Tíminn - 25.05.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 25.05.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 25. maí 1989 Tíminn 19 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Haustbruður u;iKi'f:i aí ; RhrVK|AVlKl)R SVEITASINFÓNÍA eftir Ragnar Arnalds Laugardag 27. maí kl. 20.30 Sunnudag 28. maí kl. 20.30 Aðeins sex sýningar eftir Bókmenntadagskrá 3. bekkjar Leiklistarskóla íslands og Leikfélags Reykjavíkur um ást og erótík Fimmtudag 25. maí kl. 17.00. Miðasala t Iðnó simi 16620. Nýtt leikrit eftir Þórunni Sigurðardóttur Föstudag kl. 20.00. Uppseit. Sunnudag 4.6 kl. 20.00 Aukasýning. Siðasta sýning á þessu leikári. Ofviðrið eftir William Shakespeare Miðasalan er opin daglega kl. 14-19 og fram að sýningu þá daga sem leikið er. Símapantanir virka daga frá kl. 10-12. Einnig símsala með VISAog EURO á sama tíma. Nú er verið að taka á móti pöntunum til 11. júnf 1989. NAUST VESTURGÖTU 6-8 eftir William Shakespeare Þýðing: Helgi Hálfdanarson i kvöld kl. 20.00. Sfðasta sýning. HVÖRF Fjórir ballettar eftir Hlif Svavarsdóttur Laugardag kl. 19.00 8. sýning. Athugið breyttan sýningartíma Sunnudag kl. 20.00 9. sýning. Síðasta sýning. Áskrittarkort gilda Bílaverkstæði Badda eftir Ólaf Hauk Símonarson. LEIKFERÐ: 12.-15. júní kl. 21 Vestmannaeyjum Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Símapantanir einnig frá kl. 10-12. Sími 11200. Leikhúskjallarinn er opinn öll sýningarkvöld frá kl. 18.00. Lelkhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíð og miði á gjafverði. SAMKORT Borðapantanir 17759 Eldhús 17758 Simonarsalur 17759 Brigitte Nielsen er leið á að vera alltaf í hlutverki „heimsku ljóskunnar". Hún segist vera viss um að fengi hún gott taekifæri, þá gæti hún sýnt góðan og áhrifamikinn leik. I maímánuði mun Brigitte Nielsen koma fram í CBS-sjónvarpsmynd sem kölluð er „Morð á mánanum" (Murder on the Moon) og þar segist hún ætla að láta ljós sitt skína sem leikkona. „Ég er send til tunglstöðvar þar sem er stunduð leit að dýrmætum málum, og þar á ég að upplýsa hræðilegt morð," segir Brigitte. „Persónan sem ég leik er þrisvar sinnum fráskilin, - svo ég ætti að geta sett mig í fótspor hennar. Ég get dregið ýmsan lærdóm af samskiptum okkar Sylvesters (Stallone)". Hér má sjá Poul Schluter forsætisráðherra Danmmerkur með Lisbeth eiginkonu sinni heitinni ásamt þeim hjónunum Steingrímil Hermannssyni og Eddu Guðmundsdóttur í veislu sem haldin var á Hótel Sögu árið 1984 þegar dönsku forsætisráðherrahjóninl komu í opinbera heimsókn til íslands. Nú hefur Schliiter fundið sér nýjan lífsförunaut eftir fráfall Lisbethar. Verðandi eiginkonal Schluters er Annie Marie Vessel framkvæmdastjóri Hins konunglega danska ballettskóla. 1 Poul Schluter giftir sig í þriðja skipti Poul Schluter sem verið hefur forsætisráðherra Dan- merkur frá þvf árið 1982 hyggst nú ganga í það heilaga í þriðja skipti. Schluter missti Lisbeth aðra eiginkonu sína úr krabbameini í febrúar- mánuði 1988, en hún hafði átt í harðri baráttu við krabb- ann um nokkurt skeið og tók Schluter fráfall hennar mjög nærri sér. Nú hefur hann aftur fundið hamingjuna hjá hinni fertugu Anne Marie Vessel, en hún er framkvæmdastjóri Hins konunglega danska ballett- skóla. Poul Schluter sem nú er sextugur að aldri skildi við fyrstu konu sína, en átti í mjög farsælu hjónabandi með Lisbeth sinni. Vonandi verð- ur hann eins hamingjusamur með Anne Marie, en brúð- kaup þeirra mun fara fram ll.ágúst. Moskvuferð J.R. kostaði sitt: Dallas frá Dallas vegna blankheita! Þó Ewing fjölskyldan hafi alla tíð vaðið í peningum ef marka má hina sívinsælu Dal- las þætti, þá hafa blankheit neytt Lorimar fyrirtækið sem framleiðir þessa vinsælu þætti til að flytja upptökur á þættin- um frá Southfork og Dallas. Ein ástæða þessa er sú að vinsældir þáttarins hafa farið dvínandi á sama tíma og kostnaður við upptökurnar hafa aukist. J.R. Ewing ku vera á fullu í fjármálabraski sínu þrátt fyrir að næstu tólf þættir verði ekki teknir upp í Dallas. Að vísu hefur rísandi efnahags- veldi Japana komið honum illa í augnablikinu, en það er næsta víst að J.R. mun ná fyrri gróða með bellibrögðum sínum sem fyrr. J.R. var nýlega í Sovétríkj- unum þar sem hann ræddi við forráðamenn fyrirtækja í Moskvu sem nú eru óðir og uppvægir að fá erlend fyrir- tæki til að fjárfesta í Sovét- ríkjunum. Þannighyggst J.R. græða á umbótastefnu Gor- batsjofs. Það voru einmitt upptök- urnar á Rauða torginu í Moskvu og víðar í Sovétríkj- unum og Austur-Evrópu sem urðu til þess að forráðamenn Lorimar fyrirtækisins ákváðu að taka næstu tólf þætti upp á ódýrari máta en áður. Mikl- um fjármunum var eytt í þann túr, en verið er að sýna þættina sem þar voru teknir upp um þessar mundir í Bandaríkjunum. Talið er að borgarsjóður- inn í Dallas verði af fimm milljónum dollurum á þessu ári ef allar upptökur á Dallas verði fluttar annað þar sem kostnaðurinn er lægri. Ljóst er að Larry Hagman mun leika J.R. Ewing eitt árið enn þó að vinsældir þátt- anna hafi rénað. Dallas er nú í 30.sæti vinsældalistans í Bandaríkjunum, en voru langvinsælustu framhalds- þættimir veturinn 1983 til 1984.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.