Réttur


Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 5

Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 5
RÉTTUR 9 atburða og mat á þeim frá sjónarmiöi sósíalismans verður fast efni í Rétti. Og í greininni íslenzk lýðréttindi er sýnt fram á, að alþýð- an verði að halda sjálfstæðisbaráttunni áfram og leiða hana til lykta. Þegar af þessari grein verður ljóst, að fyrir Einari vakir ekki, eins og kommúnistum hefur oft verið borið á brýn, þröngur klíkuflokkur, hann leggur áherzlu á samvinnu verkamanna, bænda og millistétta kaupstaðanna sem leið til sigurs. Af þessum fyrstu árgöngum er hvert hefl’ið öðru betra. Þeirra var beðið með óþreyju um allt land, af þeim sem komizt höfðu á bragðið, og lesin með at- hygli og gleði. Furðulega mikil breyting hefur orðið á sviði íslenzkra stjórn- mála frá árinu 1926, er kommúnistarnir í Alþýðuflokknum eign- uðust fyrsta varanlega málgagn sitt. Einar Olgeirsson og félagar hans við Rétt hafa komið þar allmikið við sögu. Sú saga verður ekki rakin hér, en það má fylgja henni kafla fyrir kafla með því að fletta árgöngum Réttar þessi sextán ár. Hreyfingin, sem þá eign- aðist málgagn, er orðin eitt sterkasta þjóðfélagsaflið á íslandi. Al- þýðan hefur fylkt sér um merki sósíalismans, það merki, sem Einar Olgeirsson og félagar hans hófu fyrir tæpum tuttugu árum, safnað liði til sóknarinnar miklu, sem á eftir að þurrka út merkingarmun- inn á alþýðu og alþjóð. Nokkrir gömlu félaganna gerðust liðhlaup- ar frá málstað alþýðunnar, kusu virðulegar stöður og vellaunaðar fremur en trúmennsku við æskuhugsj ónir, sumir þeirra standa nú í „andskotaflokkinum miðjum“. En það verða ekki liðhlauparnir sem landið erfa, heldur sá flokkur, sem brauzt yfir firnindi van- þekkingar og skilningsleysis, gegn hrakviðrum áróðurs og ofsókna og hirti aldrei þó leikurinn væri ekki jafn. í sögukaflanum um brautryðjendur þess flokks mun jafnan bjart um nafn Einars Olgeirssonar. Hvað hefur gerzt? Hvernig má það verða, að Sósíalistaflokkur- inn, sem innlent afturhald og meira að segja erlent hervald hefur reynt að buga og eyðileggja, skuli rísa upp úr ofsóknum Finna- galdursins sem 10 manna þingflokkur, eini vaxandi stjórnmála-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.