Réttur


Réttur - 01.01.1943, Síða 2

Réttur - 01.01.1943, Síða 2
6 RÉTTUR þeim nokkrum orðum þakklæti mitt og þeirra mörgu sósíalista, sem notið hafa Réttar á sama hátt. Það ætti að benda til þess, að mér sé ljós sú ábyrgð gagnvart íslenzkri alþýðu, sem hvílir á ritstjóra þessa tímarits. En vænna hefur mér ekki þótt um neitt verkefni. ís- lenzk alþýðuhreyfing á nú öflug málgögn í blöðum Sósíalistaflokks- ins, en allt um það á Réttur hlutverki að gegna, í beinu framhaldi hinnar merku fortíðar sem baráttu- og fræðslurit íslenzkra sósíal- ista. Ég heiti á vini hans, eldri sem yngri, að hjálpa honum til að rækja það starf. Það mun sjaldgæft að þeir, sem maður dáir úr fjarska á æsku- árum, vinni við nána kynningu. Það er ekki alltaf þeirra sök. Æsku- maður sem kynnist rithöfundi af beztu skáldsögu hans eða stjórn- málaleiðtoga af hvössustu ritum og ræðum, gerir sér auðveldlega of glæsilegar hugmyndir um manninn. Einar Olgeirsson er einn þeirra manna, sem óhætt er að kynnast. Að sjálfsögðu breytist hann, verður persónulegri og mannlegri. En það sem máli skiptir er óbreytt. Náin kynning eykur virðingu á heilindum hans, hlífðarleysi við sjálfan sig, einlægni við alþýðu- málstaðinn og óbilandi trausti á íslenzkri alþýðu til sigursællar bar- áttu. Það eru þessir eiginleikar, sem mest ber á í daglegu samstarfi ár eftir ár að ritstjórn Þjóðviljans og öðrum flokksstörfum. Á þeim slóðum er oftastnær svo annríkt, að fátt kemst að sem ekki lýtur að sjálfu starfinu. En sá sem er svo heppinn, að fá Einar að tugthúsfélaga nokkrar vikur, kynnist nýjum þáttum. Einar reynist harðsnúinn skákmaður, ótrúlega fróður um bókmenntir fornar og nýjar og sögu sósíalismans. Framkoma hans vinnur honum vini hvar sem hann fer. Hann var ekki búinn að vera lengi í Brixton- tugthúsi er grískir og pólskir sjómenn, sem kunnu nær enga ensku, voru farnir að leita til hans og láta hann skrifa fyrir sig bréf til hins Right Honourable Herberts Morrisons, skýringar á þeim mis- skilningi, að þeir skyldu teknir fastir, og eitt hjartnæmt ástarbréf skrifaði hann fyrir þýzkan pilt, sem engum trúði til þess öðrum! En einnig við slík skilyrði vinnur hugurinn hvíldarlaust að við- fangsefnum verkalýðsbaráttunnar, nýjum og nýjum verkefnum

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.