Réttur - 01.01.1943, Page 2
6
RÉTTUR
þeim nokkrum orðum þakklæti mitt og þeirra mörgu sósíalista, sem
notið hafa Réttar á sama hátt. Það ætti að benda til þess, að mér
sé ljós sú ábyrgð gagnvart íslenzkri alþýðu, sem hvílir á ritstjóra
þessa tímarits. En vænna hefur mér ekki þótt um neitt verkefni. ís-
lenzk alþýðuhreyfing á nú öflug málgögn í blöðum Sósíalistaflokks-
ins, en allt um það á Réttur hlutverki að gegna, í beinu framhaldi
hinnar merku fortíðar sem baráttu- og fræðslurit íslenzkra sósíal-
ista. Ég heiti á vini hans, eldri sem yngri, að hjálpa honum til að
rækja það starf.
Það mun sjaldgæft að þeir, sem maður dáir úr fjarska á æsku-
árum, vinni við nána kynningu. Það er ekki alltaf þeirra sök. Æsku-
maður sem kynnist rithöfundi af beztu skáldsögu hans eða stjórn-
málaleiðtoga af hvössustu ritum og ræðum, gerir sér auðveldlega
of glæsilegar hugmyndir um manninn.
Einar Olgeirsson er einn þeirra manna, sem óhætt er að kynnast.
Að sjálfsögðu breytist hann, verður persónulegri og mannlegri. En
það sem máli skiptir er óbreytt. Náin kynning eykur virðingu á
heilindum hans, hlífðarleysi við sjálfan sig, einlægni við alþýðu-
málstaðinn og óbilandi trausti á íslenzkri alþýðu til sigursællar bar-
áttu. Það eru þessir eiginleikar, sem mest ber á í daglegu samstarfi
ár eftir ár að ritstjórn Þjóðviljans og öðrum flokksstörfum. Á
þeim slóðum er oftastnær svo annríkt, að fátt kemst að sem ekki
lýtur að sjálfu starfinu. En sá sem er svo heppinn, að fá Einar að
tugthúsfélaga nokkrar vikur, kynnist nýjum þáttum. Einar reynist
harðsnúinn skákmaður, ótrúlega fróður um bókmenntir fornar og
nýjar og sögu sósíalismans. Framkoma hans vinnur honum vini
hvar sem hann fer. Hann var ekki búinn að vera lengi í Brixton-
tugthúsi er grískir og pólskir sjómenn, sem kunnu nær enga ensku,
voru farnir að leita til hans og láta hann skrifa fyrir sig bréf til
hins Right Honourable Herberts Morrisons, skýringar á þeim mis-
skilningi, að þeir skyldu teknir fastir, og eitt hjartnæmt ástarbréf
skrifaði hann fyrir þýzkan pilt, sem engum trúði til þess öðrum!
En einnig við slík skilyrði vinnur hugurinn hvíldarlaust að við-
fangsefnum verkalýðsbaráttunnar, nýjum og nýjum verkefnum