Tíminn - 25.05.1989, Page 9

Tíminn - 25.05.1989, Page 9
Fimmtudagur 25. maí 1989 Tíminn 9 VETTVANGUR Einar Freyr: I tilefni af heimsókn páfa Það ætti að vera siðferðileg skylda íslendinga að taka vel á móti Jóhannesi Páli II páfa þar sem hann er nú einn af mestu friðflytjendum heimsins og hefur í mörg ár ferðast um lönd og ríki til að vinna að sættum manna og friði á jörð. í tilefni af þessari merku og jákvæðu heimsókn langar mig til að minnast á annan páfa sem einnig var mjög merkur og einn af stærstu fulltrúum húmanismans. aði þannig að hinni þjóðfélagslegu Páfinn Nicholas V. (1447-55) Nicholas V. varð páfi 1447. Hann hét upphaflega Tomaso Ra- inallucci. Þótt faðir hans væri lækn- ir þá voru foreldrar hans af alþýðu- fólki komnir. Hann var fæddur 1397 í Sarzana og sem ungur húm- anisti kallaði hann sig Tomaso da Sarzana. Sem húmanisti varðTom- aso einn af embættismönnum páf- ans Eugen IV. þegar sá síðarnefndi var landflótta í Flórens. Það kom í hlut Tomaso da Sarzana að koma upp og skipuleggja hið nýja bóka- safn í Flórens sem Cosimo de’Me- dici lét reisa um þessar mundir. Þetta var eitt af fyrstu opinberu bókasöfnum á Ítalíu og þótt víðar væri leitað. Nokkru seinna eða 1444 varð Tomaso da Sarzana biskup í Bologna og síðar páfi í Róm og tók sér nafnið Nicholas V. Vegna þess að Nicholas V. var mikill stuðningsmaður de’Medici ættarinnar og þar með einn af frumkvöðlum endurreisnartíma- bilsins er nauðsynlegt að varpa dálítilli birtu yfir atburði í Flórens á þessum tímum. Þótt hin pólitíska barátta á þess- um tímum væri með allt öðrum hætti en nú tíðkast þá verður ekki rangt að tala um hægri og vinstri pólitík í Flórens á 15. öld. Þegar mótsetningamar milli stórfyrir- tækjanna og hinna lægri stétta í Flórens voru orðnar mjög miklar, þá var það de’Medici ættin sem tók málstað og studdi hinar fátæku undirstéttir er áttu í útistöðum við hina ríkju verksmiðjueigendur. Það var ekki eingöngu góðvild sem réði slíkri afstöðu, heldur ekkert síður heilbrigð skynsemi. Vegna stuðnings við hinar vinn- andi stéttir varð Cosimo de’Medici gerður útlægur frá Flórens og vísað til Padúa. Cosimo tilheyrði Lýð- ræðisflokknum sem árið eftir vann sigur í kosningunum eða 1434. Þegar Cosimo fór í útlegð til Padúa þá var hann einn af ríkustu mönn- um Flórens, og þegar hann kom aftur til Flórens og tók við borgar- ráðinu (Signoria), varð hann brátt valdamesti maður borgarinnar. En hann varð það ekki vegna auðæfa sinna, heldur vegna gáfna sinna og annarra mannkosta. Með snilli sinni og góðvild og með hjálp Lýðræðisflokksins tókst Cosimo að ná miklum völdum. Hann var fjármálasnillingur og til- heyrði hinum jákvæðu kaupmönn- um eins og fyrstu heimspekingamir frá Míletos. Hann lét reisa klaust- ur, kirkjur, skóla og sjúkrahús. Hann stofnaði eitt af allra fyrstu bókasöfnum Ítalíu. Það hefur verið reiknað út að hann hafi gefið 400.000 gullflóríur til fátæklinga og opinberra bygginga. Áríðandi er að minna á það, að Cosimo de’Medici stjórnaði Flórens án vopna og án þess að bera sérstakan titil. Það var Cosimo sem fyrstur manna fékk ungt fólk til að læra gríska tungu, en grískan hafði ekki áður verið námsgrein á Ítalíu. Sjálfur nam hann grísku og hóf lestur grískra heimspekirita. Hann lánaði öðrum ríkjum, konungum og furstum mikla peninga og stuðl- þróun. Sagt var, að með skipum sínum hafi hann flutt inn kryddvör- ur frá Indlandi og grískar bækur og handrit með sömu skipum. Hann notaði auðæfi sín í þágu mannkyns- ins. Það hefði verið mjög erfitt fyrir Cosimo að vinna þannig að uppbyggingu endurreisnartíma- bilsins ef hann hefði ekki notið mikils stuðnings páfans Nocholas V. borið fyrir hinum fornu menning- arverðmætum. Þegar þessir villi- menn höfðu eyðilagt bysantiska bókasafnið, fluttu margir gáfaðir grískir menntamenn til Ítalíu. Sumir þeirra hófu kennslu í grísku í húsi Cosimo de’Medici í Flórens. Fall Miklagarðs verkaði sem taugaáfall á Evrópubúa svo meira að segja páfinn Nicholas V. varð miður sín. Hærðsla greip um sig og varð meiri en ástæða var til. Því miður varð hræðslan til þess að efla hin herskáu öfl meira en nauðsyn krafði. Hinir frumstæðu einstakl- ingar höfðu bætt aðstöðu sína í lífsbáráttunni. Slíkt boðaði ekki gott. En þrátt fyrir þetta hélt þróun húmanismans áfram að verka í Flórens. Með Flórens sem fyrirmynd hófu lllllHSfelS?* Jóhannes Páll II veitir blessun af svölum Péturskirkjunnar í Róm daginn sem hann var kjörinn páfl. II. Cosimo de’Medici notaði pen- ingana sem tæki til að efla menn- ingu fólksins, en hjá óvinum hans voru peningarnir takmark í sjálfu sér. Cosimo, sem gerði menninguna að takmarki, gat stjórnað ríkinu án vopna af því að fólkið tileinkaði sér hina heilbrigðu skynsemi. En hinir sem gerðu pen- ingana og auðæfin að takmarki þurfa að stjóma ríkinu með vopnum. Þennan lærdóm mátti draga af þróun húmanismans og endurreisnartímabilsinu á dögum Cosimo. Afstaða einstaklinga til peninga er því mjög þýðingarmikil. Fmmstæðir einstaklingar sem hafa mikla peninga eru í raun og vem mjög hættulegir fyrir allt sem lifir á jörðinni. Það var vissulega margt sem gat ógnað hinni jákvæðu húmanísku þróun í Flórens á þessum tímum meðal annars fmmstæðir og valda- sjúkir menn sem af öfund hötuðu Cosimo, hættuleg dulhyggja sem þróaðist í hinum ýmsu ídaustmm, frumstæðir furstar og konungar er lögðu áherslu á vopnavald, barátta innan kirkjunnar milli húmanista og dulhyggjumanna og einnig hætt- an frá hinum svo kölluðu aristó- krötum sem gerðu sér alltof háar hugmyndir um sitt ágæti og voru í raun og veru mjög frumstæðir í skoðunum þegar til kastanna kom. Árið 1453 hertóku Tyrkir Mikla- garð (Konstantínópel) og lögðu borgina í rúst. Með falli borgarinn- ar voru mörg fegurstu og dýrmæt- ustu listaverk grískrar menningar eyðilögð, mörg sígild grísk handrit voru rifin sundur eða brennd. En þarna voru ekki aðeins Tyrkir að verki heldur einnig Fransmenn, Feneyingar og ýmsir frumstæðir kaupmenn sem enga virðingu gátu hin ýmsu borgríki á Ítalíu að keppa sín á milli um að fá til sín einhverja af hinum gáfuðu húmanistum til að efla menntun, menningarlílf og heiður borgarinnar. Að reyna að koma gáfuðu hæfileikafólki fyrir kattarnef var talinn hinn versti glæpur. Hinir grísku kennarar í Flórens lögðu áherslu á hinn hljómfagra attíska framburð grískunnar. Rit Platons og annarra Grikkja voru lesin með alveg nýjum hætti, sem ekki hafði áður þekkst í Evrópu. Jafnvel guðsþjónusturnar í Flórens höfðu gagn af þessum nýju grísku áhrifum, umburðarlyndi meðal hins venjulega fólks varð meira en áður og kristindómurinn varð dýpri. Margir lærðir menn úti í Evrópu fóru til Flórens til að læra grísku. Grískan varð einnig til þess að auka áhuga manna á hinum Iatn- esku klassísku ritum eins og m.a. ritum Marcus Fabius Quintilianus- ar. Þessar fornu klassísku bók- menntir opnuðu Evrópubúum nýja andlega heimsálfu sem varð bæði styrkur og góð vörn meðal annars gegn hinum mjög svo andlega sjúku áhrifum frá dulhyggju sumra klaustranna. En þá eins og nú á dögum, fannst lítil sem engin vörn gegn hinum frumstæðu mönnum er reyndu að útrýma gáfuðum ein- staklingum með einhverju móti, lygum og rógi eða dauða, og þannig draga úr orðstír þjóðarinnar. III. Frægt dæmi um slíka frumstæða einstaklinga er frá sunnudeginum 26. apríl 1469 þegar hin mjög svo öfundsjúka Pazzi ætt, hafði ákveð- ið, með utankomandi hjálp, að bókstaflega útrýma de’Medici ætt- inni, gera út af við hana í eitt skipti fyrir öll. Öfundin og hatrið átti sér engin takmörk. Meðal annars var ákveðið að myrða de’Medici bræðurna Lorenzo og Giuliano við hátíðarmessuna í sjálfri kirkjunni. Alþýðan í Flórens kallaði þetta „tyranmorðið", eða harðstjóra- morðið. Þennan dag var Giuliano veikur og ætlaði ekki til kirkju. En hinn frumstæði Jacop Pazzi fór sjálfur heim til Giuliano undir yfirskini vináttu og vildi fá hann til hámess- unnar. Þegar bræðurnir féllu á kné fyrir altarinu, réðust morðingjanir til atlögu og hjuggu í sundur höfuð Giulianos. En morðinginn sem átti að drepa Lorenzo hikaði lítið eitt, en það nægði til þess að Lorenzo tókst að hlaupa á braut. Á svo að segja sömu stundu og þetta gerðist, þá kom erkibiskupinn Jacopo Sal- viati af Pisa, með herlið og hélt til Plazzo della Signoria til að hertaka borgarráðshúsið, en lið hans var afvopnað og tekið til fanga. Hinn frumstæði Jacop Pazzi reyndi sam- tímis að fá alla íbúa Flórensborgar til að gera uppreisn gegn de’Medici ættinni, en fólkið svaraði með herópi gegn Pazzi. Fólkið sjálft handtók bæði Jacop og Francenoc Pazzi ásamt mörgum liðsmönnum þeirra. Á þessum dögum var hin and- Iega menning í Flórens komin á það stig, að fólk almennt gat séð í gegnum hina frumstæðu menn sem ætluðu sér að útrýma de’Medici ættinni og komast sjálfir til valda. í þeta skipti biðu hinir öfundsjúku og frumstæðu menn ósigur. Eftir þessi átök var stofnað hið svo kallaða Sjötíumannaráð í Flór- ens sem átti að hafa eftirlit með kosningum í borgarráðið eða Sign- oríuna. Þetta ráð kaus tvennar nefndir til sex mánaða. 8 menn sem áttu að sjá um utanríkismál og 12, sem áttu að sjá um innanríkis- mál. Þegar þetta gerðist var Lorenzo de’Medici aðeins 20 ára og átti eftir að vinna sín miklu menningarafrek í þágu húmanismans og öðlast nafnið il magnifico, hinn stórkost- . legi. Það er löngu kunnugt, að de’Me- dici ættin hjálpaði öllu fólki sem i átti við erfiðleika að búa í Flórens, og sérstök áhersla var lögð á það styðja hæfileikafólk á hinum ýmsu sviðum. Skáld, rithöfundar og listamenn fengu sérstakan stuðning eins og frægt er orðið. Að t.d. koma miklu hæfileika- fólki fyrir kattarnef, en styðja ein- göngu þriðjaflokks rithöfunda eins og nú er vanalegt, þekktist ekki á dögum de’Medici ættarinnar í Flórens. IV. Stuðningur páfans Nocholas V. við hina húmanísku menningu í Flórens er alkunnur. Nicholas V. var sannkristinn og setti á laggirnar bókasafn Vatikansins í Róm og fyllti það með klassískum grískum bókmenntum. Þessi húmaníska menningar- þróun sem Nicholas V. studdi, var í raun og veru undirstaða endur- reisnartímabilsins. Það var þessi þróun sem leiddi fram menn eins og meðal annars Erasmus Roder- odamus og William Shakespeare. En þekking okkar á framgangi hinna frumstæðu manna sem mót- að hafa hina neikvæðu félagslegu þróun nútímans er því miður alltof lítil, og enn er of lítið gert til þess að hægt sé að rannsaka þessa frumstæðu einstaklinga sem fengið hafa að ráða svo miklu og svo lengi og sem leitt hefur yfir þjóðir stríð og aðrar hörmungar, ofsækja flest allt hæfileikafólk og vilja aðeins leyfa þriðjaflokks blaðamönnum og þriðjaflokks rithöfundum að starfa. Slík neikvæð þróun er í raun og veru miklu hættulegri fyrir smáþjóð en þótt hún hafi t.d. félagsskap á borð við Greenpeace á móti sér. Merkur sálfræðingur sem fengist hefur við rannsóknir á slíkum nei- kvæðum og frumstæðum einstakl- ingum vitnar í einu riti sínu í þýska skáldið H. Heine þar sem finna má hin stranglega bönnuðu sannindi um slíka frumstæða menn og hið innra hugarfar þeirra: „Ég hef hið friðsamasta sinni. Ósk mín er: látlaus bústaður, hálmþak, þægiiegt rúm, góðan mat, mjólk og smjör, mikið græn- meti, blóm við gluggann, fögur tré við innganginn, og ef góður Guð vill gera mig fullkomlega hamingju- saman, lætur hann mig fá að upplifa þá ánægju, að sjá sex eða sjö óvini mína hengda í þessum trjám. Með hrærðu hjarta mun ég fyrirgefa þeim rangindi þeirra áður en þeir deyja, já, maður á að fyrirgefa óvinum sínum, en ekki fyrr en þeir hafa verið hengdir.“ Skáldið Heine gerði sér ljósa grein fyrir dauðaóskum hinna frumstæðu og öfundsjúku manna sem þola ekki gáfað fólk sem vinnur að jákvæðri menningu og gerir miklar kröfur til opinberra stofnana og starfsmanna þeirra. Nú á dögum þegar Jóhannes Páll II heimsækir fsland er ekki úr vegi að hugleiða hin jákvæðu störf hinna gömlu kaþólsku páfa eins og hins mikla húmanista Nicholas V. Lengi lifi friðarbarátta Jóhann- esar Páls II. páfa. Gautaborg í maí 1989. Einar Freyr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.