Réttur - 01.01.1943, Page 47
RÉTTUR
51
í orustu, en það þarf dómgreindarlausa undirgefni við ill öfl lil að
geta misþyrmt fanga. Hann þurfti ekki annað en þegja. Þess var
engin þörf, að hann svaraði höggunum með eftirminnilegum orð-
um, hann varð að komast út til að hefja á ný flokksstarfið. Ef til
vill yrði hann I)arinn til dauðs, en hann minntist þess, að í Hagen,
í sjö hundruð og fimmtíu manna verksmiðju, höfðu engar pynd-
ingar dugað til að finna einn einasta þeirra, sem dreift höfðu flug-
ritunum.
„Þú skalt sjá, hvað það getur skerpt minnið. .. .“
Framhald.
ORÐSENDINGAR
Réttur byrjar 28. árið með ritstjóraskiptum og nýrri kápu (teiknaðri aí
Hafsteini Guðmundssyni). Gunnar Benediktsson er orðinn ritstjóri Nýja tím-
ans, og lætur af ritstjórn Róttar vegna sívaxandi annríkis. Ilann bað mig að
flytja lesendum beztu kveðju og ég þakkaði honum starfið fyrir ykkar hönd,
an þess að hafa til þess formlega heimild, en við um það. Nú er ætlunin að
fjögur hefti komi af Rétti árlega, livert 5 arkir, samtals 320 hls. Askriftar-
verðið helzt 10 kr., og er það helmingi minna en jafnstór tímarit kosta. Það
er ekki svo að skilja, að efnið sé ómerkilegra, öðru nær! En Réttur er tímarit
alþýðumanna, sem enn vita aura sinna tal, og verður aldrei gefinn út til að
græða á honum fé. Ég vænti þess, að vinir Rétlar geri honum fært að halda
þessu lága verði, ineð því að útvega nýja áskrifendur — og auglýsingar, þeir
sem til þess hafa aðstöðu. Flestir áskrifendur Réttar frá fyrri árum halda
tryggð við hann og nýir bætast við, þó óregla hafi verið á útkomunni síðustu
arin og loforð um hót og betrun lítt efnd.
Það væri vinarbragð við Rétt að greiða árganginn 1943 þegar við móttöku
þessa heftis.
Utsölumenn. Allt sem að afgreiðslu og innheimtu lýtur er í höndum hins
agæta afgreiðslumanns Þjóðviljans, Arna Einarssonar. (Ulanáskrift: Á. E.,
Afgreiðsla Þjóðviljans, Reykjavík). Rétt vantar útsölumenn í ýmsum héruð-
»m. Er ekki hægt að gera ritinu meiri greiða en að útvega duglega útsölu-
tnenn.
Greinar eru vel þegnar, líka smásögur og kvœði. Utanáskrift ritstj. er: S. G.
c/o Þjóðviljinn, Reykjavík. Mér þætti vænt nm að sem flestir kaupendur
sendu mér línu, segðu álit sitt á Rétti og hæru fram óskir um efnisval.
Sigurður Guðmundsson.