Réttur - 01.01.1943, Qupperneq 25
RÉTTUR
29
hvarf inn um dyrnar á húsinu. Hann langaSi til aS komast áfram,
hann át rakblöð, aumingja strákurinn, át rakblöð fyrir höfðingj-
ana, hugsaði ég. Og það var líka allur galdurinn. — En af hverju
finnst mönnunum svona eflirsóknarvert að komast áfram í heirn-
inum? Af hverju vilja mennirnir ekki heldur reyna að verða ofur-
lítið hamingjusamir í heiminum?
Ólafur Jóh. Sigurðsson
Leggið fram ykkar slcerf
A sjötta milljón manna hefur falliS, sœrzt eða týnzt af RauSahernum í
styrjöldinni við fasismann, auk milcils jjölda óbreyttra borgara. Engin styrj-
aldarþjóð önnur hcjur lagt neitt líkt ]>ví eins mikið fram í baráttunni við hinn
sameiginlega óvin allra frjálsra þjóða.
Lœknar og hjúkrunarlið Sovétríkjanna haja unnið kraftaverk að björgun
sœrðra hermanna og borgara. Með nýjum aðjerðum í skipulagningu og lœknis-
aðgerðum hefur tekizt að bjarga 70 af hundraði þeirra, sem scerast á vígvell-
inum.
En þör/in á lyfjum og hjúkrunarvörum er svo gífurleg, að ekki hefur reynzt
mögulegt að fullnœgja henni. Hvað eftir annað standa rússneslcir lœknar og
hjúkrunarkonur yjir sœrðum mönnum án þcss að geta líknað þcim. Hjúkrun-
arvörurnar og lyfin vantar.
Lað er þess vegna að safnað hefur verið fé til kaupa á hjúkrunarvörum og
iyfjum handa Rauða krossi Sovétríkjanna meðal hinna frjálsu þjóða. Einnig
hér á lslandi hefur alþýðan viljað lcggja fram sinn slccrf til að lina þjáningar
þeirra manna, sem allt leggja í sölurnar til þess að sigra óvini mannkynsins.
Hvergi nema hér á íslandi hefur verið reynt að tortryggja þetta mannúðar-
mál, þessa viðleitni til að „sýna hverjir menn vér erum sjálfir“, eins og segir í
avarpi stuðningsmanna söfnunarinnar. Ritstjórar Alþýðublaðsins, Vísis og
Þjóðólfs hafa þar reist sér níðstöng, sem lengi mun standa.
Islenzkir alþýðumenn, karlar og lconur. Leggið ykkar skerf í söfnunina til
Rauða kross Sovétríkjanna, gerið söjnunina svo mikla, að íslendingum verði
sómi að.
Aðsetur söfnunarinnar er á slcrifstofu Dagsbrúnar, Reykjavík. Einnig er
tekið móti jjárframlögum á afgreiðslu Tímans og Þjóðviljans. Úti um land
talca stjórnir verkalýðsfélaganna við samskotafc.