Réttur


Réttur - 01.01.1943, Page 46

Réttur - 01.01.1943, Page 46
50 RÉTTUR vígvelli stynja og vein þeirra áttu ekkert skylt við þessi öskur, sem voru skelfilegust vegna dularinnar. Hvernig kvöldu þeir manninn, sem hljóðaði svona? Hvernig skyldu þeir fara að því að pynda hann sjálfan eftir litla stund? Kvalir undir berum himni virtust líkn hjá þessu. Hurðarskellur, og fótatakið nálgaðist dyrnar hans. Hann tók eftir því, að hann hallaðist upp að klefaveggnum eins og bak hans væri límt við múrinn, lotinn í herðum. Hugur hans var einbeittur, en hné hans skulfu. Hann sleppti veggnum, reiður vegna máttleysisins í fótunum. Önnur hurð skelltist og fótatakið hvarf eins og dyrnar hefðu sogað til sín mennina er framhjá fóru. Þögn — og þó kraumandi niður örveikra hljóða. Hann sneri sér aftur að dyrunum: „Stalil var drepinn þann. . . . “ Við þessa setningu hafði aldrei verið lokið, hún var ekki þurrkuð út; veggurinn var smitandi af örlögum manna. Hann minntist bréfs frá konu fanga: „Hvernig þeir börðu hann! Eg þekkli hann ekki, Teresa, frá öðrum. . . .“ Hve margir félaga hans skyldu eiga eftir að koma hingað, er hann væri farinn? Blýantinn höfðu þeir ekki tekið af honum: ViS erum með ykkur, skrifaði hann. Þegar hann lyfti hendinni, sást enn ein áletrun: „Aður en mán- uður líður, œtla ég að drepa Federwisch.“ Það var nafn manns, sem til skamms tíina hafði verið einn fangavarðanna. Hvor þeirra var dáinn, sá sem hótað var eða hinn? Meðan reikul augun rýndu í krotið, nam hin næma heyrn hans fótatak varðanna, lágt klór í nágrannaklefanum og snögglega skammaraust úr fjarska, sem bergmálaði í göngunum. . . . Enn ekkert vein. Hann var farinn að lifa í veröld ískyggilegra hljóða líkt og blindur maður í hættu. Hann vissi, hve erfitt það er að þola högg án þess að slá aftur. En honum var ljóst, að styrkur hans var algjör sjálfsuppgjöf, en honum var óljúft að reyna að hafa áhrif á nazistana. Enda voru það ekki þeir hálfvolgu af fylgjendum Hitlers, sem höfðu kosið sér fangavarðarstarf. Kassner var það fullljóst, að allir geta drepið

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.