Tíminn - 25.05.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
hk
Sigurður Geirdal
Austfirðingar
Samráösfundur meö stjórn KSFA, þingmönnum og stjórnum fram-
sóknarfélaganna veröur haldinn í Valaskjálf, Egilsstööum, laugardag-
inn 27. maí kl. 14.00
Dagskrá: 1. Frá stjórn KSFA.
2. Frá störfum félaganna.
3. Frá flokknum og flokksskrifstofunni.
4. Frá alþingismönnum.
5. Verkefni framundan
a) Fundir í kjördæminu.
b) Sveitastjórnarkosningarnar 1990.
c) Næsta kjördæmisþing.
d) Önnur mál.
Á fundinn mæta: Halldór Ásgrímsson alþm., Jón Kristjánsson alþm.,
Guðmundur Bjarnason ritari, Ragnheiöur Sveinbjörnsdóttir, vararitari
og Siguröur Geirdal, framkvæmdastjóri.
Allar nánari upplýsingar hjá formanni KSFA í síma 81760 (á kvöldin.
Kjördæmissamband Framsóknarmanna á Austurlandi.
ísafjörður - Bolungarvík - Súðavík
Magdalena
Sigrún
Rabbfundur um þjóðmál, sveitarstjórnarmál og fleira, verður haldinn
í Hafnarstræti 8, Isafiröi, fimmtudaginn 25. maí kl. 20.30.
Aðalræðumaður: Magdalena Sigurðardóttir.
Gestur Landssambands framsóknarkvenna er Sígrún Sturludóttir.
Konur komið og takið þátt í léttu spjalli.
Stjórn LFK
Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson, alþingismaður, ræðir stjórnmálaviðhorfið og þing-
mál á almennum stjórnmálafundum sem hér segir:
Hofgarði, Öræfum, fimmtudaginn 25. maí kl. 20.30.
Á Djúpavogi, föstudaginn 26. maí kl. 20.30.
Landsstjórn og
framkvæmdastjorn LFK
Aðal- og varamenn eru boðaðir til fundar að Nóatúni 21, laugardag-
inn 3. júní kl. 10-16.
Dagskrá: Undirbúningur landsþings.
A. Málefni.
B. Framkvæmd.
C. Önnur mál.
Áríðandi er að tilkynna þátttöku í sima 91-24480.
Ath. breyttan fundardag.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 4322i.
K.F.R.
Fimmtudagur 25. maí 1989
Fimmtudagur 25. maí 1989
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Hestaíþróttir:
Góð þátttaka þrátt
fyrir rok og rigningu
Vonsku veður, rok og rigning, setti svip
sinn á Reykjavíkurmót barna og unglinga
í hestaiþróttum sem fram fór á félagssvæði
Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal um
síðustu helgi.
Vegna veðurs varð að fella niður hlýðni-
keppnina og keppni í hindrunarstökki.
Þátttaka í mótinu var mjög góð þrátt fyrir
veðrið og um fimmtíu börn og unglingar
mættu til Ieiks. Skráningar voru 130 sem er
með því mesta sem verið hefur í slíkum
keppnum.
Keppt var í flokkum barna 12 ára og
yngri og í unglingaflokki 13-15 ára. Þá var
sú nýbreytni tekin upp að keppt var í
sérstökum ungmennaflokki 16-20 ára, en
unglingar á þessum aldri hafa til þessa
keppt í fullorðinsflokki, þar sem keppni er
mjög hörð. í framtíðinni er stefnt að því
að keppt verði reglulega í þessum ung-
mennaflokki.
Úrslit í einstökum greinum urðu þessi:
Börn 12 ára og yngri:
Tölt:
1. Edda Rún Ragnarsdóttir á Örvari frá
Ríp í Skagafirði ...............82,13 stig
2. Daníel Jónsson á Geisla frá Kirkjubóli
í Skagafirði .................. 79,20 stig
3. Sigurður V. Matthíasson á Bróður frá
Kirkjubæ.......................... 69,60 stig
Fjórgangur:
1. Daníel Jónsson á Geisla frá Kirkjubóli
í Skagafirði ................. 45,05 stig
2. Edda Rún Ragnarsdóttir á Örvari frá
Ríp í Skagafirði ............. 48,79 stig
3. Sigurður V. Matthíasson á Bróður frá
Kirkjubæ.......................44,71 stig
Unglingar 13-15 ára:
Tölt:
1. Þorvaldur Þorvaldsson á Grýtu frá
Gerðum í Landeyjum............ 82,40 stig
2. Hjörný Snorradóttir á Þyrni frá Söðuls-
holti......................... 78,93 stig
3. Edda Sólveig Gísladóttir á Janúar frá
Keldnaholti .................. 79,73 stig
Fjórgangur:
1. Hjörný Snorradóttir á Þyrni frá Söðuls-
holti....................... 52,70 stig
2. Maríanna Gunnarsdóttir á Kolskeggi
frá Ásmundarstöðum..........51,68 stig
3. Róbert Petersen á Gjafari frá Gerðum
í Landssveit................ 47,77 stig
Fimmgangur:
1. Daníel Jónsson á Glettu frá Gíarhóli
54,20 stig
2. Róbert Petersen á Þorra frá Bakkakoti
á Rangárvöllum ............ 34,809 stig
3. Auðunn Kristjánsson á Brandi frá Hól-
um í Hornafirði............. 46,40 stig
Ungmenni 16-20 ára:
Tölt:
1. Jón Ólafur Guðmundsson á Alf frá
Akureyri................... 76,00 stig
2. Styrmir Árnason á Blæ frá Öxl í
A-Húnavatnssýslu............81,07 stig
3. Berglind Ragnarsdóttir á Freyju frá
Kirkjubæ................... 79,47 stig
Fjórgangur:
1. Álfur Þráinsson á Rökkva frá Snartar-
stöðum .................... 45,90 stig
2. Ólafur Jónsson á Soldán frá Búðarhóli
45,73 stig
3. Jón Olafur Guðmundsson á Alf frá
Akureyri................... 43,86 stig
Fimmgangur:
1. Haraldur Briem á Sváfni frá Hóli í
Skagafirði .................. 49,40 stig
2. Styrmir Árnason á Sváfni frá Hóli í
Skagafirði ................ 46,40 stig
3. Arnar Bjarnason á Móse frá Varmalæk
f Skagafirði .............. 40,60 stig
BL
Hestaíþróttir:
Hestamenn í ÍSÍ
Sérsamband hestamanna stofnað á þessu ári - Fimmgangur senn Ólympíugrein
Miklar líkur eru á því að nýtt sérsam-
band verði stofnað innan ÍSÍ á þessu ári.
Það eru íþróttadeildir hestamannafélag-
anna sem aðilar verða að hinu nýja
sérsambandi hestamanna.
„Það hefur verið kappsmál hesta-
manna að fá aðild að ÍSI fyrir íþrótta-
deildir sínar, s.l. 15 ár,“ sagði Þorgeir
Ingvason framkvæmdastjóri Hesta-
mannafélagsins Fáks í samtali við Tímann
í gær.
„Það eru nokkur ár síðan að íþrótta-
deild Fáks fékk aðild að ÍBR og fulltrúar
frá okkur hafa setið þing ÍBR og íþrótta-
þing fSÍ. Það er því Ijóst að hestaíþróttir
eru komnar ínní íþróftahreyfinguna, en
sérstakt sérsamband hestaíþróttamanna
verður að öllum líkindum stofnað á þessu
an.
Þorgeir sagði að útbreiðsla íslenska
hestsins yrði sifellt meiri, hann væri
kominn um alla Evrópu, til Bandaríkj-
anna og hann væri nú að hefja innrás í
Asíu. Þorgeir sagði að þess yrði ekki
langt að bíða að fimmgangur yrði ÓI-
ympíugrcin, en íslenski hesturinn er sá
eini sem hefur fimmgang.
Þá má þess geta að Islendingar eiga
heimsmeistara í hesfaíþróttum, en sífellt
taka keppendur frá fleiri þjóðum þátt í
keppnum þar sem íslenski hesturinn er
reiðskjótinn. BL
Körfuknattleikur:
Valsmenn missa
Tómas og Hrein
Jón Kr. Gíslason til
Valsmenn verða fyrir mikilli blóð-
töku í körfuknattleiknum næsta
vetur, því tveir þeirra bestu menn
s.l. vetur eru í leið frá félaginu.
Tómas Holton verður að öllum
líkindum í námi ■ Noregi næsta vetur
og Hreinn Þorkelsson hefur gerst
skólastjóri barnaskóla á Egilsstöð-
um.
Þetta er mikill missir fyrir
Valsmenn, sem í fyrra misstu Leif
Gústafsson til Danmerkur, þar sem
i Danmörku
í námi. Þá lagði
Knattspyrna:
Stórleikur
í kvöld
í kvöld verður stórleikur í 1.
deildinni í knattspyrnu,
Hörpudcildinni, er Valsmenn
fá Skagamenn í heimsókn að
Hliðarcnda.
í Kcflavík taka heimamenn
á móti FH-ingum og hefjast
báðir þessir leikir kl. 20.00. BL
SISU
hann er í námi. Þá lagði Torfi
Magnússon skóna á hilluna og mun-
ar um minna. Það er því víst að
Valsmenn verða að ná sér í góðan
erlendan leikmann fyrir næsta
keppnistímabil.
Keflvíkingar hafa einnig misst
spón úr aski sínum, því þjálfari
þeirra s.l. vetur, Jón Kr. Gíslason
ætlar að freista gæfunnar í Dan-
mörku og leika með liði SISU.
Þorsteinn Hallgrímsson ÍR-ingurlék
með SISU hér á árum áður, er liðið
varð danskur meistari ár eftir ár. Jón
Kr. átti stóran þátt í því að Keflvík-
ingar urðu fslendsmeistarar í vetur í
fyrsts sinn.
Erlendir leikmenn hafa nú verið
leyfðir á ný, en líklegt er að félögin
fari hægt í sakirnar varðandi erlenda
leikmenn og jafnvel er búist við því
að mörg félög verði án útlendinga.
Njarðvíkingar munu endurheimta
nokkra af „gömlum“ leikmönnum
sínum, þar á meðal Jóhannes Krist-
björnsson úr KR og Ástþór Ingason
úr Grindavík. Þá er líklegt að Valur
Ingimundarson snúi á ný heim á leið
eftir einn vetur hjá Tindastóli á
Sauðárkróki. BL
Hollcndingarnir í liði AC Mílan
höfðu ástæðu til að fagna í gærkvöld
er lið þeirra varð Evrópumeistari í
knattspyrnu.
MARGT SMATT
London. Það verða Blackburn
og Crystal Palace sem leika munu
um sæti í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar að ári. í gærkvöld voru síðari
leikir í 4-liða úrslitum í aukakeppn-
inni um lausa sætið. Palace vann
Swindon 2-0 (samanlagt 2-1) og
Watford og Blackburn gerðu jafn-
tefli 1-1. Blackburn komst áfram á
marki á útivelli. í 4. deild leika
Leyton Orient og Wrexham um
laust sæti í 3. deild, en Scarborough
og Scunthorpe verða áfram í 4.
deild.
New York. Detroit Pistons
tókst að jafna metin gegn Chicago
Bulls ( úrslitum austurdeildar NBÁ-
körfuknattleiksins í fyrrakvöld. Pist-
ons unnu þá 100-91 á heimavelli, en
næstu tveir leikir verða í Chicago. í
úrslitum vesturdeildarinnar hefur
Los Angeles Lakers 2-0 yfir á móti
Phoenix Suns eftir 101-95 sigur í
Forum í fyrrakvöld. Næstu leikir
verða í Phoenix.
London. Rycky Hill, fyrrum
leikmaður með enska landsliðinu í
knattspyrnu, hefur gert samning við
franska 2. deildarliðið Le Havre.
Hiil hefur undanfarin 15 ár leikið
með Luton og eru leikir hans með
liðinu orðnir 507 talsins. Fyrrum
félagi Hill í Luton. Brian Stein.
leikur með Cannes og kann þar vel
við sig. Hill segist hafa haft hug á í
nokkurn tíma að leika á meginland-
inu og honum leist vel á aðstæður
hjá Le Havre þegar hann skrapp
þangað í heimsókn.
Hagen v -Þýskalandi. í gærkvöld
hófst keppni á Super Cup mótinu í
körfuknattleik í V-Þýskalandi. í A-
riðli urðu úrslit þau að V-Þýskaland
vann Bandaríkin 114-94 og í B-riðli
unnu Júgóslavar ítali 74-61.
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Gullit og van Basten sáu
um Steaua Búkarest
Hollendingarnir þrír í liði AC
Mílan, þeir Ruud Gullit, Marco van
Basten og Frank Rijkaard, fór á
kostum í gærkvöld er AC Mílan
tryggði sér Evrópumeistaratitil fé-
lagsliða í knattspyrnu í þriðja sinn.
Þeir félagar sýndu og sönnuðu að
það var engin tilviljun að þeir urðu
í þremur efstu sætunum í kjöri
knattspyrnumanns Evrópu í vetur.
Leikmenn AC Mílan höfðu mikla
yfirburði yfir leikmenn Steaua Búka-
Mipptð hér
rest og réðu lögum og lofum á
vellinum allan tímann. Leikurinn
fór fram á Nou Camp leikvanginum
í Barcelona á Spáni að viðstöddum
um 97 þúsund áhorfendum.
Ruud Gullit skoraði fyrsta markið
á 18. mín. en Marco van Basten
bætti öðru við á 28. mín. Gullit var
aftur á ferðinni á 39. mín. og þannig
var staðan í hálfleik. I upphafi síðari
hálfleiks bætti Marco van Basten við
fjórða markinu fyrir Mílan liðið og
fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir
mörg tækifæri ítalska liðsins. Piedro
Paulo Virdis skaut yfir úr opnu færi
undir lok leiksins, en hann hafði
komið inná í stað Ruud Gullit á 60.
mín.
AC Mílan vann sigur í Evrópu-
keppni meistaraliða 1963 og 1969,
en Steaua Búkarest sigraði í keppn-
inni 1986, eftir að hafa haft betur í
vítaspyrnukeppni gegn Barcelona í
Sevilla. í fyrra var það hollenska
liðið PSV Eindhoven sem sigraði í
keppninni.
Leikmönnum Steaua liðsins hafði
verið lofað luxus bifreiðum og rífleg-
um aukagreiðslum, tækist þeim að
hreppa Evrópubikarinn. Ford bif-
reiðaverksmiðjurnar eru meðal
styrktaraðila Steaua liðsins. Þeir
vcrða því áfram að láta Lödurnar
duga, leikmenn liðsins, en þetta
gengur bara vonandi betur næst. BL
Hreinn Þorkelsson leikur ekki með Valsmönnum næsta
vetur. Tímamynd Pjetur.
Tíminn
□ ER ÁSKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
□
□
Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út: I TTTT
Nafnnr.:
TTT
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJALDS
Ég undirrituö/aður óska þess að áskriftar-
gjald Tímems verði mánaðaríega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDI:.............................................
HEIMILI:................................................
PÓSTNR. - STAÐUR:.................. SÍMI:............... SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK
Leiguflug
Útsýnisflug
Flugskóli
Viðskiptafólk athugið
að oft er hagkvæmara
að leigja vél í ferðina -
innanlands eða til útlanda.
4-10 sæta vélartil reiðu.
FLUGTAK
1
Gamla Flugturninum
Reykjavikurflugvelli
101 Reykjavik
Simi 28122
Telex ir ice is 2337
Fax 91-688663
Möldursf.
inBgg£g 1 aafag-L J
„JNHIHHHHHHXuSSXuHHHNHHHLfc^J
ESTUNARARTLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........25/5
Flvassafell.......20)6
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlk
SlMI 698100
fa
!AKN IRAIJSIRA H.IJIÍVINftA