Réttur


Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 23

Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 23
RÉTTUR 27 hann. Það er þessi svartklæddi, sem leiðir litlu, flatbrjósta kon- una; hún er dóttir hans Láka forstjóra.... Miki-þó-djöfull! sagði ég upphátt, þegar verið var að útvarpa úrslitum Alþingiskosninganna. Bjössi var orðinn þingmaður. Hann hafði aldeilis spjarað sig. Hann hafði aldeilis komizt áfram. Skyldi hann ekki vera búinn að gleyma hinum löngu liðnu dögum? Skyldi hann ekki vera búinn að gleyma verksmiðjunni, gleyma Stínu og Gunnu, gleyma Hernum og samskotabauknum hennar systur Efem- íu á Lækjartorgi, gleyma rakblöðunum, gleyma mér? Hann talaði hvað eftir annað um ábyrgðarlausa kaplabrinka í j ómfrúræðunni sinni í efri deild. Og þess vegna gat ég ekki setið á mér, þegar ég mætti honum niðri í Austurstræti í fyrradag. Eg vék mér að honum, af því að ég var í svo dæmalaust góðu skapi, hnippti í handlegg- inn á honum, alveg eins og hann hafði hnippt í handlegginn á mér áður fyrr, ég brosti út undir eyru og sagði ósköp blátt áfram: Sæli nú, Bjössi! Hann leit þóttalega á mig, hristi mig síðan af sér og gekk áfram eins og ekkert hefði í skorizt. Hvað er þetta? Þekkirðu mig ekki? spurði ég hlæjandi. Hann leit aftur þóttalega á mig og sagði óþolinmóður: Ég hef aldrei séð yður áður, maður minn. Nú, það finnst mér skrítið, sagði ég. Manstu ekki eftir honum Pétri, sem vann með þér í spunasalnum? Pétri? Alveg rétt! Pétri Gíslasyni? Komdu sæll, Pétur, sæll og blessaður, Pétur, sagði hann glaðlega og rétti mér þvala hendina. Eg gat ekki með nokkru móti komið þér fyrir mig — svona í fljótu bragði. Þú hefur hreytzt talsvert. En þú hefur ekkert breytzt, sagði ég kankvís og slóttugur. Þú ert alveg eins og þegar við vorum saman. Neinei, seiseinei, sagði hann og hristi höfuðið. Maður breytist með aldrinum. Breytist með hverju ári. Breytist mikið. En þú ert svo ungur ennþá. Kornungur. Barnungur. Hvað ertu orðinn gamall? Eg er ellefu árum yngri en þú. Já, einmitt það. Ellefu árum yngri en ég. Mikil ósköp. Maður breytist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.