú haldið áfram
og framundan er landshappdrætti til
styrktar landgræðslu og verða miðar
sendir til allra íslendinga 16-75 ára.
Vinningar verða dregnir út í stuttum
þáttum á undan fréttum Ríkissjón-
varpsins dagana 10.-18. júní, að
þjóðhátíðardeginum undanskildum.
Stjórnandi þáttanna verður Ólína
Þorvarðardóttir, fréttamaður.
Með þessu happdrætti vonast
Landgræðslan til að raungildi ráð-
stöfunarfjár verði það sama og í
fyrra, en það svaraði til um 6000
tonna af áburði, ef öll opinber
fjárveiting væri notuð til áburðar-
kaupa. Þvt er gert ráð fyrir að hlutur
almennings verði um 15% af ráð-
stöfunarfé Landgræðslunnar.
Fjölmargir aðilar styðja átakið,
bæði fjárhagslega eða með öðru
móti, og munu þeir vekja athygli á
málstaðnum og koma fram í sjón-
varpsþáttum happdrættisins.
í fréttatilkynningu frá Átaki í
landgræðslu segir m.a.: „Skuld okk-
ar við ísland er löngu fallin í gjald-
daga og við getum ekki beitt fyrir
okkur afsökunum á borð við fátækt
eða þekkingarskort, fyrir því að ná
ekki stærri áföngum í varðveislu og
endurheimt gróðurlendi landsins.
Það er íslendingum ljúf skylda en
ótvíræð, að endurheimta fyrri land-
gæði og skila landinu byggilegra til
afkomenda okkar en sú kynslóð sem
nú heldur um stjórnvölinn tók við
því.“ -gs
Krakkarnir sem fengu viðurkenningu fyrir teikningar. Þau sem hlutu önnur og fyrstu verðlaun eru til vinstri á
myndinni. Tinna Dögg Gunnarsdóttir og Helgi Páll Jónsson.
Umhverf isátak á Króknum
Umhverfismálanefnd í Sauðár-
króksbæ gekkst fyrir áróðursherferð
fyrir bættri umgengni í bænum, eink-
um meðal skólafólks. Farið var í
allar bekkjardeildir í grunnskólan-
um og rætt við nemendur um gildi
góðrar umgengni til að gera bæinn
hreinan og snyrtilegan.
Sveit Boga Sigurbjörnssonar frá
Siglufirði sigraði á Norðurlandamót-
inu í Brids sem fram fór í Félagsborg
á Akureyri nýverið. Sveit Boga hafði
nokkra yfirburði á mótinu, híaut 159
stig af 175 mögulegum.
AIIs tóku 16 sveitir af svæðinu frá
Hvammstanga til Akureyrar þátt í
mótinu, spilaðar voru 7 umferðir
eftir monradkerfi.
Eins og áður sagði hlaut sveit
Boga 159 stig, í öðru sæti varð sveit
Grettis Frímannssonar Akureyri
með 138 stig, þriðja sveit Kristjáns
Guðjónssonar Akureyri með 120
stig, fjórða sveit Gylfa Pálssonar
Akureyri 118 stig, fimmta sveit
Gunnars Berg Akureyri 115 stig og
sjötta sveit Hellusteypunnar Akur-
eyri með 112 stig. Sigursveitina skip-
uðu Ólafur og Steinar Jónssynir og
bræðurnir Anton, Ásgrímur, Bogi
og Jón Sigurbjörnssynir, þess má
geta að sveitin vann nú Norður-
landamótið í þriðja skiptið í röð og
verðlaunagrip mótsins til eignar.
Mótsstjóri var Albert Sigurðsson.
Sveit Boga Sigurbjömssonar í mótslok.
ÖÞ. Fljótuirf
Norðurlandameistarar í Brids
í þessu sambandi var efnt til
hugmyndasamkeppni meðal nem-
endanna og verðlaun veitt fyrir bestu
teikningarnar og var góð þátttaka
meðal þeirra. Fyrstu verðlaun hlaut
Helgi Páll Jónsson, fékk hann að
launum reiðhjól og önnur verðlaun,
myndavél hlaut Tinna Dögg Gunn-
arsdóttir.
Þá ætlar umhverfismálanefnd að
gangast fyrir gróðursetningu víðs-
vegar í bænum í júnímánuði og
hefur verið leitað til klúbba og
frjálsra félagasamtaka í bænum að
leggja hönd á plóginn með kaup á
plöntum eða fjárframlögum og
vinnuframlagi.