Réttur - 01.01.1943, Side 32
36
RÉTTUR
skæðustu orustur, sem sagan kann að greina írá, án afláts, linnu-
laust. Þar hafa átzt við tveir voldugustu landherir heimsins, Rauði-
herinn og her nazismans og bandamanna hans. I tveimur sumar-
sóknum hefur þýzki herinn ætt langt inn í Rússland. í fyrra skiptið
komst hann að borgarvirkjum Moskvu, en varð þá að láta undan
síga. Rússar hófu vetrarsókn, bægðu hættunni frá höfuðborginni og
unnu Þjóðverjum hið mesta tjón á mönnum og hergögnum. I síðara
skiptið hófu Þjóðverjar sókn á skemmra svæði, brutust í gegnum
varnir Rússa á suðausturvígstöðvunum, komust alllangt suður í
Kákasus og inn í götur Stalíngrads. En þá þraut þá sóknarmáttinn
í annað sinn, Rússar hófu vetrarsókn á nýjan leik, unnu einn glæsi-
legasta sigur hernaðarsögunnar hjá Stalíngrad, hröktu Þjóðverja
á brott úr Donetshéruðunum og mestum hluta Kákasus, réðust inn
í Ukraínu, heyja nú grimma varnarbaráttu vestan Donetsfljóts, en
hafa samtímis leyst upp varnir Þjóðverja á miðvígstöövunum, og
allar líkur benda til þess, að á þeim vígstöðvum muni þeir hasla
fjandmönnum sínum völl í orustum sumarsins, sem nú fer í hönd.
Á austurvígstöðvunum var þýzki herinn sigraöur í fyrsta skipti
í þessari styrjöld. í fyrsta skipti mætti hann vörn, sem hafði í fullu
tré við sóknarmátt hans. Auövitaö hefur þýzki herinn unnið marga
sigra og mikla á austurvígstöövunum, en reynslan hefur sýnt og
mun sanna enn betur síðar, að sigrar hans voru Pyrrhusarsigrar,
þ. e. árangurinn var ekki í réttu hlutfalli við fórnirnar. Það má
telja víst, að um 9 milljónir manna hafa orðið óvígar á sléttum
Rússlands í liði Þjóðverja. Það er mesta blóötaka, sem um getur
í hernaðarsögu Þýzkalands. En þó mun þessi blóðtaka ekki ríða
Þýzkalandi að fullu þegar í stað. Hóflegar áætlanir gera ráð fyrir,
að Þýzkaland geti á þessu vori boÖiö út 7 milljóna her vígra manna.
Slíkur her getur á nýjan leik hafið mikla sókn á einstaka stöðum.
AS vísu má það teljast fullvíst, að stórsóknir á borð við þær, sem
framkvæmdar voru sumarið 1941 og 1942, verði ekki gerðar. Svo
mjög hafa Rússar lamað hinn þýzka nazistaher. En enn er ekki
komið að fjörbrotum hans. Þau verða þá fyrst, þegar Hitler verður
að tví- eða þrískipta þeim her, sem hann hefur til þessa getað ein-
beitt á austurvígstöðvarnar. Myndun nýrra vígstöðva á meginlandi