Réttur - 01.01.1943, Side 10
14
RÉTTUR
ura lands og þjóðar á annan hátt en nokkur íslenzk kynslóð á und-
an þeim. Það er á þeirra valdi að gera ísland að alþýðuríki, leggja
grunn að nýju og fullkomnara þjóðskipulagi handa hörnum sínum
en þeim var fengið í hendur. Sá tíini er liðinn, er stórhuga ung-
lingar úr alþýðustétt brjótist yfir í herbúðir andstæðinganna og
helgi þeim ævistarf sitt. Alþýðusynir og dætur, sem tekizt hefur að
afla sér menntunar, munu ekki nota menntun sína sem aðgöngumiða
í yfirstéttarklíkur, _ heldur gera þekkinguna að bitru vopni í þágu
verkalýðshreyfingarinnar. Hvergi bíða hugumstórra æskumanna
erfiðari og stærri verkefni.
Það er ekki víst að öldin verði hálfnuð, er þeir fylkja liði til úr-
slitabaráttu, þessir alþýðumenn, undir hinum rauða fána sósíalism-
ans, í einum flokki. Þeir hafa þjálfazt í skæruhernaði alþýðusam-
takanna, í verkföllum sem ýmist hafa unnizt eða tapazt, í baráttunni
um viðurkenningu á verkalýðsfélagi í þorpinu sínu, í bardögum
um einföldustu og sjálfsögðustu mannréttindi, réttinn til að vinna
sér fyrir lífsviðurværi. Þeir fara þar fyrstir ungir verkamenn, sjó-
menn, bændasynir, harðsnúið lið og einbeitt. Og ungu stúlkurnar
og konurnar taka sér stöðu við hlið bræðra sinna, unnusta og eig-
inmanna. Þar næst koma hinir eldri, líka gömlu feðurnir og mæð-
urnar með bognu bökin og andlitin merkt af ævilöngu striti. í eyr-
um þeirra hljóma eggjunarorð skáldanna, sem löngu á undan sam-
tíð sinni skildu, að þessi flokkur hlaut að verða til. Ungir, vinnu-
harðir hnefar kreppast, er fyrir hugarsjónir bregður myndum af
þungbærum ósigrum íslenzkrar alþýðu í baráttunni við örbirgðina,
kynslóð eftir kynslóð. Vonir og vilji feðra og forfeðra magna þessa
fylkingu, allt smávægilegt og persónubundið hverfur fyrir þeirri
vissu, að nú getur rætzt hinn aldagamli draumur alþýðunnar um
sigur, um vald til að ráða örlögum sínum.
Það er ekki lengur barizt um lítið. Sameinaður flokkur íslenzkr-
ar alþýðu ætlar sér ekki að vinna neitt minna en landið allt, með
gögnum og gæðum, ætlar sér allan menningararf Islendinga. A
langri þrautaleið hefur alþýðan loks lært þær bardagaaðferðir, sem
duga, fundið samtakaform, sem tryggir sigur; ratað á sigurbraut
sósíalismans. Sigurður Guðmundsson