Réttur


Réttur - 01.01.1943, Síða 15

Réttur - 01.01.1943, Síða 15
HÉTTUR 19 ekki sígarettur og brjóstsykur, eins og urn var talað, heldur silki- sokka og andlitspúður. Hann seldi Stínu og Gunnu silkisokkana og andlitspúðrið, — en livar var ágóðinn? Hvergi, lagsmaður, hvergi nokkurs staðar; þú verður að eiga hjá mér þessar skitnu fimmtán krónur, þangað til seinna. Já, hann ætlaði að skreppa til bæjarins innan skamms, kannski um næstu helgi. Hann ætlaði að kaupa rakhlöð í heildsölu, þau hlutu að renna út, því að strákana vantaði alltaf rakhlöð. En bíddu nú við! Hvaða bók er þetta? Sálmabók? Hvað stendur framan á henni? 1860? 1 svona líka fínu skinnhandi! Vissi ég ekki, að þessa sálmabók var auðvelt að selja dýrum dómum í Reykjavík? Atti hann að fara með hana fyrir mig til einhvers fornbóksala og koma henni í peninga? Nei, sagði ég einbeittur. Þessi' sálmabók er ættargripur. Ættargripur? O-svei, sagði liann hæðnislega. Þú ert sveitafífl, greyið mitt. Þú ert mesti djöfuls kaplabrinki. Þig langar ekkert til að komast áfram. Eg kippti mér ekki lengur upp við hina hörðu dóma hans, því að hann skammaði alla, ef honum mislíkaði eitthvað. Þið eruð aum- ingjar, sagði hann. Þið þorið ekki að heimta hærra kaup. Þið þorið ekki að gera verkfall. Ég er aftur á móti kommúnisti. Ertu í flokknum? spurði Gústi og horfði beint framan í hann. I flokknum? Mikill óskaplegur asni geturðu verið! Heldurðu kannski, að ég þurfi að vera í einhverjum flokk? svaraði Bjössi og bandaði frá sér hendinni. Nei. En ég er í flokknum, sagði Gústi. Og ég get frætt þig 'um það, að þú ert ekki kommúnisti, heldur bölvaður kjaftaskúmur og uppskafningur. Þú veizt ekkert um kommúnismann. Þú reynir bara að spilla fyrir stefnunni með kjaftinum á þér. Já, af bverju skammarðu aldrei karlinn? spurði annar. Af hverju flaðrarðu upp um hann eins og hvolpur, þegar hann kernur hingað? Þið eruð fífl! Þið eruð ræflar! sagði Bjössi, um leið og hann gekk út úr herberginu og skellti á eftir sér hurðinni. Fáeinum dögum síðar var hann horfinn. Hann hvarf um mánaða- tnotin, laumaðist burtu, þegar hann hafði fengið kaupið sitt, kvaddi

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.