Réttur - 01.01.1943, Qupperneq 9
RÉTTUR
13
þessum kosningum dæmdi íslenzk alþýcía einnig milli flokkajma,
og gerði Sósíalistaflokkinn að stærsta alþýðuflokki íslands. Þar
með er endanlega skorið jír því, hvor alþýðuflokkanna er kjörinn
til framhaldandi vaxtar og forustu verkalýðshreyfingarinnar. En
loftvogin vísar á storm í íslenzkum þjóðmálum, einkum mun sá
áfangi íslenzkrar sjálfstæðisbaráttu, sem nú er framundan, reynast
torsóttur og hættugjarn, og sókn alþýðunnar á hverju stigi tengjast
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Það ríður því á að íslenzk alþýða
sameini krafta sína, ekki í fjarlægri framtíð, heldur nú þegar á
næstu árum. Eining verkalýðsfélaganna í Alþýðusambandinu er
glæsilegur sigur fyrir verkalýðssamtökin. En þess má ekki verða
langt að bíða, að alþýðan fylki sér einnig í einn stj órnmálaflokk,
sósíalistiskan alþýðuflokk, og gefi þar með rödd alþýðunnar þann
þunga, að úrslitum ráði þegar um næstu kafla íslandssögunnar.
Eftir þrjú ár, við næstu bæjarstjórnarkosningar, gæti slíkur flokk-
ur, liinn sameinaði stjórnmálaflokkur alþýðunnar, náð hreinum
meirihluta í bæjarstjórn Reykjavíkur og flestra ef ekki allra bæja
landsins. Við næstu Alþingiskosningar gæti hinn sameinaði flokk-
ur alþýðunnar náð hreinum meirihluta á Alþingi og þar með tekið
þá forustu í málefnum alþjóðar, sem alþýðunni ber. Staldrið við,
og hugsið um þá möguleika, sem þessir tveir sigrar skapa. Verið
viss um að þetta eru engir loftkastalar, ef eðlileg þróun íslenzkra
þjóðfélagsmála verður ekki trufluð af utan að komandi öflum.
Um allt land bíða djarfir og stórhuga æskumenn eftir því að
lífið veiti þeim hlutverk. — í smiðjunum í Reykjavík, á togurun-
um í myrkri og hættum millilandasiglinganna, í einangrun sveita-
bæja og smáþorpa, við námsborð alþýðuskóla, menntaskóla og
háskóla vaka djarfar vonir í brjósti nýrrar kynslóðar. Það eru
beinvaxnir synir og frjálshuga dætur verkafólksins með bognu
bökin, fólksins, sem var hrakið og hrjáð af hrokagikkjum og auð-
söfnurum sinnar tíðar. Þessi æska liefur í kosningum ársins sem
leið fylkt sér um Sósíalistaflokkinn, vottur þess, að hún ætli ekki
að láta glepja sig frá því mikla hlutverki, sem bíður hennar. Synir
og dætur verkafólksins með bognu bökin halda í hendi sér örlög-