Réttur - 01.01.1943, Qupperneq 31
RÉTTUR
35
á þessum slóðum verða æ mikilvægari og áhrifa þessarar vígstöðu
mun einnig gæta á vettvangi Vesturevrópu, þótt síðar verði.
A Kyrrahafi og í Suðurasíu, á landamærum Indlands og Burma,
eru Bandamenn enn í vörn, sem að vísu er virk, en hefur enn ekki
getað snúizt upp í sókn. Þegar lengra er haldið vestur á bóginn og
athuguð er hernaðaraðstaða Bandamanna í Vesturasíu, er heldur
ekki um annað en varnir og öryggisráðstafanir að ræða. íran er
hernumið af Bretum og Rússum, og var sú ráðstöfun nauðsynleg
bæði til þess að hindra sókn Þjóðverja, ef þeim tækist að leggja
undir sig Kákasus og eins til þess að afstýra þeim möguleika, að
Japanar og Þjóðverjar næðu höndum saman í Vesturasíu.
Miðjarðarhafsbotninn, Sýrland, nýlenda Frakklands, er nú í
höndum Frakka og valdi Vichystjórnarinnar hefur verið hrundið
þar. Á þessum slóðum er einnig eingöngu að ræða um varnir. En
um allar þessar varnir er það að segja, að þær geta snúizt upp i
sóknaraðgerðir þegar fylling tímans er komin og hafin verður alls-
herjarsókn á hendur Möndulveldunum á þeim eina vettvangi, þar
sem þau verða sigruð: meginlandi Evrópu.
Styrjöldin í Afríku hefur frá upphafi verið allfrábrugðin styrj-
aldarrekstri Bandamanna annars staðar. Þar hafa Bretar og banda-
menn þeirra jafnan verið í sókn, og nú er svo komiö, að hinn róm-
verski draumur Mússólínis um ítalskt Afríkuveldi er búinn. Trípólis,
siðasta vígi Afríkunýlendna Italíu, er í höndumBreta.Bandaríkinog
Bretar hafa hernumið Vestur- og Norðurafríkunýlendur Frakklands.
Afríka öll er á valdi Bandamanna, að undanskildu Túnis. Þar stend-
Ur nú yfir úrslitaorustan um yfirráðin í Norðurafríku. En orustan
um Túnis er um leið úrslitaorustan um yfirráð á Miðjarðarhafi.
Þegar Bandamenn hafa náð Túnis á sitt vald verður öll Noröur-
uh'íka hernaðarleg birgðastöð, er útbýr sóknarheri þá, er leita
munu landgöngu á meginlandi Evrópu úr suðurátt.
En allar eru vígstöövar þær, sem nú hafa veriö taldar, á útjöðr-
um styrjaldarinnar. Þær hafa haft lítil bein áhrif á gang hennar
til þessa, ráða ekki úrslitum að neinu leyti. Meginvígstöðvar styrj-
uldarinnar eru á meginlandi Evrópu, á hinum miklu sléttum Austur-
Vegar: austurvígstöðvarnar. 1 nærri tvö ár hafa geisaö þar mann-