Réttur


Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 65

Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 65
réttur 69 einu erlendu rit, sem við eigum kost á um þessi efni í bili, séu á enska lungu. Þó að það út af fyrir sig sé harmsefni, er þó á hitt að líta, að bæði er þessi bókaútgáfa góð og allmikil að vöxtum og eins er hitt mikið hagræði, að þurfa ekki að nema mörg mál til að hafa gagn af slíkum ritum. Hér mun minnzt á nokkrar bækur amerískar, sem mér hafa borizt, og fjalla um ýmis viðfangsefni út frá sósíalistiskum viðhorfum. Sýna þær glögglega, hversu marxistisk viðhorf og rannsóknarað- ferðir teygja sig inn á fleiri og fleiri svið. Hér verður ekki reynt að ritdæma þessar bækur, heldur aðeins minnzt á þær og efnið rakið lauslega, ef einhverja skyldi fýsa að kynna sér það frekar. Science and Society lieitir tímarit, sem gefið hefur verið út f Bandaríkjunum frá því 1937. Koma út af því fjögur hefti á ári. f'ímaritið er á sína vísu svipað og enska tímaritið Modern Quart- erly eða Unter dem Banner des Marxismus voru á sínum tíma. Það er ritað út frá marxistisku sjónarmiði um hin ýmsu viðfangsefni mannkynsins, félagsmál, hagfræði, listir, vísindi, stjórnmál. Af greinum í síðasta árgangi má t. d. nefna: Maurice Dobb: Fram- leiðsluáætlanir í Sovétríkjunum, Feuer Lewis: Siðfræðikenningarn- ar og marxisminn, E. B. Burgum: Listin á styrjaldartímum o. fl. o. fl. Tímaritið er ódýrt, kostar aðeins dollar á ári. The Great Ofjejisive (Sóknin mikla) heitir ný bók, sem Max Werner hefur skrifað um styrjöldina. Margir munu kannast við höfundinn af fyrri ritum hans eins og t. d. The Military Strength of the Powers o. fl. Er það efalaust mál, að hann er með þeim allra fremstu, sem nú rita um hernað og hernaðarfræði. I bók þessari rekur Werner gang styrjaldarinnar og aðdraganda þess, er nazistar réðust á Sovétríkin. Meginkaflar bókarinnar fjalla unr styrjöldina á austurvígstöðvunum — og herstjórnarlist og hernaðaráætlanir hvers aðila. Spáir hann því, að þessi vetur muni reynast Þjóðverjum þungur í skauti og virðist það ætla að verða °rð að sönnu. Þá ræðir hann um Kyrrahafs- og Atlantshafsstyrj- öldina og að lokum um sameiginlegar og samstilltar hernaðargerðir Bandamanna gegn fasistaríkjunum. Bókin er stórfróðleg og að öllu samanlögðu langbezta bók um styrjöldina, sem ég hef lesið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.