Réttur - 01.01.1943, Side 67
Réttur
71
sýnt fram á tengslin við þróun atvinnulífs og stjórnmála. Er bókin
injög fróðleg, bæði um félagslega og andlega þróun hins forna
Grikklands.
Margarel Schlauch er prófessor í ensku við háskólann í New York
og í ritstjórn Science and Society. Er hún sjálfsagt ýmsum Is-
lendingum kunn, því að bæði hefur hún komið hingað og auk
þess skrifað ágætt rit um íslenzkar riddarasögur, Romance in Ice-
land, og m. a. þýtt Völsungasögu á enska tungu. Hún hefur nýlega
ritað allmikla bók um tungumálin, sem hún nefnir „The Gift of
'Tongues“. Eru þarna raktar ýmsar kenningar um uppruna málsins
og skriftarinnar, skyldleiki hinna ýmsu málaflokka, hljóðfræði og
merkingarfræði. Sérstaklega skemmtilegur er kaflinn um þróun
enskunnar og málið og skáldlistina. Höfundurinn reynir hvarvetna
að sýna fram á tengsl málsins við hina þjóðfélagslegu þróun og er
það í senn skemmtilegt og þarft, því málfræðingar hafa gefið þeim
efnum allt of lítinn gaum. Bókin er alþýðlega rituð og læsileg hverj-
um leikmanni og þó hvergi slakað á vísindalegum kröfum.
Að lokum skal minnzt á eina bók eftir A. Simone, sem ýms-
um mun kunnur af riti hans, J’accuse, sem fjallar um uppgjöf
Frakklands. í þessari nýju bók, sem höfundur nefnir „Men of
Europe“, lýsir hann kynnum sínum af helztu forvígismönnum
evrópskra stjórnmála, rétt áður en núverandi styrjöld brauzt út.
Höfundurinn er mjög víðförull og snjall fréttaritari og kann frá
mörgu að segja. Kemur þarna fram fjölmargt, er gerðist að tjalda-
baki í Evrópu-stjórnmálum á þessum tíma — og er bókin hið
fróðlegasta yfirlit um hinn pólitíska aðdraganda þess hildarleiks,
er nú geisar og jafnframt ógnþrungin ákæra á þá, sem þar bera
ábyrgðina.
Ásgeir Blöndal Magnússon.