Tíminn - 25.05.1989, Síða 12

Tíminn - 25.05.1989, Síða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 25. maí 1989 FRÉTTAYFIRLIT PEKING - Mótmæli og verk- föll halda áfram í höfuðborg Kina þar sem kínverskir stúd- entar hafa lagt undir sig Torg hins himneska friðar, nú hátt á aðra viku. Erlendir frétta- skýrendur telja að enn sé ekki útséð um hver hafi yfir í valda- baráttu harðlínumannsins Lj Peng og umbótasinnans Zhai Ziyang, sem er formaður kín- verska kommúnistaflokksins. Stúdentar og aðrir mótmæl- endur bíða nú komu Wan Li, þingforseta, sem stytti opin- bera heimsókn sina til Banda- ríkjanna vegna róstanna. HONG KONG - Öll undir- búningsvinna við stjórnarskrá Hong Kong sem gilda á eftir 1997, þegar þessi breska ný- lenda verour hluti af Kínaveldi, hefur verið lögð niður þar til niðurstaða fæst í mótmælun- um í Kína. Sérstök nefnd Hong Kong-manna sem unnið hefur að undirbúningi grundvallar- laganna taldi atburðina i Kína hafa rýrt traust almennings þar í landi. VARSJÁ - Setuverkfall stúdenta breiðist út um pólska háskóla vegna þess að dóm- stólar þar neituðu að viður- kenna verkalýðsfélag stúd- enta, NZS á þeim forsendum að það vilji fá verkfallsrétt. Kommúnistastjórnin í Póllandi leyfði starfsemi verkalýðsfé- lagsins Einingar eftir viðræður vio stjórnarandstöðuna. KABUL - Skriðdrekar og önnur vopn streyma nú frá Sovétríkjunum inn í höfuðborg Afganistans. Þessi hernaðar- stuðningur við stjórnina kemur aðeins nokkrum dögum eftir að Najibullah forseti hvatti leið- toga skæruliða til að taka þátt í friðarviðræðum, þar sem eng- in von væri fyrir þá á hernaðar- . sigri. Skotárásir Palestínumanna síðustu daga á ísraelska hermenn hafa valdið mönnum verulegum áhyggjum vegna þess að þær eru taldar benda til að uppreisnin þróist yfir í vopnaða borgarastyrjöld. Spennan á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum vex og menn hafa verulegar NIKÓSÍA - Iranar fagna nú einum sínum stærsta sigri gegn Irökum. Trúarleiðtogi þeirra, Ayatollah Khomeini, er að jafna sig eftir skurðaðgerö sem gerð var á honum til að stöðva innvortis blæðingar. Khomeini, 86 ára, hefur enn ekki fundið sér eftirmann. PARÍS - Einn mesti stríðs- glæpamaður Frakklands, Paul Touvier, var handtekinn eftir að hafa verið á flótta í 45 ár. Franska útvarpið sagði að kirkjunnar menn hefðu skotið yfir hann skjólshúsi allt frá stríðslokum. W áhyggjur af stigmögnun átakanna: Ottast að uppreisnin þróist í vopnuð átðk ísraelskir hermenn urðu fyrir skotárás í gær, í fjórða sinn í þessari viku. Áhyggjur manna í ísrael fara nú vaxandi af því að uppreisn Palestínumanna sem hófst fyrir um 17 mánuðum sé að þróast yfir í vopnaða styrjöld. CASABLANCA - Fundur Arababandalagsins hófst á friðsamlegum nótum, og enn hafa engar harðorðar sam- þykktir verið gerðar um deilu Líbýumanna og Palestínu- manna. PANAMA - Ríkisstjórn og stjórnarandstaða í Panama tóku fyrir allar sáttaumleitanir bandarískrar nefndar sem falið var að reyna að leysa deilur vegna kosninganna þar á dögunum. JÓHANNESARBORG- Tveir hvítir menn frá Suður- Afríku voru hengdir fyrir morð, en tveir svartir landar þeirra sluppu fyrir horn vegna fram- göngu lögfræðinga þeirra, en þá átti að hengja líka. Fjór- menningarnir höfðu allir reynt að fá dóminn mildaðan. — Árásin í gær var á fótgangandi hermenn í arabahluta Bethlehem, sem er 35.000 manna bær á Vestur- bakkanum. Þessi árás kemur í kjöl- far áskorunar leiðtoga uppreisnar- innar um að gjalda líku líkt, að einn ísraelskur hermaður eða landnemi skuli falla fyrir hvern Palestínumann sem drepinn er af ísraelum. Enginn særðist þó í þessari árás, en herinn fyrirskipaði útgöngubann í bænum sem náði jafnt til múslíma og krist- inna manna á meðan leitað var að grunsamlegu fólki sem gæti hafa staðið að tilræðinu. Talið er að aukinn fjöldi skotárása á ísraelska hermenn að undanförnu og tónninn í þeim dreifibréfum sem aðstandendur uppreisnasinnar hafa dreift síðustu daga bendi eindregið til þess að deilan sé að stigmagnast og gæti jafnvel leitt til almennra vopnaðra átaka Palestínumanna og ísraela. Joel Greenberg, sem er > ■ kunnur-dálkahöfundur í Jer-usalem- Post skrifaði í blað sitt í vikunni og telur að þetta sé einmitt raunin. Forysta PLO, sem hefur aðsetur í Túnis segist ekki kannast við að dreifibréf sem hvetja til vopnaðra átaka hafi verið gefin út á hennar vegum, en fréttaskýrendur segja að það bendi til klofnings í röðum Palestínumanna um baráttuaðferðir á hernumdu svæðunum. Segja fréttaskýrendurnir að klofningurinn sé á milli þeirra sem vilji nú þegar beina baráttunni inn á vopnaðar brautir annars vegar og svo hinna sem vilja bíða lengur og sjá hvort alþjóðlegur þrýstingur á ísraels- menn verði þeim ekki svo þungbær að þeir neyðist til að gefa eftir og gera tilslakanir. Síðastliðinn mánudag var skotið á lögreglusveit í eftirlitsferð og sama dag skaut maður í bíl með sjálfvirkri byssu á þrjá ísraela sem stóðu í vegkanti við þjóðbraut í-suðurhluta ísraels. Enginn slasaðist í þessum árásum. Hins vegar braust út skot- bardagi sl. föstudag sem var sá blóðugasti síðan uppreisnin hófst. Einn Israeli dó í þeim bardaga og þrír Palestínumenn. Herinn sagði að þessir þrír Palestínumenn hafi verið eftirlýstir fyrir að hafa ráðist á araba sem taldir voru hafa veitt ísraelsmönnum aðstoð. Vopnaðar árásir sem þessar ganga í berhögg við yfirlýsta stefnu PLO um baráttuaðferðir á herteknu svæð- unum. PLO hefur lagt áherslu á „steinkasts-mótmæli“, sem eru lík- leg til þess að vekja upp samúð umheimsins á málstað Palestínu- manna. Ýmsir hafa fullyrt að það séu róttækir hópar araba sem standa á bakvið þessar skotárásir í þeim tilgangi að eyðileggja þann vísi að friðarumleitunum sem verið hefur milli Palestínumanna og ísraels- manna. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels var í Madrid á Spáni í vikunni og varnarmálaráðherrann Yitzhak Rabin var í Washington um svipað leyti og voru þeir báðir að reyna að afla tillögum sínum fylgis, en þær gera ráð fyrir að að Palestínumenn á herteknu svæðunum fái að-kjósa- sér samningamenn til að semja frið við ísraelsstjóm. Shaike Erez, hershöfðingi og yfir- maður stjórnsýslu á Vesturbakkan- um hefur átt fund með 10 palestínsk- um aðilum og gert þeim grein fyrir friðaráætlun stjórnar sinnar, en allir leiðtogar upreisnarinnar og leiðtog- ar PLO hafa vísað þessum áformum á bug. Á sama tíma hefur yfirmaður herafla ísraelsmanna lýst yfir áhyggjum sínum vegna ofsafenginna viðbragða ísraelskra landnema á hernumdu svæðunum sem vilja hefna fyrir skaða af steinkasti Pales- tínumanna. Hann varaði þingnefnd við því að hægri sinnaðir ísraelskir stjórnmálamenn hvettu landnemana til hefndaraðgerða á Vesturbakkan- um og Gaza, en á þessum svæðum eru nú um 70.000 landnemar búnir að taka sér bólfestu. Á Gaza svæðinu skutu ísraelskir hermenn á a.m.k. 7 Palestínumenn sl. miðvikudag, sam- kvæmt upplýsingum frá sjúkrahús- um, þar á meðal fékk 3 ára barn skot í eyra og sjötug kona fékk skot í andlitið. Ástandið á þessu svæði má því, að dómi yfirmanns ísraelska heraflans, ekki við því að hefndar- - verk-landnema auki^ftn-á-epennuna.'-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.