Réttur


Réttur - 01.01.1943, Page 56

Réttur - 01.01.1943, Page 56
60 RÉTTUR c) Stofnun til eftirlits og rannsóknar í skattamálum til þess að koma í veg fyrir skattsvik. d) Hækkun skatta á hátekjum og sérstakur skattur á eignaaukn- ingu þá, sem orðið hefur frá stríðsbyrjun. Nýbyggingarsjóð- ir teknir í opinbera vörzlu og framlag í varasjóði verði ekki skattfrjálst. e) Binding stríðsgróðans. f) Ráðstafanir til að hindra brask með fasteignir. g) Endurskoðun landbúnaðarlöggjafarinnar. Stofnun byggða- hverfa. Aukinn innflutningur landbúnaðarvéla. Vísindalegar tilraunir í þágu landbúnaðarins. Aukinn ræktunarstyrkur til smærri býla o. fl. h) Strangt eftirlit með sölu og notkun byggingarefnis. i) Ráðstafanir til þess að bændur og fiskimenn fái nægar nauð- synjar til atvinnureksturs síns með sanngjörnu verði. j) Ráðstafanir til að tryggja nægilegan skipakost til vöru- og farþegaflutninga með ströndum fram. 2. Flokkurinn vinni að því með Sósíalistaflokknum að komast að samkomulagi við fulltrúa bænda um fast grunnverð á landbún- aðarafurðum er breytist samkvæmt sérstakri vísitölu. Loks vill flokkurinn gjarnan hafa samstarf við flokk yðar um önnur mál, sem samkomulag kann að nást um. Jafnframt væntir flokkurinn þess, að þér takið upp umræður við hann um málefnagrundvöll fyrir ríkisstjórn, er þér takið þátt í, á- samt Sósíalistaflokknum.“ Bréjið til Sjáljstœðisflokksins: „Með skírskotun til greinargerðar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í 8 manna nefndinni, er birtist í Morgunblaðinu 8. des., fer Sósíal- istaflokkurinn þess á leit við yður, að þér hafið samstarf við hann um að hrinda í framkvæmd eftirfarandi málum, sem flokkarnir virðast vera sammála um og undirbúi og flytji sameiginlega frum- vörp um þau á þinginu: 1. Til þess að vinna á móti dýrtíðinni verði aflað fjár með eftir- farandi ráðstöfunum:

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.